Morgunblaðið - 25.03.1999, Qupperneq 72
JT2 FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Leikstjóri myndarinnar Zero Effect
ekki
ára
Jake Kasdan er ekki hár í loftinu eða
boginn af löngu ævistriti. Hann er
nýfluttur að heiman og var að framleiða
og leikstýra sinni fyrstu stóru kvikmynd
í Hollywood. Pétur Blöndal talaði við
hann og aðalleikarann, Bill Pullman, um
hárgreiðslu og sérvitra einkaspæjara.
„ÞAÐ ER ekki án vandlegrar um-
hugsunar sem ég sest niður og
byrja að skrá aðferðir mínar,“ seg-
ir í bréfí frá einkaspæjaranum
Dai-yl Zero. I framhaldi af því lýsir
hann því hvemig hann þurrkaði út
>011 ummerki eftir sig „á hurðarhún-
um lífsins“ og sálarangistinni sem
fylgdi því að svipta hulunni af
vinnuaðferðum sínum þótt það
væri nauðsynlegt til að koma sér „á
stall sem fremsta einkaspæjara í
heiminum".
Bréfið er skrifað til eins af
yngstu leikstjórum kvikmynda-
borgarinnar Hollywood, Jake Kas-
dan, sem leikstýrði myndinni Zero
Effect auk þess að skrifa handritið
- sögu Daryl Zero. Þetta er íyrsta
kvikmynd Kasdans. Hann er sonur
virts leikstjóra í Hollywood,
Lawi-enee Kasdans, sem á að baki
myndir á borð við The Bodyguard,
Grand Canyon, The Accidental
Tourist og Wyutt Earp. Jake er
spurður að þvi í upphafí hvort það
hafi alltaf legið fyrir að hann færi í
fjölskyldubransann.
Skrifaði leikrit 15 ára
„Ég hefði nú getað komist hjá
því og lagt eitthvað annað fyrir
mig,“ segir hann og brosir stráks-
lega og þótt rómurinn sé skrækur
er alvara í augunum. „En þetta var
það sem ég vildi. Alveg frá því ég
var lítill vissi ég að ég gæti átt eftir
að leggja kvikmyndagerð fyrir mig
og þegar ég skrifaði leikrít 15 ára
varð ekki aftur snúið.“
- Hvatti faðir þinn þig áfram eða
reyndi hann að fá þig ofan af
þessu?
„Hann hefur aldrei sagt mér fyr-
ir verkum. Hins vegar leyfði hann
mér að fylgjast með sér að störfum
og veitti mér þannig innsýn í kvik-
myndagerðina. En maður ráðlegg-
ur ekki syni sínum að leggja þetta
fyrir sig því það gæti verið ávísun á
ömurlegt líf. Það era svo margir
sem reyna en komast aldrei að.
Sem er auðvitað ömurlegt. Engu
að síður á maður ekki að draga úr
neinum ef hann vill þetta á annað
borð. Og maður á auðvitað alltaf að
styðja við bakið á syni sínum.
- Hvað ertu gamall?
„23 ára.“
- Þú ert ennþá nokkuð ungur.
„Já, en ég er ekki fimm ára,“
svarar Jake og hlær eins og hann
sé ekki deginum eldri en fimm ára.
Síaðist inn í mig
frá fæðingu
- Hverjir eru kostirnir og gall-
amir við þann starfa sem þú hefur?
„Kostirnir... ég held mjög góðu
sambandi við foreldra mína, - sem
er mjög fátítt í Los Angeles. Mér
er vel við þau bæði. Þau era ást-
fangin, mjög náin og þeim þykir
vænt hvoru um annað. Það er auð-
vitað fyrir öllu.
Svo hefur það sína kosti að eiga
föður sem er kvikmyndagerðar-
maður. Það þýðir að frá barnsaldri
hafði ég aðgang að mikilli þekkingu
á kvikmyndaiðnaðinum og það sem
virðist flókið, dularfullt og jafnvel
Ég er
fímm
óviðráðanlegt fyrir sumum og aðrir
þurfa áralanga menntun til að
leysa síaðist inn í mig frá fæðingu.
Ég lærði jafnvel um tæknilegu
hliðamar á kvikmyndagerð.
Gallarnir era léttvægir. Vissu-
lega skrifa menn illa um mig úr
launsátri, en það er ekki á mínu
valdi að stöðva það. Svo ég reyni að
kippa mér ekki upp við það, - hvað
sem þeir segja. Það eina sem ég get
gert er að leggja harðar að mér.“
Sömu myndir
aftur og aftur
- Er rúm fyrir óháða kvik-
myndagerðarmenn í Hollywood
eða eru stóra kvikmyndaverin að
sölsa undir sig allan markaðinn?
„Setjum sem svo að Hollywood
ákveði að gera sömu fimm mynd-
irnar aftur og aftur og aftur,“ segir
Jake og brosir sjálfúr við tilhugs-
unina.
„Að einu kvikmyndastjörnurnar
verði 35 til 40 ára hvítir karlmenn
sem era fullkomnir í útliti. Það
hlýtur að skapa rúm fyrir aðra á
jöðrunum því það verða alltaf ein-
hverjir áhorfendur sem vilja horfa
á eitthvað annað - hugsa um eitt-
hvað annað. Þá koma óháðir kvik-
myndagerðarmenn til skjalanna
því þar er sagan oftast í fyrirrámi.
Svo gerist alltaf eitthvað á sex
mánaða fresti sem kollvarpar þess-
ari kenningu alfarið. Hvað sem
mönnum finnst almennt um Titanic
er hún ekki af hinu góða fyrir þá
sem vilja segja sögur. Skilaboðin
sem hún færir Hollywood eru þau
að maður geti gert 200 milljóna
dollara mynd og grætt alla pening-
ana. Godzilla skilaði 100 milljónum
dala fyrstu sýningarhelgina í
Bandaríkjunum sem þýðir að nán-
ast ekkert annað var sýnt í Banda-
ríkjunum á sama tíma.
Bill Pullman í Zero Effect
Þar g’engnr ástin
af manni dauðum
un á myndinni. En svona vinnur
Lynch. Hann fer í ferðalag með
myndir sínar. Stundum gengur það
upp og stundum ekki.“
Eins og Godzilla
sé að koma
DARYL verður einbeitingarlaus þegar hann verður ástfanginn af
Gloriu, sem leikin er af Kim Dickens.
BILL Pullman leikur einfarann
ogeinkaspæjarannDarylZero.
„ÉG HEILLAÐIST snemma af
leikhúsi en leiklist virtist of lítill og
þröngur gluggi fyrir mig svo ég
byrjaði að Jeikstýra og það vatt
jjipp á sig. Aður en ég vissi af var
' ég farinn að fást við kvikmyndir,"
segir Bill Pullman sem fer með
hlutverk sérviskufulla spæjarans
Daryl Zero.
Háralitur eftir
innræti
-Þú hefur ekki skipt um hár-
greiðslu síðan í myndinni.
„Nei, ég verð að viðurkenna að
hún er nokkuð öfgakennd,“ segir
hann og hlær. „Það virðist vera
regla að ef ég leik í gamanmynd er
ég ljóshærður og ef ég fæst við
drama er ég dökkhærður."
Pullman kom síðast fyrir sjónir
manna í kvikmyndinni Zero Effect,
fem er eftir ungan leikstjóra, Jake
Kasdan, og annarri mynd sem
nefnist Lok ofbeldis og er eftir öllu
eldri og reyndari leikstjóra, David
Lynch. En hver er munurinn á
þessum tveimur myndum?
„Zero Effect er húmanísk saga,“
segir Pullman. „Þar læknar ástin
öll mein. I myndum David Lynch
er hins vegar annað upp á teningn-
um. Þar gengur ástin af manni
dauðum. Lok ofheldis er umbreyt-
ingasaga. Persónurnar þróast eftir
því sem á myndina líður. Þetta er
forvitnileg mynd. En leikstjórinn
klippti hana í miklum flýti til að
koma henni á hátíðina í Cannes í
fyrra og ég held að það hafi verið
stór mistök. Fyrstu klippingarnar
voru þróttlausar og mér fannst
þær of stirðar. Hann klippti mynd-
ina aftur áður en hún var sýnd í
Bandaríkjunum en það var of seint.
Fólk hafði þegar myndað sér skoð-
-Snúum okkur aftur að Zero
Effect. Þú ert kannski hinn nýi
Marlowe?
„Það er erfitt að segja,“ svarar
Pullman, „hvort [Daryl] Zero getur
flokkast undir dæmigerðan einka-
spæjara eða leynilögreglumann
vegna þess að hann er hálfskyggn.
Hann byggir ályktanir sínar á eðl-
isávísun ekki síður en óyggjandi
staðreyndum."
- Hvernig kanntu við hann?
„Það sem heillar mig við hann er
snilligáfan og hvað þessi eini veik-
leiki sem hann hefur er stór. I
fyrstu vissi ég ekki alveg hvort það
gengi upp en svo fannst mér þetta
frábær uppbygging á persónu:
[Hann líkir eftir sögumanni sem er
mikið niðri fyrir] „Hann nálgast!
Hann er svo einkennilegur! Hann
er svo furðulegur! Hann hefur náð
svo langt! Hann nálgast!“„ Pull-
man tekur sér stutta kúnstpásu áð-
ur en hann heldur áfram. „Það er
eins og Godzilla sé á leiðinni.
Þannig er þetta stóra augnablik
sem bíógestir upplifa. „Þarna er
hann.“ Og þeir horfa á hann stór-
um augum og gera upp hug sinn.“
Hr. Rangur
strembnust
- Hvernig nærðu tökum á hlut-
verkum? Kanntu einhver brögð úr
leikhúsinu eins og til dæmis Mich-
ael Caine sem setur upp viðeigandi
hárgreiðslu?
„Hárið er hluti af því..."
Kabúmm!
Gífurlegur hávaði heyrist utan
úr salnum þar sem verið er að loka
veröndina af með rennihurðum.
-... þögn og kyrrð er mikilvæg,
skýtur blaðamaður inn í og brosir.
„Já,“ svarar Pullman og snýr sér
við í stólnum. „Þögn og kyrrð er
grííííðarlega mikið atriði!“
Kabúmm!
Ekkert lát verður á hávaðanum
og Pullman lítur aftur á blaða-
mann: „Þeir eiga eftir að rálla
þessum hurðum þangað til í fyrra-
málið.“
Kabúmm!
„Þetta er nokkuð spennandi,“
heldur Pullman áfram.
Kabúmm!
„Bráðum verður allt komið á
sinn stað.“
- Hvaða hlutverk hefur verið
strembnast á ferlinum?
„Maður tekur stærstu áhættuna
í óháðum myndum því þeim fylgir
óformlegt leyfi til að breyta gegn
hefðinni," svarar Pullman. „Ætli
erfiðasta hlutverkið hafi ekki verið
Hr. Rangur vegna þess að myndin
átti að hafa almenna skírskotun
þrátt fyrir að því færi órafjarri.
Það var óneitanlega kreíjandi hlut-
verk því ég átti að leika mann sem
er mjög óaðlaðandi en hefur samt
eitthvað við sig.“
Hann þagnar aðeins og bætir
svo við: „Og sú staðreynd að eng-
inn hafði gaman af henni!“ Pullman
hlær en blaðamaður passar sig á
því að hlæja ekki. „Og geta samt
sagt að mér hafí fundist hún góð,“
heldur hann áfram.
Blaðamaður getur ekki stillt sig
um að spyi'ja: „Fannst þér hún
góð?“
„Já, það fannst mér. Raunar á
hún sinn fylgjendahóp. Hún halaði
inn 12 milljónir [840 milljónir
króna] í kvikmyndahúsum og 14
milljónir á myndbandaleigum. Það
er mjög fátítt að tekjurnar séu
meiri af myndböndunum. Ástæðan
fyrir því að hún gekk ekki upp að
mínum dómi var sú að kvikmynda-
verið hélt verndarhendi yfír aðal-
kvensöguhetjunni. Hún var látin
hverfa út í sólarlagið með manni
sem var mun yngri en hún og engin
ástríða var á milli þeirra. Þetta
gekk ekki upp; það var verið að
ljúga að áhorfendum. Mér fannst
mjög sorglegt að myndin skyldi
þurfa að hljóta svona endi vegna
þess að hún fór virkilega vel af stað
og manni leist vel á allt til að byrja
með.“
Skilningsríkt
kvikmyndaver
- Hvernig gekk samstarfið við
leikstjórann unga Jake Kasdan?
„Jake er frábrugðinn öðrum
leikstjóram sem ég hef kynnst og
eru að vinna að sinni fyrstu kvik-
mynd,“ svarar Pullman.
„Ég hef áður unnið myndir með
mönnum sem era að leikstýra í
fyrsta skipti og þess vegna virði ég
það að kvikmyndaverið lét sér
nægja að veita honum aðstoð án
þess að taka af honum völdin.
Hann fékk að ráða og hafa öll þessi
Cul de Sac-atriði sín.
Hjá öðrum kvikmyndaveram
hugsa menn ef til vill er þeir sjá
myndina: „Al' hverju stöðvuðu þeir
ekki þetta? Al' hverju gripu menn
ekki inn í? Þá hefði hún orðið full-
komlega söluvæn." En kannski
hefði það ekki orðið. Hvað þá?
Hann fær að minnsta kosti að gera
myndina eins og hann vill hafa
hana.“