Morgunblaðið - 08.04.1999, Side 62
62 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
6IVE IT T0 50ME0NE
ON ' BAKED POTATO PAT
^SEBVT HAð
A HEART
2- /2
Smáfólk
Nýár í Hong
Kong’
Frá Katrínu Árnadóttur:
EKKI voru Hong Kong-búar fyrr
búnir að taka niður jólaskrautið en
þeir settu upp mun flottari skreyt-
ingar. Nú var það
í tilefni kínverska
nýársins. Þetta
árið bar seinasta
daginn upp á 15.
febrúar. Ar tíg-
ursins var á enda
og við tók ár kan-
Katrín ínunnar. Þennan
Árnadóttir síðasta (]ag ársins
fara flestar húsmæður eldsnemma
á markaðinn og kaupa kjúkling í
kvöldmatinn. Hann er vitaskuld
keyptur á lífí og slátrað á staðnum.
Fyrir kvöldmatinn er svo síðasta
tækifæri til að laga til því ekki má
þrífa gólf né henda of miklu rusli á
nýársdag. Hver veit, maður gæti
hent gæfunni út!
Stemmningin var eins og við Is-
lendingar eigum að venjast fyrir
jólin. Allir að stressa sig yfír matn-
um og ruslinu. Eftir kvöldmatinn
mátti segja að helmingur Hong
Kong búa hafí flykkst á útimarkaði
víðs vegar um borgina. Sá stærsti
var í Causway Bay og um 300.000
manns héldu þangað. Lögreglan
var með sérstakan viðbúnað en all-
ir voru í hátíðarskapi og því gekk
allt vel. Á markaðnum var hægt að
kaupa marga hluti sem tengjast
nýárinu, s.s. borða til að hengja
upp og mat sem ekki fæst á öðrum
árstímum. Margir kaupa sér
vindrellur sem þeir láta snúast fyr-
ir gæfu í fjármálum.
Um miðnætti hófst nýárið og út
um allt heyrðist kallað „Gong hei
fat choj“ sem þýðir svo gott sem
„gæfa á nýju ári“. En hátíðahöld-
unum var engan veginn lokið því
nú var haldið heim og haldið áfram
að borða. Þessa nótt var farið seint
að sofa. Hjátrúarfullur Kínverji
verður að hafa margt í huga, t.d.
verður hann að rifja upp á hvaða
ári hann er fæddur (samkvæmt
kínversku talningunni auðvitað) og
athuga hvort næsta ár verður
gæfuríkt. Ef hann er fæddur á ári
kjúklingsins þá mun ár kanínunnar
alls ekki verða honum gott... nema
hann kaupi sér einhvem hlut með
hundi á og beri hann alltaf á sér.
Þetta er vitaskuld gamall siður en
margir halda honum við.
Á nýársdag skiptir miklu máli
hvað maður segir og best er að
halda frið við alla. Til eru ýmsar
„gæfusetningar", sem maður segir
t.d. við gamalt fólk, skólafólk og
verkafólk. Gift fólk gefur því yngra
„rauða vasapeninga" þegar það
óskar góðs nýs árs. Þetta lílrist
fermingarpeningunum heima því
allir eru að metast um hver fái
mest. Á nýársdag fara fjölskyldur í
heimsóknir og yngra fólkið inn-
heimtir rauðu vasapeningana sína.
Það er hellingur af snakki og sumir
taka sig til og spila Majong, gamalt
kínverskt fjárhættuspil. Flestar
búðir eru lokaðar og fólk reynir að
klæðast litríkum fötum í tilefni há-
tíðarinnar.
Það var ekki fyrr en á þriðja
degi nýársins sem maður sá loksins
flugeldasýningu. Það voru engir
flugeldai- á vestræna gamlárs-
kvöldinu og því var nú komið að 20
mínútna langri kínverskri gæða-
sýningu. Fólk flykktist niður að
höfn til að verða vitni að herleg-
heitunum. Einstaklingar mega
ekki kaupa flugelda og því var allt
vel skipulagt og þetta var frábær
skemmtun. Svona sýningu sér
maður bara í Kínaveldi.
„Gong hei fat choj“ frá Hong
Kong.
KATRÍN ÁRNADÓTTIR,
skiptinemi í Hong Kong.
Viltu kaupa handmáluð Sérðu, það er með hjarta, það líkist Gefðu það einhveijum á „Bökuðu-
gjafakort? meira bakaðri kartöflu. kartöfludeginum".
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hár að lútandi.