Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
4
Baugur teygir anga sína vestur á land
Kaupir verslunina
Stykkiskaup
VERSLUNARKEÐJAN Hraðkaup
hefur gengið frá samningi við eig-
endur Stykkiskaupa ehf. um kaup á
fasteignum og verslunarrekstri
Stykkiskaupa í Stykkishólmi. Hrað-
kaup tekur við rekstrinum frá 1. júní
næstkomandi en þetta er fjórða
verslun keðjunnar.
Að sögn Jóns Scheving Thor-
steinssonar, forsvarsmanns Hrað-
kaups, verður verslunin í Stykkis-
hólmi rekin með svipuðu sniði í sum-
ar og verið hefur.
„Við sjáum ekki ástæðu til að
breyta miklu í byrjun enda er versl-
unin rekin með glæsibrag. Fyrri eig-
endur munu starfa hjá okkur og við
ætlum að nota sumarið til að læra á
þennan markað,“ segir Jón.
Fyrri eigendur Stykkiskaupa hafa
rekið verslunina í fimm og hálft ár.
Einn þeirra, Ingibjörg Benedikts-
dóttir, segist þess fullviss að kaup
Hraðkaups á versluninni verði bæj-
arbúum til góðs og til þess fallin að
efla verslun í Stykkishólmi.
„Hraðkaup leggur fyrst og fremst
áherslu á ferskvöru og langan af-
greiðslutíma. Markmið okkar er að
færa út á landsbyggðina þá byltingu
sem hefur átt sér stað á höfuðborg-
arsvæðinu á síðustu árum,“ segir
Jón.
Verslunin í Stykkishólmi verður
sú fjórða í Hraðkaupskeðjunni.
Fyrsta verslunin var opnuð í Borg-
arnesi í byrjun árs 1998 og í október
DAVID M. Brewer, sem verið hefur
aðstoðarforstjóri Columbia Ventures
Corporation, hefur tekið við stjór á
daglegum rekstri fyrirtækisins, seg-
ir í fréttatilkynningu.
í verkahring Brewers verða meðal
annars öll rekstrarleg tengsl við
Norðurál hf. á Grundartanga en eig-
sama ár var önnur verslun opnuð á
Egilsstöðum. Sú þriðja var svo opn-
uð á Akureyri í mars síðastliðnum.
Um samkeppni frá öðrum verslun-
um á svæðunum segir Jón: „Við höf-
um ekki mætt neinni samkeppni að
ráði, enda teljum við okkur vera að
auka þjónustuna í þessum byggðar-
lögum.“
Hann bætir við að í könnun sem
Stefán Ólafsson lektor vann um
fólksfækkun á landsbyggðinni hafi
komið fram að fjárfesting í verslun
andinn, Kenneth D. Peterson, verð-
ur áfram stjómarformaður. Mun
hann nú einbeita sér enn frekar að
stefnumótun Columbia Ventures og
þróunarverkefnum.
Brewer hefur starfað hjá Col-
umbia Ventures í 10 ár og hefur 30
ára reynslu að baki í áliðnaðinum.
og þjónustu víða úti á landi sé lítil og
störfin fá.
„Pað er oft lítil verslun og þjón-
usta á þessum stöðum. Það kom
einnig fram í þessari könnun að fólk
á landsbyggðinni vill ekki einungis
betra vöruverð heldur einnig meira
vöruúrval og gæði. Það vill ferska
vöru og fjölbreytileika."
Jón fullyrðir að ekki standi til að
opna fleiri Hraðkaupsverslanir á
næstunni en ýmislegt sé þó til skoð-
unar.
„Við forum okkur hægt og viljum
gera þetta vel. Þetta tekur allt sinn
tíma, að fá allt til að virka og skil-
greina stefnuna í markaðsmálum á
hverjum stað. Menn eru fyrst og
fremst að vanda sig, njóta þess að
vera kaupmenn og geta komið með
eitthvað nýtt og skemmtilegt inn á
svæði og gert þetta vel. Ef maður
ætlar bara að vaða einhvers staðar
inn og reyna að ná sem mestri veltu
þá endar það bara í ljótum og skítug-
um búðum með fáu fólki og lélegri
þjónustu. Þá er ekkert gaman að
vera kaupmaður lengur,“ segir Jón.
Columbia Ventures
Breytingar á stjórnun
Fyrsti hagn-
aður Mazda
í 6 ár
Tókýó. Reuters.
MAZDA Motor hefur skýrt frá
fyrsta hagnaði fyrirtækisins í sex ár
og spáir mesta hagnaði sínum frá
upphafí á næsta ári.
„Ég segi frá því með nokkru stolti
að takmark okkar til marz árið 2000
er að setja algert met,“ sagði yfir-
fjármálastjóri Mazda, Gary Hexter,
á blaðamannafundi.
Mazda er fimmti helzti bílafram-
leiðandi Japans og skilaði 312 millj-
óna dollara nettóhagnaði á síðasta
reikningsári til marzloka.
Unnið hefur verið að endurskipu-
lagningu fyrirtækisins í mörg ár og
afkoma þess hefur ekki verið betri í
14 ár.
Afkoman er betri en sérfræðingar
höfðu spáð. Sömu sögu er að segja
um spá fyrirtækisins um að nettó-
hagnaður aukizt úr 38,71 milljón í 40
milljarða jena á yfirstandandi reikn-
ingsári.
------------------
Naust Marine
tekur við sölu á
sjálfvirknibún-
aði Tæknivals
GENGIÐ hefur verið frá samkomu-
lagi um að Naust Marine í Garðabæ
kaupi sölusvið sjálfvirknibúnaðar hjá
iðnstýrideild Tæknivals hf., og mun
iðnstýrideild hér eftir einbeita sér að
hönnun og þróun stjórn- og eftirlits-
kerfa sem er meginverkefni deildar-
innar, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Tæknivali.
Með þessu samkomulagi flyst m.a.
sala á sjálfvirknibúnaði frá Omron,
Fluke, Hitachi og PR Electronic til
Naust Marine. Starfsmenn Naust
Marine eru sjö, en fyrirtækið hefur
meðal annars sérhæft sig í stýrikerf-
um fyrir togvindur í togara. Það hef-
ur um árabil verið í samstarfi og við-
skiptum við Tæknival og er fyrirhug-
að að efla og treysta samstarf fyrir-
tækjanna enn frekar. Geir Arnar
Geirsson, sölustjóri sjálfvirknibúnað-
ar Tæknivals, fer til starfa hjá Naust
Marine vegna þessara breytinga.
Kringlunni 4—12 Sími 568 6010
Fundir íslensk-sænska verslunarráðsins í Stokkhólmi: Gert er ráð fyrir að umfang starfseminnar
í Svlþjóð eigi eftir aukast á næstunni.
Aðalfundur íslensk-sænska verslunarráðsins í Stokkhólmi
Rafræn viðskipti til
sérstakrar umfjöllunar
ÍSLENSK-sænska verslunarráðið
hélt aðalfund sinn í Stokkhólmi 18.
maí sl. í húsakynnum Verslunarráðs
Stokkhólms. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa voru rafræn viðskipti
til sérstakrar umfjöllunar á fundin-
um, og kynntu þeir Skúli Mogensen
frá OZ og Henrik Bergquist frá
Ericsson samstarfsverkefni þeirra
„iPulse", sem tengir saman ólíka
samskiptamiðla eins og síma, tölvur
og Netið. Þá kynnti Johan Brenner
starfsemi Etrade Nordic, sem í dag
er annað stærsta fyrirtækið í heim-
inum í verðbréfaviðskiptaþjónustu á
Netinu. Etrade hefur gert sérstak-
an samning við Verðbréfastofuna á
Islandi um miðlun þjónustunnar
hérlendis. í framhaldi af fundinum
var farið í heimsókn til Ericsson í
Stokkhólmi.
íslensk-sænska verslunarráðið
var stofnað í júní 1997 og telur nú
tæplega 60 meðlimi, mest íslensk
fyrirtæki. í fréttatilkynningu frá
Verslunarráði íslands kemur fram
að gert sé ráð fyrir að umfang starf-
seminnar í Svíþjóð eigi eftir að
aukast á næstunni og fleiri sænsk
fyrirtæki gangi í ráðið. Fram-
kvæmdastjórn ráðsins er í höndum
Verslunarráðs íslands, en það á
einnig gott samstarf við sænska
sendiráðið á íslandi og íslenska
sendiráðið í Stokkhólmi.
I stjóm Islensk-sænska verslun-
arráðsins voru kjömir: Bergþór
Konráðsson, Sindrastáli, formaður,
Geir Zoéga, ísaga, Pétur J. Eiríks-
son, Flugleiðum, Gunnar Jóakims-
son, SÍF, Skúli Mogensen, OZ,
Hjörtur Hjartar, Eimskipi í Svíþjóð,
Hans-Áke Pehrsson, DFDS Tran-
sport, Yngve Redling, Ericsson, og
Janne Lundbladh, Comvision.
■