Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 83

Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 83 FÓLK í FRÉTTUM Edward Norton í Óskráðu sögunni Hópar heila- dauðans Óskráða sagan eða „American History Xa var sýnd utan keppni á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í Berlín. Aðalleikarinn Edward Norton fékk óskarstilnefningu fyrir túlkun sína á ofbeldisfullum hægri öfgasinna. Rósa Erlingsdóttir spurði hann út í hlutverkið. EDWARD Norton stendur sig stórkostlega í hlutverki nýnas- ista í Óskráðu sögunni. ‘'‘"‘iksrr. EDWARD Furlong, sem lék áður í Tortímandanum, fer með hlutverki yngri bróðurins. ágreiningur varð á milli Kayes, Nortons og framleiðendanna og með leyfi Wamer Bros. eða réttara sagt peningavaldsins breytti Norton myndinni eftir eigin höfði. Kaye kærði og krafðist þess að nafn sitt yrði ekki bendlað við mynd- ina. Hann hóf málaferli og kom í veg fyrir að myndin yrði sýnd á kvik- myndahátíðinni í Toronto og sama dag og hún var Evrópufrumsýnd í Berlín mótmælti hann eftirminnilega við Brandenborgarhliðið með ræðu- höldum. Fram til þessa hafa tilraun- ir og mótmæli Kayes engu breytt. Hann brást þagnarskyldu sinni, af- salaði sér öllum réttindum af mynd- inni og er því í mun lakari stöðu en framleiðendumir. Blákaldur vera- leiki Hollywood. Enn einu sinni fá kvikmyndaunnendur fregnir af því í fjölmiðlum að Hollywood sé ekki rétti staðurinn fyrir leikstjóra sem vilja nýta miðilinn til listsköpunar. Reiði og biturleiki Edward Norton neitaði að svai-a spumingum um ofangreind málaferli enda er hann einnig bundinn þagn- arskyldu um framleiðslu myndarinn- ar. Hann segir myndina vera banda- rískan hannleik og líkir innviðum sögunnar við grísku harmleikina. Derek kemur fjölskyldu sinni á von- arvöl og í lok myndarinnar borgar hann fyrir voðaverk sín með lífi bróður síns. Harmleikur myndarinn- ar felst í því, að mati Nortons, að hefja aðalpersónuna upp til skýjanna í minningu bróðurins, til að full- komna afbyggingu hennar seinna í sögunni. Hann vísar á bug þeirri gagnrýni að sinnaskipti Dereks séu ótrúverðug og verðskuldi þar af leið- andi ekki samúð áhorfandans. Hann segir vendipunkt myndarinnar felast í því að Derek geri sér grein fyrir á hverju blekking hans byggist. A inn- antómri, öfugsnúinni hugmynda- fræði sem aldrei hafi valdið honum öðra en reiði og biturleika. Noi-ton segir að í myndinni sé reynt að sýna fram á að ungt fólk, sem leiðist inn í slíkar klíkur, sé ekki upp til hópa heiladauðir fantar. Og á þeim staðreynd byggist einnig fyrr- nefndur harmleikur. Hann segir öfgahópa mynda stóran menningar- kima á útjaðri bandarísks samfélags og að þeir hafi ógnvænlegt aðdrátt- arafl á ungt fólk úr öllum stéttum sem finnist það ekki tilheyra þjóðfé- laginu á neinn hátt. Um leið og mað- ur hafni því að þau ungmenni, sem láta leiðast inn í slíka hópa, séu jafn- gáfuð og önnur ungmenni, jafn vel máli farin og komi úr öllum stéttum þjóðfélagsins loki maður augunum fyrir vandanum. X-ið í titli myndarinnar stendur fyrir þá sögu Bandaríkjanna sem ekki er talað um. Sögu um hatur á milli kynþátta í Bandaríkjunum sem kostar árlega hundruð ungmenna lífið. Misþyrmingu bandaríska draumsins, óþægilegan veraleika sem ráðamenn kæra sig ekki um. Um leið er Oskráða sagan að sjálf- sögðu saga sem fyrir löngu var tímabært að segja. IÞÝSKALANDI hefur Óskráða sagan eða „American History X“ nú þegar hlotið mikla aú hygli almennings sem og tölu- verða umfjöllun í fjölmiðlum. Enda er efni hennar ekki alls óskylt þeim vanda er við blasir í austurhluta Þýskalands samfara uppgangi stjómmálaflokka hægri öfgasinna og hylli þeirra meðal ungs fólks. Óskráða sagan er dramatískur sjónleikur um afleiðingar kynþátta- haturs, um heiftúðlegt hatur sem getur sundrað heilu fjöldskyldun- um. Handritshöfundurinn David McKenna ólst upp í útjaðri Los Angeles og kynntist þar af eigin raun heimi haturs og oíbeldis klíkna sem ráða lögum og lofum meðal ungs fólks víðast hvar í suðurríkjum Bandaríkjanna. Myndin er framraun breska leik- stjórans Tony Kayes sem jafnframt starfaði sem aðalkvikmyndatöku- maður hennar. Sérkennilegt og mjög óvanalegt að einn og sami maðurinn stjórni samtímis svo mikilvægum þáttum í framleiðslu kvikmyndar. Kvikmyndatakan hefur tvímælalaust mikil áhrif á sérstakan frásagnarstíl- inn sem flæðir á milli fortíðar og nú- tíðar fyrir tílstilli snilldarlegi-ar tækni og valds eins manns á nútíma kvikmyndatækni. Auk þess era glæsileg frammistaða sterkra leik- ara í krefjandi hlutverkum enn ein rósin í hnappagat Tony Kayes. Krúnurakaðir fantar Sagan er sögð frá sjónarhomi Danny Vinyards (Edward Furlong), sem dýrkar og dáir eldri bróður sinn Derek Vinyard (Edward Norton). í byrjun myndarinnar er Danny vísað til skólastjórans af enskukennara skólans sem meinar honum aðgang að skólastofu sinni í framtíðinni. Sá hinn sami er gyðingur og miður sín þar sem Danny kaus að skrifa um Mein Kampf eftir Adolf Hitler þegar nemendur bekkjarins áttu að skrifa stíl um heimsbókmenntir. Skólastjór- inn, herra Sweeney (Aveiy Brooks), ákveður að gefa kauða annað tæki- færi og biður hann að skrifa ritgerð um líf og örlög eldri bróður síns sem sama dag á að losna úr fangelsi eftir að hafa afplánað þriggja ára dóm. Eldri bróðirinn hafði myrt þrjá blökkumenn á grimmúðlegan hátt og að því loknu gefið sig á vald lög- reglunnar með bros á vör, ber að of- an með hakakrossinn húðflúraðan á hægra brjóstið. Fyrir yngri bróð- urnum fór sá eldri í grjótið með reisn og virðingu; í minningunni er hann mikilmenni þrátt fyrir glæp- ina sem hann framdi. A unglingsaldri hafði Derek villst af leið inn í heim ofbeldis og haturs krúnurakaðra nýnasista. Hallur undir öfgafulla hægri hugmynda- fræði, vel máli farinn og vel að manni ávann hann sér virðingu fé- laga sinna. Honum er fagnað sem hetju hreyfingarinnar þegar hann losnar úr fangelsinu. En Derek er nýr og betri maður. í fangelsinu varð hann sjálfur fyrir barðinu á fyrrverandi samferða- mönnum sínum og þar að auki ving- aðist hann við svertingja sem hann vann með í nauðungarvinnunni. Sá hlaut sex ára dóm fyrir að missa sjónvarpstæki á tæmar á eiganda raftækjabúðarinnar þar sem hann stal því stuttu áður en Derek þurfti aðeins að afplána þriggja ára dóm með þrjú mannslíf á samviskunni. Fullur iðranar reynh' hann að telja litla bróður sinn á að segja stólið við hug- myndafræði nýnasismans. Boðskapurinn óljós Edward Norton er góður leikari. Einn sá besti í Hollywood. Sú fregn barst fljótt út eftir stórkostlegan leik hans í myndinni Primal Fear, sem var var frumraun hans sem kvikmyndaleikara. Fyrir það hlut- verk hlaut hann tilnefningu til Oskarsverðlauna _sem besti leikari í aukahlutverki. Óskráða sagan er fjórða kvikmynd Nortons og í henni sýnir hann að hann býr yfir hæfi- leikum sem eiga eftir að gera hann að stórstjömu. Góður leikur kostar mikla vinnu. Norton bætti á sig tíu kílóum af fitu- lausum vöðvamassa í líkamsræktar- sölum Los Angeles fyrir hlutverk sitt í myndinni. Enda fer hann oftar úr að ofan en Brad Pitt hefur gert á öllum leikferli sínum. En hlutverk kaldrifjaða nýnasistans Dereks Winyards krefst meira en að sýna sig beran að ofan. Auk glæsilegra líkamsburða á hann að ná til áhorf- enda sem gáfaður, geðfelldur ungur maður sem lendir á villigötum í líf- inu. Sama hvað og hvern hann leikur - áhorfendur eiga að kunna vel við hann, þeir eiga að finna til með hon- um og vorkenna honum vegna ömur- legra örlaga hans. Þeir eiga að taka skyndilegt hughvarf Dereks trúan- legt. Edward Norton tekst að upp- fylla þessar kröfur með glæsilegum leik sem án efa mun verða mjög þýð- ingarmitóll fyrir leikferil hans. Myndin lætur engan ósnortinn en margir bíógestir hverfa á braut á báðum áttum um boðskap hennar og það skyggir á gæði myndarinnar. Maður spyr sjálfan sig endram og eins hvort kvikmyndagerðannenn- irnir hafi í ófáum senum reynt að réttlæta hatur hvíta mannsins á blökkumönnum. Svertingjarnir era óheflaðir í framkomu, þeir svindla í körfubolta, faðir bræðranna er skotinn af svertingja og ekki tekur betra við í lotón. Eins og verið sé að segja manni að það sé ekkert at- hugavert við að ungt, vel gefið fólk verði að kynþáttahöturam við slíkar kringumstæður. Málaferli vegna myndarinnar Framleiðendurnir gerðu samning við New Line Cinema sem er dótt- uríýrirtæki Warner Bros-risans og með fulltingi þeirra var handritinu komið í þann Hollywood-búning sem áhorfendur fá að líta á hvíta tjaldinu. Hugmyndir Kayes þóttu of róttækar enda er Kaye óánægður með endanlega gerð myndarinnar, segir hana ekki miðla sinnaskiptum aðalpersónunnar á trúverðugan hátt. Þetta leiddi til þess að mikill Esteban ilmvörur Ingólfsstrœti 5 S. 551 50S0
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.