Morgunblaðið - 01.04.1999, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 5%
skólann var komið. Kennarinn Þor-
leifur var í eigin persónu jafn
skemmtilegur og bókin hans hafði
gefíð til kynna. Hugtakið lærifaðir
hæfír honum best þar sem hann var
ekki bara góður kennari heldur lét
sig einnig miklu skipta andlega vel-
ferð nemenda sinna. Þorleifur kunni
að halda okkur við efnið. Hann bjó
yfir víðtækri þekkingu á mörgum
sviðum sem hann miðlaði til okkar
með hressleika og skemmtilegri
stríðni í bland. Það kom sérstaklega
vel fram í þeim mörgu námsferðum
sem við tókum þátt í með honum.
Þorleifur á stóran hlut í menntun
allra jarðfræðinga sem numið hafa
við Háskóla Islands frá því að
kennsla hófst í jarðfræði árið 1968.
Auk jarðfræðinnar voi'u ýmis mál
sem tengdust náttúruvernd og
verndun menningarminja honum
hugleikin. Einnig var pólitíkin
aldrei langt undan. I umhverfísmál-
um var Þorleifur langt á undan
sinni samtíð og minnumst við þess
alltaf með stolti hvemig hann fékk
landsmenn á sitt band í baráttunni
íyrir því að sett væri skilagjald á
gosumbúðir. í dag má gefa einnota
umbúðir til styrktar góðu málefni
en ekki er nema rúmlega áratugur
síðan Þorleifur fékk sjónvarpið í lið
með sér til að sýna okkur hvernig
áldósirinar lágu eins og hráviði um
alla borg.
Eftir að hafa stundað framhalds-
nám erlendis lá leið okkar til baka
til Háskóla Islands. Með nýjar upp-
lýsingar um þau innrænu og út-
rænu náttúruöfl sem mótað hafa Is-
land í aldanna rás knúðum við dyra
hjá meistara Þorleifi og hvöttum
hann til að birta niðurstöður okkar í
næstu útgáfu af Þorleifsbiblíu. Þor-
leifur tók okkur vel, en benti jafn-
framt föðurlega á það, að ný þekk-
ing yrði að fá sinn reynslutíma áður
en hún væri tekin inn í kennslubæk-
ur. Ef kenningar okkar varðandi
uppbyggingu jarðskorpunnar undir
Islandi, áhrif efnaveðrunar á berg
og vatn, jarðvegsrof og sögu um-
hverfisbreytinga við jaðar ísaldar-
jökulsins sem þakti landið fyrir
rúmlega 11.000 árum stæðust
myndi sú nýja þekking sem þær
veittu sjálfsagt rata í kennslubækur
í fyllingu tímans. Það vakti þó gleði
Þorleifs þegar nýjustu rannsóknir
staðfestu kenningar hans um mynd-
unartíma Búðaraðarinnar, jökul-
garða sem liggja um Suður-
landsundirlendið, en þær höfðu ver-
ið dæmdar úr leik fyrir áratug.
Okkur, sem lifum á tölvuöld,
fannst Þorleifur kannski helst til
seinn að tileinka sér nýjungar. Þeg-
ar við stungum t.d. upp á því að
tími væri kominn til að hann fengi
sér tölvu svaraði hann því til að
hann mundi ekki láta verða af því
fyrr en Mercedes Benz færi að
framleiða tölvur. Okkur fannst það
nokkuð kúnstugt þar sem sjálfur ók
hann alltaf Lödu Sport. Þorleifur
var mjög góður íslenskumaður og
lagði metnað sinn í að skrifa gott
mál eins og skýrt kemur fram í
bókum hans.
Við þökkum fyrir að hafa fengið
að njóta samfylgdar Þorleifs í námi
og starfi um leið og við sendum fjöl-
skyldu hans okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Bryndís Brandsdóttir,
Áslaug Geirsdóttir,
Auður Andrésdóttir,
Guðrún Gísladóttir,
Sigurður Reynir Gíslason.
Látinn er Þorleifur Einarsson
jarðfræðingur um aldur fram,
lærifaðir, samstarfsmaður, félagi og
vinur til margra ára og íslenzk jarð-
fræði hefur misst einn af sínum
allra beztu sonum. Leiðir okkar
lágu fyrst saman haustið 1969 þeg-
ar Þorleifur kenndi í fyrsta sinn
námskeið sitt í jarðsögu við nátt-
úrufræðiskor verk- og raunvísinda-
deildar Háskóla íslands, ári eftir að
nám í þeirri grein hafði hafizt við
skólann. Það varð svo hlutverk Þor-
leifs að útskýra fyrir stúdentum
hvers vegna þekking í jarðlagafræði
og jarðsögu fjarlægi'a heimshluta
hlýtur að vera sjálfsagður hluti
jarðfræðináms og þessu hlutverki
gegndi Þorleifur betur en allir aðrir
hafa gert við þá stofnun.
Þorleifur lét sér alla tíð mjög um-
hugað um jarðfræðinám við HI, allt
frá þeim tíma að hann starfaði að
undirbúningi þess. Hann hafði góða
yfirsýn yfir jarðfræðisviðið og ef
hann þóttist greina einhver sérstök
áhugasvið hjá nemendum sínum
hvatti hann þá til framhaldsnáms.
Taldi hann það mesta viðurkenn-
ingu fyrir jarðfræðinámið hér á
landi að sem flestir erlendir háskól-
ar viðurkenndu stúdenta með BS-
próf héðan til framhaldsnáms. Þess-
um stúdentum var hann innan
handar á ýmsan hátt, aðstoðaði við
sumai’vinnu, rannsóknaiverkefni,
mælti með við erlenda háskóla og
hjálpaði á ýmsan annan hátt. Þá var
stundum talað í flimtingum um
„bláeygu drengina hans Þorleifs"
og var þar átt við þá stúdenta sem
Þorleifur tók upp á sína arma. Víst
er að ef allir væru taldir væri þar
nokkur hópur manna og ekki vist að
margir aðrir gætu státað af jafn
fjölmennu liði.
Snemma á ferli sínum sem jarð-
fræðingur tókst Þorleifur á við
ákaflega stórt og viðamikið verk-
efni. Þetta verkefni var að skrifa
nýja kennslubók í jarðfræði fyrir
framhaldsskóla og bæta þannig úr
sárum skorti á því sviði. Þá voru
miklir uppgangstímar í jarðvísind-
um og nýjar og ferskar hugmyndir
sem opnuðu fyrir nýja sýn og túik-
un þeirra upplýsinga sem fyrri kyn-
slóðir höfðu safnað. Þorleifur bætti
um betur og hagaði áherslum í bók-
inni þannig að hún nýttist einnig
sem aðgengilegt uppflettirit fyrir
allan almenning. Þessi bók Þorleifs
var Jarðfi’æði - saga bergs og
lands. Hún var árum saman mjög
vinsæl í farteski fólks á ferðalagi
um landið. Ekki spillti heldur að
nóbelskáldið lét svo um mælt að á
þeirri bók væri einstaklega gott og
fallegt mál. Síðar lagaði Þorleifur
bókina að kennslu og uppfærði hana
svo reglulega og hefur hún verið að-
alkennslubókin í jarðfræði á ís-
lensku í um aldarþriðjung.
Að öðrum kennurum mínum
ólöstuðum fullyi-ði ég að engir hafa
lagt sig eins fram um að koma jarð-
fræði sem fagsviði og jarðfræðing-
um sem sjálfsögðum starfsmönnum
á framfæri við opinberar stofnanir
og Þorleifur og vann hann þar
stundum að tjaldabaki þannig að
ekki var alltaf ljóst hver þáttur
hans var í raun og veru. Sá þáttur
verður sjálfsagt seint rétt metinn
því að á stundum fennir furðu fljótt
í sporin þeirra sem fyrstir fara.
Hann var einnig óeigingjarnasti
samstarfsmaður sem ég hef kynnst
um dagana. Þegar hann aflaði sér-
tekna með ráðgjafai'vinnu eins og
gengur og gerist lét hann þær
gjarnan renna inn á rannsókna-
reikning jarðvísindastofu Raunvís-
indastofnunar þannig að annað-
hvort nýttust þeir fjái-munir sem
laun fyrir stúdent í sumar- eða
verkefnisvinnu eða þeir voru notað-
ir í þágu heildarinnar. Þannig varð
t.d. upphafið að tölvuvæðingu jarð-
fræðiskorar. Upphafsframlögin
komu ekki af fjáríögum, heldur
komu þau af sértekjum Þorleifs
enda þótt það væri líka alveg ljóst
að Þorleifur nyti þar aðeins óbein-
línis hagræðingar af. Aðrir nutu þar
meira af. Slíkur var háttur Þorleifs;
að greiða fyrir öðrum en hagnast
ekki á því sjálfur.
Náttúruvemd og umhverfismál
voru málaflokkur sem Þorleifur lét
SJÁ NÆSTU SÍÐU
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SOFFANÍAS CECILSSON
útgerðarmaður,
Grundarfirði,
lést á Sjúkrahúsi Akraness að morgni miðviku-
dagsins 24. mars.
Útför hans fer fram frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 3. apríl kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Grundarfjarðarkirkju.
Hulda Vílmundardóttir,
Bára Bryndís Vilhjálmsdóttir,
Magnús Soffaníasson, Sigríður Finsen,
Kristín Soffaníasdóttir, Rúnar Sigtryggur Magnússon,
Sóley Soffaníasdóttir, Sigurður Sigurbergsson
og barnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN AXELSDÓTTIR,
Álfhóli 5,
Húsavfk,
lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur sunnudaginn 28.
mars. Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
fimmtudaginn 8. apríl kl. 14.00.
Reynir Jónasson,
Jakobína Reynisdóttir, Kristinn Jónsson,
Jónas Reynisson, Brynja Björgvinsdóttir,
Oddfríður Dögg Reynisdóttir, Magnús Hreiðarsson,
Axel Reynisson, Jóhanna Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR GUNNARSSON,
frá Einarsstöðum,
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar fimmtudaginn 25. mars sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Stefanía Ingimarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MARIANNE STEHN ÓLAFSSON,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum fimmtudaginn
25. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
7. apríl kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Anna Atladóttir,
Maríanna Clara Lúthersdóttir,
Lúther Jónsson
og vandamenn.
+
Móðir okkar,
MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður til heimilis á Hörpugötu 7,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn
28. mars.
Sigurrós Jónsdóttir,
Gunnlaugur Jónsson,
Jóhannes Jónsson,
Magnús Jónsson.
+
Frænka okkar,
LOVÍSA ÞÓRUNN LOFTSDÓTTIR,
Víðimel 47,
sem lést sunnudaginn 28. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 7. apríl kl. 10.30.
Þórunn Edda Sigurjónsdóttir,
Loftur Þór Sigurjónsson.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
KARÓLÍNA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður til heimilis á
Hverfisgötu 38B, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 29. mars.
Jónína S. Lárusdóttir, Gísli H. Sigurðsson,
Birna Lárusdóttir, Valur Hugason,
Oddný F. Lárusdóttir, Finnbjörn Þ. Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn,
Björney J. Björnsdóttir.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
kaupkona,
Óðinsgötu 1,
Reykjavík,
lést á Vífilsstaðaspítala miðvikudaginn
31. mars.
Jarðarförin verður auglýst siðar.
Reynir Þorgrímsson, Rósa Gísladóttir,
Víðir Þorgrímsson, Jóhanna Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR EGILSSON
fyrrverandi innkaupastjóri,
Sólheimum 25,
Reykjavík,
sem lést á Landakotsspítala sunnudaginn
28. mars, verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju miðvikudaginn 7. apríl kl. 13.30.
Margrét Thoroddsen,
María L. Einarsdóttir, Hannes Sveinbjörnsson,
Egill Þ. Einarsson, Hlaðgerður Bjartmarsdóttir,
Þórunn S. Einarsdóttir, Halldór Árnason,
Sigurður Th. Einarsson, Auður Vilhjálmsdóttir,
Margrét H. Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn. 'fM »
-----------------------------------------------------r4