Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 11 FRÉTTIR Húsmæður, rafvirki, prentari og kennari meðal Kosovo-Albananna sem eru á leið til íslands Tveggja mánaða barn yngst í hópnum FJÓRAR fjölskyldur flóttamanna, þrettán fullorðnir og tíu börn, eru væntanlegar til landsins síðdegis með flugvél Landhelgisgæslunnar. Vélin hélt frá Petrovec-flugvelli í Skopje, höfuðborg Makedóníu, á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Gist var í borginni Kérkira á Korfú og þaðan átti að halda í býtið áleiðis til Islands með viðkomu í Maastricht í Hollandi til eldsneytistöku. Hjálmar W. Hannesson sendi- herra sagði í gærkvöldi að um væri að ræða fjórar fjölskyldur Kosovo- Albana. Hann sagði að fólkið hefði verið fúst til fararinnar, enda væri það skilyrði sett fyrir brottför þess frá Makedóníu. Gærdagurinn fór í að velja fólk til þess að koma hing- að og sagði Hjálmar það hafa geng- ið vel miðað við þá ringulreið sem nú væri í Makedóníu. Hann sagði að sett væru ákveðin skilyrði fyrir því að fólk yrði flutt brott frá Makedóníu og ræða yrði við hvern og einn. Aðalatriði væri að fólk vildi fara, en einnig væri lögð áhersla á að skipta ekki upp fjölskyldum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur borið við að þau skil- yrði hafi ekki alltaf verið virt og hafa stjórnvöld í Makedóníu legið undir ámæli í'yrir það. Yngsta barnið tveggja mánaða „Við erum að bíða eftir leyfi til að fara í land yfir nóttina og höldum bara til í vélinni á meðan,“ sagði Gréta Gunnarsdóttir sendiráðu- nautur þegar Morgunblaðið náði sambandi við hana í Korfú. „Börnin voru orðin þreytt og eru flest sof- andi og það er spenna í fólkinu eftir volkið og flugið." I hópnum eru fimm konur og fimm karlar, tíu börn, það yngsta aðeins tveggja mánaða, og síðan þrjú uppkomin börn. Gréta segir konurnar vera húsmæður en einn karlanna er kennari, annar rafvirki, einn er prentlærður og einn hefur starfað við byggingaivinnu. Hún sagði lítið um enskukunnáttu en Al- bert Ugeson, Kosovo-Albani sem er með í för, hefur annast túlkun. Rúmlega klukkutíma flug er frá Skopje til Korfú og sagði Gréta tímann hafa verið notaðan til að fræða fólkið svolítið um ísland. Hún sagði það afar þakklátt fyrir að fá að komast til Islands og ekki síst hefði komið þeim þægilega á óvart að geta ef til vill fengið að stunda vinnu hériendis eins og flóttamenn hefðu yfirleitt fengið að gera. „Þau eru búin að vera á hrakhól- um en mér hefur þótt góður andi í hópnum og þetta er þægilegt fólk. Þau hafa verið að spyrja hvort þau verði ekki á sama stað þegar til Is- lands kemur og leggja mikið upp úr því.“ Gekk vel niiðað við ringulreiðina Valið á flóttamönnunum sagði Gréta hafa farið fram í samráði við stjórnvöld í Makedóníu og að það hefði gengið vel miðað við þá ringulreið sem ríkir í landinu. Var beðið eftir flóttafólkinu í nokkra tíma og haldið frá Skopje undir klukkan átta að staðartíma eftir dvöl þar frá hádegi í gær. Vélin lagði af stað frá Islandi á þriðjudag og á leiðinni var millilent í Maastricht í Hollandi og Ancona á Ítalíu. Flugið frá Ancona til Skopje tók lengri tíma en ella vegna þess að fara þurfti suður yfir Adríahaf og norður á ný yfir Eyjahaf í stað þess að fljúga beinustu leið. Tómas Helgason flugstjóri sagði daginn vera orðinn nokkuð langan, en viðdvölin í Skopje var mun lengri en ráðgert var. Ráðgert var að halda af stað klukkan átta að staðartíma og fljúga til Islands með viðkomu í Maastricht til eldsneytis- „ Reuter FLOTTAMENN streyma enn frá Kosovo og í gær kom þessi hópur yfir landamærin til Svartfjallalands. stýiimennirnir Vilberg Magni Oskarsson og Páll Geirdal og Hilm- ar Þórarinsson flugvirki. Hjálmar sagði að flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna hefði forræði í málefnum flóttafólksins í orði, en á borði væri það svo vegna ástandsins á svæðinu að það væri í höndum Atlantshafsbandalagsins. Einnig væri Rauði krossinn vita- skuld mjög atkvæðamikill þarna. Hann sagði að nú ríkti alger ringulreið á svæðinu og reynt væri að leysa vandamálin eftir hendinni. „Fólk er líkamlega og andlega of- keyrt og það er ljóst að það þarf að hlúa vel að þessu fólki,“ sagði hann. Verða í Reykjavík til að byrja með Flóttamennirnir sem koma í dag verða fyrst um sinn í Reykjavík en Hjálmar W. Hannesson sagði fram- haldið óráðið. Ríkisstjórn Islands ræddi það á fundi á þriðjudag að fá allt að 100 flóttamenn til íslands. Hjálmar sagði að ekkert hefði verið ákveðið um hvernig að því yrði staðið, en vísast yrði vél Landhelg- isgæslunnar ekki notuð til að flytja það fólk hingað til lands. Um borð í vélinni frá Islandi voru hjálpargögn, sem vel gekk að afferma, 1.200 ullarteppi, drykkjar- föng, matarílát og dýnur. Flug Landhelgisgæslunnar til Makedóníu Lagt ai stað urrí kl. 5 a ð morgni 6. apríl Til Maastricht' eftir 5 klst. flug. Afturafstað umkl. 17-18 ogþáflogið ;t |í\ tilAncona. Ilfa ^ Anconíi Frá Ancona um kl. 6 að morgni 7. april. Flogið þaðan suður yfir Grikkland og Eyjahaf og siðan inn til Skopje. Aftur frá Skopje um kl. 18, flogið Kortu Grikkland tiigrisku eyjarinnar Korfu og gist þar. töku. Flugtíminn frá Korfú til Ma- astricht er fimm klukkustundir og annað eins áfram til Islands. Tómas sagði að gærdagurinn hefði verið langur, ekki síst vegna langrar við- dvalar í Skopje, en flugtíminn hefði ekki verið miklu meira en þrír tím- ar. Asamt Tómasi eru í áhöfninni Sigurjón Sverrisson flugstjóri, Ný reglugerð kynnt í ársskýrslu Orðabókar Háskólans Ný vefsíða með nýrri upplýsingatækni NÝ vefsíða Orðabókar Háskólans var opnuð á síðasta ári og er þar meðal annars hægt að fá beinan að- gang að orðum, orðasamböndum og notkunardæmum í heildstæðu gagnasafni. Þetta kemur meðal annars fram í ársskýrslu Orðabókarinnar vegna síðasta árs. Þar segir að við hvert orð sem skoðað sé í ritmálsskránni á vefsíðunni komi fram frá hvaða tíma eða tímabili dæmi séu um orð- ið, hversu mörg dæmi séu tiltæk í gagnasafni og hver elsta heimildin sé. Þá birtist leitarorðið í stafrófs- runu nálægustu flettiorða sem öll séu virk til frekari leitar. Slóðin er www.lexis.hi.is A síðasta ári gekk í gildi ný reglu- gerð um Orðabókina, en þar er hlut- verki hennar svo lýst: „Orðabók Háskólans er vísindaleg orðfræði- stofnun. Hlutverk hennar er að safna heimildum um íslenskan orða- forða frá upphafi prentaldar á ís- landi til samtímans, annast úr- vinnslu þess efniviðar sem þannig safnast og sinna hvers kyns rann- sóknum á orðaforðanum og þróun hans. Stofnunin gegnir jafnframt þjónustuhlutverki við fræðimenn og almenning. Því hlutverki skal stofn- unin sinna með útgáfustarfsemi og með því að gera söfn sín aðgengileg eftir því sem kostur er, á því formi sem best þykii- henta hverju sinni. Forgangsverkefni Orðabókarinnar er að vinna að samningu sögulegrar orðabókarlýsingar." Segir síðan í ársskýi-slunni að þetta sé í fyrsta skipti sem kveðið sé á um þjónustuhlutverk stofnun- arinnar í reglugerð og útgáfustarf- semi í því sambandi, auk þess sem áhersla sé lögð á úrvinnslu á efniviði safnanna og að söfnin séu gerð að- gengileg eftir því sem best eigi við á hverjum tíma. „Segja má að lýsing- in endurspegli þær breytingar sem orðið hafa á starfseminni undanfar- in ár, þar sem nýjungar í tölvutækni hafa gegnt mikilvægu hlutverki og ný upplýsingatækni hefur leitt til þess að orðabókarlýsing tak- markast ekki lengur við prentaðar orðabækursegir síðan. Einnig kemur fram í ársskýrsl- unni að alls unnu fimmtán stai’fs- menn á Orðabókinni á síðasta ári, þar af sjö í fullu starfi í árslok. Morgunblaðið/Ingvar Datt af hestbaki og slasaðist TUTTUGU og fimm ára gamall út- lendingur slasaðist er hann datt af hestbaki um miðjan dag í gær á reiðvegi milli Vífilsstaðavatns og spennistöðvarinnar í Hnoðraholti. Maðurinn var í útreiðartúr ásamt hópi útlendinga er slysið varð og er talið að hestur hans hafi fælst og maðurinn hafi fótbrotnað. Send var sérútbúin neyðarbifreið, sem getur athafnað sig utan vega, til að koma manninum undir læknishendur. Sjúki-abifreið tók síðan við hinum slasaða á Reykjanesbrautinni og flutti hann á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.