Morgunblaðið - 01.04.1999, Page 66
66 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
MORGUNB LAÐIÐ
HUGVEKJA í DAG
Lífsins hátíð
Það má lesa út úr táknmáli páskanna,
segir Stefán Friðbjarnarson, að við
eigum að rækta með okkur bjartsýni
og jákvæð viðhorf.
TUTTUGASTA öldin er senn
kveður, færði mannkyni framfar-
ir sem eiga engan sinn iíka í
gjörvallri sögunni. Við fljúgum
heimshorna á milli á einu dægri.
Við sitjum fyrir framan sjón-
varpsskjá í stofunni okkar - á
ströndu hins yzta hafs - og horf-
um á atburði hinum megin á
jarðarkringlunni á sama tíma og
þeir gerast. Við horfðum á þess-
um sama skjá á samtímamann
okkar stíga fæti á tunglið. Við
setjumst við tölvuna okkar eða
tökum upp gemsann okkar og
skiptumst á skoðunum við við-
mælendur í Astralíu, Afríku og
á Suðurskautslandinu!
Framfarimar í fjar-
skipta-, heilbrigðis- og
samgöngumálum og
gjörvöllum öðrum
málum, sem mynda
rammann um mann-
lífið, eru ótrúlegar -
en veruieiki engu að
síður.
Tæknin hefur
gert okkur kleift að
gjömýta auðlindir
jarðar, sem forsjón-
in hefur lagt okkur
upp í hendur til
framfærslu og varð-
veizlu, jafnvel
ofnýta þær í sumum
tilfellum. Lífskjör
okkar eru allt önnur
og betri en áa okk-
ar. Við lifum ára-
tugum lengur en
þeir! En hvað um
okkar innri mann?
Hafa framfarimar
hið innra með
okkur, í hugar-
heimi okkar, í
breytni þjóðar við
þjóðlegu menningar- og hjálpar-
starfi. Minna má á Hjálparstofn-
un kirkjunnar, Rauða krossinn
og fleiri hjálparsamtök. Það
fagi-a og jákvæða í mannheimi
rís ávallt upp, til nýs lífs. Það
kemur ekki sízt fram þar sem
mannshugurinn rís hæst, í vís-
indum og listum, í læknisfræði
og hjálpai’starfí, í bókmenntum,
hljómlist og myndlist.
Páskar era sigurhátíð lífsins
yfir dauðanum, sigurhátíð kær-
leikans, ljóssins og sannleikans.
Það má lesa út úr táknmáli
UPPRISA Krists, altaristafla
Dómkirkjunnar í Reykjavík.
þjóðir og manna við menn hald-
izt í hendur við hinar ytri fram-
farir? Era ekki í farteski 20. ald-
arinnar, tækni- og vísindaaldar,
tvær heimsstyrjaldir, „helför“
brúnna og rauðra öfga, óteljandi
staðbundin stríð, hryðjuverk,
hungurdauði milljóna fólks,
hrikalegur eiturlyfjavandi
o.s.frv. o.s.frv.?
Píslarganga Rrits, krossfest-
ing og upprisa, sem heyrir til
'páskum að hugleiða, minna okk-
ur ónotalega á, að breyskleiki
manna er engu minni á öld tækni
og vísinda, sem við nú lifum, en
þá er krossinn var reistur á Gol-
gata. Hversu víða í sögu 20. ald-
arinnar sjáum við ekki dómarana
og valdsmennina, sem dæmdu
Krist, hermennina sem pyntuðu
hann og múginn sem heimtaði
Barrabas lausan? Hefur ekki
mannkindin á öllum öldum
krossfest kærleikshugsjón
Krists - oft og mörgum sinnum?
Heimsmynd samtímans, stað-
bundin stríð, milljónir flótta-
manna, sjúk og sveltandi börn
vanþróaðra ríkja, mengun nátt-
úru og umhverfis og margs kon-
ar fordómar í garð náungans eru
talandi vitnisburður um Hausa-
skeljahæðir í lok 20. aldar.
Það er sem betur fer einnig
önnur hlið á tilverunni, hlið feg-
urðar og kærleika. Samtími okk-
ar speglar einnig hið fagra og já-
kvæða í veröldinni, sem hvar-
vetna blasir við ef grannt er gáð.
Þar vegur þyngst kærleiksboð-
skapur kristninnar, sem víða
segir til í daglegum samskiptum
fólks, ekki sízt þegai- óvæntir at-
burðir og ytri aðstæður kalla á
samstöðu fólks og samhjálp.
Kærleiksboðskapurinn kemur
einnig í ljós í margvíslegu, fjöl-
páskanna, sem og annarra
kirkjuhátíða, að við eigum að
rækta með okkur bjartsýni og
jákvætt hugarfar, jákvæð við-
horf, jákvæða afstöðu til um-
hverfís okkar og samferðafólks.
Megi páskasólin skína hið innra
með okkur, verða vermireitur
fyrir það góða sem í sérhverjum
manni býr.
Það fer vel á því að enda þenn-
an páskapistil á orðum Sigur-
björns biskups Einarssonar,
lokaorðum greinarinnar Páskar í
bókinni Haustdreifar:
„Þannig er tilveran öll gegn-
lýst af þeim leyndardómi, sem
Jesús Kristur býr yfir, maðurinn
eini, sem var Guð á jörð. Og
saga hans var úrslitaskref í sig-
urgöngu þess Guðs, sem ætlar
sér að afmá dauðann að eilífu.
Páskarnir hans eru eilífgild yfír-
lýsing, óhagganlegt sigurorð
hans: Ég lifi. Og nú er það sælt
að hugsa til þess að mega áfram
eiga vitund, líf, tilveru um enda-
lausar aldir, sem þó verða aldrei
annað en ein eilíf andrá fullkom-
innar, ólýsanlegrar lífsnautnar í
ríki þeirrar elsku, sem braust í
gegnum allar víglínur hins illa á
páskum. Þá var það stríð unnið,
sem markar endanlegar sigur í
stjrjöldinni, þó að enn sé barist
og mvrkrið á flótta sínum mátt-
ugt og ægilegt. Það er dæmt. Og
þá vil ég ekki láta myrkrið eiga
mig, dauðans dæmda myrkur.
Ég vil játast lífínu. Það er trú,
kristin trú, páskatrú, að taka
sigur Guðs gildan og láta sigrast
af honum, sem hefur lykla dauð-
ans og heljar og lifir um aldir
alda.“
Höfundur er fyrrverandi
blaðamaður við Morgunblaðið.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
SD-smyrsl
MIG langar enn og aftur
að minna á þetta undur-
samlega SD-smyrsl. Við
sem erum með hinn hvim-
leiða psoriasis exem sjúk-
dóm ættum öll að eiga það
í ísskápnum hjá okkur og
nota það minnst tvisvar á
dag á sýkta bletti.
Til marks um ágæti
þessa smyrsls og græð-
andi mátt þess, er saga af
konu sem í þrjú ár er búin
að vera haldin blæðandi
exemi sem læknar sem
hún hafði leitað til aftur
og aftur, höfðu engin ráð
til að lækna. Ég hitti
þessa konu í leikhúsinu
fyrir 3 vikum, þá var hún
með sár um allt andlit og
sagði mér sína þrauta-
föngu frá lækni til læknis.
!g fékk hana til að nota
SD-smyrslið og fylgdist
með henni í vikutíma en
þá voru komin mikil bata-
merki, eftir 2 vikur voru
öll sárin sem sagt gróin.
Sem nærri má geta er hún
himinlifandi yfir batanum
og notar nú ekki annað en
SD-smyrsl.
Mig undrar stórum
hvað húðsjúkdómalæknar
og psoriasis félagið eru
áhugalaus um þetta SD-
smyrsl, þar sem svo mikill
lækningamáttur er í því.
Það er alíslenskt úr ís-
lenskum jurtum, vatni og
lýsi og angar af reyrilmi.
Þetta læknar flest exem
og útbrot og ver húðina
gegn kulda. Ég hef reynsl-
una, því smyrslið bjargaði
mér eftir tveggja ára leit
að bata, bæði hjá læknum,
í ljósum og inntökum.
R.G.
Lífeyrir öryrkja
GRUNNLÍFEYRIR ör-
yrkja hækkaði um 1.100
krónur sl. mánaðamót og
af því fara 400 krónur í
skatt samkvæmt upplýs-
ingum frá Tryggingastofn-
un. Ja hérna, húrra fyrir
ríkisstjóminni. Bótaþegar
geta aldeilis keypt sér fína
steik íyrir páska og keypt
sér hitt og þetta sem þá
vanhagai- um. Hrafn
Hauksson segir í Velvak-
anda að hann ætli að selja
atkvæði sitt dýrt. Hvernig
væri fyrir verðbréfamark-
aði að markaðssetja at-
kvæði nú fyrir kosningar?
Er það ekki í tísku núna að
markaðssetja allt, því ekki
atkvæðin líka?
Sigrún.
Hringlandi
MIKIÐ er leiðinlegur
þessi íslenski siður að
vera alltaf að breyta um
vörutegundir. Það er al-
veg óþolandi að bjóða
fólki upp á annað eins.
Hvers vegna fæ ég ekki
uxahala, medistarpulsur,
stikilsberjasultutau,
svínafætur og margt
fleira? Svið eru óæt í dag
vegna nýrrar hreinsunar-
aðferðar, svo þau er ég
hætt að kaupa. Finnst
hins vegar afleitt að geta
ekki fengið svínalappm
nema með höppum og
glöppum og hinar vörurn-
ar og margar fleiri era
horfnar og eitthvað annað
komið í staðinn. En það er
ekki fyrir minn smekk svo
ég kaupi það ekki. Af
hverju fást makkarónu-
lengjur og „maraud“-kúl-
ur ekki lengur? Mér þótti
það best. Hvar fæst það?
Svo eru það brauðin. Fyr-
ir mörgum árum fengust
hér brauð sem hétu
bóndabrauð, ágætis brauð
sem ég og fleiri keyptum
mikið. En Adam var ekki
lengi í Paradís; það
breyttist fljótlega og við
hættum að kaupa þetta.
Svona er það með öll önn-
ur brauð það er sifellt ver-
ið að breyta þeim. Ég er
eiginlega hætt að borða
brauð en hef fengið mér
hrökkbrauð í staðinn,
þetta sænska, það er best.
Nú fæst það ekki lengur,
það er komið enskt hrökk-
brauð sem mér fínnst ekki
eins gott. Hvað segja
neytendasamtökm, þarf
maður að sætta sig við
þetta eða hvað?
Út yfír tekur þó
hringlandinn með strætis-
vagnana hér í Reykjavík.
Það er sífellt verið að
breyta númerum á vögn-
unum og ökuleiðum. Mað-
ur kemst ekki með vagni
frá Mjódd upp í Amar-
bakka. En nú er enn verið
að breyta til og er það ekki
í fyrsta skipti. Nú stansar
vagninn neðst á Amar-
bakka. Þaðan verður mað-
ur svo að arka með fullan
poka af vörum upp á Bakk-
ana og er það erfitt fyrir
margar eldri húsmæður.
Ég er hissa á að Islending-
ar skuli láta fara svona
með sig, þetta er eitthvað
svo austantjaldslegt að
taka ekkert tillit til fólks.
Með lögum skal land
byggja og ólögum eyða.
Lýk ég svo spjalli þessu, í
von um að fleiri láti í sér
heyra.
Með kærri kveðju,
Sigríður Johnsen.
Tapað/fundið
Vasagullúr týndist
VASAGULLÚR týndist
sl. mánudag annað hvort
við Kringluna eða í Skeif-
unni. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 560 5976 á
daginn og 568 5097 á
kvöldin. Fundarlaun.
SKAK
Ums.jón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur og vinnur.
STAÐAN kom upp á
opnu móti í Lugano í Sviss í
mars. E. Sedina (2.370) var
með hvítt, en rúmenski
stórmeistarinn Florin Ghe-
orghiu (2.450) hafði svart
og átti leik.
31. - Hel+ 32. Bxel -
Hxel+ 33. Kf2 - Rd3+ 34.
Kf3 - Rxb2 35.
Hxg7+ - He7 og
þar sem hvítur er
orðinn manni und-
ir í endatafli gafst
hann upp.
Englendingur-
inn Joe Gallagher,
sem búsettur er í
Sviss, sigraði á
mótinu með 6
vinninga af 7
mögulegum. Hálf-
um vinningi á eftir
komu þeir Tuk-
makov, Úkraínu,
P. Horvath, Ung-
verjalandi og Cvitan, Króa-
tíu. Gheorghiu var í hópi
þeirra sem hlutu 5 v.
VfOíUVI HRF.KKVISI
, þe Ha er etrkí sprungln, apa—£ q m.
Yíkverji skrifar...
VÍKVERJI þurfti nú nýlega að
eiga viðskipti við fyrirtækið
Frumherja, bifreiðaskoðun, sem áð-
ur var Bifreiðaeftirlit ríkisins, og
hafði einokun á að skoða bíla lands-
manna í áratugi.
Einkaleyfi Bifreiðaeftirlitsins var
afnumið fyrir nokkrum árum og
Bifreiðaeftirlitinu breytt í hlutafélag.
Jafnframt komu til sögunnar ýmis
önnur skoðunarfyrirtæki, sem fengu
leyfi til skoðunar á bifreiðum lands-
manna - samkeppni hóf innreið sína í
þessa starfsgrein, bifreiðaskoðun.
Víkverji telur að hvergi sé ljósara
dæmi um það hve samkeppni hefur
góð áhrif og einmitt í þessari þjón-
ustu við bifreiðaeigendur. Bifreiða-
eftirlitsmennirnir voru auðvitað mis-
jafnir eins og þeir voru margir, en
alltaf völdust í það starf menn sem
virtust hafa gaman af því að sýna
vald sitt og gera sig merkilega gagn-
vart kúnnanum, sem gat ekkert ann-
að farið en til þessara manna í
Bifreiðaskoðun ríkisins. Þeir, sem
höfðu farið ár eftir ár með bíl sinn í
skoðun, þóttust góðir ef þeir slyppu
við hrokagikkina hjá Bifreiðaeftirlit-
inu og það var á stundum, að menn
fengu það á tilfinninguna að menn
hefðu unnið í happdrættinu kæmust
menn hjá gikkjunum.
En nú er öldin önnur. Þegar kom-
ið er að manni í bifreiðaskoðun tekur
elskuleg stúlka á móti manni og býð-
ur inn á biðstofu þar sem á boðstól-
um er kaffi og/eða ávaxtasafi og
maður er beðinn um að hafa biðlund
meðan bíllinn er skoðaður. Þegar svo
skoðunarmaðurinn er búinn með sitt
verk er viðkvæðið: „Þakka þér fyrir
komuna og gagni þér vel í umferð-
inni.“ Það er einkar ljúft að mæta
mönnum, sem eru ekki uppfullir
hroka gagnvart viðskiptavinunum og
þakka mönnum fyrir að viðkomandi
skiptir við fyrirtæki þeirra.
XXX
OFT áður hefur Víkverji minnst á
það að Mjólkurbú Flóamanna
hafi fyrir nokkru hætt framleiðslu á
rjómaosti með jurtakryddi og lauk,
sem að mati Víkverja var langbezti
rjómaosturínn, sem fyrirtækið fram-
leiddi. Hefur Víkverji skorað á MF
að hefja þessa framleiðslu aftur, en
allt hefur komið fyrir ekki. Þessi ost-
ur mun ekki hafa selzt í nægjanlegu
magni.
Nú hefur hins vegar Nýkaup hafið
innflutning á dönskum rjómaosti,
sem ber nafnið Pikant, sem er svo til
sami osturinn. Þeir Nýkaupsmenn
mega hafa þakkir fyrir þetta fram-
tak, því að nú geta aðdáendur þess-
arar ostategundai- fengið hann, þótt
verðið sé auðvitað mun hærra en á
þessum frábæra MF-osti, sem
mjólkurbúið hefur hætt framleiðslu
á.
PASKAHÁTÍÐIN gengur nú í
garð, helzta hátíð kristinna
manna. Ymislegt er á döfinni yfir há-
tíðirnar, m.a. er skíðahátíð mikil á
Isafirði og huga margir áreiðanlega
á ferðir um landið þessa kærkomnu
fríðdaga, sem framundan eru. Vík-
verji vill í lokin minna fólk á að fara
varlega og hvetja alla til þess að taka
nú höndum saman í því, að þessir há-
tíðisdagar verði slysalausir og að all-
ir aki heilum vagni heim að lokum.
Að svo mæltu býður Víkverji öllum
lesendum sínum gleðilegra páska.