Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 3.288 kusu í prófkjöri Samfylk- ingar á Norðurlandi eystra og 2.478 kusu á Norðurlandi vestra Sigbjörn og Kristján leiða listana Úrslit í prófkjörum Samfylkingarinnar í kjör- dæmunum tveimur á Norðurlandi komu s mörgum á óvart. I eystra kjördæminu sigraði Sigbjörn Gunnarsson sveitarstjóri og munaði 10 atkvæðum á honum og Svanfríði Jónas- dóttur alþingismanni. I Norðurlandi vestra var mikil þátttaka. Kristján Möller, alþýðu- flokksmaður á Siglufírði, sigraði og Anna K. Gunnarsdóttir, alþýðubandalagskona á Sauð- árkróki, varð í öðru sæti. Ómar Friðriksson kynnti sér niðurstöður og ræddi við frambjóð- endur í efstu sætunum. SIGBJÖRN Gunnarsson, sveitar- stjóri í Skútustaðahreppi og fyrr- verandi alþingismaður fyrir Alþýðu- flokkinn, varð efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra sem fram fór sl. laugardag. Sigbjörn hlaut 961 atkvæði í fyrsta sætið, aðeins 10 atkvæðum fleira í það sæti en Svanfríður Jónasdóttir alþingismaður, sem einnig bauð sig fram undir merkjum Alþýðuflokks- ins. Hún hlaut 951 atkvæði í fyrsta sætið en færist niður í þriðja sætið vegna prófkjörsreglna um skiptingu Úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra Röðá lista Frambjóðandi Flokkur Lsæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1.-4. sæti 1. 1. Sigbjörn Gunnarsson Alþýðuflokkur 961 1.353 1.765 2.079 3. 2. Svanfríður Jónasdóttir Alþýðuflokkur 951 1.537 1.984 2.316 2. 3. Örlygur Hnefill Jónsson Alþýðubandalag 840 1.400 1.766 2.089 4. 4. Kristín Sigursveinsdóttir Alþýðubandalag 173 940 1.532 2.122 5. 5. Finnur Birgisson Alþýðuflokkur 96 507 1.144 1.882 6. 6. Pétur Bjarnason Alþýðuflokkur 43 391 1.001 1.768 Alls tóku 3.288 þátt í prófkjörinu. Gild atkvæði voru 3.064. Úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar á Norðurlandi vestra f Frambjóðandi Flokkur 1. sæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1 .-4. sæti 1. Kristján Möller Alþýðuflokkur 852 1.018 1.153 1.344 2. Anna Kristín Gunnarsdóttir Alþýðubandalag 810 1.117 1.359 1.600 3. Signý Jóhannesdóttir Alþýðubandalag 89 571 1.060 1.468 4. Jón Bjarnason Alþýðubandalag 580 844 1.038 1.306 5. Jón Sæmundur Sigurjónsson Alþýðuflokkur 26 663 1.020 1.274 6. Steindór Haraldsson Alþýðuflokkur 11 208 614 974 7. Pétur Vilhjálmsson Alþýðubandalag 12 144 504 876 8. Björgvin Þ. Þórhallsson Alþýðubandalag 14 223 434 734 Alls tóku 2.478 þátt i prófkjörinu. Gild atkvæði voru 2.394. sæta milli frambjóðenda af hálfu flokkanna. Svanfríður hlaut hins vegar flest atkvæði í efstu tvö sætin eða 1.537 en Sigbjörn 1.353. Fyrirfram var búist við því að al- þýðuflokksmaður yrði í efsta sæti í prófkjörinu m.a. vegna þess að Al- þýðubandalagið er klofíð í kjör- dæminu eftir að Steingrímur J. Sig- fússon þingmaður sagði sig úr flokknum. Var því talið líklegast að baráttan um forystusætið stæði á milli Svanfríðar og Sigbjörns. Var Svanfríður talin standa sterkar að vígi en hún var kjörin alþingismað- ur fyrir Þjóðvaka 1995 en hafði áður starfað í forystusveit Alþýðubanda- lagsins. Sigbjörn var þingmaður Al- þýðuflokksins 1991-1995. Örlygur í 2. sætið Tveir alþýðubandalagsmenn buðu sig fram í prófkjörinu, Örlyg- ur Hnefill Jónsson, héraðsdómslög- maður á Húsavík, og Kristín Sigur- sveinsdóttir, iðjuþjálfí á Akureyri. Örlygur stefndi á 1. sætið en Kristín á 1.-2. sætið. Örlygur bar sigurorð af Kristínu og hlaut 1.400 atkvæði í sæti 1-2 og hreppir því annað sætið á framboðslista Samfylkingarinnar en Kiistín fékk 940 atkvæði í 1.-2. sæti. Skipar hún 4. sætið á lista samfylkingarinnar. Finnur Birgisson arkitekt varð í fímmta sæti í prófkjörinu en hann stefndi á eitt af efstu sætunum. Hann fékk 1.882 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti. Pétur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Fiskifélags Islands, stefndi einnig á eitt af fjórum efstu sætunum. Hann hlaut 1.768 atkvæði í sæti 1—4 og lenti í 6. sæti á listan- um í prófkjörinu. Finnur og Pétur buðu sig báðir fram undir merkjum Alþýðuflokksins. Mikil þátttaka var í prófkjörinu og voru alls greidd 3.288 atkvæði, þar af 451 utan kjörfundar. Auð eða ógild atkvæði voru 224. Þetta er talsvert meiri þátttaka en í próf- Sigbjörn Gunnarsson Blússandi sigling á Sam- fylkingunni SIGBJÖRN Gunnarsson sveitar- stjóri í Mývatnssveit fór með sigur af hólmi í prófkjöri Samfylkingarinn- ar á Norðurlandi eystra. Hann segir að enginn vafí leiki á því að erfitt sé að etja kappi við sitjandi þingmann. Sigbjöm sagð- ist þakka árang- urinn því, að hann ætti mjög trausta og duglega stuðningsmenn í kjördæminu. „Þetta er í fjórða sinn sem ég tek þátt í prófkjöri og þetta er líka í fjórða sinn sem ég næ því marki sem ég stefni að í prófkjöri,“ segir hann. Sigbjöm segir að þátttakan í próf- kjörinu hafi verið glæsileg. „Hún var mun meiri en ég átti von á. Ég átti þó von á meiri kjörsókn en flestir frambjóðendurnir en hún fór fram úr mínum björtustu vonum,“ segir hann. „Það er blússandi sigling á Sam- fylkingunni. Hún kemur alls staðar fram,“ segir Sigbjörn ennfremur. Hann segir alveg Ijóst að Samfylk- ingin fái að lágmarki kjörna tvo þingmenn á Norðurlandi eystra í vor og þriðja sætið verði baráttusæti. vörulistinn Ármúla 17a, símí 588 1980. Svanfríður Jónasdóttir Urslitin ekki í sam- ræmi við væntingar „NIÐURSTAÐAN kom mér og fleirum á óvart. Hún var ekki í samræmi við þær væntingar og þá bjartsýni sem menn höfðu fyrir mína hönd,“ segir Svanfríð- ur Jónasdóttir um úrslit próf- kjörsins en hún beið lægri hlut fyrir Sigbirni Gunnarssyni í prófkjörinu á Norðurlandi eystra um helgina og skipar þriðja sæti á lista Samfylk- ingarinnar. Svanfríður segir að bæði fólk í kjördæminu og fjölmiðlar hafí gert því skóna að hún myndi bera sigur úr býtum. „Þá gengu menn út frá því að lögmálið um sitjandi þingmann myndi duga mér. Sjálf gekk ég út frá því að verk mín og framganga í pólitíkinni myndi duga mér. Ég ferðaðist mikið um kjördæmið og hitti fólk og öll við- brögð voru á þann veg að ég mátti vera bjartsýn," segir hún. Svanfríður segir að hugsanlega hafi það einnig unnið gegn sér að margir hafi sagt sem svo að hún myndi ná öruggri kosningu og því e.t.v. ekki mætt á kjörstað. Aðspurð hvort hún tæki þriðja sæti á listanum sagði Svanfríður: „Ég tek eftir því að menn horfa ekki allir sömu augum á þessar reglur um bindandi sæti og ég hlýt auðvitað að hlusta á þá sem eru að benda mér á annað en eins og staðan er í dag blasir við að ég fari eftir reglunum eins og ég las þær.“ Mikil þátttaka vegna óánægju Svanfí-íður var spurð um heild- arþátttökuna í prófkjörinu og seg- ist hún hafa orðið þess vör að fólk liti á þátttöku í prófkjöri af þessu tagi sem merki um óánægju með stöðu mála og viðvörun, enda séu þeir margir sem ekki hafí orðið varir við margumtalað góðæri. „Ég tel að þessi mikla þátttaka hafi að hluta til verið tjáning þess- arar óánægju,“ segir hún. Örlygur Hnefíll Jónsson Sáttur og bjartsýnn ÖRLYGUR Hnefill Jónsson, lög- maður á Húsavík, sem bauð sig fram á vegum Alþýðubandalags- ins, verður í öðru sæti á framboðslista Samfylkingar- innar í vor. Hann segist vera mjög sátt- ur við úrslitin á laugardaginn og er bjartsýnn fyrir kosningamar í vor. „Það var að vísu öllum ljóst að ég stefndi á fyrsta sætið en fæ annað sætið. Ég fékk 840 atkvæði í fyrsta sætið og samtals 1.400 at- kvæði í fyrsta og annað sætið,“ segii' hann. Órlygur segir að hlutur alþýðu- bandalagsmanna hefði mátt vera betri í prófkjörinu. „Þátttakan í prófkjörinu var mjög góð. Það ber að þakka fyrir hana,“ sagði Örlyg- ur. Hann sagði ennfremur að í al- þingiskosningunum í vor hlyti Samfylkingin að stefna að því að ná þremur mönnum á þing í kjör- dæminu. Kristján Möller Fullur til- hlökkunar „ÉG ER mjög ánægður með þessa niðurstöðu, fyrir mína hönd og fyrir Samfylkinguna," segir Kristján Möller, verslun- armaður á Siglu- firði, sem hlaut fyrsta sætið á lista Samfylking- arinnar á Norð- urlandi vestra í prófkjörinu á laugardaginn. „Þetta gat far- ið á hvorn veginn sem var. Ég varð þess áskynja síð- ustu dagana fyrir prófkjörið að bar- áttan stæði á milli mín og Önnu Kristínar Gunnarsdóttur. Ég sagði við mína stuðningsmenn að þeir skyldu vera búnir undir að við fengj- um annað sætið og að við mættum vera ánægðir með það. Við hefðum unnið vel og sigurinn yrði þrátt fyrir það mikill. Ég er fullur tilhlökkunar að fara í þessa baráttu,“ segir Krist- ján. Kristján segist líta svo á að bæði hann og Anna Kristín séu í baráttu- sætum í kosningunum í vor. Hann segir að heildarþátttakan í prófkjör- inu hafi verið mjög góð, líkt og í öðr- um prófkjörum sem haldin hafa ver- ið undanfarið. „Ég fann það í seinni viku kosningabaráttunnar að fólk ætlaði sér að taka þátt í prófkjör- inu,“ segir hann. Höfum talað sem ein fylking Aðspurður hvort ójafnvægi á milli Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á listum eftir prófkjör Samfylkingar- innar að undanfórnu kunni að valda ei'fiðleikum svaraði Kristján því að sameiginlegt framboð A-flokkanna á Siglufirði í seinustu sveitarstjómar- kosningum hefði tekist mjög vel. „Við erum hætt að tala um alþýðuflokks- menn og alþýðubandalagsmenn á Siglufirði. Við höfum bara talað sem ein fylking frá seinustu kosningum, sem samherjar og ég get alveg eins verið félagi í Alþýðubandalagsfélag- inu eins og Alþýðuflokksfélaginu og það er styttra en menn halda í að þetta verði sameinað og stofnað eitt apparat. Ég vona að þannig verði því varið annars staðar' á landinu að við munum horfa á þetta sem samherjar. Hér á Siglufirði eru margir minna bestu stuðningsmanna félagar í Al- þýðubandalaginu." Anna Kristín Gunnarsdóttir Verð í bar- áttusætinu ANNA Kristín Gunnarsdóttir, kenn- ari á Sauðárkróki, stefndi á fyrsta sæti í prófkjörinu á Norðurlandi vestra en hafnaði í öðru sæti. Hún segir að það hafi valdið sér von- brigðum. Skýringarnar eru tvær, að mati Önnu. „Siglfirð- ingar sameinuð- ust um einn mann og þar var metþátttaka, ætli hún hafi ekki sleg- ið heimsmet," segir hún. Hin skýi'- ingin er sú að mati Önnu að þrír frambjóðendur á vegum Alþýðu- bandalagsins stefndu á fyrsta sætið en einn Alþýðuflokksmaður og tveir alþýðubandalagsmannanna þriggja eru búsettii' utan Siglufjarðar. Aðspurð segist Anna munu taka annað sætið. „Ég fæ í rauninni mjög góða kosningu og fékk góðan stuðn- ing alls staðar í kjördæminu nema á Siglufirði og Alþýðubandalagið kem- ur glæsilega út úr þessu með mjög mikinn stuðning í fyrsta sætið, þrátt fyrir að atkvæðin hafi dreifst á fjóra,“ segir hún. Bai-áttan í vor snýst um annað sæt- ið að mati Önnu. „Eg verð í baráttu- sætinu og það verður að taka saman höndum um það. Kannski verður það jafnvel auðveldara heldur en ef Krist- ján Möller hefði verið í öðru sæti. Það er hugsanlegt,“ segir hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.