Morgunblaðið - 16.02.1999, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
:
I
=
Áríðandi orðsending
til þeirra sem eiga
spariskírteini til inn-
lausnar 10. febrúar:
7,12 %
Ávöxtun eins
og hún gerist best
Peningamarkaðsreikningur
sparisjódanna býður nú 7,12%
ársávöxtun. PM-reikningur sameinar
kosti sparireiknings og verðbréfa,
öryggi, sveigjanleika og afburða
ávöxtun.
Binditími á PM-reikningi
er aðeins 10 dagar
PM-reikningurinn er hentugt innláns-
form fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem
leita að vaxtakjörum eins og þau gerast
best á fslenskum f jármagnsmarkaði en
vilja jaf nframt geta gengid að fé sfnu
hvenær sem er, án nokkurrar fyrirhafnar
og án þess að þurfa að greiða þjónustu-
gjöld eða aðra þóknun.
n
SPARISJÓÐURINN
-fyrirpigogþím
VIÐSKIPTI
Urskurður Samkeppnisráðs í deilu Landssímans og Islandia
Bannar Intemetþjón-
ustu án endurgjalds
SAMKEPPNISRÁÐ hefur staðfest
bráðabirgðaúrskurð Samkeppnis-
stofnunar frá 4. janúar síðastliðnum
um að tilboð Landssíma Islands hf.
um endurgjaldslausa Intemetáskrift
í þrjá mánuði til allt að 10.000 manna,
sem hafí undir höndum svokallaðan
bíódisk sem fékkst afhentur án end-
urgjalds á bensínstöðvum ESSO, hafí
skaðleg áhrif á samkeppni á markaði
fyrir sölu Internettenginga í skilningi
17. greinar samkeppnislaga. Því sé
Landssímanum óheimilt að bjóða
slíka endurgjaldslausa þjónustu.
Einnig segir að það hafi skaðleg
áhrif á samkeppni að Landssími Is-
lands hf. og Skíma ehf. misnoti mark-
aðsráðandi stöðu sína með því að
bjóða endurgjaldslausa Intemet-
þjónustu.
Það var Intemetþjónustan Is-
landia ehf. sem krafðist þess í erindi
til Samkeppnisstofnunar, dags. 20.
desember sl., að Samkeppnisstofnun
gripi þegar tU aðgerða gagnvart
Landssíma Islands hf. og dótturfyrir-
tækis þess Skímu ehf. og banni tU
bráðabirgða báðum þessum fyi-h--
tækjum að auglýsa, bjóða og veita
endurgjaldslausa Intemetþjónustu
um lengri eða skemmri tíma.
Svavar G. Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Islandia ehf., segist
mjög ánægður með niðurstöðuna og
hann telur að fari svo að Landssím-
inn áfrýi verði niðurstaða áfrýjunai--
nefndar samkeppnismála samhljóða
niðurstöðunni nú.
Samkeppnisráð sammála okkur
„Úrskurður Samkeppnisstofnunar
tekur á öllu sem við vorum að kæra
og er sammála því sem við sögðum að
Landssíminn væri markaðsráðandi
íýrirtæki sem notaði yfirburði sína á
markaðnum og fjármuni til að ná til
sín sem flestum notendum. Einnig
eru þeir sammála því að túlka beri
Skímu og Landssímann sem eitt fyr-
irtæki,“ sagði Svavar.
Hann sagði að tími væri til kominn
að ríkið og almenningur geri sér
grein fyrir stöðu Landssímans á
markaðnum. „Eg vona að stjómvöld
kynni sér úrskurðinn ítarlega," sagði
Svavar.
I fréttatilkynningu frá Landssím-
anum hf. segir að Landssíminn ítreki
fyrri afstöðu sína í málinu sem er sú
að fyrirtækið fellst engan veginn á að
viðkomandi tilboð hafi falið í sér sam-
keppnishömlur. „A þeim tíma sem
umrætt bíódiskstilboð var í gildi,
nýttu innan við 200 manns sér það.
Landssíminn getur ekki fallist á að
sú aukning geti falið í sér alvarlega
röskun á samkeppni,“ segii’ í tilkynn-
ingunni.
Ólafur Þ. Stephensen, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Landssímans, segh’ að úrskurð-
urinn hafi komið Landssímanum á
óvart og hann gangi þvert á óskir
neytenda, sem í dag búi við líflega og
vh'ka samkeppni á markaði.
Hann segir að það komi á óvart að
úrskurðurinn fjalli eingöngu um bíó-
diskstilboðið. „Það kemur á óvart að
þetta fjallar um bíódiskstilboðið ein-
göngu en hinsvegar eru öll tilboð
okkai- bönnuð. Mér fínnst vanta um-
sögn um önnur tilboð Landssímans
og hvernig þetta snertir þau. Það er
einnig ljóst að þessi úrskurður setur
ýmsa samstarfsaðila okkar í óvissu
og okkar samninga við þá, t.d. samn-
inga um ókeypis Internetáski’ift í
tengslum við heimilisbanka.“
í úrskurði Samkeppnisráðs er
markaðshlutdeild Internetþjónustu
Landssímans og Skímu slegið saman
og hún sögð 37% samanlögð á móti
20% markaðshlutdeild Islandia.
I tilkynningunni frá Landssíman-
um segir að Landssíminn telji engin
efni til að slá saman markaðshlut-
deild Símans Internet og Skímu hf.
eins og gert er í úrskurðinum, enda
rekstur fyrirtækjanna algerlega að-
skilinn og samkeppni þeirra í milli.
Úrskurði Samkeppnisráðs verður
þegar í stað áfrýjað til áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála, að því er
fram kemur í thkynningu Landssím-
ans.
19. febrúar d Grand Hötel Reykjavík
Uppiýsingamiðlun um vefinn er komin tii að vera. Nýjasta kynslóð gagnagrunna
frá Oracle er hönnuð með þetta að ieiðarljósi. Aðalnýjung Oracle 8í er samþáttun við
Internetið sem gerir mönnum kleift að þróa og reka Internetlausnir á auðveldan hátt.
Kynntar verða helstu nýjungar sem koma með Oracle 8/ svo sem:
- WebDB - nftt umhverfi til vefgerðar
- iFS (Intemet File System)
- Oracle inter Media
- Java™ in the Database
Kynningin ertœknileg og höföartil allra sem statfa viö upplýsingameöhöndlun.
Aögangur er ókeypis/
Dagskrá
13:15 • Skráning
13:30 • Oracle 8 i - Internet gagnagrunnurinn
• Oracle 8i - Java™ í gagnagrunninum
14:45 • Kaffihlé
15:15 • Oracle 8i - Nýir eiginleikar í kerfisstjórnun og fyrir OLTP
• Oracle 8 i - Nýir möguleikar fyrir gagnaskemmur (Data Warehouse)
16:30 • Léttar veitingar
Skráning fer fram á heimasíðu Teymis www.teymi.is, með tölvupósti
til rads tefna @teyini. is eða I síma 561-8131- Skráningarfrestur er til 17. febrúar.
TEYMI
■■■■■■■
B o r g a r t ú n i 2 4
S í m i 56 1 8 13 1