Morgunblaðið - 08.04.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 25
Klerks-
morðingj-
ar líflátnir
FJÓRIR menn hafa verið líf-
látnir í Irak, ásakaðir um að
hafa framið morðið á Ayatollah
Mohammed Sadiq al-Sadr,
leiðtoga shíta-múslima í frak.
Morðið kom af stað óeirðaöldu
sem beindist gegn stjórnvöld-
um í Bagdad, en þar á bæ eru
menn súnní-múslimar. Menn-
irnir fjórir - þar á meðal þrír
kennarar í trúarkenningum
shíta-múslima - voru hengdir
eftir réttarhöld fyrir sérskip-
uðum dómstól, að því er opin-
bera íraska fréttastofan
greindi frá. íraska sjónvarpið
hafði áður sýnt fjórmenning-
ana játa á sig morðið á klerkin-
um og tveimur sonum hans.
íraska leyniþjónustan til-
kynnti: „Við höfum upprætt
verkfæri glundroðans.“
Naumur sigur
stjórnarflokks
Sri Lanka
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ á
Sri Lanka, sem þar er við
stjórnvölinn, vann í gær naum-
an sigur í fimm héraðsstjórna-
kosningum, sem gefa góða vís-
bendingu um gengi flokkanna í
landinu í þingkosningum sem
fram fara á næsta ári. Helzti
stjómarandstöðuflokkurinn,
Sameinaði þjóðaiTlokkurinn
(UNP), fékk 112 fulltrúa
kjörna af 263 sætum sem kjör-
ið var til, en stjórnarflokkur-
inn fékk 130 fulltrúa, þar af 10
uppbótarsæti. Framkvæmda-
stjóri UNP, Gamini Atukorale,
sagði að „þrátt fyrir kosninga-
svik Alþýðubandalagsmanna í
nokkrum kjördæmum hefðu
kjósendur sent skýr skilaboð
um að meirihluti þeirra styðji
bandalagið ekki lengur".
91 látinn úr
svínaveiru
HAFINN hefur verið stór-
felldur innflutningur á
kjúklingakjöti til Malasíu í því
skyni að slá á áhyggjur lands-
manna um kjötskort eftir að
eldissvínum hefur verið slátrað
í stórum stíl vegna veirusýk-
ingar sem talin er frá svínum
komin og deytt hefur að
minnsta kosti 91 mann í land-
inu á undanförnum vikum. Til-
kynnt var í gær um tvö ný
dauðsföll af völdum sýkingar-
innar og þrjú ný smitunartilvik
í aðalsvínaræktarhéraði
Malasíu. Vísindamenn segja
tvær veirur að verki frekar en
eina.
Meiri skógar-
eyðing
VÍSINDAMENN við rann-
sóknarstofnun í Massachusetts
í Bandaríkjunum greindu frá
því í gær, að meira en tvöfalt
stærra svæði væri eytt árlega
af regnskóginum í Amazón-
héruðum Brasilíu en hingað til
hefur verið áætlað. Sögðu þeir
allt að 15.000 ferkílómetra
regnskógarins höggna eða
brennda á ári hverju. Vísinda-
mennirnir greindu frá þessum
niðurstöðum sínum, sem
byggðar eru á gerfihnatta-
myndum og -mælingum, í
nýjasta hefti náttúruvísinda-
tímaritsins Nature.
ERLENT
Aukin spenna vegna
morða á A-Tímor
Djakarta. Reuters.
CARLOS Belo, biskup og friðar-
verðlaunahafi Nóbels, hélt í gær
ásamt Tono Suratman, herforingja,
til Liquisa í
Austur-Tímor
þar sem talið er
að skæruliðar,
hlynntir
indónesískum
yfirráðum, hafi
orðið allt að 45
manns að bana í
kirkju þar á
þriðjudag. í
kjölfar aukinna
árása skæruliðanna, hefur Xanana
Gusmao, einn af leiðtogum and-
spyi-nuhreyfingarinnai- á Austur-
Tímor, hvatt til þess að landar sínir
grípi til vopna gegn stuðnings-
mönnum Indónesíustjórnar í land-
inu.
Talsmaður
Indónesíuhers
neitar ásökun-
um um mannfall
Ekki virðast allir á eitt sáttir um
hversu margir féllu í árásinni á
kirkjuna í bænum Liquisa, þar sem
um 2000 flóttamenn höfðu leitað
sér skjóls eftir atlögu skæmlið-
anna sl. mánudag, þar sem 17
manns létu h'fið.
45 manns sagðir hafa látist
Sjálfstæðissinnar segja að um 45
manns hafi látist og að líklega hafi
indónesíski herinn stutt árásar-
mennina og jafnvel tekið þátt í
árásinni.
„Eins og er, getum við aðeins
staðfest að árásin var gerð af
skæmliðunum, sem studdir vom af
indónesíska hernum með vopnum
og fjármunum," sagði Amandio
Araujo, baráttumaður fyrir mann-
réttindum.
Indónesískur herforingi sagði á
blaðamannafundi eftir ódæðisverk-
ið, að enginn hefði týnt lífi í
árásinni, en sagði herinn muna
rannsaka málið.
Fréttamenn í Austur-Tímor
sögðu hins vegar að vitni hefðu
sagt að fimm manns hefðu fallið og
að minnsta kosti 21 hefði slasast í
árásunum.
Belo og Suratman vildu ekkert
segja um málið í gær, en þá var
áætlað að þeir færa til Liquisa til
að skoða vegsummerki voðaverk-
anna.
Carlos
Belo
Reuters
Morðingjum
Hani neitað um
sakaruppgjöf
SANNLEIKSNEFND Suður-
Afríku tilkynnti í gær að Clive
Derby-Lewis og Janusz Walus,
yrði ekki veitt sakaruppgjöf
vegna morðsins á Chris Hani
árið 1993. Samkvæmt starfs-
reglum sannleiksnefndarinnar
er sakaruppgjöf hugsanleg,
hafi glæpur verið framin sam-
kvæmt tilskipun á tímum að-
skilnaðarstefnunnar. Hins veg-
ar var það mat nefndarinnar að
mennirnir hefðu drýgt glæpinn
að eigin frumkvæði. Hani var
leiðtogi kommúnistaflokks
Suður-Afríku og talinn líkleg-
asti eftirmaður Nelson Mand-
ela, fráfarandi forseta. Morðið
á Hani kveikti mikið reiðarbál
meðal Suður-Afríkubúa og var
óttast um tíma að það gæti haft
slæm áhrif á kosningarnar árið
1994, þar sem öll þjóðarbrot
landsins höfðu í fyrsta skipti
kosningarrétt. í yfirheyrslum
yfír morðingjunum árið 1997,
sagðist Derby-Lewis hafa
skipulagt. morðið til að skapa
ringulreið og kynda undir
valdarán af hálfu hægrisinn-
aðra til að festa völd hvítra í
sessi.
Sex fórust
í flugslysi
í Tyrklandi
Ankara. Reuters.
FARÞEGAÞOTA í eigu tyrkneska
flugfélagsins Turkish Airhnes fórst
í gær í Suður-Tyrklandi og með
henni sex flugliðar. Engir farþegar
vom um borð í vélinni, sem var af
gerðinni Boeing 737-400.
Vélin lenti síðast í borginni
Adana en þangað hafði hún flutt
pílagríma, sem sótt höfðu hina
helgu staði múslima í Saudi-Ara-
bíu. Hvarf hún af ratsjárskjánum
skömmu eftir flugtak og hrapaði til
jarðar skammt frá bænum Ceyhan,
sem er í 40 km fjarlægð frá Adana.
Segja að eldur hafí verið
kominn upp í vélinni
Brakið úr flugvélinni dreifðist
yfir hálfs km langt svæði en þai’
sem hún kom niður er nú 10 m
djúpur gígur. Fólk, sem býr við
slysstaðinn, segir, að verðið hafi
verið mjög slæmt, þrumuveður og
úrhellisrigning. Er haft eftir því,
að eldur hafi verið í flugvélinni áð-
ur en hún kom til jarðar.
Rannsókn hafin
Rannsókn á tildrögum slyssins
hófst strax í gær með leit að
„svarta kassanum" eða hljóðrita
vélarinnar. Flugvél frá Turkish
Airlines hrapaði síðast 1994,
skammt frá borginni Van í austur-
hluta landsins, og þá fómst 57
manns.
Aðalfundur
Bætur til
þolenda
ófrjósem-
isaðgerða
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SÆNSKA stjórnin hefur
ákveðið að þeir sem voru gerð-
ir ófrjósamir gegn vilja sínum í
samræmi við lög fyrr á öldinni
eigi kröfu á skaðabótum er
nema 175 þúsund sænskum
krónum eða tæpum tveimur
milljónum íslenskra króna. Þó
talið sé að allt að sextíu þúsund
manns hafi verið látnir gangast
undir aðgerðii- af þessu tagi
reiknar stjórnin með að aðeins
um þúsund manns muni sækja
um skaðabætur.
Lögin um ófrjósemisaðgerð-
ir voru við lýði frá því um 1930
og þar til fram á sjöunda ára-
tuginn, en flestar aðgerðirnar
fóru fram fyiri hluta tímabils-
ins. Aðgerðirnar vora gerðar á
fólki, sem úrskurðað var and-
lega vanheilt, fatlað eða var fá-
tækt. Tilgangurinn var einkum
mannbótastefna, sem átti fylgi
að fagna meðal sænskra stjórn-
málamanna á þessum tíma eins
og víðar. Hindra átti að eigin-
leikar þessa fólks gengju í arf.
Þó svipuð lög hafi víðar verið í
gildi em ófá dæmi um að þeim
hafi verið framfylgt jafn mis-
kunnarlaust og kerfisbundið og
í Svíþjóð.
Urskurður stjórnarinnar
kemur í kjölfar umræðna um
málið í Svíþjóð, en nefnd á veg-
um hins opinbera, sem á að
meta umfang aðgerðanna er
enn að störfum. Hún átti að
Ijúka störfum í vor, en nú
stefnir í að hún skili ekki
skýrslu fyrr en í haust.
Einar með sorgina
Undanfarna mánuði hafa
sænskir fjölmiðlar birt viðtöl
við ýmis fórnarlömb aðgerð-
anna. Megnið af þeim eru kon-
ur og þar er mörg sorgarsagan
sögð, því auk þess að vera
sviptar möguleikanum á að
eignast börn hafa konurnar
verið einar með sorg sína. Þær
hafa flestar skammast sín svo
mjög fyrir meðferðina að þær
hafa ekki sagt neinum frá
henni. Sumar segjast ætla að
fara fram á bætur, aðrir hafa
ekki áhuga þar sem peningar
bæti ekki þá sorg sem þær hafi
orðið fyrir.
Óljóst er af hverju gert er
ráð fyrir að svo fáir sæki um
bætur. Auk skammarinnar,
sem þolendur finna fyrir, era
margir þeirra látnir og sumir
hafa hugsanlega aldrei fengið
að vita hvernig var í pottinn
búið.
Tölvuþjálfun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjárfestu í framtíðinni!
Tölvuskóli íslands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður haldinn
laugardaginn ío. aprfi kl. 15.00.
Fundarstaður er Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni.
Fundarefni:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins árið 1998.
2. Lagðir fram til staðfestingar reikningar sparisjóðsins
fyrir síðastliðið reikningsár ásamt tillögum stjórnar um
ráðstöfun tekjuafgangs.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs.
4. Kosning sparisjóðsstjórnar.
5. Kosning löggilts endurskoðanda.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
7. Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
fimmtudaginn 8. aprfl og föstudaginn 9. aprfl
í afgreiðslu sparisjóðsins, Borgartúni 18,
svo og á fundarstað. Spansjoðlir
stjórnin vélstjóra
í8
spv