Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 34

Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ EITT af brýnustu verkefnum í atvinnu- málum á Islandi er að efia stöðu ferðaþjón- ustunnar sem at- vinnugreinar og bæta arðsemi í greininni. Ferðavertíðin er stutt hér á landi, og arð- semi í þessum at- vinnuvegi ekki viðun- andi. Tekist hefur að bæta verulega afkomu greinarinnar á höfuð- borgarsvæðinu utan háannar, en sá árang- ur nær að mjög litlu leyti til landsbyggðar- innar. Innanlandsflug, sem er ein af meginforsendum íyrir velgengni ferðamála á lands- byggðinni, hefur veikst í harka- legri samkeppni. Efling ferða- þjónustunnar úti á landi utan há- annar yrði til að styrkja stoðir innanlandsflugsins. Þróun ferðamála í heiminum bendh- til þess að vaxandi markað- ur sé fyrir ferðir, sem tengjast fræðslu. Island getur og á að nýta sér slíka ferðamarkaði. Þessi þróun er þegar hafin. Það er brýnt að ýta undir hana og leita leiða til að fræðslustofnanir taki þátt í að beina þróun atvinnugreinarinnar inn á brautir þekking- armiðlunar og kynn- ingar á íslenskri menningu. Það er ekki síst brýnt að frum- kvæði að þessari þró- un verði á landsbyggð- inni. Nú þegar starfa þar stofnanir, sem geta stuðlað að því að þetta viðfangsefni geti hlotið brautargengi. Til þess að finna farveg fyrir þessa þróun og svara áhuga ferðamanna á fræðslu um náttúru Islands, um þjóðina, menningu hennar og sambýli við náttúruöflin, tel ég rétt að stofnað- ur verði „Umhverfisháskóli Evr- ópu“ við Háskólann á Akureyri. Slíkur umhverfisháskóli yrði skipulagður á grundvelli stuttra námskeiða. Hann ætti að byggja upp í tengslum við Norðurslóðahá- skóla (University of the Arctic), sem er verið að stofna í samvinnu við Norðurskautsráðið. Einnig má hugsa sér samstarf við Sumarhá- skóla Háskólans á Akureyri. Þá er æskilegt að stofnun af þessu tagi tengist fræðslu- og menntastarfi í Mývatnssveit og á Húsavík. Viðfangsefni slíkrar stofnunar Ferðaþjónusta Til þess að finna farveg fyrir þessa þróun tel ég rétt, segir Tómas I. Olrich, að stofnaður verði „Umhverfis- háskóli Evrópu“. væri að kynna sérstaklega menn- ingu á norðurslóðum, samskipti manns og náttúru, nýtingu nátt- úruauðlinda og náttúruafla, há- tækni og vísindi. Þá yrði lögð sér- stök áhersla á að kynna sérkenni mannlegs og náttúrulegs umhverf- is, gæði heilsugæslu og heilbrigðis- þjónustu, langlífi þjóðarinnar, þró- un menntakerfis og upplýsinga- mála, hreinleika lofts og vatns og hollustu matvæla. Síðast en ekki síst bæri að leggja áherslu á kynn- ingu á orkumálum og á gnógt þeirra verðmæta, sem eru fólgin í heitu og köldu vatni. Gera þarf ráð fyrir því að nám- skeið við skólann væru þannig upp byggð að námsdvöl væri styrkhæf, t.d. innan Evrópubandalagsins. Markhópar skólans væru m.a. stúdentar og námsfólk, kennarar og þá ekki síst kennarar sem stunda fræðslu í jarðfræði, eld- fjallafræði, sögu, landafræði og umhverfisfræðum. Þá væri skyn- samlegt að skipuleggja nájn fýrir þá sem selja ferðir til Islands, bæði eriendis og hér heima. Að lokum má gera ráð fyrir að tveir hópar ferðamanna, sem fer nú ört fjölgandi, myndu hafa áhuga á ferð til Islands, sem sameinaði það að bjóða upp á að kynnast einstakri náttúru og fá formlega fræðslu um menntun og umhverfi. Lækkandi eftirlaunaaldur veldur því að aldr- aðir ferðast meir en áður og sá hópur ferðamanna er yfirleitt mjög áhugasamur um menningu og umhverfi. Þá fer fjölgandi ferðamönnum sem tengjast um- hverfissamtökum og leggja ákveðna hugmyndafræði til grund- vallar ferðalögum sínum. Rétt er að undirstrika mikilvægi safna og annarra fræðslustofnana, þegar starfsemi af þessu tagi er undirbúin. Náttúrugripasafnið á Akureyri gegnir því mikilvægu hlutverki, Vesturfarasafnið á Hofsósi og Síldarminjasafnið á Siglufirði mundu styrkja starfsemi Umhverfisháskólans, og á það ekki síst við Hvalasafnið á Húsavík. A Hólum í Hjaltadal er þróttmikil starfsemi á sviði fræðslu og rann- sókna í landbúnaði, auk þess sem þar eru góðar aðstæður til að koma upp kirkjusögusafni í tengsl- um við Hóladómkirkju. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri er ört vaxandi norðurslóðastofnun, sem einbeitir sér að rannsóknum á samspili mannlífs og umhverfis á heimskautasvæðum. Rétt er hins vegar að huga að því að setja sérstakt safn upp á | Akureyri, sem helgað væri því verkefni, sem ekki hefur enn verið sinnt sem skyldi, en það eru sigl- ingar, viðskipti og landafundir á miðöldum. Slíkt miðaldasafn yrði tengt verslunarstaðnum að Gásum en mundi einkum vinna að því að gera aðgengilegar þær gríðarmiklu j upplýsingar um miðaldasamfélag, 1 sem er að finna í fornum heimild- um og enn eru afar óaðgengilegar, ‘ bæði innlendum sem erlendum ferðamönnum. Er þá ekki síst átt við lagatextana fornu, sem varpa miklu og athyglisverðu ljósi á dag- legt hf manna á miðöldum, lífsbar- áttu þemra og efnahagslíf. Safnið yrði staðbundið safn, en jafnframt yrði unnið að því að koma upplýs- ingum þess á Netið bæði sem sjálf- j stæðu netsafni og sem kynningar- I efni fyrir sjálft miðaldasafnið og Umhverfisháskólann. Með tilliti til þessara hugmynda og þeirra sem kynntar hafa verið um menningarhús á landsbyggð- inni er æskilegt að menningarhús á Akureyri yrði reist á lóð Háskól- ans á Akureyri og í því húsi yrði framtíðarbækistöð Umhverfishá- skóla Evrópu ásamt með safni, t sem væri helgað miðöldum og sér- staklega viðskiptum, siglingum, lagasetningu um viðskipti og efna- ' hagsmál og daglegu lífi á miðöld- um. Menningarhúsið gæti með þessum hætti orðið starfsemi Há- skólans á Akureyri til styrktar og auðveldað skólanum að tengja vís- indastarf sitt þróun ferðaþjónust- unnar og nýsköpunar á sviði menningar- og ferðamála. Höfundur er þingmaður. Umhverfís- háskóli Evrópu Tómas I. Olrich Afnemum ranglátan eignaskatt EIGNASKATTUR sem einstakhngur greiðir af eigin íbúðar- húsnæði er bæði rang- látur skattur og í fullu ósamræmi við eðlileg- ar og sanngjarnar for- sendur sem lagðar eru til grundvallar skatt- lagningu á einstak- linga. Þetta er flatur skattur umfram ákveðin eignamörk, óháður tekjum og af- komu einstaklinga og öðrum fjárhagslegum aðstæðum þeiiTa. Gagnvart fjölmörgum íbúðareigendum er um að ræða hægfara eignaupptöku sem í mörgum tilvikum hefur þau áhrif að fólk er knúið til að flytja sig úr húsnæði sem það vildi gjarnan eiga áfram. A þetta eink- um við um eldra fólk og þá ekki Isbm) f Negro Skólavörðustíg 21a-101 Reykjavík sími/fax 552 1220 síst einstæðinga, ekkj- ur eða ekkla. Eldri borgarar verst settir Nálægt 85% þeirra sem eru 67 ára og eldri eru eigendur þess íbúðarhúsnæðis sem þeir búa í. Á stærstum hluta þess- ara eigna hvíla litlar eða engar skuldir. Þessir íbúðareigendur greiða því flestir eignaskatt. Slík skatt- lagning stríðir gegn þeirri stefnu að gera eldra fólki kleift að búa í því húsnæði, sem það hefur byggt upp og hlúð að árum saman, svo lengi sem mögulegt er og vilji þess stendur til. Veigamestu breytingarnar á álagningu eignaskatta áttu sér stað árið 1988 og tóku þessar breytingar gildi gjaldárið 1989. Megininntak þeirra var að al- mennir eignaskattar hækkuðu úr 0,95% í 1,2% og tekinn var upp svokallaður „ekknaskattur" sem var fólginn í því að af eignum um- fram 7.000.000 kr. (kr. 11.263.000 í febr. 1999) greiddist að auki 1,5%. Þegar umræður fóru fram um upptöku fjármagnstekjuskattsins var rætt um að þegar skatturinn kæmi til framkvæmda yrði eignar- skattur felldur niður eða lækkaður verulega. Gjaldárið 1990 var eignaskattur lækkaður þannig að „ekknaskatturinn" var lækkaður í 0,75% og tekjutengdur. Gjaldárið 1995 var „ekknaskatturinn“ af- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson numinn, m.a. í tengslum við vænt- anlega skattlagningu fjár- magnstekna. í dag er staðan sú að almennur eignaskattur er 1,2% og einstakhngar þurfa ekki að greiða af fyi’stu 3.743.043 kr. af eigna- skattsstofni og er sú upphæð tvö- föld fyrir hjón. Við fráfall skamm- lífari maka er reiknaður eigna- skattur hjá langlífari maka eins og hjá hjónum næstu fimm ár eftir lát maka. Rök fyrir niðurfellingu skortir ekki Árið 1992 var svokallað aðstöðu- gjald á fyrirtæki sem sveitarfélög- in innheimtu afnumið m.a. með þeim rökum fulltrúa ríkis og at- vinnurekendasamtaka að gjaldið væri bæði ranglátt og óeðlilegt þar sem það tæki á engan hátt tillit til Eígnaskattur Niðurfelling eigna- skatts af íbúðarhús- næði, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þar sem eigandi hefur búsetu er mikið réttlætismál. afkomu íyi’irtækjanna. Ennfremur var fyrir nokkium ánim ákveðið með sömu rökum að fella niður í áföngum sérstakan skatt á skrif- stofu- og verslunarhúsnæði. Svip- uð rök eiga einnig við um eigna- skattinn. Niðurfelling eignaskatts af íbúð- arhúsnæði þar sem eigandi hefur búsetu er mikið réttlætismál. Hún stuðlar enn frekar að því að fólk vilji eignast íbúðarhúsnæði. Jafn- framt myndi niðurfelling eigna- skatts auðvelda fjölmörgum eldri borgurum að búa lengur í íbúð sinni og skapa aukið öryggi í bú- setumálum þeirra. Því er nauðsyn- legt að finna leiðir til að fella niður eignaskatt af íbúðarhúsnæði. Rök og forsendur til þess skortir ekki. Höfundur er borgarfulltrúi og for- maður Samh. ísl. sveitarfélaga. Hornsteinn höllum fæti VIÐ íslendingar höfum alla möguleika til þess að búa vel að þeirri grunneiningu þjóðfélagsins, fjöl- skyldunni, sem á góð- um stundum er kölluð hornsteinn þess. Við búum í tiltölulega litlu samfélagi, þar sem auðvelt er að skynja þarfir og vanda, sem bæta má úr. Við erum vel stæð þjóð og telj- um okkur vera vel upplýst. Þeim mun dapurlegra er, hversu höllum fæti þessi homsteinn okkar í rauninni stendur. En það segja okkur samanburðartölur af ýmsu tagi. Útgjöld til félagsmála eru hlut- fallslega lægst á íslandi af öllum þjóðum á Evrópska efnahagssvæð- inu, og þegar litið er til Norður- landa stöndum við þeim langt að baki hvað varðar fæðingarorlof og hvers konar stuðning við barna- fjölskyldur. Þetta er þeim mun sérkenni- legi’a þar sem atvinnuþátttaka kvenna er hér umtalsvert meiri en á hinum Norðurlöndunum, að ekki sé lengra leitað, en það er einmitt aukin þátttaka kvenna í atvinnulíf- inu, sem mestu olli um aukinn hag- vöxt á síðustu áratugum. Það hef- ur íslenskt þjóðfélag hins vegar ekki séð ástæðu til að launa kon- um. Jafnframt eiga íslenskar kon- ur hlutfallslega flest börnin og hér er langsamlega hæst hlutfall barnsfæðinga hjá stúlkum undir 20 ára aldri. Styst og lægst og minnst Hér er minnstum fjármunum varið til fjölskyldu- og barnamála. Við búum við stysta fæðingarorlof- ið, lægstu greiðslum- ar í fæðingarorlofi og mesta réttleysi feðra. Öll Norðurlandanna nema Island tryggja foreldmm auk þess foreldraorlof og miklu meiri rétt til fjarvista frá launavinnu vegna veikinda bama. Island er eitt Norðurland- anna um að tekju- tengja barnabætur, og hvergi er hlutfall gi’eiðslna foreldra við rekstur leikskóla hæma en hér. Allt þetta, að við- bættum löngum vinnutíma, lágum launum og sí- gildu húsnæðisbasli, gerir það að verkum, að fjölskyldan stendur Velferðarmál Það vakti hlátur á nýlegri ráðstefnu um fjölskyldumál, segir Kristín Halldórsdóttir, þegar einn fyrirlesara sagði, að íslensk börn væru alin upp eins og harðgert sauðfé. höllum fæti í íslensku samfélagi. Þjóðin hefur ekki enn lagað sig að breyttum aðstæðum. Stjórnvöld virðast halda, að við búum enn við það, að karlinn vinni fyrir heimil- inu, konan sé heima til þjónustu fyrir alla og barneignir einkamál hvers og eins. Þessi vanræksla íslensks þjóðfé- lags í málefnum fjölskyldunnar er Kristín Halldórsdóttir í. ::

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.