Morgunblaðið - 01.04.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 61
Islandsmeist-
aramót á snjó-
brettum
LAUGARDAGINN 3. apríl verður í
fyrsta sinn haldið íslandsmeistara-
mót á snjóbrettum og fer mótið
fram á skíðasvæði KR í Skálafelli.
Mótið er haldið á vegum Skíðasam-
bands íslands og hefst á laugardag
kl. 14.00. Keppt verður í bretta-
stökki og snjóbrettaati (Bo-
ardercross), þar sem fjórir renna
sér hlið við hlið og leika listir og
þrautir.
Keppt verður í þremur flokkum:
Strákar, 16 ára og yngri, fæddir
1983 og síðar; Strákar 17 ára og
eldri, fæddir 1982 og fyrr, og stelp-
ur, allir aldurshópar.
Skráning keppenda hefur staðið
yflr í íþróttaverslunum að undan-
förnu og er skráningargjald 1000
krónur, en þeim sem ekki hafa
skráð sig, er bent á að þeir geta
gert það í Skálafelli frá kl. 11.00 á
laugardag.
I fréttatilkynningu frá aðstand-
endum mótsins kemur fram að
reiknað er með því að fjöldi kepp-
enda verði á bilinu 100-200 og að
veitt verði verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin í hverjum flokki.
Það eru Skíðasamband íslands og
Skíðadeild KR sem sjá um keppn-
ina og öryggisgæslu á mótsvæðinu.
Starfsmenn Skálafells ásamt móts-
höldurum sjá um gerð brautar,
stökkpalla, og annað sem lýtur að
sjálfri gerðinni, svo sem uppsetn-
ingu á svokölluðum „snjóbrettara-
mpi“ (Half-pipe).
Gáfu fæðinga-
deild Landspít-
alans sjón-
varpstæki
KVENFÉLAGASAMBAND ís-
lands gaf fyrir skömmu tvö sjón-
varpstæki með innbyggðu mynd-
bandstæki á fæðingadeild Lahdspít-
ala íslands. Gjöf þessi er vegna 50
ára afmælis fæðingadeildarinnar,
sem er í ár. Drífa Hjartardóttir, for-
seti Kvenfélagasambands íslands,
afhenti þessi tæki ásamt fulltrúum
úr stjórn KÍ, en Álfheiður Árna-
dóttir, deildarstjóri á meðgöngu-
deild, ásamt fleira starfsfólki veitti
tækjunum móttöku. Var Kvenfé-
lagasamband Islands fullvissað um
að tæki þessi kæmu sér vel fyrir
deildina. Annað tækið á að vera
kennslutæki í ljósmæðranámi en
hitt til afnota fyrir sjúklinga.
Handmálaðir
grískir íkonar
Verð frá kr. 1.990 til 25.000
Falleg fermingargjöf
/Htíft
O)lofnn0 1974 ítíUíílt
Klapparstíg 40, sími 552 7977.
FRÉTTIR
Bíóin opin
um páskana
KVIKMYNDAHÚSIN hafa í sam-
einingu ákveðið að hafa opið alla
páskana. Aukast því enn möguleik-
ar fólks á skemmtunum yfir pásk-
ana. Það er af sem áður var þegar
allt var lokað og lítið hægt annað að
gera en dvelja heima við. Sífellt
fleiri möguleikar bjóðast nú fólki
sem vill gera sér eitthvað til upp-
lyftingar og er lengri afgreiðslutími
kvikmyndahúsanna einn kosturinn í
viðbót. Vonir standa til að þetta
mælist vel fyrir hjá íslenskum kvik-
myndahúsagestum, segir í fréttatil-
kynningu.
Nú er svo komið að kvikmynda-
húsin eru opin allan ársins hring að
undanskildum þremur hátíðisdög-
um. Hér er átt við aðfangadag, jóla-
dag og gamlársdag og má búast við
að svo verði áfram um okomna tíð.
Foreldrahópur
Málbjargar
STOFNAÐUR hefur verið foreldra-
hópur innan Málbjargar. Markmið
Málbjargar er að vinna að málefnum
þeirra sem stama. Foreldrahópur-
inn samanstendur af foreldrum
bama sem stama og er markmiðið
að auka þekkingu innan skólakerfis-
ins á stami ásamt því að miðla öðr-
um þekkingu um meðferðir við
stami.
Stofnfundur var haldinn 3. mars
og verður næsti fundur haldinn
miðvikudaginn 7. apríl kl 20.30 í
kaffisalnum í húsi Öryrkjabanda-
lagsins að Hátúni 10 neðstu hæð.
Öllum foreldrum bama sem stama
og öðrum sem áhuga hafa á málefn-
inu er velkomið að mæta og kynna
sér félagið.
LEIÐRÉTT
Röng fullyrðing
í Staksteinapistli Morgunblaðsins
í gær er sagt að Björgvin Sigurðs-
son hafi stjórnað kosningabaráttu
Svanfríðar Jónasdóttur í prófkjör-
inu, sem fram fór fyrir norðan á
dögunum. Þessi fullyrðing er feng-
in á vefsíðu Vef-Þjóðviljans, en
hún mun svo hafa verið tekin þar
út eftir að Björgvin benti rekstrar-
aðilum vefsíðunnar á þessar rang-
færslur. En þær komu í Stakstein-
um í gær inna gæsalappa, tilvitnun
í Vef-Þjóðviljann. Morgunblaðinu
þykir leitt hafa miðlað þessu og
biður Björgvin afsökunar.
Spegluð mynd
í sérblaði Morgunblaðsins í til-
efni af hálfrar aldar afmæli Atl-
antshafsbandalagsins er á bls. 11
að mynd af forvígismönnum undir-
skriftarsöfnunarinnar „Varið
land“. Myndin hefur verið spegluð
og er nafnalistinn því réttur séð
frá hægri til vinstri.
í UMFJÖLLUN um úrslit Mús-
íktilrauna Tónabæjar var rangt
farið með röð hljómsveita í öðra og
þriðja sæti tilraunanna. Rétt er að
hljómsveitin Sinnfein varð í öðra
sæti en Etanol í þriðja sæti. Beðist
er velvirðingar á þessu.
Einnig urðu mistök við birtingu
umfjöllunar um tilraunakvöldið
19. mars sl., er myndum af hijóm-
sveitunum Tini og Sauna var víxl-
að.
Vegna gífulegrar eftirspurnar hefur okkur tekist að fá viðhótargistingu í Algarve í Portúgal
Gardon Choro
QualitySuiti
Sol Dolro
Albufeiia stiöndin
íbúðir með 1 eða
2 svefnlnerbergjum
Oura-ströndín
m.v. 4ra manna fjölskyldu, 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára
Innifalið: Flug, gisting og allir flugvallarskattar
Mjög vel staðsett 2ja og hálfs iykla íbúðahótel alveg
við endann á „Laugaveginum". Stendur í hliðargötu við
hliðina á Monte Choro hótelinu. Lítill en notalegur
sundlaugargarður með barnalaug og laug fyrir fullorðna.
Góð sólbaðsaðstaða. í garðinum er skemmtilegur snakkbar
þar sem oft er grillað á kvöldin.
23. mai-29. agúst
Danmörk/Billund
27665.»
Innifalið: Flug, bílaleigubíll í A-flokki í eina viku,
allirflugvallarskattar
m.v. 2 fullorðna og tvö börn 2ja-11 ára
Wk
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 568 2277 • Fax 568 2274 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Akranes ísafjörður mvwyrt Selfoss Keflavík
Kirkjubraut 3 Vesturferðir, Aðalstræti 7 S: 462 5000‘Fax:"462 7833 Suðurgarður hf., Austurvegi 22 Hafnargötu 15
S: 431 4884 • Fax: 431 4883 S: 456 5111 • Fax: 456 5185 S: 482 1666 »Fax: 482 2807 S: 421 1353 «Fax: 421 1356
Borgames Sauðárkrókur Vestmannaeyjar Grindavík
Vesturgarður, Borgarbraut61 Skagfiröingabraut 21 S: 478 1000 • Fax: 4781901 Eyjabúð, Strandvegi 60 Flakkarinn, Víkurbraut 27
S: 437 1040 • Fax: 437 1041 S: 453 6262/896 8477 • Fax: 453 5205 Sími 481 1450 S: 426 8060 «Fax: 426 7060
FERÐIR
Sími 568 2277