Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 55
FRÉTTIR
Fræðslufundur SÁÁ
Ætlað foreldr-
um ungs fólks
í vímuefna-
vanda
SÁA efnii- til fræðslufundar fyrú’
foreldra ungs fólks í vímuefnavanda í
dag kl. 19.30 í göngudeild SÁÁ, Síðu-
múla 3-5.
I fréttatilkynningu frá SÁA segir
að á fundinum verði rætt um þá
meðferð, sem ungu fólki í vímuefna-
vanda er veitt, hvaða hugsun búi að
baki henni og hvernig unga fólkið
bregðist við. Foreldrum verðui'
einnig boðið að taka til máls á fund-
inum og fá nánari skýringar.
Frummælendur verða Þórarinn
Tyi'fmgsson, yfírlæknir á sjúkrahús-
inu Vogi, Hjalti Bjömsson, dag-
skrái-stjóri göngudeildar SÁÁ og
Halldóra Jónasdóttir, ráðgjafí.
Flækjufræði
í sagnfræði
AXEL Kristinsson sagnfræðingur
flytur fyrirlestur í boði Sagnfræð-
ingafélags íslands á 2. hæð í Þjóðar-
bókhlöðunni í dag, þriðjudag, kl.
12.05-13. Fyrirlesturinn nefnir hann
„Félagssögu og flækjufræði".
Fyi-h'lesturinn er hluti af fyrir-
lestraröð Sagnfræðingafélagsins
sem nefnd hefur verið „Hvað er fé-
lagssaga?“ í fréttatilkynningu segir
að í fyrh'lestri sínum leggi Áxel mat
á möguleika sagnfræðinga tO að nota
svonefnd „flókin kerfi“ við gi'einingu
á sagnfræðilegum vandamálum. Axel
hefur á undanförnum árum unnið að
rannsóknum á íslenski'i yfírstétt á
miðöldum og er með doktorsritgerð í
smíðum við Háskóla íslands. Axel
hefur kennt við sagnfræðiskor há-
skólans og er meðlimur Reykjavík-
urakademíunnar.
Ályktun Félags
dönskukennara
Segja vara-
samt að stytta
námstíma
FÉLAG dönskukennara hélt á laug-
ardag aðalfund og segir í fréttatil-
kynningu að miklar umræður hafi
verið um nýja námskrá og hugsan-
legar breytingar á skipulagi kennslu
með tilkynningu hennar. Á fundinum
var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„I nýrri námskrá fyrir framhalds-
skóla er gert ráð fyrir að kenndar
séu 6 einingar í dönsku á náttúru-
fræði- og félagsfræðibraut. Það
mun því verða gerlegt að skipu-
leggja námið þannig að dönskunámi
á þessum brautum ljúki eftir fyrsta
árið. Þetta skipulag telur fundurinn
mjög varhugavert þar sem tungu-
málanám sé flókið ferli og tíminn
vinni með nemendum. Auk þess vill
fundurinn benda á að þegar hefur
verið ákveðið að þjappa kennslunni í
grunnskóla á færri ár og heildar-
námstíminn hefur þar með verið
styttur."
Eldri borgarar
í Garðabæ
Kirkjuhvoll
opinn daglega
SÓKNARNEFND Garðasóknar
hefur í samvinnu við Félag eldri
borgara í Garðabæ ákveðið að hafa
safnaðarheimilið, Kirkjuhvol, opið
fyrir starfsemi eldri borgara í bæjar-
félaginu og bjóða jafnframt upp á
margs konar afþreyingu.
Þarna er um að ræða aðstöðu fyrir
boccia-spil, pútt, brids, vist og
lomber. Dagblöðin liggja frammi og
heitt verður á könnunni.
Opið er mánudaga til fóstudaga kl.
13-15. Ennfremur er sérstakur tími
fyrir boccia-spil með leiðbeinanda
alla fimmtudaga kl. 10-12.
Umhverfisvefur opnaður
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverfisráðherra hefur opnað um-
hverfisvef sem ætlað er að verða
upplýsingamiðstöð um umhverfis-
mál á Netinu fyrir skólafólk og al-
menning.
Umhverfisvefurinn var settur
upp að tilhlutan umhveifisfræðslu-
ráðs, sem umhverfisráðherra setti
á fót árið 1998 til að efla og sam-
ræma starf að umhverfísfræðslu.
Á vefnum er að fínna slóðir á alls
85 vefsíður, sem flokkaðar ein eft-
ir efni í 32 flokka. Vefurinn er
gagnvirkur að því leyti að notend-
ur geta skráð nýjar síður á hann.
Slóð umhverfisvefsins er
http://www.umvefur.is og annað-
ist Islenska menntanetið tækni-
vinnu og uppsetningu hans. Vefur-
inn byggist á íslenskun á erlendum
hugbúnaði.
Innskriftarmið-
stöð stofnuð á
Landspítala
Búast við átta
til tíu milljóna
kr. sparnaði
Á LANDSPÍTALANUM hefur ver-
ið opnuð svonefnd innskriftannið-
stöð fyrir sjúklinga, sem koma í fyr-
irfram ákveðnar aðgerðir eða rann-
sóknir. I fréttatilkynningu segir að
tilgangurinn sé að bæta þjónustu við
sjúklinga með því að stytta biðtíma
eftir rannsóknum og viðtölum við
lækna og sérfræðinga. Legudögum á
sjúkrahúsinu muni fækka allnokkuð
með tilkomu miðstöðvarinnar og
gera megi ráð fyrir að vegna færri
legudaga muni sparast milli átta og
tíu milljónir króna á ári.
Hjúkrunarfræðingar og svæfinga-
læknar stai'fa við innskriftarmið-
stöðina og er þeirra meginstarf að
undirbúa og fræða sjúklinga um
meðferð og hvers þeir megi vænta
við innlögn á sjúkrahúsið. I tilkynn-
ingunni segir að gera eigi aðdrag-
anda innlagnar sjúklingum sem
þægilegasta með því að tryggja þeim
skilvirka þjónustu og sem skemmsta
bið. Sjúklingar hafi iðulega þurft að
bíða langtímum saman eftir viðtali
við lækni og niðurstöðum rannsókna.
Vitnað er til þess að athugun frá
1997 bendi til þess að um 2.400 sjúk-
lingar, sem leituðu aðstoðar á Land-
spítalanum, gætu nýtt sér þjónustu
innskriftarmiðstöðvarinnar. Saman-
lagt hafi þessir sjúklingar legið á
sjúkrahúsinu samtals í um 3.500
daga fyrir aðgerð og áætlað hafi ver-
ið að sex til sjö rúm hafi verið teppt
vegna sjúklinga, sem biðu aðgerða
og hefðu getað nýtt sér þjónustu inn-
skriftarmiðstöðvarinnar.
Segir að fyrstu vikurnar verði
þjónusta miðstöðvarinnar ókeypis en
frá miðju ári sé miðað við að inn-
heimt verði gjald með sama hætti og
á göngudeildum.
*
Arshátíð og
málþing á af-
mæli Orators
ORATOR, félag laganema við Há-
skóla Islands, fagnar 70 ára afmæli
sínu um þessar mundir. Sérstök há-
tíðarhöld verða á árshátíð félagsins í
Perlunni í dag, þriðjudaginn 16.
febrúar, en þann dag árið 1920 kvað
Hæsth’éttur íslands upp sína fyrstu
dóma.
I tilefni afmælisins mun Orator
einnig standa fyrir málþingi í Nor-
ræna húsinu í dag, 16. febrúar, kl.
11. Málþingið er öllum opið. Yfir-
skrift málþingsins er: Samspil lög-
gjafarvalds og dómsvalds.
Erindi flytja: Þorsteinn Pálsson,
dómsmálaráðherra „Um löggjafar-
valdið og stöðu þess gagnvart dóms-
valdinu“. Sigurður Líndal, prófessor,
„Hlutverk dómstóla við mótun rétt-
arins". Valtýr Sigurðsson, héraðs-
dómari, „Samspil löggjafai'- og
dómsvalds út frá sjónarhóli dómara“
og Jón Steinar Gunnlaugsson hrl,
„Setja dómstólar lög?“.
Efth' framsöguerindi verða um-
ræður. Fundarstjóri er Davíð Þór
Björgvinsson, prófessor.
LEIÐRÉTT
Nafn leikara vantaði
í UMFJÖLLUN um sýningu á
þremur leikþáttum eftir Bertold
Brecht í Skemmtihúsinu í blaðinu á
sunnudaginn var láðist að nefna einn
leikarann sem fram kemur í sýning-
unni. Það er Guðlaug María Bjarna-
dóttir sem fer með stórt hlutverk í
þættinum Gyðingakonunni. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Nýir eigendur að
Genghis Khan
NÝIR eigendur hafa tekið við
rekstri veitingastaðarins Genghis
Khan við Grensásveg 7.1 fréttatil-
kynningu segir að nýju eigendurn-
ir, Arna Rún Guðmundsdóttir og
Anna Karen Ingibjargardóttir,
leggi áherslu á góða þjónustu,
hreinlæti og gott hráefni. Arna
Rún og Anna Karen eru hér í veit-
ingasal Genghis Khan ásamt
kokkinum Lee.
Eitt banaslys
í umferðinni
Reykjavík helgina 12. til 15. febrúar 1999.
UM HELGINA, frá fóstudags-
morgni til mánudagsmorguns,
urðu 55 umferðaróhöpp þar sem
eignatjón varð, 16 vora granaðir
um ölvun við akstur, 33 um of
hraðan akstur, átta sinntu ekki
stöðvunarskyldu og jafnmargir
óku gegn rauðu umferðarljósi.
Lögreglan hefur undanfarna
daga kannað sérstaklega hvort
menn notuðu öryggisbelti og
annan slíkan búnað í bifreiðum.
Um kl. eitt aðfaranótt sunnu-
dags var bifreið ekið á ljósastaur
á Bústaðavegi/Sogavegi. Öku-
maður reyndist látinn við komu
á slysadeild. Ymislegt bendir til
að skyndileg veikindi ökumanns
hafi valdið árekstrinum. Farþegi
fékk skurð á hnakka og heila-
hristing og var einnig fluttur á
slysadeild.
Á 103 km hraða með 11 ára
farþega án beltis
Á sunnudag var bifreið stöðv-
uð sem ekið var á 103 km hraða
á Suðurlandsvegi. I bifreiðinni
var einum farþega of mikið og 11
ára farþegi var ekki í belti. Ekki
þarf að fara mörgum orðum um
það hvað slíkt háttalag er víta-
vert.
Á fóstudagsmorgun var til-
kynnt um innbrot í fiskbúð í
Vogunum. Smávegis af fiski var
stolið og gamalli myndavél. Upp
úr hádeginu hafði piltur komið
inn í fyrirtæki í austurborginni
til að sækja um vinnu og hafði
fengið að fara inn á salerni. Þar
nálægt vora fót starfsmanna og
hurfu úr þeim peningar, ávís-
anahefti og greiðslukort. Um
svipað leyti komu tveir piltar inn
í annað fyrirtæki á sömu slóðum
og þóttust vera að sækja um
vinnu. Þeir fóra í yfírhafnir
starfsmanna og stálu lyklakippu
og síðan bifreið af bílastæði. Það
fréttist af piltunum á bifreiðinni
í Hveragerði en á laugardag
vora tveir piltar handteknir í
Reykjavík granaðir um þessa
þjófnaði og bifreiðin fannst
nokkra síðar. Þá var brotist inn í
spilakassa á BSI og stolið tals-
verðu af peningum.
Rán í 11-11 verslun
Tilkynnt var á föstudagskvöld
klukkan 22 að grímuklæddur
maður með stóran hníf í hendi
hafi komið inn í 11-11 verslunina
við Norðurbrún, ógnað starfs-
fólki og krafist peninga. Hann
fékk um 100.000 kr. í peningum
og gekk á brott. Strax var hafín
víðtæk leit sem lauk með því að
grunaður maður var handtekinn í
íbúð í nágrenninu og þar fundust
peningarnir og munir sem
tengdu hann við ránið.
A fostudagskvöld voru tvær
ungar stúlkur á göngu á Skóla-
vörðustíg og skemmdu þai'
nokkrar bifreiðir. Stúlkurnar
voru handteknar.
Mikill erili vegna ölvunar á
laugardagskvöld
Mikil ölvun var í miðborginni
eftir miðnættið aðfaranótt
sunnudags og mikill erill hjá lög-
reglu þegar flest fólk var þar en
það var mest á aldrinum 16-25
ára og einnig var nokkuð af
börnum undir 16 ái'a aldri. Sex
manns voru fluttir í fangamót-
töku og fímm á slysadeild eftir
átök milli manna. Nokkur ung-
menni vora flutt í athvarf og
höfð afskipti af öðram sem vora
með áfengi og undir þeim aldri.
Um þrjúleytið kom leigubif-
reiðarstjóri á lögreglustöðina og
vildi losna við farþega úr bifreið
sinni. Á meðan stal farþeginn
bifreiðinni, ók á bifreið á Snorra-
braut og síðan útaf á Bústaða-
vegi við Valsheimilið þar sem
hann var handtekinn. Áður en
þetta gerðist hafði sami maður
ráðist á annan mann á veitinga-
stað. Sá síðarnefndi fór úr axlar-
lið og var fluttur á slysadeild.
Um svipað leyti var tilkynnt um
innbrot í veitingastað í austur-
borginni en þar var stolið pen-
ingum og vindlingum.
Réðst á vin sinn
og lögreglumenn
Ölvaður maður ærðist í heima-
húsi við Grensásveg. Hann réðst
á vin sinn gestkomandi og eftir
að vinurinn fór gekk sá ölvaði
berserksgang og braut og braml-
aði í íbúðinni. Hann réðst einnig
á lögreglumenn sem komu á
staðinn og fékk eftir það gistingu
í fangageymslu. Um morguninn
var tilkynnt um innbrot í bifreið í
Seljahverfi. Stolið var hljóm-
tækjum, geisladiskum og radar-
vara. Þá var einnig tilkynnt um
innbrot í bílskúr við Bergstaða-
stræti þar sem stolið var tals-
verðu af verkfæram. Bifreið valt
á Bláfjallavegi um morguninn en
enginn meiddist. Um hádegið
var tilkynnt um innbrot í bifreið í
Seljahverfi þar sem stolið var
hljómtækjum og radarvara. Þá
var farið inn í ólæsta bifreið í
vesturbænum og stolið útvarpi
og fleira. Um hádegisbilið þurfti
ökumaður að hemla snögglega á
Reykjanesbraut við Staldrið
vegna bifreiðar sem ekið var í
veg fyrir hann. Næstu bifreið
íyrh’ aftan tókst ekki að stöðva
og lenti hún aftan á þeirri fyrri.
Þriðju bifreiðina tókst að stöðva
en ekki næstu tvær og varð þar
þriggja bíla árekstur.
Nokkuð var af fólki í rniðborg-
inni eftir að veitingastaðir lok-
uðu aðfaranótt sunnudags og
flest á aldrinum 18-25 ára. Ölv-
un var miðlungi mikil en börn
undir 16 ára ekki áberandi og
þurfti ekki að hafa afskipti af
neinu þeirra. Handtaka þuifti 6
manns vegna ölvunar eða
óspekta og einn var fluttur á
slysadeild.
Pissaði út um bílglugga
Aðfaranótt sunnudags hafði
lögreglan afskipti af farþegum í
bifreið á Kringlumýrarbraut en
einn þeirra var hálfur út um
gluggann að kasta af sér vatni.
Farþegamir tóku illa afskiptum
lögreglu og var þeim öllum vísað
út úr bifreiðinni að beiðni öku-
manns. Lögreglan þurfti að hafa
afskipti af fleiri mönnum þessa
nótt er þeir köstuðu af sér vatni
annars staðar en á salernum.
Tilkynnt var um þjófnað á verð-
mætum tölvubúnaði úr íbúð í
Fellahverfi um morguninn.
Gestkomandi eru granaðir um
þjófnaðinn. Eftir hádegið var
bifreið stolið í Hátúni. Ókumað-
ur var að afferma bifreiðina og
hafði skilið kveikjuláslyklana
eftir í bifreiðinni. Um kvöldið
var tilkynnt um þjófnað á skart-
gripum úr íbúð í Grafarvogi.