Morgunblaðið - 08.04.1999, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Grunnskólar Snæfellsbæjar
Sérstakt
leiðbeinenda-
námskeið
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Á MYNDINNI eru þeir Steinar Harðarson (t.v.) og Rafn Jónsson með Höskuld Jónsson, forstjóra ÁTVR, á
milli sín en þeir fyrrnefndu voru lielstu hvatamenn að því að undirskriftalisti með áskorun um opnun áfengis-
verslunar fór af stað í byggðarlaginu.
Afengisútsala opnuð
í Lóninu á Þórshöfn
Ólafsvík - Skortur á menntuðum
kennurum á landsbyggðinni er
löngu þekkt vandamál sem að jafn-
aði hefur verið leyst með ráðningu
leiðbeinenda. Til að mæta þörfum
þessa hóps starfsmanna grunnskól-
anna í Snæfellsbæ var í haust skipu-
lagt í samvinnu Skólaskrifstofu
Vesturlands og skólastjómenda
sérstakt námskeið fyrir leiðbein-
endur skólanna á Hellissandi, Lýsu-
hóli og Óiafsvík, sem allir tilheyra
Snæfellsbæ. Björn Þórðarson,
kennslufulltrúi hefur yfírumsjón
með námskeiðinu, sem nær há-
punkti sínum með heimsókn leið-
beinendanna í Kennaraháskólann
síðar í vor.
Að sögn Sveins Þórs Elínbergs-
sonar, skólastjóra í Ólafsvík, hefur
verið farið yfir ýmis fagleg vanda-
mál tengd kennslu og skólastarfi,
svo sem einelti, lestrarörðugleika
og hegðunarfrávik af ýmsum toga
og vandamál tengd mismunandi
þroska nemendanna. Einnig eru
kennd tæknileg atriði i kennslu eins
og notkun tölvu, glærugerð og unn-
ið með sérstök vandamál í hóp-
vinnu.
Meðal kennara námskeiðsins voru
Guðrún Geirsdóttir, lektor í H.I.
sem kynnti fjölgreindarhugtakið og
kenningar Gardners um það, Elmar
Þórðarson, talmeinafræðingur, sem
fjallaði um sérkennslumál, þroska
og fleira. Sálfræðingarnir Ásþór
Ragnai-sson og Harpa Þórðardóttir
töluðu um eineltismál og Bjöm Þrá-
inn Þórðarson, kennslufulltrúi fór
yfir ýmsa kennsluhætti og stjómaði
sérstökum hópverkefnum.
Námskeiði þessu, sem kostað er
sérstaklega af Snæfellsbæ, er m.a.
ætlað að ýta undir frekara nám leið-
beinendanna og kynna þeim þá
möguleika sem fólgnir eru í fjar-
námi, en ávinningur er einnig fólg-
inn í auknum kynnum þess hóps
sem námskeiðið sækir.
Þórshöfn - Áfengisútsala var ný-
lega opnuð á Þórshöfn og var
margt gesta við opnunina.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, afhenti hinum nýja versl-
unarstjóra, Kristjáni Gunnars-
syni, lyklana að versluninni og
óskaði íbúum til hamingju með
þessa viðbót við verslunina á
staðnum, sem er vel staðsett, í
verslunar- og þjónustuhúsnæði
Lónsins ehf. í miðbænum.
Vel var tekið á inóti Höskuldi
Jónssyni og öðrum starfsmönn-
um ÁTVR frá höfuðstöðvunum í
Reykjavík en byrjað var á að
fara í nýja íþróttahúsið þar sem
leikinn var fótbolti. Heimamenn
sýndu í verki að þeir hafa ekki
slegið slöku við í boltanum því í
leikslok var staðan 14-2 fyrir
heimamenn, þrátt fyrir að meðal-
aldur þeirra væri nokkru hærri
en gestanna.
Eftir heimsóknina í íþróttahús-
ið var komið að formlegri opnun
áfengisútsölunnar þar sem boðið
var upp á veitingar og gestir
tóku til máls. Höskuldi Jónssyni
var afhent allsérstök rauðvíns-
flaska; flaska nr. 1 af Langanes-
víni í árgangi /98 en gefandinn,
Jóhann A. Jónsson, upplýsti ekki
hversu margar flöskur væru til í
þeim árgangi. Höskuldur tjáði
gestum að flaskan góða yrði vel
geymd í höfuðstöðvum ÁTVR
þar sem áhugafólk getur litið
hana augum.
Fyrstur staða með undir
þúsund íbúum
Þórshöfn er fyrsta sveitarfé-
Iagið með íbúaljölda undir 1.000
manns sem fær leyfi fyrir áfeng-
isútsölu en skilyrði fyrir slíku
Ieyfi var að fólksfjöldi sveitarfé-
laga væri ekki undir því marki.
Heimamenn héldu áfram með
málið þrátt fyrir þessa reglu því
langt var að sækja þessa þjón-
ustu og dýrt að versla í póst-
kröfu. Næsta áfengisútsala vest-
an við Þórshöfn er á Húsavík og í
austurátt á Egilsstöðum en þar
er um að ræða rúmlega 200 km
vegalengd í hvora átt. Auk þess
sáu menn fyrir sér að ef áfengis-
verslun yrði opnuð á staðnum
myndi það einnig styrkja aðra
verslun á staðnum.
Fyrir þrem árum fóru menn af
stað með undirskriftalista í
byggðarlaginu þar sem óskað
var eftir að áfengisverslun yrði
opnuð hér og í framhaldi af því
fór fram kosning um málið um
leið og forsetakosningarnar árið
1996. Um 80% íbúanna greiddu
atkvæði með opnun áfengisútsölu
og þáverandi sveitarsljórn vann
einnig áfram í málinu. Þar með
var komið ákveðið forskot hjá
Þórshafnarbúum þar sem sam-
þykki heimamanna Iá fyrir.
Á síðasta ári varð hins vegar
lagabreyting þar sem ákvæði urn
þúsund manna íbúafjölda á bak
við áfengisverslun var afnumið
og þar með voru allar hindranir
úr vegi lijá Þórshafnarhreppi.
Það eru sjálfsögð réttindi lands-
byggðarfólks að greiða sama
verð og íbúar stærri byggðar-
laga fyrir vörur, livort sem það
er áfengi eða eitthvað annað. Ef
tekið er dæmi af einum bjórkassa
má segja að ein bjórkippa fari í
fiutningskostnað ef pantað er í
póstkröfu. Sú tíð er nú að baki
og íbúar byggðarlagsins geta
keypt bjórinn sinn í heimabyggð
á viðunandi verði.
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
ÁHUGASAMIR leiðbeinendur úr Snæfellsbæ.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Gengu þvert
yfir landið
Hnappavöllum - Að kvöldi 28.
mars komu Einar Sigurðsson,
Hofsósi, og Florian Piper, félagi
hans, til byggða eftir að hafa geng-
ið yfir landið þvert frá Ásbyrgi í
Kelduhverfi og suður yfir Vatna-
jökul niður Breiðamerkurjökul nið-
ur á Breiðamerkursand. Það eru
um 250 km sem þeir gengu á 15
dögum.
Það voru fyrirtækin Vaude og 66
gráður norður sem styrktu þá fé-
laga með margskonar fatnaði sem
reyndist vel. Einnig gerði Piper at-
huganir m.a. á næringargildi ýmiss
konar matvæla og þurrmats í
tengslum við verkefni sem hann
vinnur að við menntastofnunina
Scottish School of Sport Studies.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeii’sson
ÞAÐ var reynt á sig í ísknattleik á Miðfjarðarvatni.
Leikjadagur á
Miðfj ar ðarvatni
Hvammstanga - Það var mikið
Ijör á Miðíjarðarvatni þegar
nemendur úr öllum grunnskól-
um héraðsins komu saman, á
þriðja hundruð börn. Dagurinn
var liður í leikja- og tómstunda-
dögum og ákváðu stjórnendur
skólanna, í Hrútafirði, Miðfírði,
Hvammstanga og Vesturhópi að
nýta góða veðrið og efna til
sameiginlegrar útivistar.
Á vatninu voru fímm vélsleðar
sem drógu á eftir sér halarófu
af glöðum börnum á sleðum,
snjóþotum og uppblásnum
dekkjaslöngum. Þá reyndu
nokkrir kappar sig í ísknattleik
en Miðfjarðarvatn er þekkt sem
slíkt í fornsögum. í Grettissögu
segir ítarlega frá knattleik á
vatninu og lustu þar menn hver
annan með knatttrjám. Nú voru
aðeins saklausar plastkylfur og
engar ýfíngar með leikmönnuni.
Passíusálmarnir
lesnir í gömlu kirkj-
unni í Stykkishólmi
Stykkishólmi - í fyrsta
skipti var Hólmurum boðið
upp á að hlusta á alla Pass-
íusálma Hallgiúms Péturs-
sonar lesna á fóstudaginn
langa. Eftir að gamla kirkj-
an í Stykkishólmi var end-
urvígð í nóvember sl. skip-
aði sóknarnefnd sérstaka
rekstrarnefnd sem annast
rekstur gömlu kirkjunnar.
I rekstrarnefndinni eiga
sæti Ólafur Kr. Ólafsson,
Sigrún Ásta Jónsdóttir og
Þröstur Magnússon.
Nefndin hefur áhuga á
að nýta þetta 120 ára
gamla guðshús sem búið er
að gera svo fallegt. I þeim
tilgangi fékk nefndin
Lionsklúbbana í Stykkis-
hólmi til samstarfs og
stóðu þessir aðilar fyrir
lestri Passíusálmana í
gömlu kirkjunni á föstu-
daginn langa.
Alls skiptu 19 lesarar
með sér að lesa sálmana
fimmtíu. Fyrsta sálminn
las Lái'us Kristinn Jónsson, fyrrver-
andi hringjari og meðhjálpari, og
síðasta sálminn las sóknarprestur-
inn Gunnar Eiríkur Hauksson.
Margir bæjarbúar og ferðamenn
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
MARGIR komu í gömlu kirkjuna í Stykk-
ishólmi til að hlusta á lestur Passfu-
sálmanna á föstudaginn langa.
komu við í gömlu kirkjunni til að
hlusta á lesturinn mislanga stund.
Þessi nýbreytni í helgihaldi í Stykk-
ishólmi um páska féll í góðan jarð-
veg.