Morgunblaðið - 08.04.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 13
FRÉTTIR
Viðræður íðnaðarráðuneytisins við Allied Efa um kaup á Kísiliðjunni
Ráðherra vill
kísilduft sam-
hliða kísilgúr
KÍSLIIÐJAN í Mývatnssveit.
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra kveðst þeirrar skoðunar að
kaup Allied Efa á Kísiliðjunni í
Mývatnssveit gætu verið ákjósan-
legur kostur fyrir sveitina. Við-
ræður þær sem fyrir höndum eru,
miðist fyrst og fremst að því af
hálfu ráðuneytisins að fyrirtækið
kaupi Kísiliðjuna og hefji þar
framleiðslu á kísildufti, samhliða
vinnslu á kísilgúr. Ráðuneytið og
Allied Efa hefja viðræður um
þetta mál á morgun, fimmtudag.
„Við munum leita leiða til að
tryggja að sá rekstur geti haldið
áfram og það er vilji til þess,“ seg-
ir Finnur. Hann bendir hins vegar
á að starfsleyfi verksmiðjunnar
gildi einungis til ársins 2010 og við
því megi búast að kísilgúrmagnið
verði uppurið fyrr, eða um 2004.
„Því þarf að leita annarra leiða,“
segii’ ráðherra.
Gylfi Ai’nbjömsson fram-
kvæmdastjóri Eignarhaldsfélags-
ins Alþýðubankinn hf., sem á 40%
hlut í Allief Efa, segir ekki útilok-
að af hálfu fyrirtækisins að taka
hugmynd um samhliða vinnslu til
greina. „Þetta er fræðilegur mögu-
leiki og við erum tilbúnir að skoða
hann,“ segir Gylfi. „Við munum
meta þessar hugmyndir með hlið-
sjón af hagkvæmni og þessar við-
ræður snúast meðal annars um
þau mál.“
Ný vinnsluaðferð
kísilgiírs óhagkvæm
Finnur segir of snemmt að spá
fyrir um hvenær framleiðsla kísil-
dufts gæti hafist í Mývatnssveit,
fari svo að af kaupum Allied Efa
verði. „Fyrst er að athuga hvort
við náum samkomulagi við Allied
Efa og síðan að kanna í framhald-
inu hversu hratt menn geti byrj-
að að byggja upp slíka fram-
leiðslu. Það veltur meðal annars á
mati af umhverfisáhrifum og
fleiri slíkum þáttum,“ segir Finn-
ur.
Ráðheira kveðst ekki vilja tjá
sig um áætlað verðmæti Kísiliðj-
unnar, en hins vegar sé ljóst að um
ágætlega stöndugt fyrh-tæki sé að
ræða. Taka verði þó með í reikn-
inginn að starfsleyfi sé tímabundið
og hráefni hugsanlega af skornum
skammti.
Allief Efa hóf viðræður við iðn-
aðarráðuneytið um kaup fyrirtæk-
isins á Kísiliðjunni seinasta haust,
en ráðuneytið sá ekki ástæðu til að
halda þeim viðræðum áfram og
lauk þeim í desember síðastliðn-
um. „Það er ekki hægt að segja að
viðræðunum hafi verið formlega
slitið," segir Finnur.
„Hugmyndin var uppi í desem-
ber og þá taldi ég ekki möguleika
á því, miðað við kringumstæður
sem þá voru uppi, að við færum
að tala um að selja verksmiðjuna.
Eg held hins vegar að aðstæður
hafi breyst í þeim efnum og tel
rétt að við göngum til slíkra
könnunarviðræðna. Það er
kannski einkum eitt sem gerir
þetta að verkum. Við höfðum
áhuga á fyrir því að láta reyna á
og kanna til hlítar, hvort hægt
væri að hefja nýja vinnsluaðferð
á kísilgúrnum í vatninu, svokall-
aða undanskurðaraðferð, og
hvort væri möguleiki á að fara á
aðra staði í vatninu til kísilgúr-
töku. Okkur sýnist fljótt á litið að
sú aðferð sé mjög dýr og geti ver-
ið mjög erfitt og kostnaðarsamt
að fara út í slíkt, sem breytir
stöðunni,“ segir Finnur.
Ekki
kosningamál
Aðspurður segir Finnur að end-
urvakning þessarar hugmyndar
tengist ekki á neinn hátt yfirvof-
andi kosningum. „Það er ekki
hægt að nota mál sem þessi sem
einhvers konar kosningabragð og
af og frá að menn hafi eitthvað
slíkt í huga. Þarna er mjög mikil
alvara á ferð, því ef okkur tekst
ekki að tryggja áframhaldandi
rekstur Kísiliðjunnar, hvflir mikill
voði yfir sveitinni og einnig Húsa-
vík. Eindreginn vilji heimamenn er
sá að rekstur Kísiliðjunnar verði
tryggður með einhverjum hætti,
sem gefur manni byr undir báða
vængi með að skynsamlegt sé að
ráðast í þessar viðræður," segir
Finnur.
Sigbjörn Gunnarsson, sveitar-
stjóri í Mývatnssveit, kveðst ekki
hafa haft tök á að kynna sér hug-
myndir Allied Efa til hlítar en af
þeim fregnum sem borist hafa af
málinu lítist honum vel á við fyrstu
sýn að í Þingeyjarsýslu bætist kís-
ilduftsverksmiðja til viðbótar við
Kísiliðjuna. Hann setji hins vegar
ýmsa fyi-irvara ef ekki sé um við-
bót að ræða.
Heimamenn kaupi
verksmiðjuna?
„Það er hið besta mál ef kísil-
duftið bætist við, en fljótt á litið er
ég ekki sérstaklega hrifinn ef kísil-
duftið á að ryðja vinnslu kísilgúrs
úr vegi. Einkum þar sem ég tel að
hugmyndin um kísflduftsverk-
smiðju sé ekki langt komin. Við
eigum hér auðlind í Mývatni sem
eðlilegt er að nýta meðan ekki er
sýnt fram á að vinnsla kísilgúrsins
valdi skaða,“ segir Sigbjörn. „Ég
fagna því ekki kísilduftsfram-
leiðslu nema hún sé föst í hendi og
held að þetta mál sé skemmra á
veg komið en svo að ástæða sé til
að fagna.“
Hann kveðst hins vegar telja
jákvætt að efnt sé til viðræðna um
málið. Sigbjörn kveðst einnig
telja fleiri hugmyndir koma til
gi-eina í því sambandi að hann og
fleiri hafa spurt iðnaðarráðherra
hvort heimamenn gætu ekki fest
kaup hlut ríkisins í Kísiliðjunni.
„Það getur vel verið að sú hug-
mynd komi upp aftur,“ segir
hann.
Hjálparstarf RKÍ vegna
Kosovo-deilunnar
Starfsmenn
á leið til
neyðar-
svæðanna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að senda
Úlf Björnsson, sendifulltrúa
Rauða kross íslands, til Albaníu til
þess að taka þátt í dreifingu hjálp-
argagna til flóttafólksins frá
Kosovo. Signin Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross ís-
lands, hyggst á næstunni kynna
sér ástandið í Albaniu og meta
þörfina fyrir neyðaraðstoð. Úlfur
er reyndur sendifulltrúi. Hann
hefur áður starfað fyrir Rauða
kross Islands og fleiri hjálpar-
stofnanir í Afríku.
Rauði kross Islands mun taka
virkan þátt í hinu umfangsmikla
hjálparstarfi Rauða kross hreyf-
ingarinnar við flóttafólkið frá
Kosovo. í dag fer bréf til deilda
félagsins með beiðni um þátttöku
í hjálparstarfinu og tekið er við
framlögum frá almenningi á söfn-
unarreikningnum í SPRON,
1151-26-12. Einnig er minnt á
giróseðla í bönkum og sparisjóð-
um og jafnframt er tekið við
framlögum í síma 570 4000 á
skrifstofutíma.
Aðalfundur
Verðbréfastofunnar hf.
15. aprílkl. 17.00 i
að Hótel Loftleiðum, Víkingasal |
3
sH,
VERÐBREFASTOFAN
SuBurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570-1200
HLAUPTU - STÖKKTU - HJÓLAÐU
ÞVOTTAVÉLAR
ÞURRKARAR
OFNAR
HELLUBORÐ
ÍSSKÁPAR
U PPÞVOTTAVÉLAR
SJÓNVÖRP
HLJÓMTÆKI
- FVRSTIR KOMA FVRSTIR FÁ..
ATH. TAKMARKAÐ MAGN
á íslandi
Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja I Evrópu
RflFTffKDflPERZLUN ÍSLflNDS Ff
-ANNO 1929-
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776