Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 54

Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 54
,j54 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞORLEIFUR EINARSSON + Þorleifur Jó- hannes Einars- son fæddist í Reykjavík 29. ágúst 1931. Hann lést í Bergisch Gladbach í Þýskalandi 22. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 31. Ég man hvað ég '^varð undrandi þegar skeggjaður, úfinn og útiklæddur maður kom askvaðandi inn gang iðnaðarráðuneytisins og spurði með fjarlægð í augum hvar herbergi Magnúsar Kjartanssonar væri. Hann hafði ekki fyrir því að forvitn- ast um hvort Magnús væri á staðn- um eða hvort hann væri upptekinn, heldur gekk rakleiðis inn á skrif- stofu hans og lokaði á eftir sér. Hann yfirgaf ráðuneytið með sama gusti og óróleika í augum, án þess að kveðja frekar. Þegar ég spurði Magnús í gamansömum tón, hver þessi villimaður væri, svaraði hann _ um hæl. - „Hvað, þekkirðu ekki hann Þor- leif?“ Þetta mun hafa verið á út- mánuðum 1973 þegar Vestmanna- eyjagosið var enn í hámarki og Þor- leifur barðist ásamt öðrum við að stöðva hraunrennslið sem ógnaði höfninni. Án nokkurs efa var það afar merk aðgerð og ég minnist þess nú, að síðar, eftir að við vorum orðnir vinir, lét hann í ljós við mig von- brigði sín yfir því að hans þáttar væri varla getið í frásögnum af ^hraunkælingunni. Hann taldi hlut sinn þar fyrir borð borinn, enda hefði hugmyndin verið hans, þótt fleiri hefðu komið að framkvæmd- inni. Næst bar fundum okkar saman á svipuðum slóðum ári síðar. Banka- stjórar höfðu tjáð Magnúsi að þeir sæju engin önnur ráð en loka Máli og menningu vegna mikilla van- skila. Hann hafði kallað á Þorleif, Ólaf R. Einarsson, sem nú er látinn, og mig til að gera okkur ábyrga fyr- ir félaginu, hrinda í framkvæmd nauðsynlegum breytingum og koma í veg fyrir endanlega lokun þess. Verkaskipting og aðgerðaáætlun var ákveðin og skyldi Þorleifur taka sér stjómarformennsku en mig skyldi ráða sem framkvæmdastjóra, sennilega til að friða bankastjórana. Þar með vorum við Þorleifur orðnir samherjar og þróaðist samstarf okkar til vináttu á skömmum tíma. Þorleifur var stjórnarformaður Máls og menningar frá haustmán- uðum 1974 til ársins 1991 eða alls í 17 ár. I félagsráði var hann til dauðadags. A fyrri hluta þessa tímabils réðst framtíð félagsins. Það JTT TTTTTTTT I T I I T Tj H H H H H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 tókst að ná tökum á miklum fjárhagsvanda og jafnframt að beina útgáfustefnu félagsins í nýja farvegi. Tímarit- ið fékk nýjan búning og breytt innihald. Búðin á Laugaveginum var stækkuð og svo mætti halda áfram. Skapaðar voru for- sendur síðari tíma vel- gengni. Um þessar breytingar voru harka- leg átök á milli að- standenda og velunn- ara félagsins. í þeirri orrahríð stóð Þorleifur eins og klettur. Hann hristi allt hlæjandi af sér og sló upp í glens þegar erfiðast var. Þetta voru eiginleikar sem voru ómetanlegir við þessar aðstæður og auðvelduðu umskiptin. Þó var hann óhefðbundinn stjómarformaður sem kunni hvorki fundasköp né stjórnunarreglur. En það kom ekki að sök. Þegar tekin hafði verið ákvörðun hélt hann fast við hana, hvað sem á gekk. Það var vart á nokkurs manns færi að hnika hon- um. Þar kom í ljós einbeitnin og harkan sem hann þroskaði með sér í handboltanum. Persóna hans sam- anstóð af sjaldgæfri blöndu af ein- stakri mennsku og ljúflyndi sam- fara athafnaþörf, sem knúin var áfram af miklu skapi. Þetta gerði að verkum að hann fékk sitt oftast fram. Samskipti hans við starfsfólk Máls og menningar voru á vissan hátt einstök. Hann var í senn sálu- sorgari þess og einlægur vinur. Allt þetta gerði Þorleif að sterkum stjórnarformanni. En Þorleifur var einnig mikils- virtur vísindamaður og eftirsóttur fyrirlesari víða um heim. Hann fjall- aði þar um hugðarefni sín sem tengdust jarðfræði og náttúruvemd í víðum skilningi. En hann var ekki vísindamaður sem skrifaði eingöngu fyrir vísindaheiminn, þótt hann gerði það líka. Hann skrifaði ekki síður fyrir almenning. Kennslubók hans í jarðfræði kom út í yfir 28 þúsund eintökum og má fullyrða að engin ein bók hafi opnað og mótað eins sýn Islendinga til jarðsögu landsins og þessi bók. Hún hefur verið notuð sem kennslubók til margra ára og er svo enn. Sú ánægjulega vakning um náttúm- vernd og umhverfismál, sem átt hefur sér stað hérlendis undanfarin ár, átti sér stuðning í skrifum hans og bókum og dyggan bandamann í honum sjálfum. Hann skrifaði einnig alþýðlegar bækur um gosin í Surtsey og á Heimaey, sem seldust í miklum upplögum. Hann var frumkvöðull að stofnun Landvemd- ar, sem var á vissan hátt rökrétt framhald af skrifum hans og lífssýn. Með smákaldhæðni má segja að vísindaleg viðfangsefni hans hafi verið tengd eyðingaröflum gróðurs og náttúra. Lífshugsjónir hans snerust hins vegar um landvernd í víðasta skilningi þess orðs. Hvort heldur var í einkalífi eða stjórnmál- r-' ■ SJómabúðm öaKSskom v/ Fossvogsl<irl<ju0cii'ð Símii 554 0500 LEGSTEINAR f Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrýti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Revkjavík I sími 5871960, fax 5871986 um, við bókaútgáfu eða fræði- mennsku, á sviði umhverfismála eða náttúruverndar þá var Þorleifur Einarsson framar öllu landvemdar- maður. Nú er Þorleifur allur. Alltaf kemur mér fráfall vina minna jafn mikið á óvart. Við hittumst skömmu áður en hann fór í þá utanferð sem hann sneri ekki aftur úr; ætluðum að ná saman þegar hann kæmi heim, því ég þurfti að ráðfæra mig við hann í ákveðnu máli. Af því verður ekkert úr því sem komið er. Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd Máls og menningar þakka Þorleifi forystu hans og störf í þágu félags- ins. Þau skiptu máli. Við hjónin þökkum aldarfjórð- ungs vináttu sem var okkur mjög dýrmæt. Bömum hans, Guðrúnu og öðram ástvinum votta ég samúð okkar. Þröstur Ólafsson. Á æviskeiði þeirra, sem komnir era yfir miðjan aldur mælist tíminn í áratugum og hálfum öldum. Vangaveltur þessu líkar koma í hugann nú við lát vinar míns Þor- leifs Einarssonar jarðfræðings. Við höfðum þekkst í nær 40 ár, þegar hann var allur. Fundum okkar bar fyrst saman árið 1961, þegar ég hóf störf á búnaðardeild atvinnudeildar Háskólans. Þorleifur starfaði á iðn- aðardeild. Þessar stofnanir voru í sama húsi á háskólalóð. Allan þenn- an tíma hefur margt verið að gerast á sviði jarðfræði og umhverfismála hérlendis. Bæði þessi svið áttu hug Þorleifs. Náttúran hefur heldur ekki legið á liði sínu við að sýna okkur í tvo heimana þessa áratugi. Fyrst ber að nefna Öskjugos, Surts- eyjargos, Heklugos, Vestmanna- eyjagos, Kröfluelda, Grímsvatnagos og Grímsvatnahlaup, hafísár og loks snjóflóðavetur. Þorleifur tók þátt i flestu þessu með einum eða öðrum hætti beint og óbeint. Um marga þessara atburða skrifaði hann greinar og jafnvel bækur. Á atvinnudeildarárunum hóf Þor- leifur það verk, sem hann er ef til vill kunnastur fyrir meðal almenn- ings, en það var samning kennslu- bókar; Jarðfræði - saga bergs og lands, útgefin 1968. Bókin var í senn handbók fyrir almenning og kennslubók fyrir efri skólastig. Síð- ar þegar Þorleifur var formaður Máls og menningar sagði Halldór Laxness um hann eitt sinn, eitthvað í þá vera að hann ætti ekki að standa í svona stjórnunarstússi heldur ætti hann að skrifa, hann væri svo góður penni. Halldór var þá að vitna til jarðfræðibókarinnar. Jarðfræði, sem var fremur sniðin til kennslu, kom út árið 1971. Næstu tuttugu árin kom sú bók út allmörg- um sinnum og oftast talsvert breytt. Þorleifur fylgdist mjög vel með þvi sem unnið var á jarðfræðasviði og því var nýjungum bætt við eða breytt eftir atvikum, eftir því sem við átti við hverja nýja útgáfu. Annað aðaláhugasvið Þorleifs Einarssonar var náttúravernd og umhverfismál. Hann átti sæti í Náttúruverndarráði, sem varamað- ur, í nokkur ár og í stjórn Land- verndar, en hann var formaður þeirra félagasamtaka um alllangt skeið. Þorleifur beitti sér fyrir betri umgengni um landið. í því skyni benti hann okkur m.a. á rusl og drasl sem fauk um og spillti ásýnd umhverfisins. Þannig varð svokali- aður pokasjóður til, en peningar, sem í hann komu, voru notaðir til að styrkja einstaklinga, félög og sveit- arstjórnir víðs vegar um land til þrifnaðarverka og gi'óðurbóta. Upp- hæðirnar voru ef til vill ekki háar, en þær vöktu marga til umhugsun- ar og til fylgis við þjóðþrifastarf. I kjölfarið hefur ásýnd landsins batn- að til muna. Annað verk, sem Þorieifur vann okkur til heilla í náttúruverndar- og umhverfismálum, var að koma því til leiðar að línulagnir t.d. raf- magnslínur voru lagðar þannig að sem minnst bæri á. Hann var í mörg ár eftirlitsmaður Náttúra- verndarráðs með verklegum fram- kvæmdum í landinu, svo sem vega- gerð og línulögnum svo dæmi séu nefnd. Ég undirritaður er honum til dæmis ævarandi þakklátur fyrir að koma raflínulögn, svokallaðri byggðalínu, þannig fyrir á Vatns- skarði að óheft útsýni var yfir Skagafjörð og út til eyja. Þótt Þorleifur væri sannfærður náttúraverndarmaður, gerði hann sér þó vel ljóst að landsmenn yrðu að nýta sér hana sér til hagsbóta. Hann var einn af hvatamönnum þess, þegar hann átti sæti í nefnd á vegum iðnaðarráðuneytis á dögum Magnúsar Kjartanssonar ráðherra, að steinullarverksmiðja var reist á Sauðárkróki. Sömuleiðis var hann einn af hvatamönnum að perlu- steinsvinnslu úr Prestahnúki á Kaldadal. Á þeim árum safnaðist hingað til lands verðmæt þekking á vinnslu perlusteins og margvíslegri nýtingu hans. Mætti dusta rykið af þeim áætlunum, því það sem kann að hafa verið óhagkvæmt fyrir ald- arfjórðungi, kynni að vera hag- kvæmt í dag. Erlendir vísindamenn voru einnig kunnugir störfum Þorleifs Einarssonar og hlaut hann af þeim ýmsan sóma. Hann hafði hlotið hinn eftirsótta Humbolt styrk í Þýska- landi. Hann var „fellow“ í Churchill College í Cambridge og hann átti giftudrjúgt samstarf við bandaríska jarðfræðinga. Þá átti hann, fyrir hönd Norðurlanda, sæti í svo- nefndri Bruntlandnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna um umhverfis- mál. Samstarf okkar Þorleifs má segja að hafi byrjað fyrir alvöra, þegar ég hóf nám í jarðfræði í nýstofnaðri raunvísindadeild í Háskóla Islands. Þorleifur hafði komið mikið að stofnun jarðfræðiskorar og varð annar af prófessoram hennar. Hinn var Sigurður Þórarinsson. Aðrir kennarar vora allmargir, allir vora þeir afbragðs kennarar, en ég trúi að á engan sé hallað þótt haldið sé sérstaklega fram hlut þeirra Sig- urðar. Síðar unnum við Þorleifur saman við gerð jarðganga í Oddskarði. Einnig við fornleifauppgröft í Reykjavík og fundum þar elstu minjar sem þá höfðu fram komið, hleðslu úr torfi, sem í var land- námsöskulagið. Elsa Nordal, sænskur fornleifafræðingur, stóð fyrir þeirri rannsókn á vegum Reykjavíkurborgar og Þjóðminja- safns. Ymislegt fleira mætti til tína. Fyrir nokkram áram, þegar hann efaðist um ótrúlegar niðurstöður í rannsókn minni á jarðvegssögu vesturhluta Norðurlands, tók hann boði mínu um rannsóknarferð svo hægt væri að ganga úr skugga um hið sanna með áþreifanlegum hætti. Eftir að hafa sannfært sjálfan sig var hann dús við niðurstöðu mína. Þá er eftir sú ósérhlífna vinna sem hann innti af höndum við yfirlestur greina fyrir vini sína og kunningja. Hann var smekkvís á málfar, sagði sem svo: „Málið þarf að renna fram, mjúklega." Þorleifur Einarsson var drengur góður. Hans er sárt saknað. Sambýliskonu hans, Guðrúnu Bauer, bömum hans og barnabörn- um sendi ég og fjölskylda mín sam- úðarkveðjur. Grétar Guðbergsson. Skjótt skipast veður í lofti. f byrj- un mars ræddumst við Þorleifur við í síma. Lék þá aUt í lyndi og hann hress að vanda. Áður en mánuður- inn er úti er Þorleifur allur, horfinn án nokkurrar viðvörunar. Þorleifi kynntist ég fyrst, þegar fjölskylda mín flutti til Reykjavíkur haustið 1947 og tók sér búsetu í Vogunum. Þar höfðu foreldrar Þor- leifs, þau Einar og Kristín, komið sér upp húsi af takmörkuðum efn- um en miklum dugnaði, og bjuggu þar með börnum sínum Þorleifi og Rögnu. Vogarnir voru á þeim tíma lítið hverfí í uppbyggingu. Um- hverfis skiptust á túnblettir smá- býlanna og ósnortin grjótholtin. Langt var í næstu hverfí og enn lengra í bæinn, en þangað þurfti að sækja allt, atvinnu, skóla og afþrey- ingu. Af einu státaði þó hverfið, sem ekki átti sinn líka í Reykjavík, en það var íþróttahúsið við Háloga- land. Þetta var raunar braggi frá stíðsáranum, en var langstærsta íþróttahús Reykjavíkur. Það fór auðvitað ekki hjá því að margir ung- lingar hverfisins löðuðust að þessu húsi. Þorleifur tók snemma forystu fyrir þessu liði og hélt því til íþróttaiðkana. Einkum var hand- bolti vinsæll, enda sú grein, sem mest var stunduð í Hálogalandi á þessum áram. Þorleifur var í íþróttafélagi Reykjavíkur og fylgd- um við margir honum þangað. Stundum var hann allt í senn for- maður handknattleiksdeildarinnar, þjálfari og burðarásinn í liðinu. Þrátt fyrir þetta náði hann miklum tökum á íþróttinni og var í landsliði íslands, sem fyrst lék landsleik hér heima. Þama komu strax fram margir skapgerðarþættir hjá Þorleifi, sem einkenndu hann alla tíð. Hann var skjótráður og drífandi og hafði metnað til að ná árangri í hverju því verkefni, sem hann lagði lið. Hann var stjómsamur, svo að stundum jaðraði við ráðríki að okkur fannst. Yfirleitt reyndust ráð hans þó vel og öll vora þau veitt af áhuga fyrir farsælum framgangi mála. Á þessum áram fylgdumst við Þorleifur að í Menntaskólanum í Reykjavík og tókum þar stúdents- próf vorið 1952. Við áttum því sam- an margar stundir, í skólanum, handbolta og við margskonar iðju þess utan. Margar eru minningarn- ar frá þessum tíma og allar góðar. Stúdentar frá MR 1952 sjá nú á bak enn einum félaga sínum og era skörðin orðin æði mörg. I menntaskóla kom fram hinn mikli áhugi Þorleifs á náttúrafræði og þá einkum jarðfræði. Hann var ekki í neinum vafa um val á fræði- grein. Jarðfræðin átti hug hans og leiðin lá til Þýskalands til að nema hana. Námi sínu lauk hann með doktorsprófí í Köln 1960. Þegar Þorleifur sneri heim að námi loknu voru jarðfræðingar fáir á landinu. Þeir urðu því að vera fjöl- hæfir og sinna bæði grandvallar- rannsóknum og verkefnabundnum rannsóknum. Þetta hentaði Þorleifi að mörgu leyti vel, enda lagði hann sitt af mörkum á báðum sviðum. Fljótlega lágu leiðir okkar Þor- leifs aftur saman og nú í starfi. Hann varð ráðgjafi Vegagerðarinn- ar um jarðfræðileg efni og umhverf- ismál og sinnti þeim störfum með ágætum um árabil. Verður nánar vikið að þeim annars staðar. Skjótt skipast veður í lofti. Otímabær brottför Þorleifs Einars- sonar af leikvelli lífsins varð skyndi- leg og óvænt fyrir ástvini hans, vini og kunningja. Þó finnst mér að hún sé með hans stfl, engin tvístígandi heldur drifið í hlutunum. Ég votta börnum hans, sambýliskonu og fjöl- skyldunni allri samúð mína og bið þess að minningin um góðan dreng mildi söknuð þeirra. Helgi Hallgrímsson. Þegai- okkur barst það til eyrna á þriðudagsmorgni að vinur okkar, samstarfsmaður og fyrrum lærifað- fr, Þorleifur Einarsson prófessor, væri látinn urðu okkar fyrstu við- brögð þau að telja einhvem mis- skilning á ferðinni. Þorleifur væri ekki farinn lengra frá okkui' en til Þýskalands, í rann- sóknarleyfi. Þjóðverjar höfðu jú hér um árið birt dánartilkynningu Þor- leifs í virtu vísindariti eftir að bréf til hans var af misgáningi talið vera til Trausta Einarssonar sáluga og endursent með þeim skilaboðum að viðtakandi væri látinn. Síðustu vikuna höfum við horfst í augu við þann bitra veraleika sem dauðinn er. Okkar fyrstu kynni af Þorleifi vora í menntaskóla þegar við lásum bók Þorleifs, Jarðfræði - saga bergs og lands, til stúdentsprófs í jarðfræði. Þorleifsbiblía, eins og bók hans var oft kölluð, átti stóran þátt í þeirri ákvörðun okkar, og fjölda annarra menntskælinga, að nema jarðfræði við Háskóla ís- lands. Það var því með nokkrum spenningi að við mættum í fyrsta fyrirlestur hjá Þorleifi þegar í Há-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.