Morgunblaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 80
0
r ------------------------------------------------------------
[ MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181
| PÓSTHÓLF3040, FfETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Bensín hækkar í
verði um 1,90 kr.
OLÍUFÉLAGIÐ hf. (Esso) hækk-
ar í dag verð á bensínlítranum,
bæði 95 oktana og 98 oktana, um
1,90 krónur og einnig hækkar verð
á dísilolíu um 40 aura á bensín-
stöðvum.
„Við erum alltaf sakaðir um að
hækka eldsneytisverð hratt og
lækka hægt, miðað við þróun á
heimsmarkaði, en ef við værum að
selja bensín á því verði sem það er
skráð þessa dagana ytra, þyrfti
hækkunin að vera vel á sjöttu
krónu. Nú njóta viðskiptavinir
birgðaverðsins hjá okkur,“ segir
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins.
Stríð áhrifavaldur
„Við höfum átt meiri birgðir af
öðrum olíutegundum þannig að við
þurfum ekki eins á verðhækkun að
halda þar, en lítið var til af bensíni
og því hækkar það fyrr. Nú er stríð
í Evrópu og verð á bensíni hækkar
um 5-6 dollara á dag, sem er hreyf-
ing sem menn hafa kannski séð á
tveggja mánaða tímabili til þessa.
Mig minnir að tonnið hafi hækkað
um eina 40-50 dollara á einum
mánuði, sem er snarbrött hækk-
un.“
Hann kveður sér ekki vera kunn-
ugt um viðbrögð annarra olíufélaga
hérlendis, en hann reikni með að
fyrirtækið sé leiðandi að þessu
sinni. Verði hækkanir annarra fé-
laga minni verði reynt að bregðast
við í samræmi við það.
s
A faraldsfæti
um páskana
UM 4.000 manns héldu til útlanda
frá Leifsstöð í gær og á mánudag.
Uppselt var í flestar sólarlanda-
ferðir hjá Satnvinnuferðum-Land-
sýn, tírvali-Útsýn og Heimsferð-
um auk þess sem fjölmargir fóru
út á eigin vegum, ýmist í stór-
borgarferðir eða á skíði.
Pétur Sigurðsson, fjögurra ára,
var að fara til Kaupmannahafnar
í gærmorgun ásamt langafa sín-
um, Astráði Sigursteindórssyni,
sem er á níræðisaldri. Hvorugur
þeirra lætur aldurinn hamla
ferðalögum sínum um heiminn en
einnig voru með í för eiginkona
Ástráðs og langamma Péturs og
foreldrar Péturs.
■ Flestir á leið/6
mm---------------------
Dómsmálaráðherra
um ástandið á Höfn
Engar
kvartanir
borist
^ÞORSTEINI Pálssyni dómsmálaráð-
^llferra hafa ekki fyrr borist til eyrna
fréttir af ástandi sem margir bæjar-
búar á Höfn í Homafirði hafa
áhyggjur af vegna fíkniefnamisnotk-
unar ákveðins hóps og vandamála
sem hún leiðir af sér, eins og kom
fram á fjölmennum borgarafundi í
Sindrabæ á þriðjudagskvöld og
greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
„Ef menn hafa áhyggjur af þessu
er eðlilegt að ræða það við lögreglu-
yfírvöld á staðnum og síðan við ríkis-
lögreglustjóra sem fer með yfir-
stjóm lögreglunnar í umboði ráð-
herra. Þá eru allar umkvartanir og
tillögur um það sem betur má fara
teknar til jákvæðrar skoðunar, en
menn verða auðvitað að vega og
■^yneta þau rök sem fram era borin
,*^rir þeirri gagnrýni og fyrr en það
hefur verið gert get ég ekki tekið
neina afstöðu til þess,“ segir dóms-
málaráðherra um þá hörðu gagnrýni
á lögregluyfirvöld á Höfn í Homa-
firði, sem kom fram á borgarafund-
inum, þess efnis að lögreglan væri
ekki í stakk búin að taka á vandan-
um vegna þess hversu fáir lögreglu-
mennirnir væra og hefðu úr litlu
fjármagni að moða.
■ Ríkir óöld?/20
------------
Landssíminn
■Farsímagjöld
lækka
LANDSSÍMINN hefur ákveðið að
lækka verð á farsímaþjónustu frá og
með 15. apríl næstkomandi. Þannig
mun kosta 18 krónur á mínútu að
hringja í almenna símkerfið og
NMT-kerfíð í stað 20 kr. nú og nem-
ur lækkunin 10%.
Símtöl innan GSM-kerfisins lækka
úr 18 kr. í 16 kr. mínútan, eða um
rúmlega 11%. Símtöl úr almenna
símakerfinu í GSM-símakerfi Lands-
olímans lækka úr 21,90 kr. mínútan á
dagtaxta í 18 krónur. Þetta er tæp-
lega 18% lækkun.
■ 10-18%/10
MORGUNBLAÐIÐ kemur
tnæst út miðvikudaginn 7. aprfl.
Morgunblaðið/RAX
Landsliðið gerði
jafntefii í Úkraínu
Islenska útvarpsfélagið
Tap upp á 113
milljónir króna
ÍSLENSKA karlalandsliðið í
knattspyrnu er enn taplaust í
4. riðli undankeppni EM í
knattspyrnu eftir l:l-jafntefli
gegn Ukraínu á Olympíuleik-
vanginum í Kænugarði. Leik-
menn íslenska liðsins stóðu sig
frábærlega í þéttum varnar-
leik gegn heimamönnum og
létu mark þeirra í seinni hálf-
Ieik ekki slá sig út af laginu
heldur jöfnuðu skömmu síðar
með marki varnarmannsins
Lárusar Orra Sigurðssonar.
Á myndinni sést hvar ís-
lensku leikmennirnir fagna í
leikslok, markaskorarinn Lár-
us Orri er í miðið en á bak við
hann glittir í Tryggva Guð-
mundsson, Eyjólf Sverrisson,
Sigurð Jónsson og Helga Sig-
urðsson. Fremst til hægri
faðmast þeir Auðun Helgason
og Sverrir Sverrisson en til
vinstri eru þeir í fangbrögðum
markvörðurinn Birkir Krist-
insson og Hermann Hreiðars-
son.
TAP íslenska útvarpsfélagsins á síð-
asta ári nam 113 milljónum króna en
60 rn.kr. vora í hagnað árið á undan.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
nam 544 milljónum og hækkaði um
73 milljónir frá fyrra ári. Tap af
reglulegri starfsemi nam 142 milljón-
um.
Hreggviður Jónsson, forstjóri Is-
lenska útvarpsfélagsins, segist
ánægður með rekstrarhagnað fyrir
afskriftir og fjármagnskostnað sem
hækkaði um 73 milljónir á milli ára.
Hann segir meginástæðuna fyrir þvl
að félagið horfi upp á tap en ekki
hagnað á árinu vera tvíþætta. Annars
vegar hafi afskriftir aukist um 82
milljónir á milli ára, sem skýrist aðal-
lega af því að nú eru Islensk marg-
miðlun og Sjónvarpsmarkaðurinn
inni í ársreikningnum. Þá hækkaði
fjármagnskostnaður samstæðunnai-
einnig um nærri 80 milljónir á milli
ára og nam 221 mifljón króna í fyrra.
I rekstraráætlunum þessa árs er
gert ráð fyrir að félagið skili hagnaði.
■ Fjármagnskostnaður jókst/Bl
Ekki ástæða til rhlutunar
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppnis-
mála hefur komist að þeirri niður-
stöðu að aukastörf kennara lagadeild-
ar Háskóla Islands við samningu lög-
fræðilegra álitsgerða séu ekki skað-
leg samkeppni eða stríði gegn mark-
miði samkeppnislaga eða einstökum
ákvæðum laganna. Því er staðfest sú
ákvörðun Samkeppnisráðs að ekki sé
ástæða til íhlutunar ráðsins.
í niðurstöðu áfrýjunamefndar seg-
ir að ágreiningsefnið lúti að sam-
keppnisstöðu lögmanna gagnvart
kennurum lagadeildar Háskóla ís-
lands, en það er Lögmannafélag Is-
lands sem áfrýjaði ákvörðun Sam-
keppnisráðs til áfrýjunamefndarinn-
ar. Segir að að mati áfrýjunarnefnd-
arinnai- sé ekki ástæða til að draga í
efa staðhæfingar kennara lagadeild-
ar háskólans um vinnutilhögun
þeirra varðandi lögfræðilegar álits-
gerðir og að sú vinna fari ekki að
neinu leyti fram með fjármunum
skólans eða styrk eða aðstoð frá há-
skólanum. Hið sama gildi um fullyrð-
ingu þeirra varðandi fjölda álitsgerða
sem þeir hafi samið, en fram kemur
að gera megi ráð fyrir að þær hafi
ekki farið yftr 20-25 undanfarin ár.
FRÁ 1. aprfl 1999 hækkar
áskriftarverð blaðsins úr 1.579
kr. í 1.667 kr.
Að viðbættum virðisauka-
skatti breytist því áskriftar-
verðið úr 1.800 kr. í 1.900 kr.
Helgaráskriftarverð verður
965 kr. og með virðisaukaskatti
1.100 kr.
Lausasöluverð verður 150 kr.
með virðisaukaskatti.