Morgunblaðið - 08.04.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hyggjast
stefna
ráðherra
Á ANNAÐ hundrað eigenda
krókabáta í sóknardagakerfí
hyggjast stefna sjávanátvegsráð-
herra fyrir niðurskurð á sóknar-
dögum sem þeir telja að stangist á
við jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar.
Hópurinn hefur ráðið til sín lög-
mann sem mun á næstu vikum fara
yfir gögn. Friðþjófur Jóhannsson,
smábátaeigandi og talsmaður
hópsins, segir að lögmanninum hafí
verið afhent gögn og væntanlega
líði nokkur tími áður en ráðherran-
um verður stefnt fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar. Hann segir að málið
verði rekið á einstaklingsgrund-
velli en hinsvegar verði kostnaðin-
um dreift milli manna. Málið verði
því rekið sem prófmál.
■ Sóknardagar brjóti/20
-------------
SPRON ekki
brotlegur við
lögbann
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
hefur hafnað þeirri kröfu Greiðslu-
miðlunar hf. Visa-Islands að notk-
un Sparisjóðs Reykjavíkur á orð-
unum „veltukreditkort SPRON“
feli í sér brot á lögbanni því sem
fyrmefnda fyiirtækið fékk sett á
notkun SPRON á orðinu „veltu-
kort“.
Visa-Island fékk 30. mars síðast-
liðinn sett lögbann á notkun Spari-
sjóðs Reykjavíkur á orðinu „veltu-
kort“ og brást SPRON þegar við
með þeim hætti að hætta notkun
orðsins, í samræmi við lögbannið.
Þess í stað tók SPRON upp heit-
ið „veltukreditkort SPRON“ sem
Visa-ísland taldi fela í sér brot á
lögbanninu. í úrskurði sýslumanns
í Reykjavík kemur fram að hann
fallist ekki á að notkun þessara
orða feli í sér brot á umræddu lög-
banni. Verði því ekki séð að emb-
ætti sýslumannsins hafi ástæðu til
að grípa til aðgerða vegna málsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Hringanóranum sleppt
HRINGANÓRINN sem dreginn
var upp úr Reykjavíkurhöfn í
janúar sk, illa á sig kominn, hef-
ur náð heilsu og verður sleppt í
Faxaflóa í dag.
Hringanórinn var með stórt
graftarkýli á bakinu, að líkindum
eftir bit, þegar hann náðist og
þurfti að gera á honum aðgerð til
að fjarlægja það. Hann hefur
dvalist í Húsdýragarðinum sér til
heilsubótar undanfarnar vikur.
Selurinn virtist hinn hressasti
þar í gær og horfði stórum, for-
vitnum augum á ljósmyndarann.
Hringanórinn var tíður gestur
í Reykjavíkurhöfn ásamt full-
vöxnum félaga sínum áður en
hann var tekinn upp úr sjónum
til lækninga. Ekki er að vita
nema hann geri sig þar heima-
kominn aftur.
Samstarfsverkefni NATO og Albaníu
Aðstoðar Albana
í gerð almanna-
varnalöggjafar
UNGUR íslenskur
lögfræðingur, Sigur-
björg Asta Jónsdótt-
ir, er á leið til árs-
dvalar í Albaníu í
næstu viku til að að-
stoða Albana við
samningu almanna-
varnalaga með al-
mannavarnalög ríkja
Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, að
fyrirmynd.
Sigurbjörg, sem
lauk meistaraprófí í
alþjóðalögum frá Há-
skólanum í Cam-
bridge í Englandi í
fyrra, hefur verið í
starfsþjálfun á Almannavarna-
skrifstofu Atlantshafsbanda-
lagsins í aðalstöðvum þess í
Brussel síðan í janúar. Mun það
vera í fyrsta skipti sem Islend-
ingur fer í slíka starfsþjálfun
hjá NATO. Ferð Sigurbjargar
til Albaníu er liður í samstarfs-
verkefni NATO og Albaníu og
er eitt af mörgum verkefnum
sem bandalagið mun aðstoða
Albana með.
Nokkrar ráðstefnur um
almannavarnalöggjöf
„Fyrsta skrefið í þessu sam-
starfsverkefni var ráðstefna,
sem fór fram 15.-17. mars síð-
astliðinn í Albaníu þar sem fyr-
irlesarar frá NATO-ríkjum lýstu
löggjöf sinni á þessu sviði.
Einnig mættu nokkrir fyrirles-
arar frá samstarfslöndum
NATO sem nýverið hafa breytt,
sinni almannavarnalöggjöf,"
segir Sigurbjörg. Þau ríki sem
Sigurbjörg á hér við eru Ung-
verjaland, Rúmenía, Litháen og
Tékkland.
Fyrsta ráðstefnan um löggjöf
á sviði almannavarna
var haldin í Ung-
verjalandi árið 1994
og í Póllandi var
önnur ráðstefna árið
eftir.
„Síðan voru tvær
ráðstefnur í Stokk-
hólmi og þar var
samþykkt plagg sem
kallast „The Stock-
holm ProposaT' þar
sem lögð voru fram
grundvallaratriði í
því hvernig megi
byggja upp almanna-
varnalöggjöf en ekki
er um bindandi regl-
ur að ræða. Þetta
eru eingöngu leiðbeiningar og í
raun er mjög breytilegt frá einu
ríki til annars hvernig þau hafa
hannað sína almannavarnalög-
gjöf, miðað við breytilegar að-
stæður hvers ríkis.“
Tengiliður milli Brussel
og Albaníu
Nú stendur til að stíga seinna
skrefið í samstarfsverkefninu en
það felst í því að senda starfs-
mann til Tirana, höfuðborgar
Albaníu, til að aðstoða Albana
við að semja Iöggjöfina sem
slíka og mun Sigurbjörg ganga
til þess starfs.
„Eg verð í hlutverki tengi-
liðar milli Brussel og Albaníu
og mun safna saman upplýsing-
um frá NATO-ríkjum þegar
upp koma vandamál og spurt
verður hvernig aðildarnki
NATO hafa leyst þau. Ég kem
til Albaníu sem lögfræðingur,
en ekki sem sérfræðingur í
almannavörnum, en það verður
endanlega á hendi Albananna
sjálfra hvernig þeir vilja þróa
sína löggjöf."
Sigurbjörg Ásta Jóns-
dóttir lögfræðingur
Öllu starfsfólki
Loðskinns sagt upp
Góður felu-
búningur
DVERGSNÍPA, skógarsnípa og
keldusvín hafa sést í Fossvogin-
um að undanförnu.
Dvergsnípuna er afar erfitt að
finna því hún hverfur í landslag-
ið. Eftir að fuglinn hafði fundist
var hægt að komast mjög nálægt
honum þar sem hann treystir á
felubúninginn sinn.
Fuglaáhugamenn hafa tekið
eftir að lappajaðrakan hefur ver-
ið að fíakka milli Skerjafjarðar
og Arnarnesvogar undanfarið.
Hægt er sjá fyrstu sumarfjaðr-
irnar á þessum fugli, nokkrar
rauðar fjaðrir á síðunum, sem
benda til að þetta eigi eftir að
verða hinn fallegasti fugl.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
UM TUTTUGU starfsmönnum
Loðskinns hf., sem enn voru í fóst-
um störfum hjá fyrirtækinu, var
sagt upp nú eftir páskana.
Að sögn Jóns Magnússonar,
verkefnisstjóra stjórnar, verður
framleiðsla Loðskinns stöðvuð í
júní, í ljósi þess að aðalmarkaðir
fyrirtækisins lokuðust. Því hafí
verið ákveðið að segja fastráðnu
fólki upp. Engu að síður verður séð
til þess að starfsmenn verði til þess
Allmikið til af
fullunninni vöru
í verksmiðjunni
að afgreiða pantanir og halda fyrir-
tækinu opnu fram til haustsins.
Jón telur hugsanlegt að ein-
hverjir markaðir geti opnast fyrir
þann tíma, og þá verður væntan-
lega tekin um það ákvörðun hvort
og hvenær verksmiðjan fer í gang
aftur. Meðan útlit á sölu afurða
verksmiðjunnar er ekki betra en
nú er sé tilgangslaust að framleiða
vöru sem enginn vill kaupa.
I verksmiðjunni er til allmikið af
fullunninni vöru og skinnum sem á
eftir að lita og ganga frá. Þess
vegna er möguleiki á því, ef birtir
til hvað varðar reksturinn og sölu á
mörkuðum, að taka þráðinn upp að
nýju.
VIDSiaFTI MVINNULÍF
VERÐBRÉFAÞING
Innsláttar-
villa
Mistök ollu
lækkun á lokagildi
vísitalna/B1
TÖLVUR
Kaupæði eða
framsýni?
Margeir Pétursson
skrifar um fjármála-
markaðinn/B7
Carsten Jancker jafnaði
í lokin í Kiev/C2
Markamet hjá Bjarka
Sigurðssyni/C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is