Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 9

Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 9 FRÉTTIR * Islensk málnefnd HÍ falli frá skil- yrði um ensku ÍSLENSK málnefnd hefur farið þess á leit við Pál Skúla- son háskólarektor að skilyrði þess efnis að umsóknum um stöður í HI sé skilað á ensku verði ekki sett í auglýsingar háskólans. Islensk málnefnd i-æddi starfsauglýsingar frá HI á fundi sínum á þriðjudag. Til- efnið voru auglýsingar skól- ans um laust starf prófessors í sýklafræði í læknadeild og lektors- og dósentsstörf í jarð- og landafræðiskor raun- vísindadeildar. í auglýsingun- um var þess krafist að um- sóknum væri skilað á ensku. Óviðeigandi kröfur „Islensk málnefnd telur ekki viðeigandi að krefjast þess að umsóknir um störf við íslenskan háskóla séu á ensku. Málnefndin fer þess vinsam- lega á leit við Háskóla Islands að skilyrði sem þessi verði ekki sett í auglýsingar," segir í bréfi nefndarinnar til rekt- ors. Páll Skúlason háskólarekt- or segir að ekki sé búið að taka afstöðu til erindis nefnd- arinnar en það verði rætt og málið skoðað í kjölfarið. „Rök- in fyrir þessu skilyrði eru ákaflega einföld. I mjög mörgum tilvikum verðum við að fá erlenda aðila í dóm- nefnd. Við þyrftum að kosta miklu til í þýðingar á umsókn- um ef þær væru á íslensku, og sennilega hefur þetta verið gert með þessum hætti í sparnaðarskyni. Ég mun hins vegar láta skoða þetta,“ segir Páll. Tvö skip Þormóðs ramma- Sæbergs eru í slipp Tæplega 50 atvinnulausir í Siglufirði FJÖLDI atvinnulausra í Siglufirði var 47 við síðustu útborgun bóta 12. febrúar síðastliðinn en Þormóður rammi-Sæberg sagði fyrir stuttu upp 30 manns, einkum vegna sam- dráttar í rækjuvinnslu. Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri í Siglu- firði, segir atvinnuástand erfitt í bænum um þessar mundir en ýmis- legt sé í bígerð sem bætt geti úr. Þormóður rammi-Sæberg, sem er stærsti atvinnuveitandinn í Siglu- firði, hefur boðið um 70 manns í rækjuvinnslu íyrirtækisins að vinna til skiptis eina viku og sitja heima hina vikuna og þá á Iaunum. Er þessi tilhögun gerð í samráði við at- vinnuleysistryggingasjóð og segir bæjarstjórinn fólk þannig halda at- vinnuöi’ygginu. Aðeins er unninn átta stunda vinnudagur í rækjunni. Guðmundur segir þetta fyrst og fremst tilkomið vegna samdráttar í rækjuveiðum en þar íyrir utan eru tvö skip fyrirtækisins í slipp. Segir hann ástandið því lagast um leið og þau verða aftur komin í gagnið á næstu vikum. Bæjarstjórinn í Siglu- firði vonast til að atvinna í bænum glæðist þegar líður að vori en verið er m.a. að kanna stofnsetningu kít- inverksmiðju sem veitt gæti 10 til 12 manns atvinnu. Spurning um móttöku flóttamanna Siglufjörður er eitt þriggja bæj- arfélaga sem sótt hafa um að taka á móti flóttamönnum sem væntanleg- ir eru hingað til lands með vorinu. Guðmundur segir bæinn ekki hafa dregið umsóknina til baka en erfitt hafi þó verið að tala fyrir umsókn- inni rétt á meðan atvinna sé með minna móti í bænum. Bæjaryfirvöld hafi hins vegar fullan hug á því að taka á móti flóttamönnum. Verði bærinn ekki fyrir valinu nú muni hann endurnýja umsókn sína vegna komu flóttamanna á næsta ári. Gíæsílegt úrval af jppspfc * v e r s 1 u n , sími 561 5077 Nýjar vor- 09 suman/örur 1 n (ll Skólavörðustíg 4A, sími 551 3069 Skyrtur, bolir og toppar. TE5S Stórar stærðir. V Neðst við Dimhaga, —A síml 562 2230 Aukin ökuréttindi Ökuskóii íslands (Meirapróf) Leigubíll, vörubifreið, hópbifreið og eftirvagn. Ný námskeið hefjast vikulega. Gerið verðsamanburð. Sfmi 568 3841, Dugguvogur2 Aukin ökwéttindi; á rútu, vörubíl og leigubíl Skraðu þia r ÖKU |f)\ JKOMNN V/1 MJODD anæsta , námskeið Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík. UPPLÝSINGAR/BÓKANIR í SÍMA 567-0-300 Allra síðasti dagur lagersölunnar fy&Sý&afhhíldL Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá ki. 10.00—15.00. Cinde^ella SKÓM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.