Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ! málar á akrýlplötur og myndir hennar eru ljóðrænar afstraksjónir sem ná því að vera í senn fínlegar og áhrifamiklar. Verk hinna verð- launahafanna, Ulriks Samuelsson og Thorstens Andersson, eru langt í frá af sama styrkleika og í raun er ekki hægt að segja að þau skari framúr verkum annarra listamanna á sýningunni svo ekki er vel ljóst af hverju þeir hafa verið valdir um- fram hina og veitir rökstuðningur dómnefndar litla vísbendingu um það. Á sýningum af þessu tagi eru alltaf nokkrir annmarkar hversu rausnarlega sem að þeim er staðið. Þegar tekið er fyrir stórt viðfangs- efni, leitað tilnefninga frá stórum hópi sérfræðinga og verk síðan val- in af dómnefnd verður ekki hjá því komist að niðurstaðan verði nokk- uð ruglingsleg. Vonandi munu að- standendur Carnegie í framtíðinni reyna að þrengja þema sýningar- innar, en hér hefur það líkast til verið haft svo vítt til að gefa fyrstu sýningunni sem víðtækasta skír- skotun. En hvað sem slíkum at- hugasemdum líður sést hér svo ekki verður um villst að málaralist- in lifir góðu lífí á Norðurlöndum þrátt fyrir allar hrakspár. Islend- ingar geta líka verið stoltir af fram- lagi sinna listamanna sem standast fyllilega samanburð við það besta sem á sýningunni er frá öðrum þjóðum. Að lokum ber okkur að þakka þetta framtak sænska fjár- festingarfyrirtækisins enda er það alltaf fagnaðarefni þegar einkafyr- irtæki leggja svo veglegt framlag til menningarinnar. Carnegie-verð- launin eiga eflaust eftir að verða mikil lyftistöng fyrh' noirænt lista- líf og stuðla að kynningu og eflingu norrænnar listar. Jón Proppé VERK eftir Ninu Roos frá Finnlandi sem er einn merkasti listamaðurinn á sýn- ingunni í Listasafni Islands, en hún hlaut önnur verðlaun í samkeppni Carnegie. ‘r',- Norræn málaralist MYNPLIST Listasafn íslands MÁLVERK ÝMSIR Listasafn íslands er opið alla daga nema inánudaga frá kl. 10 til 17. Að- gangseyrir kr. 300. Sýningin stendur til 21. febrúar. í LISTASAFNI íslands má nú sjá umfangsmikla sýningu á verk- um tuttugu og fjöguiTa noirænna málara. Þar er um að ræða sýning- arverkefni sem efnt hefur verið til af sænska fjárfestingarfyrirtækinu Camegie og hefur sýningin þegar farið um ÖII hin Norðurlöndin. Camegie mun vera einn stærsti fjárfestingarbanki á Norðurlöndum og hafa yfírmenn hans nú ákveðið að veita fjármuni til árlegrar list- sýningar og tilheyrandi verðlauna- veitingar til listamanna. Myndar- lega er að verkinu staðið og má til dæmis nefna að verðlaunaféð nem- ur alls 1.050.000 sænskum krónum, en það skiptist milli fjöguma lista- manna og fær sá sem fyrstu verð- laun hlýtur hálfa milljón í sinn hlut. Fimm manna dómnefnd hafði umsjón með vali listamanna á sýn- inguna og í henni sat meðal ann- arra Bera Nordal íyrrverandi for- stöðumaður Listasafns Islands sem nú stjómar Malmö Konsthall. Verk þriggja íslenskra listamanna em á sýningunni, þeirra Georgs Guðna, Birgis Andréssonar og Kristjáns Davíðssonar. Fyrstu verðlaun þetta árið komu í hlut hins sænska Ulriks Samuelsson, Nina Roos frá Finnlandi hlaut önnur verðlaun og Torsten Andersson þau þriðju. Þá var Finnanum Jussi Niva veittur sérstakur styrkur dómnefndar. Það leynir sér ekki að mikið er í þessa sýningu lagt og að aðstand- endur hennar hafa ákveðið að ekk- ert yrði til sparað að gera hana sem glæsilegasta og vanda umgjörð hennar eins vel og hægt er. Með sýningunni fylgir stór innbundin sýningarskrá með litprentuðum myndum af verkum allra lista- mannanna á sýningunni. Til að af- henda verðlaunin og opna sýning- una var fengin Vigdís Finnboga- dóttir fyrrverandi forseti. Sýningin ber nafn fyrirtækisins sem að henni stendur - Carnegie Ai't, Award - en að öðra leyti er því ekki flaggað svo að áhorfendur verði varir við. Þegar sýningin er skoðuð verður að hafa í huga að henni er ætlað að gefa einhvers konar heildaryfirlit yfír norræna málaralist samtímans svo að ekki er við því að búast að mikið samræmi sé milli verka hinna ýmsu listamanna. Þama má sjá verk eftir fólk á öllum aldri og af ólíkum stílstefnum, frá hreinflat- arafstraksjón yfir í landslagsmál- verk, og kannski mætti segja að viðfangsefni sýningarinnar hefði gjaman mátt vera þrengra til að betra samhengi fengist í hana. Margir afbragðsgóðir listamenn hafa verið valdir til þátttöku og má vel sjá hversu lifandi og fjölbreytt málaralistin á Norðurlöndum er, en þó vantar á sýninguna marga af þeim sem vakið hafa mesta athygli á undanfömum áram svo hún getur þrátt fyrir umfangið ekki talist vera viðunandi yfirlit. Af þeim mörgu ágætu listamönn- um sem hér eiga verk er Nina Roos tvímælalaust einn sá áhugaverð- asti. Hún er sem fyrr segir finnsk, fædd árið 1956, og hlaut önnur verðlaun í samkeppninni. Nina BILLINN 5EM SLO TOY ANNAÐ Ódýrasti 4x4 bíllinn á íslandi Skemmtilegur bíll sem gott er að setjast inn í Öruggur Suzuki fjölskyldu og fjölnotabíll með ABS hemlalæsivörn (4x4), loftpúðum o.m.fh Sestu inn... Listræn gjafavara gallerí Listakot LAUGAVEGI 70, SÍMI/FAX 552 8141
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.