Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 56

Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 56
•56 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Föstumessur í Askirkju Á ÖSKUDAG, miðvikudaginn 17. febi-úar, verður föstumessa í Ás- kirkju kl. 20.30 og síðan hvert mið- vikudagskvöld fostunnar á sama tíma. I föstumessunum eru Passíu- sálmar Hallgríms Péturssonar sungnir, en sönginn leiðir Kirkjukór Áskirkju undir stjóm Kristjáns Sigtryggssonar, Píslar- saga guðspjallanna lesin og sókn- arprestur flytur hugleiðingu. Loks sameinast kirkjugestir í bæn fyrir þjáðum nær og fjær. Þessar kyrrlátu stundir andakt- ar og bænagjörðar í Áskirkju á föstunni hafa undanfarin ár reynst mörgum dýnnætar, bæði það að hugleiða Píslarsöguna í ljósi Pass- íusálma Hallgríms og líf sitt í ljósi sálmanna hans og frásagnar guð- spjallanna, sem og það að kyrra hugann í bæn fyrir sér og öðrum. Fyrirbænaefnum má koma til sóknarprestsins, sr. Árna Bergs Sigurbjömssonar. Starfsemi eldri borgara í Kirkjuhvoli SÓKNARNEFND Garðasóknar hefur í samvinnu við félag eldri borgara í garðabæ ákveðið að hafa safnaðarheimilið Kirkjuhvol opið fyrir starfsemi eldri borgara í bæj- arfélaginu og bjóða jafnframt uppá margskonar afþreyingu. Þama er um að ræða aðstöðu fyrir boccia- spil, pútt, brids, vist og lomber. Dagblöðin liggja frammi. Heitt á könnunni. Opið er mánudaga til föstudaga kl. 13-15. ennfremur er sérstakur tími fyrir boccia-spil með leiðbein- anda alla fímmtudaga kl. 10-12. Sóknarnefnd Garða- sóknar og Félag eldri borgara í Garðabæ. Biblíuleshópur í Grafarvogs- kirkju HLEYPT hefur verið af stokkun- um Biblíuleshóp undir stjórn sr. Halldórs Gröndalos. Hópurinn hittist milli kl. 18-19 á þriðjudög- um. Hægt er að bæta við nokkrum einstaklingum í hópinn. Farið verð- ur yfír Markúsarguðspjall. Kyrrðarstönd í hádegi á fímmtudögum. Undanfarin 2 ár hefur verið kyrrðarstund á fimmtudögum í Grafarvogskirkju. Hefst stundin með helgistund og altarisgöngu, síðan er boðið upp á léttan hádegisverð. Kyrrðarstund- in hefst kl. 12.10 og lýkur þannig að fólk getur verið komið aftur til vinnu sinnar kl. 13. Prestar safnað- arins annast þjónustuna ásamt Herði Bragasyni organista. Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis- verður. Samverustund foreldra ungra barna kl. 14-16. Fundur í æskulýðsfélaginu kl. 20. Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl. 20.30. Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft- ir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Passíusálmalestur og orgel- leikur kl. 12.15. Æskulýðsfélagið Öm (yngri deild) kl. 20. Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára böm kl. 17. Langholtskirkja. Passíusálmalest- ur og bænastund kl. 18. Laugarneskirkja. Fullorðins- fræðsla kl. 20. „Þriðjudagur með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðarstund. Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl. 20.30. Sveinbjörn Dagnýjarson guðfræðinemi prédikar. Kaffi og biblíulestur út frá 11. Passíusálmi í safnaðarheimili að lokinni guðs- þjónustu. Seltjarnarneskirkja. For- eklramorgunn kl. 10-12. Æsku- lýðsstarf fyrir 8. og 9. bekk kl. 20- 22. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir guð- fræðingur fræðir okkur um sjálfs- traust kvenna. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Æskulýðsstarf kl. 20 á vegum KFUM & K og Digra- neskirkju. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9- 10 ára stúlkur kl. 17.30. Æskulýðs- starf fyrir 8. bekk kl. 20.30. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar, opið hús kl. 13.30-15.30. Helgi- stund, spilað, sungið, handavinna og kaffiveitingar. Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk kl. 20-22 í kirkjunni. KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl. 17.30- 18.30. „Kirkjukrakkar" í Rimaskóla fyrir böm 7-9 ára kl. 17- 18. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigur- jóns Árna Eyjólfssonar. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7-9 ára börn frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6. Vídalínskirkja. „Sálgæsla meðal syrgjenda" - sr. Tómas Guð- mundsson flytur erindi um sál- gæslu í Kirkjuhvoli kl. 9 í kvöld. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 8-9 ára böm kl. 17-18.30. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonar- höfn Strandbergs. Kristin íhugun í Stafni, Kapellu Strandbergs kl. 21.30- 22. Heimsborgin - Róm- verjabréfíð, lestur í Vonarhöfn kl. 18.30- 20. Keflavíkurkirkja. Helgistund í Hvammi við Suðurgötu kl. 14-16. Upplestur, hugvekja og söngur. Umsjón með helgistundunum hef- ur Lilja Hallgrímsdóttir, djákni. Einar Örn Einarsson leikur á org- elið. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. Mömmumorg- unn í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.30. Hvainmstangakirkja. For- eldramorgunn kl. 10-12 á prests- setrinu. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 16-17 kirkjuprakkarar (7-9 ára) í safnaðarheimilinu. Skemmtileg stund. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Hvitasunnukirkjan Ffladelfía. Kl. 18.30 fjölskyldusamvera sem hefst með léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19.30 er kennsla og þá er skipt nið- ur í deildir. Allir hjartanlega vel- komnir. Lágafellskirkja. Æskulýðsstarf fermingarbarna á miðvikudögum kl. 20. Umsjón Sigurður Rúnar Ragnarsson. KFUM og KFUM v/HoItaveg. Framkvæmdastjóri Gídeonfélags- ins verður með erindi á hádegis- verðarfundi KFUM og KFUK á morgun, miðvikudaginn 17. febrú- ar, kl. 12.10 mun Jógvan Purkhús, framkvæmdastjóri Gídeonfélags- ins flytja nýjustu fréttir af gangi starfs Gídeonfélagsins innanlands og utan. Allir eru velkomnir á fundinn og fólk því hvatt til að fjöl- menna. VELVAKAM)! Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Verndum Elliðaárnar! MIG langai- til að taka undir með þeim Orra Vig- fússyni, Bubba Morthens, Össuri Skarphéðinssyni og fleiri góðum mönnum varðandi verndun Elliða- ánna. Eg lét yfir 20 ára draum minn rætast nú í fyrra og fékk mér veiði- leyfi í ánum. Engum náði ég laxinum en missti þó einn og vinur minn náði einum á fluguna. Það er kaldhæðni örlaganna að tvær af elstu stóru virkj- unum frumkvöðlanna era á góðri leið með að út- rýma, ekki tveimur heldur þremur af stofnum lax- físka sem einna merkileg- astir eru í augum stanga- veiðimanna. Elliðaárvirkj- un er á góðri leið með að eyða náttúrulegum stofni árinnar. Eg ek um Höfðabakka- brúna til vinnu á hverjum degi og á haustin þegar rennsli árinnar er nær stöðvað milli stíflu og stöðvar vegna rafmagns- framleiðslu, sé ég hettu- mávinn og aðra fugla tína laxaseiðin upp úr pollum sem vart rennur á milli. Síðan þegar vorar og laxinn á leið til sjávar og safnast í stífluna á við- kvæmasta skeiði ævinnar (eftir hrygningu), þá eru flóðgáttirnar opnaðar og laxinum „sturtað" niður á klappirnar neðan stíflu. Spuming er hversu mikil affóll í stofninum þetta kostar, enda hend- ing að það veiðist lax sem hefur átt afturkvæmt úr sjónum og náð tveggja stafa tölu í þyngd. Nú er það spurning hvernig síðasta stórslys hefur farið með lífríkið, sjálfsagt skolað öllum nið- urgönguseiðum á haf út fyrir sinn tíma, án aðlög- unar fyrir seltuna, er að- færsluæð virkjunarinnar sprakk á dögunum. Eg er þeirrar skoðunar að það sé löngu tímabært að leggja af þessa virkjun enda eina nýting hennar að þjónusta hrærivélar reykvískra húsmæðra í jólamánuðinum. Stífluna ætti að rífa, og þess vegna búa til fallega fossa á klöppunum neðan stífl- unnar, þar sem okkur náttúruunnendum gæti gefist kostur á að horfa á þennan konung íslenskra áa sýna snilli sína í stökk- um upp fossa. Annar kapítuli er Stein- grímsstöð við Sog. Þar hefur virkjunarmönnum nærri tekist að slá tvær flugur í einu höggi - út- rýming Þingvallaurriðans sem hrygndi í Soginu og átti (á) ekki sinn líka í heiminum. Þá má benda á áhrif virkjunarinnar á einn mesta stórlaxastofn hérlendis, sem hefur ekki borið sitt barr síðan, ekki síst vegna hringlandahátt- ar í vatnsmiðlun (þurrð) í ána neðan stíflu. Þó ætla ég að Össur Skarphéðins- son, sérfræðingurinn í líf- ríki laxfiska á þessum slóðum, sé betur fallinn til umfjöllunar um þetta vatnasvæði og læt ég hon- um það eftir. Eitt er þó ljóst að báðar þessar virkjanir hafa löngu þjón- að sínu hlutverki, og tími er kominn til að skila nátt- úrunni sínu. Óskar Pálsson stangaveiðiunnandi. Enn ein ofsóknin ÞAÐ er hérna hópur af fólki sem hefur þann ágæta sið að úða upp í sig sérstakri efnablöndu úr brúsa sem hægt er að bera á sér. Þeim sem hafa reynt þetta finnst þetta flestum voða gott og van- ur „úðamaður" tekur brúsann upp þetta 15-25 sinnum á dag og fær sér svona 8-10 úða úr honum í hvert skipti til að mæta þörfinni. Maður byrjaði auðvitað smátt í þessu og ekki á almannafæri en svo kemur að því að menn fara að taka upp brúsann innan um aðra, á vinnu- stöðum og víðar, og mað- ur skyldi nú halda að það væri í lagi. Við búum þó í lýðfrjálsu landi, eða hvað? Þetta var svo sem allt í lagi til að byrja með en svo fórum við úðamenn að verða fyrir, ja ég vil segja aðkasti og nú er búið að setja á okkur ýmsar tak- markanir allt upp í það að banna okkur alveg að nota úða á hinum og þessum stöðum. Ég nefni t.d. þessar fáránlegu reglur um úðavai'nir á vinnustöð- um sem gera manni mjög erfitt fyrir að fá sér úða í vinnunni, ef það þá leyfist á annað borð. Sumir at- vinnurekendur ganga jafnvel svo langt að segj- ast helst ekki ráða úða- menn í vinnu. Allt þetta á svo að rétt- læta með því að við gleyp- um ekki allan úðann sjálf- ir heldur fari svo og svo mikið af honum út í and- rúmsloftið þar sem við er- um að nota úða og í úðan- um séu hin og þessi efni sem geti valdið krabba- meini og kransæðastíflu og guð má vita hverju og þessu fylgi einhver sóða- skapur og meira eða minna vinnutap, allt tóm- ur fyrirsláttur auðvitað. Nei, þetta eru auðvitað ekkert annað en ofsóknir. Eins og hann Heimir Már er margoft búinn að lýsa svo átakanlega: „Fyrst tóku þeir kommana, svo homana, svo gyðingana (var það ekki í þessari röð?) og nú er komið að mér,“ þ.e.a.s. að honum sjálfum í eigin persónu. Nema að nú erum það við úðamennirnir sem er komið að - og ég er ekki viss um að það stoði okkur neitt þó að það hafi fyrir löngu átt að vera komið að Heimi Má samkvæmt þessari upptalningu og hann gangi víst ennþá laus. Uðamaður. Tapað/fundið Hálsmen, antikgripur, týndist HÁLSMEN, antikgripur úr silfri með stuttri keðju, sem er fléttuð með litlum þríhyrningum sem glitrar á, týndist aðfaranótt laug- ardags, líklega í Austur- stræti við La Primavera eða á leiðinni frá Land- spítalanum í Þingholtin að Baldursgötu. Menið er eitt sinnar tegundar og er þess sárt saknað. Þeir sem hafa orðið mensins varir hafi samband við Irisi eða Jón í síma 551 7768. Fundarlaun. Víkveiji skrifar... IÐURSTAÐA æðsta áfrýjun- ardómstóls Italíu um að ekki hefði verið hægt að nauðga konu vegna þess að hún klæddist galla- buxum gerði Víkverja gramt í geði er hann las fréttina á forsíðu Morgunblaðsins síðastliðinn föstudag. 45 ára ökukennari hafði verið dæmdur í tæplega þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 18 ára nemanda sínum, en áfrýjunar- rétturinn hnekkti dómnum á þeirri forsendu að „ógjörningur“ væri að færa konur úr gallabux- um ef „þær streittust á móti af öllu afli“. Hvernig er hægt að komast að niðurstöðu sem þessari; að ekki sé hægt að nauðga konu sem klæðist gallabuxum? Hafa dómarar í áfrýj- unardómstólnum aldrei heyrt um rennilása? Oft hefur heyrst sú skoðun þeg- ar fréttir hafa borist af dómum í nauðgunarmálum að þolandinn hafi boðið upp á þetta, meðal annars vegna klæðaburðar eða ölvunar. Það er kannski lausnin fyrir konur að klæðast alltaf gallabuxum? En máhð snýst ekki um það heldur að nauðgun er glæpur og það er ekk- ert sem réttlætir kynferðisafbrot af neinum toga. x x x TAFIR á flugi Flugleiða til London föstudaginn 5. febrúar ollu kunningja Víkverja miklum óþægindum. Hann átti pantað far frá London til Keflavíkur með vél- inni sem átti að fara í loftið klukk- an 13 en ekki var farið í loftið fyrr en klukkan 23. Að hans sögn fengu farþegar engar upplýsingar frá Flugleiðum um hvað olli seinkun- inni heldur var einungis hægt að lesa á skjám á flugvellinum að flug- inu væri aflýst. Air Lingus, sem sér um rekstr- arþjónustu Flugleiða í London, gaf þó farþegum 10 punda, 1.100 króna, matarúttekt á einhverjum veitingastaðnum í flugstöðinni. Þegar farþegarnir ætluðu að nota úttektarmiðana kom í ljós að stimpil frá Air Lingus, sem átti að staðfesta að Air Lingus borgaði fyrir viðkomandi, vantaði svo ekki var hægt að nota miðana. Þegar vélin tók loks á loft afsak- aði flugstjórinn biðina sem hann sagði hafa verið af óviðráðanlegum orsökum. Farþegarnir sem höfðu beðið á Heathrow-flugvelli allan daginn án þess að fá vott né þuirf frá flugfélaginu, einungis ónothæf- an matarmiða, fengu þá skýringu að seinkunin hefði verið óviðráðan- leg og ekki orð um það meir. Annar kunningi Víkverja var hins vegar að reyna að komast til London þennan sama dag frá Is- landi. Eftir að hafa beðið allan dag- inn í Leifsstöð gafst hann að lokum upp og hætti við ferðalagið enda' allar forsendur ferðarinnai- brostn- ar vegna tafanna þar sem hann var búinn að missa af tengiflugi frá London síðar þennan sama dag. Ætlaði viðkomandi að sitja ráð- stefnu á meginlandi Evrópu síð- degis á fóstudag og laugardag en vegna seinkunarinnar missti hann af stórum hluta ráðstefnunnar og fannst ekki taka því að leggja ferðalagið á sig af þeim sökum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.