Morgunblaðið - 25.03.1999, Qupperneq 80
a
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIS69UOO, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Ingó
Kaupmannasam-
tök íslands
Mikill meiri-
hluti studdi
Samfylkingin vill þjóðarsátt um breytt fískveiðistjórnkerfí í síðasta lagi árið 2002
Erfíðar viðræður um Smuguna
Oljóst er hvort
samningar
takast í Moskvu
SAMNINGAR hafa enn ekki tek-
ist um gagngjald fyrir veiðar Is-
lendinga í Barentshafi, en viðræð-
ur um það standa nú yfir í
Moskvu. Vonast er eftir að við-
ræðum Ijúki með undirritun samn-
inga í dag, en ekki er talið útilokað
að samninganefndir haldi heim án
þess að hafa náð samkomulagi um
atriðin.
Samkomulag náðist um öll meg-
inatriði Smugudeilunnar milli Is-
lands, Noregs og Rússlands á
samningafundi í Bodö í Noregi í
byrjun þessa mánaðar. Ekki
vannst hins vegar tími til að ljúka
viðræðum um atriði sem snúa að
því gagngjaldi sem ísland þarf að
greiða fyrir að fá veiðiheimildir í
Barentshafí.
Halldór Asgiímsson utanríkis-
ráðherra sagði að það hefði alltaf
verið ljóst að þessar viðræður í
'■——Moskvu yrðu erfíðar, en kvaðst
vonast eftir að þeim lyki í dag með
samkomulagi. Hann vildi ekki tjá
sig um stöðuna í viðræðunum þar
sem þær væru á viðkvæmu stigi,
en sagði að verið væri að takast á
um það gagngjald sem kæmi fyrh’
veiðiheimildirnar, sem samkomu-
lag varð um 5. mars sl. að Island
fengi í Barentshafi.
Viðræður skemmra komnar
Samkomulagið kvað á um að Is-
lendingar fengju að veiða 8.900
tonn af þorski í Barentshafi, sem
skiptist jafnt milli lögsagna Rúss-
lands og Noregs. Áður en viðræð-
urnar hófust í Moskvu lá fyrir í
meginatriðum samkomulag milli
Islands og Noregs um veiðiheim-
ildir Norðmanna hér við land, en
viðræður um gagngjald til Rúss-
lands vora skemmra á veg komnar.
Einnig átti eftir að ná samkomu-
lagi um kröfu Norðmanna og
Rússa um að Islendingar hættu
veiðum í Barentshafí ef heildar-
veiðin þar færi niður fyrir ákveðið
lágmark.
Fantur leikur sér
HANN er ekki nema tveggja
mánaða, labradorhvolpurinn
Fantur, enda hefur hann nóg að
gera við að uppgötva furður
náttúrunnar. Hann sleppti ekki
tækifærinu til að Ieika sér aðeins
með gosumbúðir sem urðu á vegi
hans.
stofnaðild
Hluti aflaheimilda leigð-
ur á opinberu uppboði
SAMFYLKINGIN vill ná þjóðar-
sátt um breytt stjórnkerfí fiskveiða
í síðasta lagið árið 2002. Fram að
þeim tíma verði gerðar þær breyt-
ingar að frá og með næsta hausti
verði sá hluti aflaheimilda, sem
nemur aukningu frá fyrra ári,
leigður til eins árs á opinberu upp-
boði og frá haustinu árið 2000 auk-
ist þessi leigukvóti árlega um 5-
10% af úthlutuðum kvóta.
Petta kemur fram í stefnuyfirlýs-
ingu Samfylkingarinnar sem kynnt
var í gær. Þar segir einnig að taka
verði sanngjarnt gjald fyrir not af
sameiginlegum auðlindum lands og
^jávar, m.a. til þess að standa
straum af þeim kostnaði sem þjóð-
in ber af nýtingu þeirra og stuðla
að réttlátari skiptingu á afrakstri
auðlinda. Fram kom í máli Mar-
grétar Frímannsdóttur, talsmanns
Samfylkingarinnar, í gær að áætl-
að væri að auðlindagjaldið myndi
skila þremur milljörðum króna á
ári.
„Á meðan unnið er að fyrr-
greindri sátt verða þær breyting-
ar gerðai- á núverandi kerfi, að
haustið 1999 verður sá hluti afla-
heimilda, sem nemur aukningu frá
fyrra ári, leigður til eins árs á op-
inberu uppboði. Frá haustinu 2000
aukist þessi leigukvóti árlega um
5-10% af úthlutuðum aflaheimild-
um þar til ákvörðun hefur verið
tekin um nýtt stjómkei-fi. Slíkan
leigukvóta verður ekki heimilt að
framselja. Takmarkað verður
hversu mikið einstakir aðilar geta
leigt af aflaheimildum við slík upp-
boð og þess jafnframt gætt að til-
lit sé tekið til byggðarlaga sem
höllum fæti standa vegna skorts á
aflaheimildum. Á meðan þessi að-
lögunartími varir skal sérstaklega
gætt að stöðu báta- og smábátaút-
gerðar,“ segir í stefnuyfirlýsing-
unni.
Boðaðar aðgerðir taldar kosta
35 milljarða á kjörtímabilinu
í stefnuyfirlýsingu Samfylking-
arinnar era boðaðar aðgerðir í sex
málaflokkum, s.s. menntamálum,
velferðarmálum, ríkisfjármálum og
byggðamálum. Að sögn Margrétar
er áætlað að heildarkostnaður við
aðgerðimar á kjörtímabilinu verði
um 35 milljarðar kr. Samfylkingin
vill m.a. taka upp fjölþrepa tekju-
skattskerfi og breyta lögum um
fjármagnstekjuskatt þannig að sett
verði frítekjumark á vaxtatekjur,
en þær og aðrar fjármagnstekjur
umfram það verði meðhöndlaðar
eins og atvinnutekjur, ótekju-
tengdar bamabætur verði hækkað-
ar, tenging örorku- og ellilífeyris-
bóta við tekjur maka verði afnum-
in, teknir verði upp umhverfis- og
mengunarskattar og fjárfesting í
menntun og menningu verði stór-
aukin á næsta kjörtímabili.
■ Heildarkostnaður/10
FÉLAGAR í Kaupmannasamtökum
íslands samþykktu með yfirgnæf-
andi meirihluta á aðalfundi samtak-
anna í gær að stjórn samtakanna
tryggði stofnaðild að Samtökum
verslunar og þjónustu, nýrra hags-
munasamtaka verslunar- og þjón-
ustugreina. 141 greiddi atkvæði
með stofnaðild, en 18 á móti.
Benedikt Kristjánsson var endur-
kjörinn formaður samtakanna til
næstu tveggja ára. Búist hafði verið
við að kosið yrði á milli Benedikts
og Birgis Rafns Jónssonar, sem
einnig hafði gefið kost á sér til for-
mennsku. Var Birgir Rafn jafn-
framt fulltrúi aðila innan Kaup-
mannasamtaka íslands sem voru á
móti þvi að samtökin gerðust aðili
að Samtökum verslunar og þjón-
ustu, en vildu að KÍ fylkti liði með
Samtökum verslunarinnar.
Nokkrar umræður urðu um málið
á fundinum en mikil samstaða virð-
ist hafa náðst meðal félagsmanna
um að fylkja sér um Benedikt og að-
ild að hinum nýju samtökum.
■ KÍ gangi í/B2
Skarlatsótt og
hálsbólga í hámarki
Kögun ehf. hefur þróað flugstjórnarhermi
NATO kannar kaup
INFLÚENSAN sem náði hámarki
um síðustu mánaðamót er í rénun
að sögn Þórðar Olafssonar, yfir-
læknis hjá Læknavaktinni, og er
^ékki annar faraldur að hefjast. Hins
vegar eru margir með kvefpest og
að auki eru skarlatsótt og strept-
ókokkahálsbólga í hámarki um
þessar mundir.
Þórður segir að ekki megi búast
við nærri eins miklum fjarvistum úr
skóla og vinnu að öllu þessu saman-
lögðu ef kvefpestirnar, skarlatsóttin
cig hálsbólgan eru bornar saman við
ástandið sem ríkti þegar inflúensan
náði hámai'ki sínu.
„Fjarvistir verða ekki nærri því
eins áberandi," segir Þórður.
„Streptókokkarnir valda líka skar-
latsóttinni og eru meðhöndlaðir með
pensilíni ef þeir greinast og þá er
viðkomandi læknaður og kemst fijótt
til vinnu aftur,“ segir Þórðui-.
Undanfarnar tvær vikur hafa
skarlatsóttinn og hálsbólgan farið
vaxandi og segir Þórður að skarlat-
sóttin leggist mest á börn og yngra
fólk.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ,
NATO, hefur lýst vilja til að kaupa
flugstjórnarhermi sem Kögun hf.
hefur búið til, en fyrii-tækið hefur
varið tugum milljóna króna í þróun
á herminum. Engir samningar um
sölu á honum hafa verið undirritað-
ir, en menn frá fyrirtækinu eru nú
að kynna hann erlendis.
Um er að ræða hugbúnaðarkerfi
sem ætlað er til að nota við þjálfun
flugumferðarstjóra, og að sögn
Gunnlaugs M. Sigmundssonar,
framkvæmdastjóra Kögunar hf., er
gífurleg framlegð í búnaði af þessu
tagi ef tekst að selja hann. NATO
hefur að hans sögn varið fjármun-
um í að kaupa eintak af herminum
til prófunar, en á það reynir hvort
fleiri aðilar bjóða fullkomnari bún-
að af svipaðri gerð og það gæti orð-
ið til þess að ekki yrði úr frekari
viðskiptum við NATO.
Gengi bréfa í Kögun hækkaði
talsvert á Opna tilboðsmarkaðn-
um í gær, eða úr 16 í 20, og sagðist
Gunnlaugur enga skýringu hafa á
því aðra en þá að orðrómur hefði
komist á kreik um að búið væri að
ganga frá samningum um sölu
flugstjórnarhermisins, eða að
gengið hefði verið frá öðrum
samningum sem væru í deiglunni
hjá Kögun.
■ Orðrómur/Cl