Morgunblaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Blair og Ahern snúa aftur til viðræðna um lausn afvopnunardeilunnar á N-írlandi
Reyna til þrautar að stuðla
að farsælli niðurstöðu
Hitlsborough, N-írlandi. Reuters.
FORSÆTISRÁÐHE RRAR Bretlands og ír-
lands sneru í gærkvöld aftur til Hillsborough á
Norður-írlandi í því augnamiði að reyna til hins
ýtrasta að stuðla að því að viðræður um lausn
afvopnunardeilunnar fengju farsæla lausn. Á
föstudaginn langa verður eitt ár liðið frá því að
hið sögulega páskasamkomulag um frið náðist á
milli fylkinga mómælenda og kaþólskra á N-ír-
landi. Þá rennur einnig út fresturinn sem samn-
ingamönnum var gefínn til þess að fínna lausn á
afvopnunardeilunni og skipa heimastjóm.
Þeir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
og Bertie Ahem, forsætisráðherra Irlands,
höfðu yfirgefíð N-írland snemma um morgun-
inn til að sinna öðram aðkallandi verkefnum en
tilkynntu síðan að þeir myndu snúa aftur til N-
írlands, og þótti sem það væri vísbending um að
möguleiki væri á að viðræðurnar kæmust í far-
sæla höfn.
„Samkomulag er mögulegt en til þess að það
náist þurfa menn að vera allir af vilja gerðir og
sér meðvitandi um ábyrgðina sem á þeim hvílir
gagnvart íbúum og framtíð Norður-írlands,“
sagði Tony Blair í gær. Ahern og Blair eyddu
þremur dögum í Hillsborough í tilraun til þess
að komast að samkomulagi um afvopnun öfga-
hópa á N-Irlandi. Afvopnunardeilan hefur stað-
ið framkvæmd friðarsamningsins fyrir þrifum
og komið í veg fyrir að hægt sé að skipa heima-
stjóm í samræmi við samkomulagið. „Það verð-
ur mikið áfall ef samkomulag næst ekki,“ sagði
Ahem í gær.
David Trimble, leiðtogi sambandssinna og
tilvonandi forsætisráðherra í heimastjórninni,
hefur neitað aðild Sinn Féin að heimastjórn-
inni nema að því tilskildu að Irski lýðveldis-
herinn (IRA) skili vopnum sínum. En IRA vill
ekki afvopnast. „Viðræðum mun fram haldið,"
sagði Mitchel McLaughlin í gær. „Og við von-
um að sambandssinnar setjist aftur að samn-
ingaborði í dag.“ David Trimble sagði lýðveld-
issinna hins vegar ekki á þeim buxunum að
uppfylla sinn hluta samningsins og því gengi
hvorki né ræki.
I gærmorgun hafði IRA sent frá sér páskayf-
irlýsingu sína og var því þar heitið að vopnahlé
hersins stæði enn traustum fótum. Engum orð-
um var hins vegar farið um þær viðræður sem
nú fara fram um afvoprtun öfgahópanna og her-
inn lýsti því ekki yfír að stríð hans væri lokið,
eins og vonast hafði verið til.
Fátæktin í Irak
sögð gríðarleg
New York. Reuters.
IRAK hefur breyst úr „tiltölulega
velmegandi þjóðfélagi í veralega fá-
tækt“ frá Persaflóastríðinu 1991. Til
að bæta ástandið og komast yfir
versta hjallann ætti að leyfa erlend-
ar fjárfestingar í oh'uiðnaði íraka.
Þetta kom fram í skýrslu nefndar á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
birt var í vikunni.
I skýrslunni segir að jafnvel þótt
ströngustu ákvæðum viðskipta-
bannsins á Irak yrði aflétt „myndi
það taka langan tíma að koma sam-
félaginu og efnahagnum á réttan
kjöl“.
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að áætlun SÞ, sem nefnd hef-
ur verið „oha fyrir mat“, þjónaði
ekki tilgangi sínum þar eð yfirvöld
dreifðu ekki nauðsynjavöram, svo
sem lyfjum, sem skyldi. Samkvæmt
áætluninni er Irökum heimilt að
fiytja út olíu að verðmæti 5.256
milljarða dollara á hálfs árs fresti til
að kaupa nauðsynjavörar fyrir al-
menning.
Nefndin lagði ekki til að við-
skiptabanninu yrði aflétt en kom
með tillögur um hvernig mætti
milda það. Til að mynda lagði hún
til að fjárfestingar einkafyrirtækja í
olíuiðnaðinum yrði leyfðar og að út-
flutningur yrði hafinn á ýmsum
landbúnaðarvöram.
Ástandið í írak er vægast sagt
slæmt, af því er segir í skýrslunni,
en ungbarnadauði er hvergi eins al-
gengur auk þess sem að fjórða
hvert barn, undir fimm ára aldri,
þjáist af næringarskorti. Aðeins
41% af þjóðinni hefur reglulegan
aðgang að hreinu vatni og uppbygg-
ingar er þörf á um 83% allra skóla í
landinu.
FRA HASKOLA ISLANDS
MEISTARANÁM
í félagsvísindadeild
háskólaárið 1999-2000
Lengdur umsóknarfrestur
Frestur til að sækja um nám til meistaraprófs í upp-
eldis- og menntunarfræði og stjórnmálafræði í
félagsvísindadeild hefur verið framlengdur til 1. maí
1999.
í MA-námi, uppeldis- og menntunarfræði, er
hægt að velja um tvær leiðir:
Mat á skólastarfi og Almennt rannsóknarnám.
í MA-námi í stjórnmálafræði er boðið upp á
nám í opinberri stjórnsýslu og stefnumótun.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást á skrifstofu félagsvísindadeildar,
sími 525 4502, netfang: felvisd@hi.is,
vefslóð: www.hi.is/pub.fel.
Umsóknir skulu berast fyrir 1. maí nk. til skrifstofu
félagsvísindadeildar, Háskóla íslands, Odda
v/Sturlugötu, 101 Reykjavík.
Fjölgar í dönsku
konungsfj ölskyldunni
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
EFTIR mikla bið og
vangaveltur er nú
fjölgunar von hjá
Jóakim prins, yngri
syni Margrétar Þór-
hildar Danadrottning-
ar, og Alexöndru
prinsessu, eiginkonu
hans. Danska hirðin
tilkynnti í vikunni að
prinsessan vænti sín í
september en gegndi
skyldum sínum eftir
því sem hægt væri
fram eftir sumri. Til-
kynningin var gefin
út einmitt þegar tíma-
rit, sem hafa augun
sérstaklega á kon-
ungsfjölskyldunni,
voru nýkomin út og
gátu því ekki gert
fréttinni skil.
Allt frá því prinsinn
gekk að eiga
Alexöndru 1995 hafa
verið uppi stöðugar
vangaveltur um barn-
eignir og undanfarið
ár hafa slúðurblöð
stöðugt orðið ákafari
og að margra dómi
ósmekklegri í getgát-
um sínum. Fyrir
nokkrum vikum full-
yrti eitt blaðanna að á
útgáfudegi blaðsins kæmi til-
kynningin í beinni útsendingu í
sjónvarpinu. Þegar hún á endan-
um kom var það hirðmarskálk-
urinn, sem sendi frá sér stutt-
orða tilkynningu. Af hálfu hirð-
arinnar er fullyrt að tímasetning
tilkynningarinnar hafi verið
óháð útgáfudegi slúðurblað-
anna.
í miklum metum
Alexandra er Hong Kong-búi
af kínverskum og breskum ætt-
um. Hún verður 35 ára á árinu
ALEXANDRA prinsessa og Jóakim prins.
og Jóakim þrítugur. Hún hefur
á stuttum tíma unnið hug og
hjörtu Dana, talar orðið góða
dönsku og hefur lagt af mikinn
andlitsfarða og uppsett hár, en
tekið upp látlaust útlit. Hún var
áður í viðskiptalífinu en er nú
verndari danska Rauða krossins
og sextán annaraa samtaka, sem
hún þykir sinna mjög vel. Prins-
inn hefur lagt stund á landbún-
aðarfræði og rekur búskap á
landareigninni við Schacken-
borgarhöll, sem hann erfði níu
ára gamall.
Victoría — Antík
Antík og gjafavörur
— sígildar vörur kynslóð eftir kynslóð.
Antík er fjárfesting ★ Antík er lífsstíll. ★
Postulínsstell og kristalsglös í úrvali. Silfurborðbúnaður, Ijósa-
krónur, vegglampar og bókahillur. Greiðslukjör á allri vöru.
Sölusýning í dag frá kl. 12—18, lau. kl. 11—18 á Sogavegi 103
Sími 568 6076, einnig utan opnunartíma.
Nýr reyk-
ingaskaða-
bótadómur
DÓMSTÓLL í Oregonríki í
Bandaríkjunum hefur dæmt tó-
baksfyrirtækið Philip Morris til
að greiða 81 milljón dollara, um
5,8 milljarða króna, í skaðabæt-
ur til fjölskyldu manns sem lézt
úr lungnakrabbameini eftir að
hafa reykt þrjá pakka á dag af
Marlboro-sígarettum í fjóra
áratugi. I síðasta mánuði var
Philip Morris-fyrirtækið dæmt
til að greiða reykingakonu
nokkurri 51,5 milljónh' dollara,
nærri 3,7 milljarða ki'óna, í
skaðabætur vegna tengsla sem
töldust sönnuð milli krabba-
meins sem konan þjáðist af og
reykinga hennar.
Dæmdur fyrir
52 morð
DÓMSTÓLL í Úkraínu dæmdi
í gær hinn 39 ára gamla
Anatoly
Onoprienko
sekan um að
hafa framið
52 hrottaleg
morð sem
slógu óhug á
alla íbúa
landsins á
árunum
1989-1996.
Sergei
Rogozin, 36 ára, var dæmdur
samsekur að níu af fyrstu
morðunum. Onoprienko hafði
játað á sig morðin.
Samaranch
neitar að
bera vitni
JUAN Antonio Samaranch,
forseti Alþjóðaólympíunefndar-
innar (IOC), neitar að hlýða
kalli um að bera vitni fyrir
rannsóknarnefnd öldungadeild-
ar Bandai'íkjaþings, sem var
falið að fara ofan í saumana á
mútuhneykslinu í kring um um-
sókn Salt Lake City um að fá
að halda Vetrarólympíuleikana
árið 2002. John McCain, fomað-
ur nefndarinnar, sagði í gær að
svo virtist sem Samaranch
gerði sér ekki grein fyrir alvöru
málsins. Samaranch tilkynnti í
bréfi, að varaforseti IOC, Anita
DeFrantz, myndi mæta í sinn
stað.
Eyðni skæð
í Kambódíu
HUN SEN, forsætisráðherra
Kambódíu, sagði í gær að
eyðnifaraldur sá sem lagzt hef-
ur yfir landið leggi daglega 22 í
valinn og sé alvarlegri ógn við
kambódískt þjóðfélag en hið
áralanga borgarastríð. Sagði
hann þetta í ávarpi við lok
fyrstu ráðstefnunnar um eyðni-
sjúkdóminn sem efnt hefur ver-
ið til í Kambódíu.
Hundaæði út-
rýmt í Sviss
TEKIZT hefur að útrýma
hundaæði í Sviss með skipu-
lagðri bólusetningu villtra refa,
og er Sviss þar með fyrsta
landið í Evrópu sem hefur náð
þessum árangri. Refir eru
helztu smitberar hundaæðis í
álfunni. Byrjað var að bólusetja
villta refí í Sviss árið 1978 og
hefur hundaæðis þar ekki orðið
vart frá því 1986.