Morgunblaðið - 25.03.1999, Page 2

Morgunblaðið - 25.03.1999, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rflrisstjórnin kynnir aðgerðir til að bæta hag lífeyrisþega 1 landinu Grunnlífeyrir bóta hækkar um 7% Morgunblaðið/Ásdís RIKISSTJÓRNIN kynnti hækkun grunnlífeyris almannatrygginga á fundi með fulltrúum eldri borgara. RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að hækka grunnlífeyri almanna- trygginga um 7% eða um 1.100 krónur frá og með næstu mánaða- mótum og að sögn Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra er tilgangur að- gerðarinnar að bæta hag lífeyris- þega. Jafnframt hefur verið ákveðið að hækka vasapeninga þeirra lífeyr- isþega sem dvelja á stofnunum og hafa ekki aðrar tekjur, um 34% eða um 4.000 krónur, þannig að vasa- peningarnir verði jafnháir grunnlíf- eyri. Eftir hækkunina verður grunnlífeyrir samtals 16.830 kr. Að sögn Geirs H. Haarde fjár- málaráðherra kosta þessar hækkan- ir ríkissjóð um 520 milljónir á árs- grundvelli hér eftir. Ríkisstjómin kynnti þessa ákvörðun sína á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í gær en hann sátu einnig Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara, og Ólafur Ólafsson, for- maður Félags eldri borgara í Reykjavik. Forsætisráðherra benti á að endurskoðuð þjóðhagsspá sem fram hefði komið í síðustu viku sýndi að undirstöður efnahagslífsins og i-íkisfjármálanna væru traustar. Forsendur mats um árið 1999 yrðu vitaskuld tryggaiá eftir því sem liði á árið og rauntölur tækju við af spám. „Því hyggst ríkisstjórnin nýta svigrúm í fjármálum ríkissjóðs til að koma til móts við sjónarmið lífeyrisþega um að raunkaupmátt- araukning lífeyrisbóta verði ótví- rætt sambærileg við það sem orðið hefur hjá öðrum,“ sagði hann. Forsætisráðherra skýrði einnig frá því að sameiginleg niðurstaða samráðshóps ríkisstjórnarinnar og eldri borgara, sem nýlega var stofn- aður, hefði verið sú að setja hækkun grunnlífeyris almannatrygginga í forgang annarra verkefna. Fyrr- greind ákvörðun ríkisstjómarinnar um hækkun grunnlífeyris og vasa- peninga hefði síðan verið kynnt for- ráðamönnum samtaka aldraðra fyrir blaðamannafundinn í gær. „Áfram verður kerfi almannatrygginga til skoðunar, ekki síst í samráði ríkis- stjómar og eldri borgara. Einnig verður litið til annan-a leiða í þágu bótaþega sem stjómvöld hafa yfir að ráða. Innan ramma hallalausra fjár- laga verða markmiðin m.a. að ein- falda kerfi almannatrygginga, auka jafnræði milli sambærilegra bóta- þega og huga áfram sérstaklega að hag þeirra sem lakast standa,“ sagði forsætisráðherra. Áfangi á lengri leið Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingaráðherra, ítrekaði á fundinum í gær að það hefði verið krafa eldri borgara að setja hækkun grunnlífeyris í forgang og að ríkis- stjórnin hefði nú orðið við þeirri kröfu. „Þetta er áfangi á þeirri leið að ná samkomulagi um bætur,“ sagði hún. Benedikt Davíðsson tók undir það að vissulega væri um fyrsta áfanga að ræða á þeirri leið að leiðrétta tryggingagreiðslur. „Og fyrir hönd minna samtaka, Lands- sambands eldri borgara, þakka ég snögg viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Við voram með fyrsta fund sam- ráðsnefndarinnar í síðustu viku og lögðum þá einmitt áherslu á þessar breytingar sem hér er verið að kynna.“ Kvaðst hann jafnframt vænta þess að eiga gott samstarf við ríkisstjórnina um endurskoðun almannatryggingakerfisins og skattkerfisins í þeim tilgangi að bæta kjör lífeyrisþega. „Við [hjá Landssamtökum eldri borgara] höf- um haldið því fram að okkar hópur hafi ekki fengið eðlilega hlutdeild í góðærinu sem sífellt er verið að tala um. En hér er verið að stíga skref í þá átt að sá hópur fái hlutdeild í góðærinu." Aætlun um uppbyggingu listmenntunar á háskólastigi undirrituð Andlát SOFFANIAS CECILSSON ME NNTAMÁL ARÁDHE RRA og rektor Listaháskóla Islands undir- rituðu í gær áætlun til næstu þriggja ára um uppbyggingu list- náms á háskólastigi. Samkvæmt áætluninni tekur Listaháskólinn að sér menntun í myndlist, leiklist og tónlist í áföngum á næstu þremur árum. Listaháskólinn mun á tímabilinu einnig gera tillögur um hvernig nám í öðrum listgrein- um, svo sem hönnun og bygging- arlist, verði þróað innan veggja skólans. Samkvæmt áætluninni sem Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra og Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla íslands, undir- rituðu er gert ráð fyrir að mynd- listarmenntun hefjist á vegum Listaháskóla íslands frá og með 1. ágúst 1999. Gerist það með þeim hætti að sú menntun sem fram hef- ur farið á vegum Myndlista- og handíðaskóla íslands fer fram óbreytt á vegum Listaháskólans, og starfrækslu MHI verði hætt frá og með sama tíma. Þá er reiknað með að leiklistannenntun á há- skólastigi hefjist á vegum Listahá- skólans frá og með 1. ágúst árið 2000 og Leiklistarskóli íslands hætti starísemi frá og með sama tíma. I áætluninni er gert ráð fyrir að tónlistarmenntun hefjist á vegum Listaháskóla Islands í síðasta lagi 1. ágúst 2001 að undangengnum viðræðum við þá tónlistarskóla sem veitt hafa slíka menntun og fengið til þess fjái-framlög eða styrkveit- ingar frá ríkinu. Oll starfsemi fiytji í húsnæði skólans haustið 2001 Gert er ráð fyrir að þjónustu- samningar verði gerðir við Lista- háskóla Islands vegna leiklistar- náms eigi síðar en 1. ágúst 1999 og vegna tónlistarmenntunar eigi síð- ar en 1. maí 2001. Stefnt er að því að öll starfsemi Listaháskóla Is- lands flytjist á einn stað haustið 2001 þannig að unnt verði að sam- þætta nám í öllum deildum háskól- ans. Hjálmar H. Ragnarsson segir að skólinn sé ekki að innlima eða taka yfir umrædda skóla, heldur sé ver- ið að stofna til listnáms á háskóla- stigi sem stenst settar kröfur Listaháskólans. Á umræddu þriggja ára tímabili munu námsbrautir í því listnámi sem boðið er upp á á vegum Lista- háskóla Islands verða lagaðar til og námið þróað og lagað að breyttum kröfum. Þeir nemendur sem hafa innritast til náms í lista- skólum áður en Listaháskólinn hefur kennslu á viðkomandi sviði munu fá tækifæri til þess að ljúka prófum samkvæmt því námsskipu- lagi sem í gildi var er þeir innrit- uðust. Hins vegar mun Listahá- skóli Islands bjóða þeim nemend- um sem hafa til þess forsendur að ljúka prófi með háskólagráðu ef þeir óska þess. Stjórn Listaháskóla íslands hefur óskað eftir því við núver- andi starfsfólk Myndlista- og handíðaskóla Islands að það gefi kost á sér til starfa við Listahá- skólann næsta skólaár, þ.e. til 1. ágúst árið 2000. Hjálmar segir að stöður við skólann verði auglýstar síðar, eða þegar Listaháskólinn hefur mótað námið samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru um listmenntun á háskólastigi og þeim markmiðum sem skólinn mun starfa eftir. SOFFANÍAS Cecils- son, fiskverkandi og út- gerðarmaður í Grand- arfii-ði, er látinn, tæp- lega 75 ára að aldri. Soffanías fæddist að Búðum undir Kirkju- felli í Grundarfirði 3. maí 1924. Hann var einn fimm systkina sem öll fæddust þar, en foreldrar hans vora Kristín Runólfsdóttir og Cecil Sigurbjamar- son. Föður sinn misti Soffanías í sjóslysi árið 1933 og ólust systkinin því upp hjá móður sinni að Búðum. Hugur Soffaníasar stóð alla tíð til sjósóknar og útgerð hóf hann 12 ára gamall í maí 1936, þegar hann og Bæring bróðir hans keyptu 2,8 tonna bát, Oðin. Soffanías tók 15 tonna skipstjórnarréttindi árið 1946. Árið 1949 keyptu bræðurnir 38 tonna bát, sem þeir nefndu Grandfirðing og hófst þar með óslitin saga útgerðar og fískvinnslu undir forystu Soffaníasar. Ái-ið 1952 stofnaði Soffanías hlutafélagið Grand ásamt EmO Magnússyni og Guðmundi Runólfs- syni, sem rak fiskverkun og verzl- un. Hann keypti svo síðar hlut þeirra beggja í fyrirtækinu og rak einn fram á síðustu ár undir eigin nafni, en böm hans tóku við rekstrinum fyrii' fáum áram. Soffanías var meðal þeirra fyrstu sem stunduðu veiðar og vinnslu á hörpuskel, en fyrirtæki hans hef- ur einnig stundað veið- ar og vinnslu á rækju og bolfiski. Soffanías var einn þeirra sem tóku þátt í uppbyggingu Grund- arfjarðar með útgerð sinni og fiskvinnslu og tók hann mikinn þátt í félagsmálum. Hann var í stjórn, og um tíma formaður, Samtaka fiskvinnslustöðva, sat í stjóm Félags rækju- og hörpudisk- framleiðenda, í 22 ár í stjórn SÍF (Sölusambands íslenzkra fiskfram- leiðenda), í Atvinnumálanefnd og starfaði mikið innan Lions-hreyf- ingarinnar. Eftirlifandi eiginkona Soffanías- ar er Hulda Vilmundardóttir. Böm þeirra era Magnús, Kristín og Sóley, en Hulda á að auki eina dóttur, Bryndísi Vilhjálmsdóttur. Myndlistarnám hefjist við Listaháskóla Islands Soffanías Cecilsson m KÖGUN Verð- hækkun Orðrómur um samning/B1 [)l FBA 51% hlutur Seldur eftir kosningar/B2 Sigurlaug meistari á listskautum fimmta árið í röð/C4 Fylgst með Indriða Sigurðssyni á móti á Ítalíu/C3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.