Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tillaga Sighvats Björgvinssonar kynnt í fram-
kvæmdastjórn Alþýðuflokksins
Margrét Frímannsdóttir
leiði Samfylkinguna
SIGHVATUR Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, hefur lagt
til að Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, verði
talsmaður Samfylkingarinnar í
kosningabaráttunni fyrir komandi
alþingiskosningar. Margrét segir að
hún muni taka að sér það hlutverk
ef það er sameiginleg niðurstaða Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista. Guðrún Ögmundsdótt-
ir, sem er fulltrúi Kvennalista í
fjórða sæti á framboðslista Sam-
fylkingar í Reykjavík, segist styðja
tillögu Sighvats og segist gera ráð
fyrir að hún verði samþykkt af
Kvennalistanum.
„Þetta er engin formleg sam-
þykkt en ég hef haft samráð við
þingmenn og frambjóðendur í Al-
þýðuflokknum og ég ræddi þetta á
fundi með framkvæmdastjórn
flokksins í dag [mánudag]. Það var
eindreginn stuðningur við þessa
niðurstöðu,“ segir Sighvatur.
Hann vildi ekki svara því hvort
með þessu væri verið að auka hlut
Alþýðubandalagsins í Samfylking-
unni í ljósi góðrar útkomu Alþýðu-
flokksmanna í prófkjörum að und-
anfórnu. „Þetta er skynsamlegasta
leiðin til að fá sem besta útkomu út
úr kosningunum, annars hefði ég
ekki lagt þetta til.“
Sighvatur segir að þessi ákvörð-
un þýði ekki að búið sé að útnefna
forystumann Samfylkingarinnar til
framtíðar. „Samfylkingin er fram-
boð þriggja stjómmálaflokka, þarna
er verið að útnefna talsmann í kosn-
ingabaráttunni en svo verður það að
sýna sig að loknum kosningum
hvernig hún þróast áfram. Ef stofn-
aður verður nýr stjómmálaflokkur
verða félagar í honum að velja sér
forystu á landsfundi."
„Þykir vænt um þetta traust“
„Mér þykir vænt um það traust
sem Alþýðuflokkurinn og formaður
hans hefur sýnt mér og ég hef fund-
ið fyrir töluvert lengi,“ segir Mar-
grét Frímannsdóttir. „Ég á von á að
Alþýðubandalagið standi heilt að
baki mér ef ég ákveð að taka þessu
hlutverki, sem ég mun gera ef það
er sameiginleg niðurstaða þessara
þriggja stjórnmálaafla sem em að
bjóða fram saman. Kvennalistinn á
örugglega eftir að ræða þetta innan
sinna raða.“
Margrét segir fráleitt að með til-
nefningu hennar í forystuhlutverk
fyrir kosningar sé verið að koma á
jafnvægi milli Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags. „Engin stjórn-
málahreyfing hefur efni á því að
nota hlutverk slíks talsmanns sem
einhverja skiptimynt,“ segir Mar-
grét.
Guðrún Ögmundsdóttir segir að
Margrét sé mjög vel að stöðunni
komin. „Það mun mæða mest á
Margréti á landsvísu en í Reykjavík
verður mikið í húfí og þar verður
Jóhanna [Sigurðardóttir] sterk.
Miðað við allt sem á undan er geng-
ið er mjög eðlilegt að Margrét leiði
þetta.“ Ekki náðist í Jóhönnu Sig-
urðardóttur í gærkvöldi.
Heimsins
stærsta
bolla
í TILEFNI af bolludeginum í
gær bauð Kringlan gestum sín-
um að smakka „heimsins
stærstu rjómabollu". Bakaríið
Hjá Jóa Fel annaðist baksturinn
og var eigandinn sjálfur mætt-
ur á staðimi með Tonny
Espesen aðstoðarmann sinn.
Gestum gafst kostur á að fá sér
bita af bollunni á 50 kr. og rann
ágóðinn til barnadeildar
Sjúkrahúss Reykjavíkur. I dag
er það svo sjálfur sprengidag-
urinn sem runninn er upp og
munu landsmenn þá gæða sér á
saltkjöti og baunum að gömlum
og góðum sið.
Morgunblaðið/Ásdís
Lottó
Tveir fengu
rúmar 11
milljónir
TVEIR voru með allar tölur réttar
í Lottó þegar dregið var sl. laugar-
dag og fengu þeir rúmar 11,5 millj-
ónir hvor. Geysimikil sala var í
Lottóinu fyrir helgina enda var
fyrsti vinningur sexfaldur að þessu
sinni.
Sex voru með fjórar tölur réttar
auk bónustölu og fékk hver 217.230
krónur. Heildarupphæð vinninga
var tæpar 32 milljónir. Vinningarn-
ir voru seldir í Happahúsinu í
Kringlunni og í Söluturninum
Eiðistorgi.
Einn var með fimm réttar tölur í
réttri röð í Jóker á laugardag, sem
gaf milljón í vinning, tveir voru
með fjórar síðustu í réttri röð og
fengu 100 þús., 39 voru með þrjár
síðustu í réttri röð og fengu 10
þús. og 378 voru með tvær síðustu
tölurnar í réttri röð og fengu þús-
und krónur. Fyrsti vinningur var
seldur í Söluturninum Gerplu við
Sólvallagötu.
--------------
Ráðherrar
funda í
Reykjavík
FYRRI fundur utanríkisráðherra
Norðurlandanna á þessu ári fer
fram á Hótel Sögu í dag og á morg-
un.
Daniel Tarschys, framkvæmda-
stjóri Evrópuráðsins, verður sér-
stakur gestur fundarins, þar sem
aukin norræn áhersla innan evr-
ópskra stofnana verður meðal um-
ræðuefna. Tvær norrænar þjóðir
taka við formennsku innan evr-
ópskra stofnana á þessu ári, Island
í Evrópuráðinu og Noregur í
Öryggis- og samvinnustofnun Evr-
ópu.
Seinni fundur utanríkisráðherr-
anna verður einnig haldinn á Is-
landi, þar sem Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðhen-a fer með nor-
ræna formennsku í ár.
Loðnukvóti aukinn um að minnsta kosti 200.000 tonn
Aflaverðmæti eykst um
einn milljarð króna
AKVEÐIÐ hefur verið að auka loðnu-
kvótann að minnsta kosti um 200.000
tpnn í kjölfar þess að rannsóknaskipið
Ami Friðriksson fann töluvert af
loðnu út af Austfjörðum. Loðnan þar
var ekki veiðanleg og mikið smælki í
henni, en hún var á um 35 til 40 mflna
löngum flekk, 4 til 8 mflur á breidd.
Til greina getur komið að kvótinn
verði enn aukinn íínnist enn meiri
loðna í leiðangri skipsins, sem heldur
nú suður með Austfjörðum eftir því
sem veður leyfir.
Verðmæti þessarar aukningar
gæti verið um einn milljarður króna
upp úr sjó, miðað við hráefnisverð í
dag. Útflutningsverðmæti afurðanna
gæti á hinn bóginn verið að minnsta
kosti um 1,5 milljarðar króna, hugs-
anlega nálægt tveimur, en það fer
eftir frystingu og hrognavinnslu.
Bráðabirgðakvóti frá því í sumar
var 950.000 tonn og komu um
688.200 tonn af því í hlut okkar ís-
lendinga. Gert var ráð fyrir að end-
anlegur kvóti gæti orðið um
1.420.000 tonn og var úthlutað til
Norðmanna og Grænlendinga á þeim
grundvelli. Aukningin nú kemur því
öll í okkar hlut og leyfilegur heildar-
afli okkai’ verður að minnsta kosti
um 890.000 tonn af 1.150.000 tonna
kvóta. Þau skip, sem lokið höfðu
kvóta sínum, geta því haldið til veiða
á ný. Kvótanum verður skipt á skipin
í samræmi við aflahlutdeild þeirra.
Nú eru því óveidd af leyfilegum
heildarkvóta okkar um 390.000 tonn
samkvæmt upplýsingum frá samtök-
um fiskvinnslustöðva.
■ Ætti að vera/22
Þingað um rússafísk á Sauðárkróki
Málflutningi frestað
AÐ MINNSTA kosti fjögur
sjávarútvegsfyrirtæki hafa
sloppið við að greiða tilskilin
gjöld vegna útflutnings fískaf-
urða 1994 og 1995.
Þetta kom fram hjá dóm-
þingi Héraðsdóms Norðurlands
vestra á Sauðárkróki í gær
þegar aðalmeðferð máls Ríkis-
lögreglustjóra á hendur fyrr-
verandi framkvæmdastjóra,
fjármálastjóra og markaðs-
stjóra Fiskiðju Sauðárkróks hf.
hófst.
Ekki tókst að ljúka málflutn-
ingi í gærkvöldi og var honum
frestað til 25. febrúar nk.
Embættið höfaði málið á
hendur þremenningunum fyrir
að hafa sammælst um að til-
greina ranglega Island sem upp-
runaland í útflutningsskýrslum.
Afurðir sem keyptar voru af
rússneskum útgerðum voru
sagðar íslenskar og seldar til
Bretlands í nafni Fiskiðju Sauð-
árkróks og Fiskiðjunnar Skag-
firðings. Ekki þurfti að greiða
aðflutningsgjöld af íslenskum
fiskafurðum en þegar réttur
uppruni kom í ljós 1996 samdi
Fiskiðjan við bresk tollayfirvöld
um að greiða tilskilin gjöld,
98.000 pund (um 11,2 millj. kr.).
Fyrirtækið greiddi 35.000 pund
að auki í sekt.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is