Morgunblaðið - 16.02.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 19
VIÐSKIPTI
Akvarðana að vænta um breytingar á lánum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
I athugun að breyta vöxt-
um og hækka hámarkslán
HJÁ Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins er nú til athugunar að
breyta vöxtum á lánum til sjóðsfé-
laga og hækka hámarkslán, og
mun stjórn sjóðsins taka ákvarðan-
ir í þessu sambandi innan skamms,
að sögn Hauks Hafsteinssonar,
framkvæmdastjóra sjóðsins.
Hjá Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins er í dag hægt að fá tvenns-
konar lán, samtals að upphæð 4
milljónir króna. Annars vegar er
um að ræða aðallán að hámarks-
upphæð 2 milljónir króna með
6,0% vöxtum, og hins vegar viðbót-
arlán, sem einnig getur verið að
hámarki 2 milljónir og ber það
6,8% vexti. Hvað veðhlutfall varðar
er miðað við 65% af fasteignamati
eignar. Til þess að fá lán úr lífeyr-
issjóðnum þarf viðkomandi að hafa
greitt í sjóðinn í eitt og hálft ár.
Hámarkslán nýlega hækkað hjá
Sameinaða lífeyrissjóðnum
Hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum
geta sjóðfélagar nú fengið að há-
marki 6 milljóna króna lán til allt
að 30 ára frá 1. febrúar síðasthðn-
um, en áður var hámarkslánið 2
milljónir króna. Að sögn Jóhannes-
ar Siggeirssonar, framkvæmda-
stjóra sjóðsins, hafa vextir af lán-
um sjóðsins farið lækkandi undan-
farin misseri, en vextimir eru
breytilegir samkvæmt skilmálum
skuldabréfanna og eru nú 5,6%.
Miðað er við að lán sjóðsins og önn-
ur lán sem áhvílandi eru á viðkom-
andi eign á undan séu innan við
65% af markaðsvirði eignarinnar.
„Miðað er við að menn séu reglu-
legir greiðendur í sjóðinn, og miða
reglurnar við að greitt hafi verið
samfellt í þrjú ár til sjóðsins, en
einnig er tekið tillit til þess hvort
greitt hafi verið í einhvern annan
sjóð og hvort menn hafa verið við
nám. Við erum ekki að lána öðram
en okkar sjóðfélögum og það má
segja að það sé kjarninn í okkar
starfsemi. Við erum með vextina
sífellt til skoðunar og gerum ráð
fyrir að þeir muni fylgja ríkispapp-
írunum, en ég á ekki von á því að
menn breyti hámarkslánsupphæð-
inni á næstu vikum eða mánuðum.
Enda er það þá líka m.a. orðið
spurning um greiðslugetu fólks,“
sagði Jóhannes.
Fjórar milljónir á 5,5% vöxtum
hjá Lífiðn
Hámarkslán hjá Lífiðn er 4
milljónir króna til 25 ára og eru
vextir á lánunum 5,5% og hafa þeir
verið það frá því síðastliðinn vetur.
Að sögn Friðjóns R. Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins,
hefur veðhlutfallið sem miðað er
við verið 65% í þó nokkuð langan
tíma og er þá miðað við fasteigna-
mat eða söluverð eignar. Við lán-
veitingar er almennt miðað við að
greitt hafi verið í lífeyrissjóð í 3 ár
og umsækjendur séu komnir með 5
stig fyrir þau, og einnig að greitt
hafi verið í sjóðinn í 6 mánuði sam-
fellt.
„Það er ekki búið að ræða um
neinar breytingar á þessu, en við
fórum úr 6,4% niður í 5,5% síðast-
liðinn vetur og mönnum fannst það
frekar rausnarlegt þá miðað við
flestalla aðra sjóði. Eg reikna með
að sú ákvörðun standi allavega ein-
hverja mánuði í viðbót,“ sagði Frið-
jón.
Hjá hfeyrissjóðnum Framsýn er
lánað til þeiraa sem greitt hafa í að
minnsta kosti 3 ár í lífeyrissjóð og
náð 5 stigum, og einnig þurfa lán-
takendur að hafa greitt í sjóðinn í 6
mánuði af 12 síðustu mánuðum.
Hámarkslán er 2 milljónir króna
og veðhlutfallið sem miðað er við er
60% af fasteignamati eða söluverð-
mæti eignar. Vextir af lánum
Framsýnar eru 5,7% og hafa þeir
verið það síðan í maí á síðasta ári,
en þá var hámarkslánið einnig
hækkað úr 1,5 milljón króna í 2
milljónir.
Að sögn Halldórs Björnssonar,
stjórnarformanns Framsýnar,
verður ákvörðun hugsanlega tekin
um það á stjórnarfundi sem hald-
inn verður eftir næstu viku hvort
einhverjar breytingar verða gerðar
á lánum sjóðsins. „Hvort það verð-
ur eitthvað í framhaldi af þessu
öllu saman, bankalánunum og
Ibúðalánasjóði, er bara eitthvað
sem verður að ræða,“ sagði hann.
Ekkert þak á lánum
Samvinnulífeyrissjóðsins
Sú breyting var gerð hjá Sam-
vinnulífeyrissjóðnum í fyrra að þak
á lánum var afnumið, svo framar-
lega sem fullnægjandi veð era fyrir
hendi, en miðað er við 60% af
markaðsvirði eignar og var veð-
hlutfallið hækkað úr 50% í 60% um
síðustu áramót. Að sögn Margeirs
Daníelssonar, framkvæmdastjóra
sjóðsins, era 6% vextir af annuitet-
slánum til 15 ára frá Samvinnulíf-
eyrissjóðnum, en af lánum til 30
ára eru 6,7% breytilegir vextir.
„Við höfum ekki breytt þessu,
enda er það mikið skipt á lánunum
og era um 40% af okkar lánum í
dag í höndum aðila sem aldrei hafa
greitt til sjóðsins. Það er sjálfsagt
svipað hjá mörgum öðram sjóðum.
Það hafa engar ákvarðanir um
breytingar á vöxtunum verið tekn-
ar ennþá, og ef þær verða teknar
þá verður það eingöngu af nýjum
lánum,“ sagði Margeir.
Frakkar
einkavæða
risa í flug-
iðnaði
París. Reuters.
FRANSKA stjórnin hefur
samþykkt einkavæðingu flug-
iðnaðarfyrirtækisins Aér-
ospatiale og rutt veginn fyrir
sameiningu þess og Matra
landvarnadeildar Lagardere
Group.
Samkvæmt opinberri til-
kynningu í franska lögbirtinga-
blaðinu hefur franska stjómin
ákveðið að meirihluti fjár-
magns í Aérospatiale skuli fær-
ast í hendur einkaaðilum.
Einkavæða á Aérospatiale með
samrana fyrirtækisins og
Matra og frönsk blöð segja að
tilkynningin bendi til að sam-
komulag hafi náðst um skilyrði
fyrir samruna.
Blöðin Les Echos og La Trí-
hune sögðu að Lagardere
mundi greiða um tvo milljarða
franka fyrir 33% í nýju fyrir-
tæki, en hluti upphæðarinnar
er háður afkomu þess. Tuttugu
af hundraði hlutabréfa verða
sett í sölu, en 48% munu verða
áfram í eigu ríkisins.
Hlutabréf í Lagardere
hækkuðu fyrst í verði, en iækk-
uðu síðan um 1,8% í 38,50 evr-
ur.
BA kaupir
hlut í Iberia
London. Reuters.
BRITISH Aii-ways mun kaupa
9% hlut í ríkisrekna spænska
flugfélaginu Iberia fyrir um
200 milljónir punda.
Sala hlutarins er liður í einka-
væðingu Iberia. America Air-
lines, samstarfsaðili BA í
Bandaríkjunum, kaupir 1% í
Iberia.
Iberia fær.þar með inngöngu
í klúbb nokkurra flugfélaga,
sem hafa stofnað til markaðs-
bandalagsins „oneworld“.
Auk BA og America Airlines
eru í klúbbnum ástralska flug-
félagið Qantas, Cathay Pacific
flugfélagið í Hong Kong og
kanadíska flugfélagið. Flugvél-
ar bandalagsins fljúga til 632
staða í 138 löndum.
Njir riki.svixlar i
Utboð þiiðjudag
L JL.
í dagkl. ii:oo mun fara fram útboð á rílásvíxlum hjá Lánasýslu ríkisins.
Að þessu sinni verður boðið upp á 3ja, 6 og m mánaða ríkisvíxla, en að öðru
leyti eru skilmálar útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og i síðustu útboðum.
I boði verða eftirfarandi rikisvíxlar:
Mokkur Gjalddagi Lánstími Núverandi staða* Atetlað háinark tekinnatilboða,i'
RV99-0519 19. maí 1999 3 mánuðir 0 2-000
RV99-0817 17. ágúst 1999 6 mánuðir 3.247 1.000
RV99-0217 17. febrúar 1999 12 mánuðir 0 1.000
* MiUjónir króna.
MiUj.kr.
Uppbjgging markflokka ríkisvíxLa
Staða ríkisvixla 15. febrúar i3.63? milljónir.
Áætluð hámarksstærð ogsala 16. febrúarogi. ogio. mars 1999.
7.OOO
6.000
5.000
4.000
3.ooo
3.000
3 mán
12 mán
Gjalddagar
I
Áætluð áfylling síðar
| Áætluð sala lO.mars 1999
j Áæduð sala 1. mars 1999
| Áæduð sala 16. febrúar 1999
I Staða lS.febrúar 1999
RV99-0217 RV99-0316 RV99-0416 RV99-0S19 RV99-0618 RV99-0817 RV99-1019 RV99-1217 RV00-0217
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvixlamir verða seldir með tilboðs-
fyrirkomulagi. öllum er heimilt að bjóða í
ríkisvixla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð
tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum,
fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrir-
tækjum, verðbréfasjóðum, hfeyrissjóðum
og tiyggingafélögum er heimilt að gera tilboð
í meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarld
500.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 11:00 í dag,
þriðjudaginn 16. febrúar 1999. Utboðs-
skilmálar, önnur tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hverfisgötu 6, í sima 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: utbod@lanasysla.is