Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 64
64 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matargerð
Ysa með
eggaldini eða
kartöflum
Gott er að skella sér í soðninguna eftir kræs-
ingar páskanna segír Kristín Gestsdóttir sem
kynnir hér tvo ýsurétti.
VELVAKAiVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
GUÐ hvað ég skamraast
mín. Eg fékk birtar nokkr-
ar línur í síðustu viku þai'
sem ég dásamaði góðærið
og var að velta vöngum yfir
því hvernig ég gæti komið í
lóg 4.000 króna bótahækk-
un sem ég ætti í vændum
frá hinu opinbera. En auð-
vitað var þetta misskilning-
ur. Þar sem stóð 4.000 átti
auðvitað að vera 1.400. Svo
nú get ég andað rólega og
þetta þarf ekki að halda
íyrir mér vöku lengur. Ég
bið bara þá, sem hafa hald-
ið að nú væri ég búinn að
missa þá litlu glóru sem
Guð gaf mér, afsökunar og
bendi þeim á að þeir eru
ekki að fá þann stóra í
lottóinu. Þið getið sem sagt
sofið rólega og hann Davíð
okkar er ekki genginn af
göflunum né nokkrir í okk-
ar ástkæru ríkisstjóm.
Með beiðni um fyrir-
gefningu og skilning.
Hrafn Hauksson,
Reynimel 51,
107 Reykjavík
Hlánar nema að
snjór minnki?
ER hægt að tala um að það
hláni nema að snjór
minnki? Ég myndi kalla
það öfugmæli að segja að
það hláni þegar hitastigið
fer rétt upp fyrir írost-
mark og síðan fiystir aftur,
jafnvel á sama sólarhring
þannig að meiii gaddm'
verður bara í staðinn, því
snjórinn hleypur bara í
ennþá meiri gadd. Eins
langar mig að vita: er hægt
að kalla það hlýindi þegar
það er bara tveggja stafa
tala? Og eitt svona í lokin,
er hægt að tala um blíðu
þegar það er hörkufrost?
Svaribjörg.
Eru geymdar íbúðir
handa flóttafólki?
HVERNIG stendur á því
að ríkisstjómm getur alltaf
hjálpað flóttafólki en ekki
löndum sínum? Margir Is-
lendingar eiga um sárt að
binda og fá hvergi nokkra
hjálp. Hvemig stendur á
því að flóttafólkið gengur
íyrii- með húsnæði.
Ein óánægð.
Dýrahald
Stór grár páfagaukur
ÞANN 24. mars fannst í
Hlyngerði í Reykjavík
stór grár páfagaukur.
Hann er frekar gæfur.
Upplýsingar gefur Fríða í
síma 698 1049.
Kisa óskar
eftir heimili
GRÁBRÖNDÓTT læða, 5
ára, óskar eftir góðu
heimili. Kisa er innikött-
ur. Upplýsingar í síma
553 3740.
Tapað/fundið
Seðlaveski
BRÚNT og drapplitað
munstrað seðlaveski tapað-
ist í Vesturbæjarsundlaug-
inni miðvikudaginn 31. apr-
íl. í veskinu em ljósmyndir
og fleii-i persónulegir mun-
ir sem eigandinn saknai'
sárlega. Ef einhver veit um
veskið þá vinsamlegast lát-
ið vita í síma 562 0037.
Svartur vettlingur
tapaðist
SVARTUR .fingravett-
lingur tapaðist fyrir
páska. Vettlingurinn er
með parduskanti. Ef ein-
hver hefur fundið hann þá
er síminn 554 1602.
Siemens-farsími
SIEMENS-farsími í
svörtu hulstri tapaðist
laugardag fyrir páska.
Síminn er samanlímdur
með bláu límbandi. Upp-
lýsingar í síma 554 5010.
Barnaskíði
BARNASKÍÐI fundust
við Bláfjallaveg laugar-
daginn 3. apríl. Uppl. í
síma 554 1539.
ÁRLA páskadagsmorguns vakn-
aði ég við ljúfa tóna, þrastakórinn
var mættur á svæðið og söng
dýrðarsöng á mestu fagnaðarhá-
tíð kristinna manna. Ekki var til
setunnar boðið enda von á góðum
gestum í morgunkaffi. Daginn
áður höfðum við hjónin gengið
niður að Skógtjörn til að huga að
fuglum og séð breiður af tjöldum,
sem greinilega voru nýkomnir af
hafi, þeir kúrðu sig dauðuppgefn-
ir eftir langt og strangt flug. Þar
voru líka margæsir, stelkar og
nokkrar lóur svo og selur á steini.
Við fylgjumst vel með komu far-
fuglanna, leirumar hér fyrir neð-
an eru gjöfular og einn af íyrstu
lendingarstöðum þeirra.
Hér eru tveir ofn-ýsuréttir,
annar með kartöflum sem allir
þekkja en hinn með eggaldini,
sem er meira framandi, þó það
hafi fengist hér um áraraðir og sé
meira að segja ræktað hér í gróð-
urhúsum. Eggaldin þarf ekki að
afhýða, en mér finnst betra að
gera það. í eggaldini er bitur safi,
einkum í stærri aldinum. Hann er
dreginn út með salti sem stráð er
yfir skurðflötinn og látið standa í
um háfltíma, þá er saltið skolað af
með köldu vatni og aldinið þerrað
með eldhúspappír. Ég nota
sítrónusafa mikið á ýsuflök, hann
gerir fiskinn hvítari, stinnari og
bragðbetri. Hentugt er að kreista
eina eða fleiri sítrónur í einu og
geyma safann í klakapoka í
frysti. Yfirleitt nægja 1-2
klakamolar í hverja máltíð.
Sítrónusafa hættir til að mygla í
kæliskáp.
Ýsuréttur með kart-
öflum, sveppum
og lauk
1 ýsuflak, 500-600 g
2 klakamolar af sítrónusafa,
sjó að ofan______________
1-1 1/2 tsk. salt +
nýmalaður pipar
100 g sveppir
________1 meðalstór laukur______
3 meðalstórar kartöflur
2 msk. matarolía + 15 g
_________smjörfl smópakki)______
__________1 /2 tsk. karrí_______
________1/2 dós sýrður rjómi____
1/2 dl nýmjólk + 1 msk, sósujgfnori
50 g rifinn mjólkurostur, 17%
eða sú tegund sem hentar
1. Roðdragið flakið og skerið úr
beingarð efst á því. Hellið
sítrónusafa yfir það, stráið á það
salti og pipar og látið standa í 15
mínútur.
2. Hreinsið sveppi, skerið í sneið-
ar, afhýðið lauk og saxið, afhýðið
kartöflur og skerið í örþunnar
sneiðar með ostaskera.
3. Setjið smjör, olíu og karrí á
pönnu, hafið meðalhita og sjóðið
fyrst sveppi í 3-4 mín, takið af
pönnunni og sjóðið næst lauk í 5
mín. takið líka af og sjóðið kart-
öflur síðast á pönnunni undir loki
við mjög hægan hita. Setjið allt á
eldfast fat. Skerið fiskinn í bita
og leggið ofan á.
4. Hitið bakaraofn í 210°C, blást-
ursofn í 200°C, setjið fatið í ofn-
inn og bakið í 10 mínútur. 5.
Hrærið saman sýrðan rjóma,
mjólk og sósujafnara, hellið yfir,
stráið rifna ostinum ofan á og
bakið aftur þar til osturinn hefur
tekið lit, um 7 -10 mínútur.
Ýsuflak með
eggaldini, tómötum
og lauk
_______1 ýsuflak, 500-600 g______
2 klakamolar af sílrónusafa,
____________sjá að ofan__________
1 - 1 1/2 tsk. salt +
_________nýmalaður pipar
1 meðalstórt eggaldin +
salt til að strá yfir
1 meðalstór laukur
1 msk. matarolía
1 hvítlauksgeiri
3 meðalstórir tómatar
blanda af sýrðum rjóma,
mjólk og sósujafnara
50 g rifinn mjólkurostur
1. Afhýðið eggaldinið, skerið í 1
1/2 sm þykkar sneiðar, stráið á
þær salti, látið standa í 30 mínút-
ur, skolið þá saltið af og þemð
sneiðamar með eldhúspappír.
2. Setjið sítrónusafa, salt og pipar
á flakið, sjá að ofan.
3. Saxið lauk, setjið á fatið sem
þetta á að bakast í, dreypið olí-
unni yfir og bakið í ofninum við
200°C, í um 5 mínútur. Takið úr
ofninum, leggið eggaldinsneið-
amar ofan á, merjið hvítlauk yfir
og setjið loks tómata í sneiðum
yfir.
5. Raðið fiskinum í bitum ofan á.
Setjið í ofninn og bakið í 10 mín-
útur. Takið úr ofninum, hellið
blöndunni af sýrða ijómanum yf-
ir, sjá fyrri uppskrift, stráið osti
yfir og bakið þar til osturinn hef-
ur tekið lit.
SKAK
Umsjóii {Vlargeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu móti í Alushta í Úkra-
ínu í mars. Heimamaðurinn
Vladímir Rogovsky (2.455)
var með hvítt, en Englend-
ingurinn Tony
Miles (2.605)
hafði svart og
átti leik.
39. - Hh4++! og
hvítur gafst
upp, því 40.
Kxh4 - Be7 er
mát og eftir 40.
Kg2 - Dh3 +
fellur hvíti
hrókurinn á h8.
T y r k i n n
sterki Suat
Atalik sigi'aði
glæsilega á mót-
inu með 9 vinn-
mögulegum, 2. Malakhatko,
Úkraínu 7V4 v., 3.-4. Miles,
Englandi og G. Kuzmin,
Úkraínu 7 v., 5. Korotylev,
Rússlandi 6 v.
Einhverntímann hefði
það þótt saga til næsta bæj-
ar að Tyrki ynni skákmót í
þessu höfuðvígi skáklistar-
innar, en Atalik er fyrsti og
eini stórmeistari þeirra.
mga
SVARTUR leikur og vinnur.
HOGNI HREKKVISI
»• • Og bl2>/$ þcrngai bii þi£ o/cuJi
eioihc/sicmr'ei-iirigu^icc.1 * 1 2 3 * 5"
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins ræddi fyrir
skömmu við konu, sem hafði
önnur sjónarmið en almennt gerist
varðandi umræðu um fíkniefni og
framsetningu upplýsinga í því sam-
bandi. Hún sagðist haí'a þungar
áhyggjur af ákveðnum atriðum í
áróðri gegn fíkniefnum.
Konan á 11 ára dóttur, sem var
orðin mjög niðurdregin og kvíðin,
auk þess sem árangri hennar í
skólanum hafði hrakað. Móðir
hennar fékk hana loks til að segja
sér hvað amaði að og þá kom í ljós,
að stúlkan hafði fengið fræðslu um
böl fíkniefna í skólanum. Hún hafði
meðal annars verið frædd um, að í
áhættuhópi væru börn og ungling-
ar, sem byggju hjá einstæðum for-
eldrum við erfiðar félagslegar að-
stæður.
„Eg er ein með þrjú börn og
dóttir mín er ekki svo skyni
skroppin að hún geri sér ekki grein
fyrir aðstæðum okkar,“ sagði móð-
irin. „Hún leit því í raun svo á að
það væri búið að dæma hana til
fíkniefnaneyslu og kveið því mjög.
Hún tók meðal annars af mér lof-
orð um að setja sig strax í afvötn-
um, ef hún lenti einhvem tímann í
því að neyta fíkniefna.“
XXX
MÓÐIRIN sagði, að hún hefði
alltaf talið áróður gegn fíkni-
efnum af hinu góða, en henni sýnd-
ist sem ekki væri höfð aðgát í nær-
veru sálar. Dóttir hennar hefði ótt-
ast böl heimsins eins og hann birt-
ist henni í fréttum, en nú hefði hún
fyllst vonleysi, þar sem hún teldi
búið að dæma framtíð sína. Yngri
systir hennar, 9 ára, hefði líka set-
ið fyrirlestur um skaðsemi fíkni-
efna, en hún hefði ekki skilið hvað
fram fór og því bara yppt öxlum á
eftir.
Sú ellefu ára væri hins vegar
nógu gömul til að meðtaka upplýs-
ingarnar, en ekki nógu þroskuð til
að geta unnið úr þeim á eigin spýt-
ur. „Mér finnst tími til að staldra
við þegar börn, sem áður voru
metnaðargjörn í skóla, sjá ekki til-
gang í að læra lengur.“
xxx
SKRIFARI var hugsi eftir að
samtalinu lauk. Hann hefur
sjálfur lagt sitt af mörkum í að
miðla upplýsingum um skaðsemi
fíkniefna, en kærir sig lítið um að
bera ábyrgð á því að börn séu
stimpluð sem væntanlegir fíkniefna-
neytendur af því að þau tilheyra
áhættuhópi samkvæmt rannsókn-
um. Sá er heldur ekki tilgangurinn
með fræðslu skólanna, en þótt að-
eins ein móðir hefði þessa sögu að
segja gefur það rióg tilefni til að
staldra við.