Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 38

Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Leiklistin skorin inn að beini s Ahrif Odin leikhússins í Holsterbro ná langt út fyrir Danmörku. Sigrun Davíðsdóttir sá afmælissýningu leikhússins og rifjar upp heimsókn hópsins til Islands fyrir um þremur áratugum. EGAR Odin leikhúsið kom til íslands og sýndi nokkrum sinnum í lok sjö- unda áratugarjns voru framúrstefnuleikhús ekki aðeins sjaldséðir gestir á íslandi, heldur víðast annars staðar líka. Hið hefð- bundna leikhús í grónum stofnunum átti leiklistarsenuna. Það er kannski þess vegna sem sýning þeirra, byggð á grískum goðsögnum eins og svo oft síðar, varð svo minnisstæð. Raddbeiting, hreyfmgar, notkun leikbmða og að leikið var í leikfimis- al gamla Miðbæjarskólans hefur orðið liður í leikhúsreynslu undimt- aðrar æ síðan. Það var því vægast sagt með eftirvæntingu í huga að kynnin voru rifjuð upp á tveimur sýningum hópsins á einu kvöldi í Kaupmannahöfn nýlega. Heimurinn hefur breyst síðan í lok sjöunda ára- tugarins, en Odin leikhúsið er enn eins og það var þá og leikararnir níu eru fiestir þeir sömu og í upphafí, bara orðnir eldri. En það var samt sem áður heillandi upplifun að sjá sýningar hópsins, sem snerust um stðrf leikaranna, innblástur þeirra og vinnuaðferðir. Frá suðri til norðurs og aft.ur til baka Eugenio Barba er stofnandi og stjórnandi Odin leikhússins. Hann fæddist á Suður-Ítalíu 1936 og hafði í fyrstu í huga að fylgja í fótspor föð- urins og gerast atvinnuhermaður. Svo varð þó ekki, heldur fór hann til Noregs 1960, þar sem hann las franskar og norskar bókmenntir og trúarbragðasögu við háskólann, en hélt svo næsta ár til Varsjár til að kynna sér leikhúsmenningu þar. I Póllandi kynntist Barba Jerzy Grotowski, sem er þremur árum eldri en Barba og þau kynni hafa æ síðan markað afstöðu og vinnubrögð Barba. Grotowski, sem lést í janúar sl., var þekktur fyrir starf sitt með Teatr 13 Rzedow í Opole og síðan við Teatr Laboratorium í Wroelaw. Grandvallarhugmynd pólska leik- hússmannsins var hið einfalda leik- hús, þar sem allt á leiksviðinu væri skapað af leikurunum, bæði hið sjónræna og eins tónlistin. Breski leikhúsmaðurinn Peter Brook hefur sagt að á síðari tímum hafi enginn kannað einkenni leiklistarinnar, birtingarmyndir, þýðingu, eðli og hugmyndalegar og tilfinningalegar undirstöður hennar á jafn djúpstæð- an og umfangsmikinn hátt og Grotowski. Þessar hugmyndir hrifu Barba og Grotowski varð síðar fast- ur gestur hjá Odin. Eftir þriggja ára dvöl í Póllandi hélt Barba til Indlands og kynnti sér indverskar leikhúshefðir, sem hann áleit gamlar hefðir er gleymst hefðu á Vesturlöndum. Um reynslu sína á Indlandi skrifaði hann fyrstu bókina sína, „In Search of the Lost Theatre", sem kom út 1965. Eftir pólsku og indversku reynsl- una hélt Barba aftur til Oslóar og freistaði þess að komast inn í norskt leikhúslíf. En fyrir útlending með óhefðbundnar hugmyndir reyndist það ókleift, svo hann brá á það ráð að safna að sér leikurum, sem ekki höfðu komist inn í norska leiklistar- skólann. Þau komu sér fyrir í gömlu flugskýli og 1. október 1964 var Od- in leikhúsið stofnað. Þarna vann hópurinn og setti saman sýningu, sem hann ferðaðist með um Norður- löndin. Upp úr leikferðinni fékk hópurinn boð frá bæjarstjórninni í Holsterbro um fasta aðstöðu í bænum. Þau fengu til umráða yfirgefinn bónda- bæ og smá fjárstyrk. Bærinn hefur síðan verið fast aðsetur hópsins og það vissu víst fáir utan Danmerkur af Holsterbro ef Odin hefði ekki bor- ið hróður bæjarins langt út fyrir dönsku landamærin. Hópurinn hef- ur verið sjálfseignarstofnun síðan 1984 og í honum eru níu starfsmenn auk leikaranna níu. Leiklist og fræðiiðkun Mannfræði og félagsfræði hafa verið ríkur þáttur í starfi leikhússins og 1979 stofnaði Barba ISTA, „International School of Theatre Anthropology". Hópurinn hefur ferðast um allan heim til að kynnast lífi og háttum fólks og þá einnig leik- húshefðum. Auk þess að nota reynsluna sér til innblásturs á sviði hefur þessi þáttur tengt hópinn há- skólaheiminum. Barba og leikendur hópsins fara ekki aðeins um heiminn til að leika og læra, heldur einnig til að halda fyrirlestra við háskóla um allan heim og til að ski'ifa um leik- hús og eðli þess. Auk áherslunnar á líkamsþjálfun og raddbeitingu hefur samspil leik- hússins og þjóðfélagsins alla tíð ver- ið ríkur þáttur í starfi Odin leikhúss- ins. Ef fólkið vildi ekki koma til leik- hússins kom leikhúsið til þess, svo leikið hefur verið á stöðum, sem venjulega eru ekki leiksvið og þá einnig á götum úti. Hinn skapandi leikari Sýningarnar tvær, „Hviskende" og „Hvid som jasmin“ snúast um starf leikaranna. I fyrri sýningunni fengu fjórir leikaranna það verkefni hjá Barba að setja saman stuttan þátt um hvað mestu máli skipti í leiknum. Julia Varley sagði frá hvernig hægt væri að vinna úr hreyfingum, draga stórar armsveiflur saman í litlar, fin- gerðar hreyfingar, sem gæfu vís- bendingu um hið stóra og ki'öftuga, en þetta hefur einmitt verið kjai'ninn í hreyfivinnu Barba. Varley er bresk, en talar norsku og rödd hennar virðist afar veik og að því komin að bresta, svo erfitt var að skilja hvernig hægt væri að vera leikkona með þessa rödd. En með hreyfingunum fór hún með texta á móðurmáli sínu með mun styrkari og fjarska fallegri röddu. I lokin beitti hún rödd grátkonu fyrir sig og þá var röddin svo mikil að hún skar í hlustirnar. Við textann bætti hún síðan hreyfmgu og tónhst. Hin ítalska Roberta Carreri lagði áherslu á samspil texta og hreyfing- ar með því að fara með upphafið að „Ulysses" eftir James Joyce á móð- urmáli sínu. Iben Nagel Rasmussen, þriðja meginleikkonan í hópi Barba, útskýrði hvernig hún notaði ákveðn- ar grunnhreyfingar í kennslu til að efla hreyfinæmni nemendanna. I „Hvid som jasmin" sagði Iben Nagel frá leit sinni að sinni eigin rödd sem leikkona og hvernig Odin leikhúsið ynni með röddina. Fyi'h' utan að frásagnir leikar- anna veittu hrífandi innsýn inn í starf þeirra þá vakti vitneskjan um langt starf í þessum eina hópi óneit- anlega ýmsar vangaveltur. Við erum svo vön að sjá þrautþjálfaða unga líkama, en hér blöstu við þraut- þjálfaðir líkamar miðaldra fólks. Ekki stinnir líkamar með hnykluð- um vöðvum, heldur mjúkir líkamar, sem leikararnir höfðu fullkomin tök á og gátu notað til að koma fjöl- mörgum hreyfibrigðum og tilfinn- ingum til skila. Tíminn virðist vissulega hafa staðið í stað hjá Odin, en það er ekki þar með sagt að ekkert hafi gerst. Aginn, sem vinna þeirra einkennist af, hugsunin bakvið vinnubrögð þeiiTa, leitin að tjáningarmöguleik- um og það hvernig þau hafa helgað allt sitt líf þessum hugmyndum sín- um skilar sér sterklega á sviðinu. Það er samt sem áður dapurlegt að yngsti leikarinn í hópnum skuli fæddur 1960, að yngra fólk bætist ekki í hópinn. Sjónræn fullkomnun og útpælt hreyfimynstui' leikhús- manna á borð við Robert Wilson er vissulega áhrifamikið, en það væri sorglegt að innileikann og sterka hugmyndafræði í verkum Odin leik- hússins dagaði uppi. Norræn menning fyrir kristni BÆKUR Sagnfraíði DEN FORNA SEDEN eftir Östen Kjellinan. 668 bls. Valkyria Förlag. Gautaborg. 1998. í BÓK þessari er saman dreginn geysimikill fróðleikur um norræna fommenning, og raunar germanska yfirleitt. Höfundur minnir á þá við- teknu skoðun að menningin hafi borist til Norðurlanda með kristn- inni, þá fyrst hafi Norðurlandabúar lært að lesa og skrifa og þar með hafi þeir horfið frá sínum frumstæðu lífsháttum og heiðnu trúarbrögðum. Þessi viðhorf telur höfundur vera röng. Kirkjan hafi haldið þessari söguskýringu á lofti og sé reyndar ekki ein um slíkt. Sá sé háttur valda- stofnana á öllum tímum; þær hyllist til að þakka sér hvaðeina sem til framfara horfi en gera lítið úr at- höfnum forveranna, sjálfum sér til enn meiri vegsauka. En til að koma í veg fyrir þann misskilning að höf- undur sé að deila á kristna trú sem slíka minnir hann á að miðaldakirkj- an hafí verið allt annars konar en nú- tímakirkjan. Miðaldakirkjan hafi fyrst og fremst verið kröfuhörð valdastofnun og ekki alltaf vönd að meðulum. Kristnitakan hafi haft hnignun í för með sér, bæði menn- ingarlega og félagslega. Norður- landabúar hafi ekki verið ólæsir og óski’ifandi fyrir kristni, síður en svo. Rúnaletrið hafi verið mun meira not- að en menn geri sér almennt ljóst nú, bæði í viðskiptum og daglegu lífi. Samfélagið hafi verið í fóstum skorð- um samkvæmt fornri hefð. Tilkoma kristninnar hafi breytt því til hins verra. Ættasamfélagið forna - sem byggðist á heiðri og drengskap - hafi vikið fyrir stéttskiptu þjóðfélagi, segir Kjellman og vitnar í rit Einai's Olgeirssonar, Ættasamfélag og rík- isvald í þjóðveldi Islendinga. Kjellman fer ítarlega ofan í stöðu konunnar í hinu forna norræna sam- félagi. Réttindi kvenna telur hann að gefi jafnan afdráttarlausa mynd af menningararástandi þjóðar. Stöðu konunnar megi því hafa sem mæli- kvarða á menningarástand Norður- landabúa fyrir kristni. Yfirhöfuð megi segja að staða konunnar hafi þá verið sterk með Germönum. Til að hnykkja á þeim sannindum vitnar Kjellman í orð Tacitusai'. Fyrsta hluta verksins nefnir Kjellman reyndar Konan, fjölskyldan, ættin. En ættin hafi verið grunneining hins germanska samfélags, baktrygging einstaklings og fjölskyldu þar til kirkjan tók við því hlutverki. Kjellman sparar sér háfleygar málalengingar en byggir verk sitt mest á beinum tilvitnunum sem hann svo leggur út af. Svo víða hefur hann leitað fanga að virst gæti sem hann hafi kembt í þaula hin fornu heim- ildarit. Hann er sýnilega maður lat- ínulærður og vitnar óspart í classicos. I íslenskum fornbók- menntum er hann svo vel heima sem best má verða. Er stuðningur sá, sem hann sækir í íslensk fornrit, augljóslega byggður á traustri þekk- ingu og skilningi á hugsunarhætti ís- lendinga. Og lofsvert er að hann skuli vita á hvaða tungumáli fornrit- in íslensku voru samin, sem sé á ís- lensku en hvorki á Old Norse né gammelnorsk eins og margra er- lendra fræðimanna var háttur á fyrri tíð. Og er jafnvel enn! Sá er þetta ritai' er því miður lítt innlífaður í blæbrigði sænskrai' tungu en telur sig eigi að síður merkja að áhrifa frá hinum fornu textum gæti í stíl höf- undar. Og skyldi engan undra. Kjellman ársetur ekki venjunni samkvæmt fyrir og eftir Krists burð heldur fyrir og eftir núll. Og það er auðvitað jafnrökrétt. Þótt ekkert ár beri töluna núll stendur tímatalið að sjálfsögðu á núlli við áramótin eitt fyi'ir Krist og eitt eftir Krist. Enda þótt bók þessi fjalli að tals- verðu leyti um íslensk efni má ljóst vera að Kjellman er að tala til skand- ínavískra lesenda þar sem staða kirkjunnar sem valdastofnunar var aldirnar í gegnum mun sterkari en hér. Kjellman slær því að vísu fram að Svíar hafi aldrei alveg horfið frá heiðninni. Sú staðhæfing gæti þá ekki síður átt við Islendinga, kannski ekki beinlínis varðandi trúarlegu hliðina heldur hina menningarlegu, huglægu. Fornritin hafa verið lesin hér óslitið írá því er þau voru samin til þessa dags. Tilraunir Guðbrands biskups til að láta skáldin snúa baki við fornum köppum en yrkja þess í stað Biblíurímur báru slakan árang- ur. Meira að segja sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson dáðist að garpskap fornmanna. Kjellman rekur það til áhrifa kirkjunnar manna á miðöldum að hin germönsku Eddukvæði skyldu ekki varðveitast í Skandínavíu, aðeins á hinu afskekkta Islandi. Ekki er hann fyrstur manna til að velta fyrir sér íslenskri geymd Eddukvæðanna. Víst er kenning hans íhugunarverð. Og ef til vill rétt. Samt þarf hún ekki að vera hin eina rétta. Rangalar sög- unnar eru krókóttir og villugjarnir. Og sannleikurinn hefur margar hlið- ar! Sá er meginkostur þessa rits hversu skipulega það er samið og hversu texti þess er ljós og skýr og laus við útúrdúra og málalengingar. Frá sjónarmiði bókagerðar séð er Den forna seden hins vegar langt frá því að vera ríkmannlegt rit! Sannast þar hið fornkveðna að oft leynist viska undir vondri kápu. Erlendur Jónsson Inge Knutsson hlýtur sænsk-íslensku menningarverðlaunin SÆNSK-íslenski sam- starfssjóðurinn hefur veitt Inge Knutsson þýðanda menningar- verðlaun sjóðsins. Hann er jafnframt fyrsti verðlaunahafi sjóðsins úr hópi þeirra sem skarað hafa fram úr við menningarsam- skipti Islands og Sví- þjóðar. Inge Knutsson hefur á undanförnum árum verið afkastamikill kynnir og þýðandi ís- lenskra bókmennta í Svíþjóð, mjög oft t.d. þýtt þau íslensku verk sem lögð hafa verið fram til bók- menntaverðlauna Norðurlanda, skáldsögur, smásögur, ljóð og leik- rit. A lýðveldisafmælinu 1994 færðu Svíar Islendingum að gjöf fé sem varið skyldi til að efla menningar- leg samskipti Svía og Islendinga. Hefur sjóðurinn veitt styrki tO ýmissa verka á sviði menningar, menntamála og vísinda á undanfórnum árum. Þá hefur hann stuðlað að því að farið er að undirbúa vinnu við nýja sænsk-íslenska orðabók. Auk menningarverð- launanna var í ár veitt fé úr sjóðnum til að efla sænskukennslu í íslenskum skólum og til undirbúnings að út- gáfu bókar um sam- skipti Svía og Islend- inga. Loks voru veitt fimm fei'ðastyrkir. Formaður sjóðsins er Sveinn Einarsson og varaformaður Berit Oscarsson, fv. þingmaður. Aðrir í stjórn eru Haraldur Olafsson, Hörður Bjarnason sendiherra, Maj Britt Imnander menningai'fulltrúi og Lennart Slmevik prófessor. Inge Knutsson Ljós unnm úr ryksugum og gleri í Galleríi Geysi BJARNI Þór Sigurbjörnsson opn- ar sína fyrstu einkasýningu í Gall- eríi Geysi, Hinu húsinu við Ingólfs- torg, laugai-daginn 3. apríl kl. 16. Bjarni Þór hefur stundað nám á hönnunarbraut við Iðnskólann í Hafnarfirði og verið aðstoðarmaður og lærlingur hjá Jónasi Braga Jónassyni glerlistamanni um nokk- urt skeið. Sýningin samanstendur af ljós- um sem flest eru unnin úr íyksug- um og gleri, en einnig sýnir hann ýmsa glermuni. Með þessu vill Bjarni Þór sýna fram á að ekki er aðeins hægt að endurnýta gosflösk- ur og mjólkurfernur, segir í fi'étta- tilkynningu. A sýningunni frumflytur tónlist- ai-maðurinn Lo-Fi nýjustu tónlist sína og Zirkús Ziemsen skemmtir gestum. Sýningin stendur til 18. apríl og er opin mánudaga til fimmtudaga 8-22, föstudaga kl. 8-19 og 13-18 um helgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.