Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Námskeið og fyrirlestur hjá MHÍ GRAFÍK II er námskeið hjá MHÍ þar sem kenndar eru aðferðir í málgrafík sem eru framkvæmdar án sýru. Kennari er Ríkharður Valtin- gojer myndlistarmaður. Kennt verð- ur í grafíkdeild MHÍ í Skipholti 1 og hefst námskeiðið 22. febrúar. Helga Pálína Brynjólfsdóttir og Ösp Karlsdóttir halda námskeið um að vinnu með litaætingu og hvítæt> ingu á sellulósa- og silkiefni og bruna á blönduðu efni. Þær halda ennfrem- ur fyrirlestra um efnisfræði textílefna og litun. Kennt verður á textílverk- stæði, Vitástíg 3, og hefst námskeiðið fímmtudaginn 22. febrúar. Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistar- maður kynnir verk sín í Barmahlíð, fyrirlestrasal MHÍ í Skipholti, mið- vikudaginn 17. febrúar kl. 12.30. ---------------------- Síðustu sýningar Borgarleikhúsið Mávahlátur SÍÐASTA sýning á Mávahlátri eftir Kristínu Marju Baldursdóttur verð- ur fimmtudaginn 18. febrúar. Leik- gerð er eftir Jón Hjartarson. LEIKLIST |{æjarleikhúsið, Mosfcllsbæ JARÐARFÖR ÖMMU SYLVÍU Leikfélag Mosfellssveitar. Unnið í spuna leikara í Soho Jewish Theatre i New York. Þýtt af Gunnhildi Sig- urðardóttur, Guðnýju Maríu Jóns- dóttur og Maríu Guðmundsdóttur, með aðstoð Alizu Kjartanson. Leik- stjóri: Guðný María Jónsdóttir. Að- stoðarleikstjóri: Bóel Hallgrímsdótt- ir. Leikendur: Vilhjálmur Gislason, Sigurður Jóhannesson, Lilja Huga- dóttir, Valgerður Arnardóttir, Harpa Svavarsdóttir, Örn Ragnarsson, Guð- rún Esther Árnadóttir, Gunnar H. Gunnarsson, Gunnhildur Sigurðar- dóttir, Kristvin Guðjónsson, María Guðmundsdóttir, Sigrún Þórðardótt- ir, Hjalti S. Kristjánsson, Böðvar Sveinsson, Hrefna Vestmann, Hilmar Þór Hilmarsson, Gunnar Kristleifs- son, Þórdís Una Gunnarsdóttir, Marta Hauksdóttir, Bogi Eggertsson, Snæbjörn Sigurðarson og áhorfend- ur. Ljósahönnnun: Alfreð Sturla Böðvarsson. Hljóð- og ljósastjórn: Guðmundur Atli Jónsson. Frumsýnt föstudaginn 12. febrúar 1999. ÞEIR sem eru virkir félagar í einhvers konar áhugasamtökum kannast án efa við húsnæðisvand- ann sem þeim vill oft fylgja. Látin Meðlimir Leikfélags Mosfellssveit- ar ættu a.m.k. að kannast við hann. Bæjarleikhúsinu var sökkt í sæ ‘97, því breytt í hárgreiðslustofu ‘98 og í ár er þar útfararþjónusta gyðinga. Útfararþjónustan sú er rekin af mæðginunum Vlad og Helgu Hel- senrott (Kristvin Guðjónsson og María Guðmundsdóttir). Vlad hefur reyndar áform um að breyta útfar- arstofunni í erótískan hommadans- klúbb, þótt útlit hans henti núver- andi starfi afar vel. Helga fær þá væntanlega frí, starfíð trekkir taug- ar hennar ansi mikið. Minningarathöfnin var um ömmu Sylvíu - sú látna var amma og hét Sylvía, hún var ekki amma neinnar Sylvíu. Kista hennar fór reyndar á rangan stað svo ættingjar og vinir urðu að bíða dálitla stund eftir henni. En það var allt í góðu lagi, sá tími var vel nýttur til kynninga og kveðja fólks í millum. Loks kom þó kistan og rabbí Wol- fe (Snæbjörn Sigurðarson) mælti nokkur blessunarorð, í fermingar- jakkanum sínum. Svo minntust nokkrir meðlimir úr fjölskyldunni hinnar látnu. Var það lítillát, kær- er... leiksrík og samheldin fjölskylda með afbrigðum. Bróðir Sylvíu, Dave (Vilhjálmur Gíslason), sem flest borgaði, þ.m.t. útförina, minntist ekkert á það, nema í mesta lagi í þriðja hvert skipti sem hann opnaði munninn. Gary dóttursonur hennar (Sigurður Jóhannesson) var heldur ekkert svo voðalega mikið að hamra stöðugt á að það var hann sem ann- aðist ömmu sína mest af öllum. Hann flutti líka frumsamið lag, en hann var m.a. óuppgötvaður söngv- ari. An þess að ég sé nú nokkuð að setja út á söng hans þá verður hann án efa „óuppgötvaður" töluvert lengi enn. Fleiri mættu með skemmtiatriði, s.s. Melissa (Lilja Hugadóttir) frænka Garys. Hún spilaði á flautu, eftir langan inngang á sambandi sínu og ömmu sinnar. Eg kom laginu reyndar ekki fyrir mig - ef hægt er að kalla þrjá eða fjóra blokkflaututóna lag - en það skipti ekki máli, það var hugurinn sem gilti. Þriðja barnabarnið, Skygirl gjörningalistamaður (Val- gerður Arnardóttir), leyfði gestum að njóta hæfileika sinna, með afar framúrstefnulegum leikþætti sem hófst á Also sprach Zarathustra eft- ir Strauss, en það lag var notað við upphafsatriði kvikmyndarinnar 2001. Það hefði kannski ekki veitt af að fá eina ferstrenda steinsúlu í hlutföllunum 1:4:9 líka. Þá kynni að hafa kviknað eitthvert vitsmunalíf meðal fjölskyldumeðlimanna. Örlítið Elektru-/Ödípusarstef í enda sýningar tengdi svo verkið við leikbókmenntimar. Ahorfendur eru látnir taka nokkurn þátt í sýningunni og ræður „meðvirkni“ þeirra miklu um hvern- ig sýning tekst. Auk þess sitja nokkrar persónur verksins meðal áhorfenda og skapar það nálægð. Sýningin byrjaði um leið og komið var inn í Bæjarleikhúsið; fólk kaup- ir ekki miða heldur er látið gefa í minningarsjóð og karlar eru látnir fá litlar gyðingahúfur sem þeir bera meðan á athöfninni stendur. I lok sýningar kvaddi Heiga Helsenrott gesti (ekki María Hauksdóttir áhorfendur), full samúðar, með handabandi og persónur héldu kvabbi sínu og pexi áfram. Að þýða og „flytja inn“ tiltölulega óþekkt leikverk er áhættusamt og djarfhuga uppátæki. En á þeirri áhættu og djarfhug hafði Leikfélag Mosfellssveitar vel efni á. Endilega; meira af þessu og til hamingju. Heimir Viðarsson Þétt og persónulegt Morgunblaðið/Jón Svavarsson UNNUR Sveinbjarnardóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Einar Jóhannesson á æfíngu í Salnum. Kammertónleikar í Salnum LISTnWS Borgarleikliúsið í s I c n s k i dansfIokkurinn FLAT SPACE MOVING: RUIHORTA Önnur sýning íslenska dansflokksins á þremur dansverkum fór fram síð- astliðinn fimmtudag. Á þeirri sýn- ingu voru mannabreytingar og því ástæða til að fjalla um dansverkin á nýjan leik. Dansarar: Chameron Corbett, Chad Adam Bantner, Hildur Óttarsdóttir, Julia Gold, Jóhann Freyr Björgvinsson, Katrín Ingva- ddttir, Katrín Á. Johnson, Lára Stef- ánsdóttir. Tónlist: Philippe Deschapper, Ground zero, Beautiful people, Yens & Yens, Norbert Zacharias. Lýsing: Rui Horta, Elfar Bjarnason. Sviðsmynd: Rui Horta. Búningar: Kathy Brunner. í VERKI Portúgalans Rui Horta „Flat space moving“ leggur notkun á rými, lýsingu og tónlist línurnar. Breyting var frá frum- sýningu á stuttri nektarsenu í miðju verkinu sem gekk betur upp í þessari sýningu. Dansarinn klæddi sig ekki úr fötunum heldur ögraði hann mótdönsurunum með því að ætla sér það en var stoppað- ur af. Þetta virkaði meira spenn- andi nú en á frumsýningu þar sem þessi sami kafli hvarf inn í verkið og þjónaði þar af leiðandi ekki þeim tilgangi að ganga fram af. Julia Gold dansaði hlutverk Katrínar Á. Johnson. Hún hefur eins og Katrín gott vald á dansgerð Rui Horta. Þær hafa eiginleika sem er nauðsynlegur góðum dönsui'um en það er að gæða hreyfingamar lífi á persónulegan hátt. Chameron Corbett skapaði trúverðuga persónu utangarðs- manns. Samskipti hans við hópinn voru nánari og skýrari nú en á frumsýningunni. Dansararnir voru ágætlega samstilltir og réðu vel við dansgerðina. DIVING: RUI HORTA Dansarar: Chameron Corbett, Chad Adam Bantner, Birgitte Heide, Guð- mundur Helgason, Julia Gold, Jdhann Freyr Björgvinsson, Katrín Á. John- son, Lára Stefánsdóttir. Tdnlist: Etienne Schwarcz. Lýsing: Rui Hoi-ta, Elfar Bjarnason. Sviðsmynd: Rui Horta. Búningar: Kathy Brunner. Aðstoðarmaður höfundar: Jan Kodet. í „DIVING" fer Chad Adam Bantner með hlutverk sögumanns. Lýsing, rennandi vatn og hljóð í líkingu við skvaldur sundlaugar- gesta mynda umgjörð verksins. Chad Adam Bantner tókst vel upp í hlutverki sögumanns. Óttinn og ákefðin í texta hans skapaði spennu sem var í andstæðu við ör- uggar hreyfingar dansaranna. Mannabreytingar í verkinu skiptu ekki sköpum þó áferðin yrði önnur með nýju fólki. Listdans er lifandi list af holdi og blóði. Engar tvær sýningar eru eins og alltaf verður blæbrigða- munur á milli sýninga. Þannig var „Flat space moving“ þéttara og persónulegra í samspili dansar- anna og „Kæra Lóló“ léttara yfir- bragðs og túlkunin skýrari. And- rúmsloft verkanna var afslappað- ara á 2. sýningu. 3. sýning er sunnudaginn 21. febrúar. KÆRA LÓLÓ: HLÍF SVAVARSDÓTTIR Dansarar: Chameron Corbett, Chad Adam Bantner, Guðmundur Helga- son, Hildur Óttarsddttir, Julia Gold, Jdhann Freyr Björgvinsson, Katrín Á. Johnson, Lára Stefánsddttir. Tdn- list: Jean-Philippe Rameau. Lýsing: Elfar Bjarnasson. Sviðsmynd: Krist- ján Jóhannsson. Búningar: Hjördís Sigurbjörnsdóttir. Dramatúrg: Hafliði Arngrímsson. DANSVERK Hlífar Svavarsdótt- ur „Kæra Lóló“ er tileinkað móður höfundar. I því ber fyrir augu minningarbrot liðinnar tíðar. Ekki eru mannabreytingar í þessu verki. Öryggi í túlkun, leikgleði og létt- leiki var meiri en á frumsýning- unni. Tvídans Láru Stefánsdóttur og Chad Adam Bantner var átaka- lítill og fallegur áhorfs. Sérstök hreyfimýkt Hildar Óttarsdóttur var athyglisverð. Ljósagrindur hliðarsviðs trufluðu hið rólega og yfirvegaða andrúmsloft og áttu ekki við ljóðrænan dansinn og ann- ars rómantíska lýsinguna. Lilja Ivarsdóttir KAMMERTÓNLEIKAR verða í Salnum í Kópavogi í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Unnur Sveinbjarnardóttir, víóla, Einar Jóhannesson, klarinett, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, leika verk eftir J. Brahms, R. Schumann, Þorkel Sigurbjörns- NOBELSSKALDIÐ Seamus Hean- ey virðist líklegastur til að verða beðinn um að verða næsta lárviðar- skáld Breta, ef marka má fréttir breskra fjölmiðla að undanfórnu. Myndi Heaney þá feta í fótspor skálda eins og Wordsworths, Tenny- sons og Teds Hughes, sem lést í október á síðasta ári. Engum sögum fer að visu af áhuga Heaneys á starfínu, en Heaney er norður-írskur kaþólikki og þykir nokkuð þjóðemissinnaður. I ljóða- gerð sinni leitar hann t.d. iðulega fanga í sögu og menningu írlands, að ekki sé minnst á vargöldina á N-ír- landi undanfarin þrjátíu ár. Hefur Heaney ekki hingað til lýst mikilli aðdáun á konungsfjölskyldunni bresku. Þótt nokkuð komi því á óvart að Heaney skuli nefndur í þessu sam- son og M. Bruch. 30 ár eru nú liðin siðan Unnur Sveinbjarnardóttir og Einar Jó- hannesson luku einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík. Unnur hefur komið fram á tónlistarhátíðum víða um heim og m.a. leikið einleik með Sinfón- bandi segja heimildarmenn The Gu- ardian að menn telji einfaldlega að velja eigi besta ljóðskáldið. Sé þetta haft til viðmiðunar standi Heaney óneitanlega skör framar en þau skáld önnur sem nefnd hafa verið til sögunnar, en Heaney hlaut bók- menntaverðlaun Nóbels árið 1995. Óttast menn hins vegar að Heaney hafni nafnbótinni þar sem hann myndi vart hafa áhuga á að hafa í há- vegum helstu stofnanir bresks sam- félags, eins og t.d. konungdæmisins, en það er meðal þess sem felst í starfí láiwiðarskálds. Harrison hafnar nafnbótinni á umdeildan hátt Gert er ráð fyrir því að nýtt lár- viðarskáld verði útnefnt á næstu vikum og hafa, auk Heaneys, þrjú skáld helst verið nefnd til sögunnar íuhljómsveit Islands. Einar Jó- hannesson hefur gegnt stöðu 1. klarinettleikara í Sinfóníuhljóm- sveit Islands síðan 1981. Anna Guðný Guðmundsdóttir er laus- ráðin við Sinfóníuhljómsveit Is- lands og kennir við Tónlistar- skólann í Reykjavík. sem arftakar Teds Hughes. Er þar um að ræða þau Tony Harrison, Andrew Motion og Carol Ann Duffy. Þykh- Motion koma einna helst til greina, verði Heaney ekki fyrir val- inu, eða ef hann hafnar nafnbótinni, ekki síst eftii' að The Guai-dian birti ljóð eftir Harrison þai' sem hann lýs- ir því mjög skorinort yfir að hann kæri sig alls ekkert um starfið. Kveðst Harrison t.a.m. engan áhuga hafa á því að fjalla um ómerkilega at- burði í ævi kóngafólks og vill miklu fremur „njóta frelsis til að segja „farðu til fjandans" Tony Blair“. Greip Harrison einnig tækifærið og gerði lítið úr samkeppnisaðila sín- um, Andrew Motion. Sakaði hann Motion um undh’lægjuhátt og var þar að vísa í ljóð sem Motion skrifaði til heiðurs Díönu prinsessu, stuttu eftir andlát hennar. Seamus Heaney næsta lárviðarskáld Breta? London. The Daily Telegraph.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.