Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 31
húsinu
Austan 3
í Norræna
Leikfélag Reykjavíkur
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í
Norræna húsinu miðvikudaginn 17.
febrúar kl. 12.30. Þá leikur tríó sem
nefnir sig ,Austan 3“, en það skipa
Svana Víkingsdóttir píanóleikari,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir fíðluleik-
ari, og Lovísa Fjeldsted sellóleik-
Verkið sem Austan 3 leika er hið
svokallaða „Draugatríó", op. 70 nr.
1, eftir Ludwig van Beethoven. Það
var frumflutt árið 1808 og segir í
kynningu að nafnið sé dregið af
hægu og drungalegu tema miðkafl-
ans, þar sem draugar fara á kreik,
og andi Macbeths svífur yfir vötn-
unum.
Hljóðfæraleikararnir hafa allir
stundað framhaldsnám erlendis.
Svana Víkingsdóttir starfar sem pí-
anóleikari og píanókennari við Tón-
listarskólann í Reykjavík og Tón-
listarskóla F.I.H. Sigurlaug Eð-
valdsdóttir er fiðluleikari í Sinfón-
AUSTAN 3 skipa Svana Vfldngsdóttir píanóleikari, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir fiðluleikari, og Lovísa Fjeldsted sellóleikari.
íuhljómsveit íslands og kennir við
Tónlistarskóla Seltjarnarness. Auk
þess er hún meðlimur í ýmsum tón-
listarhópum. Lovísa Fjeldsted er
fastráðinn sellóleikari við Sinfóníu-
hljómsveit íslands og kennir við
Nýja Tónlistarskólann.
Verð aðgöngumiða er kr. 400.
Ókeypis er fyrir handhafa stúd-
entaskírteina.
FEGURÐARDROTTNINGIN frá Línakri í samlestri.
Fegurðardrottningin
frá Línakri til æfinga
HJÁ Leikfélagi Reykjavíkur eru
hafnar æfingar á Fegurðar-
drottningunni frá Línakri eftir
breska leikritaskáldið Martin
McDonagh í þýðingu Karls Guð-
mundssonar. Leikritið verður
frumsýnt á Litla sviði Borgarleik-
hússins í marsbyrjun.
OTA COROLLA UT
Ð í RÖÐ!
Suzuki Wagon R+ var mest
seldi bíllinn í Japan árið
1998 (eins og árið 1997).*
______________________________1998
Suzuki Wagon R+ 240.207 230.306
Toyota Corolla 2.38.005 196.498
Aðalpersónur verksins eru
mæðgurnar Mag og Maureen,
sem búa saman við sérkennilegar
aðstæður í litlu þorpi á írlandi.
Mag er um sjötugt og getur litla
björg sér veitt og Maureen þjónar
henni í einu og öllu og á sér enga
von um sjálfstætt líf, þótt hún sé
komin um fertugt. Samskipti
þeirra einkennast af grimmd og
gagnkvæmri niðurlægingu.
Höfundurinn, Martin
McDonagh, fæddist í London árið
1960 og ólst upp í suðurhluta
borgarinnar, írska hlutanum.
Strax sextán ára að aldri hóf
hann að skrifa smásögur og kvik-
myndahandrit. Fegurðardrottn-
ingin frá Línakri (The Beauty
Queen of Leenane) er fyrsti hluti
þrfleiks (The Leenane Trilogy).
Hin verkin eru The Skull in
Connemara og The Lonesome
West. McDonagh var tuttugu og
sex ára þegar tvö leikrita hans
voru samtímis í leikhúsum í West
End í London: Fegurðardrottn-
ingin og The Cripple of Inishma-
an. Bæði verkin eru á fjölum
fjölda leikhúsa í Evrópu og Am-
eríku um þessar mundir.
Leikendur eru Sigrún Edda
Björnsdóttir, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Ellert A. Ingimund-
arson og Jóhann G. Jóhannsson.
Hljóð: Baldur Már Arngrímsson.
Ljós: Kári Gíslason. Leikmynd og
búningar: Steinþór Sigurðsson.
Leikstjóri er María Sigurðardótt-
♦♦♦
Rausnarleg
gjöf Mellons
Washington. Reuters.
MILLJÓNAMÆRINGURINN og
listunnandinn Paul Mellon, sem lést
nýlega, 91 árs að aldri, ánafnaði
Þjóðarlistasafni Bandaríkjanna rúm-
lega fimm milljörðum ísl. ki’óna í
reiðufé og meira en eitt hundrað af
sínum uppáhalds listaverkum í
erfðaskrá sinni, að því er segir í frétt
The Washington Post á fímmtudag.
Sagði Earl Powell, framkvæmda-
stjóri safnsins, að gjöf þessi væri sú
rausnarlegasta í allri sögu þess.
Verkin verða hins vegar ekki afhent
fyrr en að eiginkonu Mellons,
Rachel, látinni.
Meðal þeirra listaverka sem
Mellon ánafnaði listasafninu eru tvö
olíumálverk eftir Vincent Van Gogh,
þrettán verk eftir deplastílistann Ge-
orges Seurat, þrjú verk eftir Edou-
ard Manet, tíu eftir Pierre Bonnard
og mörg fleiri eftir ýmsa franska
listamenn, Cezanne, Braque,
Delacroix, Monet and Renoir.
Mellon, sem lengi var einn mesti
velunnari Þjóðarlistasafnsins banda-
ríska, hafði áður gefið safninu meira
en 900 listaverk en faðir hans,
Andrew Mellon, stóð á bak við stofn-
un þess árið 1941. Sjálfur gegndi
Paul Mellon störfum forseta safns-
ins, sem er staðsett í Washington,
árin 1963-1979.
Mun Mellon einnig hafa ánafnað
Cambridge-háskóla í Bretlandi um-
talsverðar fjárhæðir en móðir hans
var bresk og var hann alla tíð afar
hrifinn af breskri arfleið sinni.
WACON R+ CL 1.099.000 KR.
WACON R+ CL 4x4 1.299.000 KR.
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is