Morgunblaðið - 25.03.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Umræður tefjast um aðalviðfangsefni leiðtogafundar ESB
Einhugur um út-
neíningii Prodis
Berlín. Reuters.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins
(ESB) útnefndu í gær einum rómi
Romano Prodi, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Italíu, sem arftaka
Jacques Santers í embætti forseta
framkvæmdastjórnar ESB.
Tuttugu manna framkvæmda-
stjóm Santers sagði af sér í liðinni
viku í kjölfar birtingar harðorðrar
skýrslu um spillingu innan fram-
kvæmdastjórnarinnar. Prodi, sem
búizt er við að Evrópuþingið sam-
þykki í embættið snemma í apríl,
fær það hlutverk að „taka rækilega
til“ í stjórnsýslu ESB og að reyna að
byggja upp traust almennings á
henni, sem hefur beðið hnekki eftir
neikvætt umtal síðustu mánaða.
Eftir að Evrópuþingið hefur sam-
þykkt skipan Prodis munu ríkis-
stjórnir aðildarlandanna fimmtán, í
samráði við Prodi, útnefna hina 19
fulltrúana í nýja framkvæmda-
stjórn. Þessir fulltrúar þurfa að
hljóta samþykki EÞ áður en þeir
geta tekið við embættum sínum og
leyst fráfarandi framkvæmdastjóm
Santers af hólmi. Hún hafði lýst því
yfir að hún myndi ekki taka nema
nauðsynlegustu ákvarðanir, unz nýir
menn taka við.
Útnefningunni var vel tekið hjá
leiðtogum Evrópuþingsins og allar
pólitískar fylkingar á Italíu fógnuðu
henni sem „sigri fyrir Ítalíu“. Prodi
er hagfræðingur frá Bologna og var
í forsæti miðju-vinstristjómarinnar,
sem féll naumlega í nóvember sl.
Áður aðeins í tískublöðum.
Nú fáanlegt í Valmiki.
MISS ROSSI
eftir Sergio Rossi
LtLLtiÆL-í;
FARRUTZ
Le Tini eftir Sergio Rossi
Echo eftir Sergio Rossi
Valmiki eftir Luciano Barachini
Verð kr. 9.950
eða 124.00 evrur.
Berið saman okkar verð
og verð erlendis.
Kringlunni
sími 552 2888
Reuters
PETRA Roth, borgarstjóri Prankfurt, faðmar Romano Prodi í ráðhúsi
borgarinnar í gær, eftir að hann var útnefndur næsti forseti fram-
kvæmdastjómar ESB. Prodi var í Frankfurt vegna bókarkynningar.
þegar þingmenn kommúnista hættu
stuðningi við hana. Stjóm Prodis
vann það afrek að gera Italíu hæfa
til að uppfylla hin ströngu skilyrði
fyrir stofnaðild að Efnahags- og
myntbandalaginu, EMU.
Einhugur ESB-leiðtoganna, sem
komu saman til tveggja daga fundar
í Berlín í gær, um tilnefningu Prodis
kom nokkuð á óvart, en umræður
þeirra um hana og Kosovo-deiluna
tafði þá frá því að taka fyrir þau mál
sem upprunalega stóð til að yrðu að-
alviðfangsefni þessa aukaleiðtoga-
fundar, en það er leitin að samkomu-
lagi um endurskoðun fjármála sam-
bandsins fyrir árabilið 2000-2006.
Útnefningin sögð auðvelda
fjármálasamninga
Spænskir stjómarerindrekar
sögðu ákvörðunina um útnefningu
Prodis vera til þess fallna að auð-
velda samkomulag um fjármálin, en
meginátakalínan þar liggur milli
hinna auðugri og norðlægari ríkja
álfunnar og þeirra fátækari og suð-
lægari. Ríku ríkin vilja sporna gegn
frekari útgjaldaaukningu sambands-
ins, einkum til landbúnaðar og
byggðastyrkja, áður en fátækum
ríkjum Mið- og Austur-Evrópu er
veitt innganga í ESB. Suðlægari rík-
in reyna hins vegar eftir mætti að
hindra að þau missi spón úr aski sín-
um, þar sem þau hafa haft mestan
hag af fjárstreymi úr hinum sameig-
inlegu sjóðum.
Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, stýrir leiðtogafundinum
þar sem Þjóðverjar gegna þetta
misserið formennsku í ráðherraráði
ESB, en hann hafði boðað til hans í
þeim tilgangi að ganga frá „Dagskrá
2000“ (Agenda 2000), en það hafa
einu nafni verið nefndar tillögur að
umbótum á fjárlagagerð ESB í heild
næstu sjö árin og á landbúnaðar- og
byggðasjóðum sambandsins.
Þrátt fyrir hemað á Balkanskaga
geta ESB-leiðtogamir ekki annað en
reynt að finna sem fyrst lausnir á
hinni umdeildu fjármálauppstokkun
og stjómkerfiskreppunni í Brassel.
Eftir að hafa afgreitt ákvarðanir
bæði um tímasetningu árása NATO á
Júgóslavíu og um val á nýjum forseta
framkvæmdastjómarinnar gátu þeir
loks snúið sér að „Dagskrá 2000“.
Þjóðverjar hafa varað við því að
náist ekki niðurstaða í það mál áður
en staðið er upp frá samningaborð-
inu í Berlín, sem gert er ráð fyrir að
verði I kvöld, kunni það að rýra enn
frekar traust á stofnunum ESB og
getu þeirra til að leysa fyrirliggjandi
vandamál, auk þess að veikja evr-
una, hina ungu Evrópumynt.
Kjamahluti „Dagskrár 2000“ er
umdeilt samkomulag um endurbætur
á landbúnaðarkerfi ESB, sem gengið
var frá fyrir hálfum mánuði, eftir
langar og strangar samningaviðræð-
ur. I því var ákveðið að takmarka ár-
leg útgjöld ESB til landbúnaðarmála
við 40,5 milljarða evra (um 3.200
milljarða króna), en það er 6,3 millj-
örðum evra hærri upphæð en gert
var ráð fyrir að hámarki í „Dagskrár
2000“-tillögunum.
ANDSTÆÐINGAR Pinochets fjölmenntu út á torg í Madríd í gær til
að fagna úrskurði um að hann skuli ekki njóta friðhelgi frá ákæru.
Lávarðar úrskurða á ný 1 máli Pinochets
Báðir aðilar
fagna sigri
Lundúnum. Reuters.
ÆÐSTI áfrýjunardóm-
stóll Bretlands úr-
skurðaði í gær að
Augusto Pinochet, fyrr-
verandi einræðisherra
Chile, væri ekki frið-
helgur fyrir saksókn
þar í landi á þeirri for-
sendu einni að hann sé
fyrrverandi þjóðarleið-
togi. En úrskurðurinn,
sem hinir sjö dómarar
lávarðadeildar brezka
þingsins kváðu upp í
gær, er engu að síður
allmikill áfangasigur
fyrir Pinochet, sem
berst fyrir því að kom-
ast hjá að verða fram-
seldur til Spánar, þar sem hann er
ákærður fyrir að bera ábyrgð á al-
varlegum glæpum sem framdir vora
í stjómartíð hans á tímabilinu
1973-1990.
Áfangasigur Pinochets felst í því,
að samkvæmt brezkum lögum er
ekki hægt að höfða nein mál gegn
honum þar í landi fyrir önnur
ákæraatriði en þau sem ná til af-
brota framin eftir haustið 1988, en
þá fyrst fullgilti Bretland alþjóðleg-
an sáttmála um pyndingar. Fyrir
þann tíma sögðu dómararnir að eng-
inn gæti verið framseldur frá Bret-
landi á grundvelli pyndingarákæra
nema til þess lands sem meintur
glæpur var framinn. Sex af dómur-
unum sjö standa að úrskurðinum.
Báðir aðilar málsins, verjendur og
stuðningsmenn Pinochets annars
PR0TEIN
og fæðubótarefni
Landsins mesta úrval á verði sem
stenst allan samanburð !
GREAT
AMERICAN
NUTRmON
TWINLAB
EAS
LEPPIN
METAFORM
ABB
NATURES BEST
MUSCLE TECH
TWINLAB
Fljótandi
Aminósýrur
948 ml.
kr. 1.990,-
MegaMass 4000
4kg.|(f. 3.990,-
Creatine 500 gr.
kr. 3.990,-
Ráðgjöfá staðnum
Yfir 25 ára reynsla í sölu á
fæðubótarefnum á íslandi
Skeifunni 19 - S. 568 1 71 7*
vegar og andstæðingar
hans hins vegar, gátu
lýst niðurstöðuna
áfangasigur fyrir sig. I
augum andstæðing-
anna var sú ákvörðun
að Pinochet beri að
dvelja áfram í Bret-
landi og svara fyrir sig í
málaferlum vegna
framsalsbeiðninnar frá
Spáni „nógu gott“, eins
og Reed Brody, tals-
maður mannréttinda-
samtakanna Human
Rights Watch, orðaði
það.
Augusto Pinochet, sem nú er
Pinochet 33 ára 0g a sæti í öld-
ungadeild chileska þingsins, var
handtekinn í Lundúnum í október sl.
í kjölfar þess að spænskur dómari
fór fram á framsal hans. I nóvember
hafði lávarðadómstóllinn úrskurðað
að Pinochet skyldi ekki njóta frið-
helgi, en sá úrskurður var síðar
ógiltur þar sem einn dómaranna
þótti vanhæfur vegna tengsla við
mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational, sem höfðu beitt sér
gegn Pinochet í málinu.
Þessi fyrsti úrskurður lávarða-
dómstólsins hnekkti dómi undirrétt-
ar í Bretlandi, sem hafði komizt að
þeirri niðurstöðu að Pinochet skyldi
friðhelgur fyrir málaferlum í Bret-
landi á grundvelli laga sem eiga að
tryggja þjóðhöfðingjum annarra
ríkja slíka réttarvernd.
Flest ákæruatriðin „ógild“
Stuðningsmenn Pinochets sáu sér
hugarfró í því, að langflest þeirra
ákæraatriða sem á hann eru borin -
í ákærunni sem framsalsbeiðni
Spánar byggist á era tíunduð þús-
undir morða og pyndinga - hefðu í
raun verið lýst ógild.
Flestir þessara glæpa voru
framdir á fyrri hluta valdatíma
hans, þ.e. fyrir árið 1988, þó að sak-
sóknarar í máli hans segi að hann
hafi verið viðriðinn ýmis samsæri
sem voru í gangi allt til þess dags er
hann lét stjórnartaumana af hendi í
janúar 1990.
Eina tilfellið um pyndingar sem
getið er í ákærunni sem framsals-
beiðnin byggist á og sem átti sér
stað eftir 1988 er mál hins 17 ára
gamla Marcosar Quezada Yanez,
sem dó eftir að hafa þurft að þola
raflost í meðföram chilesku lögregl-
unnar.
Fyrir utan húsið sem Pinochet
hefur dvalið í stofufangelsi í vestan
Lundúna fógnuðu andstæðingar
hans ákaft með því m.a. að skjóta
töppum úr kampavínsflöskum er úr-
skurðurinn hafði verið kveðinn upp.
„Nú er hægt að hefja málaferlin
gegn honum. Við eram vongóð um
að hann verði framseldur til Spán-
ar,“ sagði einn viðstaddra, sem sjálf-
ur flúði harðstjórn Pinochets fyrir
24 áram.