Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 58

Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 58
58 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF ALDARMINNING Safnaðarstarf Kvöldvaka í Hjallakirkju KVÖLDVAKA verður við krossinn í Hjallakirkju í Kópavogi á föstu- daginn langa, 2. apríl, kl. 20.30. Þá er leitast við að lifa atburði dagsins á myndrænan hátt og minnast dauða Kiists með tákn- rænum hætti. I kórdyrum kirkjunnar verður reistur kross sem minnir á kross- inn á Golgatahæð, þann sem frels- ari okkar var negldur á og líflátinn. Krossinn er tákn lífgjafarinnar, . björgunarinnar sem við höfum þegið í heilagrí skírn, og við hann munu fermingarbörn lesa sjö orð Krists á krossinum. Fólk úr kirkjustarfinu annast lestur píslarsögunnar og kór kirkj- unnar leiðir safnaðarsöng. Þátttakendur í kvöldvökunni yf- irgefa kirkjuna myrkvaða. í henni verða ekki tendruð ljós fyrr en árla á páskadagsmorgun. Mót um bænadagana ÍSLENSKA Ki-istskirkjan verður með mót um bænadagana og pásk- •' ana á Bíldshöfða 10, 2. hæð. Morg- unsamkomur með biblíufræðslu verða á fímmtudags- og föstudags- morgun kl. 10. Kvöldsamkomur verða á miðvikudags, fimmtudags- og föstudagskvöld kl. 20. Páska- guðsþjónusta verður á páskadag kl. 11. Sameiginleg samkoma verð- ur með ýmsum kristnum samfélög- um í Fíladelfíu, Hátúni 2, á annan í páskum kl. 20. , Helgihald í Digraneskirkju FERMINGARMESSA verður í Digraneskirkju á skírdag, 1. apríl, kl. 11 og 14. Samfélag við altari Drottins á skírdagskvöld kl. 20.30. Altarissakramentið verður fram borið með sérbökuðu ósýrðu brauði og bergt verður af sameiginlegum kaleik. Prestur sr. Gunnar Sigur- jónsson, organisti Kjartan Sigur- jónsson. A fóstudaginn langa, 2. apríl, er passíuguðsþjónusta kl. 20.30. Písl- arsagan lesin. Litanía sungin. Flutt verður krossfestingararía úr Mess- íasi eftir Handel. Prestar sr. Gunn- ar Sigurjónsson og sr. Magnús B. Bjömsson. Organisti Kjartan Sig- urjónsson. Kór Digraneskirkju syngur. Einsöngur Sigríður Sif Sævarsdóttir. Laugardaginn 3. apríl, aðfanga- dag páska, kl. 22 verður páska- vaka. Vitað er að kristnir menn söfnuðust saman laugardagskvöld- ið fyrir páskadag og vöktu saman til þess að bíða árroða páskamorg- uns, en þá minntust þeir upprisu Jesú Krists. Páskavakan hefst kl. 22 fyrir utan kirkjuna, hún færist síóan inn í kirkjuna og lýkur vænt- anlega á fyrstu stundu páskadags- morguns. Prestar era sr. Gunnar ■ Sigurjónsson, sr. Jón Hagbarður Knútsson, sr. Iris Kristjánsdóttir, sr. Flóki Kristinsson og sr. Magn- ús Bjömsson. Organisti er Kjartan Sigurjónsson. A páskadag, 4. apríl, kl. 8 verður hátíðarmessa. Flutt verður tón- verkið Páskadagsmorgunn eftir Sveinbjörn Sveinbjömsson sem stólvers, ílutt af Kór Digranes- kirkju og einsöngvuranum Eiríki Hreini Helgasyni, Guðrúnu Lóu Jónsdóttur og Sigríði Sif Sævars- dóttur. Eftir messu verður morg- ... unmatur í safnaðarsal og er mælst til þess að kirkjugestir komi með eitthvert meðlæti með sér, en einnig verður boðið upp á smá- brauð, heitt súkkulaði og kaffí. Annað ræðst af því hvað sönfuður- inn kemur með. Sr. Gunnar Sigurjónsson prestur. Samkirkjuleg hátíð í Fíladelfíu ANNAN dag páska verður sam- kirkjuleg hátíð í Fíladelfíu, Hátúni 2. Hefst hún kl. 20 og verða ýmis atriði úr nokkram kirkjum m.a. má nefna hljómsveitina Trampet, dans og vitnisburði. Söngur, lofgjörð og tilbeiðsla. Morgunkaffi og fagnaður KFUM og KFUK Á PÁSKADAGSMORGUN kl. 9 eða að loknum guðsþjónustum bjóða KFUM og KFUK til fagnað- ar í aðalstöðvum sínum við Holta- veg til að minnast og fagna upprisu frelsarans Jesú Krísts frá dauðum og til að njóta saman samfélags og morgunhressingar. Kl. 20.30 verð- ur hátíðarsamkoma á páskum í að- alstöðvum KFUM og KFUK við Holtaveg. Ritningarlestur, vitnis- burð og bæn flytur Ragnheiður Arnkelsdóttir, skrifstofustjóri KFUM og KFUK. Ólöf Inger Kjartansdóttir syngur einsöng og sr. Sigurður Sigurðarson vígslu- biskup flytur hátíðarræðu. Sigurbjörn Þorkelsson, fram- kvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavík. Bústaðakirkja. Starf TTT mánu- dag kl. 17. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í hádegi á morgun, mánudag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Allar mæður velkomnar með lítil böm sín. Hallgrimskirkja. Æskulýðsfélagið Örk (eldri deild) mánudag kl. 20 í kórkjallara. Neskirkja. Hjónastarf Neskirkju í kvöld kl. 20.30. Fjármál heimil- anna. Elín Jónsdóttir, forstöðu- maður ráðgjafarstofu heimilanna, heldur erindi og ræðir vandann sem fjölskyldur komast stundum í og gefur góð ráð um skipulagningu fjármála fjölskyldunnar. Fótsnyrt- ing á vegum Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16. Upplýsingar í síma 551 1079. TTT, 10-12 ára starf, kl. 16.30. Mömmumorgunn miðvikudag kl. 10-12. Fræðsla: Svefn og svefnvenjur. Hjúkrunar- fræðingur frá Heilsugæslustöð Sel- tjamarness. Ungar mæður og feð- ur velkomin. Seltjarnarneskirkja. Æskulýðs- st.arf fyrir 9. og 10. bekk kl. 20-22. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu þriðjudag kl. 10-12. Digraneskirkja. TTT-starf 10-12 ára á vegum KFUM og K og Digraneskirkju kl. 17.15 á mánu- dögum. Starf aldraðra á þriðjudög- um kl. 11.15 í umsjá Önnu Sigur- karlsdóttur. Leikfimi, léttur máls- verður, helgistund. Benedikt Arn- kelsson can. theol. kemur í heim- sókn og sýnir myndir frá starfi ís- lenskra kristniboða í Eþíópíu. Fella- og Hólakirkja. Þriðjudagur; starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 17.30. Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk kl. 20.30. Grafarvogskirkja. Þriðjudagur; eldri borgarar, opið hús kl. 13.30 til 15.30. Helgistund, söngur, handa- vinna, létt spjall og kaffíveitingar. Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk kl. 20 til 22. KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl. 17.30-18.30. „Kirkjukrakkar" í Rimaskóla fyrir 7 til 9 ára börn ld. 17 til 18. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta í Roykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Umsjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Bæna- og kyi-rð- arstund þriðjudag kl. 18. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum þriðju- dag kl. 10-12. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu þriðjudag kl. 18.30. Bænarefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Seljakirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Þriðju- dagur; opið hús íyrir 7-9 ára börn frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimil- inu, Linnetstíg 6. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffí eftir athöfn. Bi- blíulestur kl. 21. Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn milli kl. 10 og 12. Opið hús fyrir 10-12 ára börn kl. 17-18.30. @texti:Fríkirkjan Vegurinn. Mót í Veginum, Smiðjuvegi 5, til 2. apr- íl. Kennarar Michael og Gloria Cotten frá Bandaifkjunum ásam Samuel Kaniaki. Annan í páskum verður sameiginlegg uppskerahá- tíð í Fíladelfíu. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Brauðsbrotning á skírdag kl. 16.30, ræðumaður Óli Ágústsson. Almenn samkoma kl. 16.30 á föstudaginn langa. Ræðumaður Vörður L. Traustason. Hátíðarsamkoma á páskadag kl. 16.30. Ræðumaður Vörður L. Traustason. Sameigin- leg samkoma kristinna samfélaga kl. 20 á 2. í páskum. Kefas. Skírdagur, lofgjörðarbæna- stund kl. 20.30. Brauðsbrotning. Laugardaginn 3. apríl samkoma kl. 14. Ræðumaður Helga R. Ár- mannsdóttir. Páskadagur, 4. april, morgunstund kl. 8. Upprisunni fagnað og Drottinn lofaður. Þriðju- daginn 6. apríl bænastund kl. 20.30. Miðvikudagur 7. apríl sam- verastund unglinga kl. 20.30. Hjálpræðisherinn. Samkirkjuleg útvarpsmessa í Aðventkirkjunni kl. 11 fimmtudaginn 1. apríl. Kl. 20.30 Getsemanesamkoma á hemum. Majórarnir Turid og Knut Gamst stjórna og tala. Föstudaginn langa kl. 20.30 Golgatasamkoma. Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar. Páska- dag kl. 8 upprisufögnuður og sam- eiginlegur morgunverður. Majór Knut Gamst. KI. 19 bænastund. Kl. 20 páskafógnuður. Kafteinn Miriam Óskarsdóttir. Annan í páskum kl. 20 samkirkjuleg samkoma í Hvíta- sunnukirkjunni Hátúni 2. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl. 16-18. Kyrrðar-, fyrirbæna- og fræðslustund í kirkjunni kl. 17.30-18. Lilja G. Hallgrímsdóttir kynnir djáknastarfíð. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta í kapellu sjúkrahúss- ins á skírdag kl. 14. Um kvöldið kl. 20.30 messa sem lýkur með af- skrýðingu altaris. Föstudagurinn langi kl. 14 helgistund með kór- söng og krossljósastund í stað pré- dikunar. Páskadagur kl. 8 árdegis hátíðarguðsþjónusta. Rúnnstykki og kaffí í safnaðarheimilinu eftir guðsþjónustuna. ÁSGEIR BJARNÞÓRSSON Nú í dag, fyrsta apríl, eru liðin hundrað ár frá fæðingu Ásgeirs Bjarn- þórssonar, sem á sínum tíma var einn af okkar ágætustu listmálurum einkum í gerð andlits- mynda, en eftir hann liggur einnig fjöldi landslagsverka og all- margar fágaðar kyrra- lífsmyndir. Auk þess að vera góð- ur listmálari var hann mikill og fjölhæfur íræðasjór og fagurkeri. Hann var frásagnar- glaður, og krydduðu umræðui' hans hversdagslega tilveru með listrænu skrúði samofnu úr þáttum mynda og máls, lags og ljóða. Ásgeir var hispurslaus í fasi, sneyddur alh‘i tilgerð og sýni- mennsku, gat hann verið harður í dómum sínum, en annað veifíð lék hann á þýða strengi og naut sín við að svelgja í sig fegurð og unaðssemdii- umhverfisins eða ausa úr nægta- brunni fróðleiks til þess að veita öðr- um innsýn á eitthvert leiksvið þein-a ævintýraheima, sem honum hafði tek- ist að lyfta hulunni af með sínum skyggnu augum skoðarans. Ásgeir var í hópi þeirra málara, sem stofnuðu Myndlistarfélagið 1961. Vora þetta listamenn, sem nutu mik- illar hylli almennings, en ekki allra gagnrýnenda. Nýlega hefur verið gef- ið út ágætt, myndskreytt yfirlitsrit yfir þessa málara, þai- sem saga þeirra er rakin (Islenskir myndlistar- menn útg.: Sigurður K. Árnason EHF 1998). Skrifai- Gunnai- Dal þar gagnmerkan formála fyrir ritinu, og gerir þai- grein íyrir viðhorfum þessa hóps okkar ágætustu listamanna og segir meðal annars: „I hugum þeirra listamanna, sem lentu í illum veðrum á valdatíð hins menningarlega marx- isma kom uppgjör aldrei til greina". - „Allir hughyggjumenn í röðum skálda og listamanna, sem ekki vildu versla með hin foi-nu gildi trúar og listar, urðu utangarðsmenn, ekki aðeins á Norðurlöndum heldur svo að segja um allan heim.“ Ásgeir mætti mörgu því líku móL læti með karlmennsku, gekk oftast um með glaðvært stef á vöram og æv- inlega með skoplegt og nýstárlegt viðhorf til lífsins. Hann var bjartsýnn og áhyggjulítill, frábitinn því að leggja lag sitt við hefbundnar venjur kerfisins, setjast í fastar skorður embætta og skoðana eða ánetjast gróðahyggju og taka þátt í kapp- hlaupi um veraldargæði eða auðs- og eignasöfnun. Lífshlaup hans var ekki að hefðbundnum hætti íslensks sveitadrengs, sem hann var að upp- lagi. Ásgeir Bjamþórsson var fæddur á Grenjum í Mýrasýslu 1. apnl 1899. Faðir hans var Bjamþór sonur Bjarna frá Knarrarnesi Benedikts- sonar frá Hítai-dal og Þórdísar Jónsdóttur frá Alftanesi. Móðir Ásgeirs var Sesselja Soffía dótt- ir Níelsar Eyjólfssonai- frá Helgustöðum og Sigríðar, en hún var dóttir Sveins Níessonar prófasts á Staðastað og Guðnýjar skáldkonu frá Klömbrum Jónsdóttur frá Grenjaðarstað. Að Ásgeiri stóðu því ættir af suðvestan- og norðan- verðu landi, bændur og bústýrur, prestar og maddömur. Ættmenni, sem voru meðal annars kunn fyrir verklagni, sagnaritun og skáldskap- arhneigð. Á námsáranum erlendis kynntist Ásgeir hópi manna, sem vora á líku reki og samtíma honum við nám í list- greinum og bókmenntum. Varð hon- um tíðrætt um þennan félagsskap og hafði frá mörgu að segja úr þeirra hópi og þeirra samskiptum og vora þeir þættir settir fram með gaman- sömum frásagnaiTnáta. Sumt af því var fært í letur í bókinni: ,Af lífí og sál“, sem Andres Kiistjánsson rit- stjóri skráði eftir honum 1973. Þeir Islendingar, sem leitað höfðu utan eftir lok fyrri heimsstyrjaldar og flestir vora fæddir um og eftir síðustu aldamót, bára til landsins menningar- strauma í greinum, sem vora nær óþekktar áður hér á landi. Þeir urðu brautryðjendur á sviði lista, heim- speki og nýrra bókmennta, og áttu sinn þátt, líkt og Fjölnismenn forð- um, í að gera íslenskt mannlíf litrík- ara og alþjóðlegra. í þeim hópi var Ásgeir þó fremui' boðberi hinnai' sí- gildu listai', sem heillaði hann, en hann átti ekki samleið með nýsköpun- armönnum og abstrakt-máluram þessa sama tímabils. Eða eins og hann sagði: „Tískulist er eins og hrímið, sem myndast á einni nóttu eða degi, en hjaðnar síðan fyrir þeirri sól sem eilíflega skín.“ Þá sólarsýn leitaðist hann við að birta þjóð sinni. Þegar Ásgeir leit yfir langan ævi- feril, sem var orðinn 88 ár, taldi hann sig vera mikinn gæfumann, enda þótt fjárhagur hans væri oftast þröngur. Hann trúði á framhald lífsins og jafn- vel endurfæðingu, en eitt er víst, að mörg góð listaverk Ásgeirs halda áfram að endurspegla skoðanir hans og sjónarmið og lýsa viðhorfum hans til þeirra þátta í ríki náttúrannar, sem hann hafði mestar mætur á. Og þær svipmyndir, sem hann festi á lé- reft munu ylja þeim sem á horfa um mörg ókomin ár. Á miðjum aldri gekk Ásgeir að eiga unga konu ættaða frá Eistlandi, Inge- borg Lorensson að nafni. Gengu þau í hjónaband 1950, en slitu samvistum tíuárum síðar. Ásgeii' andaðist í Reykjavík 16. desember 1987. Sturla Friöriksson. BRIÐS llinsjón Arnór G. II a g n a r s s o n Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Mánudaginn 21. mars spiluðu 22 pör Mitchell tvímenning. Urslit urðu þessi: N/S Jón Stefánsson - Sæmundur Björnsson...........276 Rafn Kristjánsson - Júlíus Guðmundsson .......261 Bergljót Rafnar - Soffía Theodórsdóttir.......251 A/V Viggó Nordquist - Tómas Jóhannsson............261 Oliver Kristóferss. - Sigurieifur Guðjónss....260 Haukur Guðmundsson - Örn Sigfússon ..........230 Fimmtudaginn 25. mars spiluðu 25 pör. Úrslit urðu þessi: N/S Pórarinn Árnason - Fróði B. Pálsson...........281 Ólafur Ingvarsson - Jóhann Lúthersson ........261 Sigurleifur Guðjónss. - Oliver Kristóferss....244 A/V Jón Andréss. - Guðm. Á Guðmundss.............262 Jón Stefánsson - Sæmundur Björnsson..........257 Sigurður Pálsson - Þórhildur Magnúsd.........247 Meðalskor báða dagana var 216. Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudaginn 15. mars hófst þriggja kvölda einmenningskeppni sem jafnframt er firmakeppni fé- lagsins. Spilað er á 6 borðum undfr öraggri leiðsögn Jóns Þórissonar í Reykholti. Eftfr fjör og læti fyrsta kvöldið stóðu eftirtaldir sig best: Kristján Axelsson, Bakkakoti ....................188 Magnús Bjamason, Birkihlíð.......................180 Lárus Pétursson, Hvanneyri.......................160 Eyjólfur Sigurjónsson, Kópareykjum...............158 Jón Þórisson, Reykholti..........................151 Sveinn Hallgrímsson, Vatnshömrum.................149 Þorstehm Pétursson, Árbergi .....................149 22. mars hélt fjörið áfram og stuðið hélst á efstu mönnum: Magnús Bjamason, Birkihlíð.......................184 Kristján Axelsson, Bakkakoti ....................173 Þorsteinn Pétursson, Árbergi ....................170 Jóhannes Sigvaldason, Hvanneyri..................166 Höskuldur Gunnarsson, Hvanneyri..................163 LárusPétursson, Hvanneyri........................162 Ljóst er að ekkert verður gefið eftir síðasta kvöldið. I lok febrúar fékk félagið góða gesti er Bridsdeild Starfsmannafé- lags Sementsverksmiðju ríkisins kom í heimsókn. Vinátta hefur hald- ist með þessum félögum í áratugi og verður áfram. Spiluð var sveita- keppni þai- sem hvort félagið atti fram fimm sveitum. Úrslit urðu þau að Borgfirðingar mörðu sigur og var kominn tími til því Sementið hefur haft betur nú um nokkra hríð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.