Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 9
Nýtt örorkumat
tekur gildi á
hausti komanda
LÆKNADEILD Tryggingastofn-
unar ríkisins (TR) hefur útbúið
nýjan mælikvarða fyrir örorkumat
í samræmi við nýsamþykktar
breytingar á lögum um almanna-
tryggingar sem taka eiga gildi hinn
1. september nk. Nýju örorkumati
er ætlað að byggja alfarið á læknis-
fræðilegum forsendum en með því
munu þeir sem læknisfræðilega
teljast öryrkjar á háu stigi fá ör-
orkuskírteini og þau réttindi sem
því fylgja, óháð því hvort þeir
stunda vinnu eða ekki.
Hingað til hafa þeir sem stundað
hafa vinnu, þrátt fýrir erfiða sjúk-
dóma eða fótlun, ekki fengið ör-
orkuskírteini. Þar með hafa þeir
misst þau réttindi sem skírteininu
fylgja, svo sem lægri greiðslu fyi'ir
læknisþjónustu, lyf og sjúkra-,
iðju- og talþjálfun. Helgi Seljan,
framkvæmdastjóri Öryrkjabanda-
lags Islands, telur að þessar breyt-
ingar á örorkumati séu spor í rétta
átt og geti leitt til góðs. Hann
bendir á að Öryrkjabandalagið hafi
íýlgst með umræddri lagasetningu
og mælt með samþykki hennar.
„Þeir sem hafa verið örorkulíf-
eyrisþegar í mörg ár og býðst
vinna missa örorkulífeyrinn ef
tekjur fara yfir ákveðið mark,“
segir í athugasemdum við um-
ræddar breytingar á almanna-
tryggingalögunum. „Við næsta
endurmat á örorku er jafnframt
hugsanlegt að þeir missi örorku-
skírteinið, þ.e. örorka er þá metin
65%, 50% eða jafnvel minni en 50%
án þess að sjúkdómsástand eða
fötlun hafi nokkuð batnað. Þetta
getur haft í för með sér verulega
aukinn kostnað vegna læknisþjón-
ustu, lyfja og þjálfunar. Þau störf
sem öryrkjum bjóðast eru yfirleitt
lágt launuð. Það er hins vegar
sorglegt að einstakiingur, sem vill
komast út í lífið og nýta krafta sína
til að auka tekjumar, getur lækkað
í tekjum vegna tekjutenginga, auk
þess sem viðkomandi missir þau
hlunnindi sem örorkuskírteinið
veitir.“
Getur leitt til góðs
Helgi Seljan, framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalags Islands, telur að
þessar breytingar á örorkumati
geti leitt til góðs svo framarlega
sem mælikvarðinn eða staðallinn
sem miða á við verði rétt nýttur,
þ.e. nýttur eins og lögin geri ráð
fyrir. Aðalávinningurinn sé sá að
þeir sem stundi vinnu geti áfram
fengið niðurgi-eidda ýmsa þjónustu
gegn framvísun örorkuskírteinis.
Lífeyristryggingadeild Trygg-
ingastofnunar mun áfram íýlgjast
með tekjum örorkuþega og greiða
örorkubætur í samræmi við þær.
„En þeir [öryi'kjar] missa ekki sín
réttindi [svo sem niðurgreiðslu á
læknisþjónustu] sem getur haft
mikla þýðingu fyrir marga þessara
manna, sem þrátt fyrir vinnu eru
mjög illa á sig komnir sem öryi'kj-
ar,“ segir Helgi.
Nýi mælikvarðinn eða staðallinn,
sem felst m.a. í ákveðnum spum-
ingum til að meta líkamlega færni
og geðræn vandamál, er byggður á
breskri fýrirmynd. Tryggingaráð
hefur staðfest staðalinn og gert er
ráð fyrir því að heilbrigðis- og
tryggingamálaráðheri'a muni birta
hann innan skamms í reglugerð.
Haraldur Jóhannsson, trygginga-
læknir hjá TR, segir að nýja ör-
orkumatið sé sanngjarnara en hið
fyrra, til að mynda vegna þess að
með því verði örorka metin án þess
að miða við tekjur. í athugasemd-
um við frumvarpið að umræddum
breytingum kemur fram að breyt-
ingamar muni hafa um 35 til 50
milljóna króna kostnaðarauka í för
með sér fyrstu árin og um 10 til 20
m. kr. á ári eftir það. „Kostnaður-
inn verður eitthvað meiri í upphafi
vegna aukinna útgjalda í sjúkra-
tryggingum þar sem fleiri öryrkjar
munu njóta afsláttarkjara í lyfja-,
læknis- og þjálfunarkostnaði."
Nýir bolir — allar stærðir
Bómullarbolur fylgir hverjum
stretchbuxum í dag!
Eddufelli 2 - sími 557 1730.
Opið í dag frá kl. 10—15.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41
Opið í dag 12-14
552 9077
Grettisgata Fallegt timburhús á
steyptum kjallara ca 150 fm. Mikið
endurn. m. sólstofu. Sérbílast.
Áhv. 7,7 millj. húsbr. og byggsj.
Verð 13,7 millj.
Einiberg hf. einbýli Fallegt 150
fm einbýlishús á einni hæð m. 4
svefnh., parketi, 2 stofum, tvöf. 50
fm bílsk. Skipti möguleg á 4ra
herb. íb. m. bílsk. Verð 15,7 millj.
Þrastarnes einbýlishúsalóð
1254 fm á úrvalsstað vestarlega á
Arnarnesi. Eignarlóð, gatnagerð-
argj. greidd. Verð 5,5 millj.
Grettisgata sérhæð Gullfalleg
100 fm sérhæð, hæð og ris i
tvíbýli með parketi. 3 svefn-
herbergi. Friðsæll staður, bakhús.
Verð 11,7 millj.
Tunguvegur sérhæð Falleg 4
herb. 92 fm efri sérhæð í tvíbýli
ásamt 32 fm bílskúr. 3 svefnherb,
stofa og sólstofa. Allt sér. Frábær
staðsetning. Verð 11,5 millj.
Blikahólar 4ra herb. Falleg 4ra
herbergja íbúð á 2. hæð í lítilli
blokk ásamt 25 fm bílskúr. Verð
8,7 millj.
Baldursgata 3 herb. Glæsileg
3ja herb. íbúð á 1. hæð með
tveimur skiptanlegum stofum og
rúmgóðu svefnherb. Parket.
Nýlegt gler. Verð 7,2 millj.
Grundarstígur 2ja herb. Af-
burðaglæsileg 64 fm íbúð á 1.
hæð í endurbyggðu steinhúsi,
Parket, vandaðar innréttinaar.
Sérbílastæði. Laus strax. Ahv.
húsbréf 4,4 millj. Verð 8,3 millj.
Mýrargata 2ja herb. 56 fm
íbúð á 1. hæð í þríbýli. Mikið end-
urnýjuð. Áhv. 3,7 millj. Verð 5,5
millj.
ýg>mbl.is I
LLTAf= eiTTH\SA0 l\IÝT~l I
NÝBAKAÐIR flugmenn
hjá Flugmennt.
Flugnemar
útskrifast
FLUGSKÓLINN Flugmennt út-
skrifaði hóp nemenda af einka-
flugmannsnámskeiði laugardag-
inn 1. maí. Aðsókn nýnema í
skólann er veruleg og síst
minnkandi milli ára, segir f
fréttatilkynningu frá skólanum.
Á næstunni standa fyrir dyrum
miklar breytingar á flugnámi á
Islandi, en þá taka gildi samevr-
ópskar flugreglur sem kalla á
breytt fyrirkomulag flugskóla.
Þá mun Flugskóli Islands taka
til starfa og verður flugkennsla
sem áður var á hendi t.d. Flug-
menntar og Flugtaks undir hans
stjórn.
Ferðatöskubönd
með nafninu þínu!
&ögn
múla 17a - simi 588 1980 J)
TINNA Lind Gunnarsdóttir tekur við viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur. Hún hafði hæstu meðaleinkunn skólans, 91%.
Sportlegur fatnaður
í fríið og ferðalagið
hiáXýGufnkiUi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
ecco
SKÖVERSLUN
KÓPAVOGS
HAIVIRABGRG 3 • SÍIVIi 554 1754
DAGAR
19. til 22. maí
Gangur iífsins
kynningarafsláttur
af öllum ecco skóm
ecco
10%