Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Nítján manns falla í loftárás NATO á fangelsi í Istok í Kosovo
Fregnir um að gert verði hlé
á árásum bornar til baka
London, París, Washington, Istok, Stokkhdlmi,
Brusscl. Reuters.
Reuters
Á FRÉTTAMANNAFUNDI í höfuðstöðvum NATO í Brussel í gær ræddi Jamie Shea, talsmaður NATO, m.a.
við Pandeli Majko, forsætisráðherra Albaníu, í gegnum gervihnött og iýsti Majko þar stuðningi sínum við að-
gerðir NATO í Júgóslavíu. Hann hvatti til að þeim yrði haldið áfram uns Milosevic gæfi eftir.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og
Bretlandi gerðu í gær lítið úr getgát-
um þess efnis að Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) hugleiddi nú að gera
hlé ó loftárásum sínum á Júgóslavíu
jafnvel þótt stjómin í Belgrad hefði
ekki gengið að þeim skilyrðum sem
NATO hefur sett til að slíkt geti orð-
ið. Madeleine Albright, utanrQdsráð-
herra Bandaríkjanna, kvaðst í sam-
tali við BBC ekki telja að yfirmenn
NATO-herjanna litu á þessa hug-
mynd sem valkost í stöðunni, en
Massimo D’Alema, forsætisráðherra
Italíu, ljáði máls á þessu í fyrradag.
Breska dagblaðið The Daily Tel-
egraph fullyrti í gær að NATO hug-
leiddi af fullri alvöru að fallast á til-
lögur Itala um hlé á loftárásum en Al-
bright vildi aðeins staðfesta að hún
hefði vitað um hugmyndir D’Alemas.
„Það er fullt af hugmyndum uppi á
borðinu en aðalatriðið er það skýra
markmið NATO að halda áfram hörð-
um loftárásum sem eru að skila okk-
ur árangri, og sem valdið hafa
serbneska hemum umtalsverðum
skakkafollum,“ sagði Albright í BBC-
viðtalinu.
Don Henderson, ráðherra breskra
hermála, tók í sama streng og sagði
að Slobodan Milosevic, forseti Jú-
góslavíu, yrði að gangast við kröfum
NATO um að draga herhð sitt frá
Kosovo og samþykkja að alþjóðlegar
friðarsveitir fái að fylgjast með mál-
um í Kosovo áður en til greina kæmi
að gera hlé á loftárásunum. Frakkar
virtust einnig útiioka þennan mögu-
leika í gær en talsmaður franskra
stjómvalda sagði aðildarlönd NATO
sammála um þá stefnu sem fylgt
væri.
Árás á fangelsi og vestrænir
sendiherrar í bráðri hættu
Nítján manns era sagðir hafa farist
þegar NATO gerði loftárásir á fang-
elsi í Istok í Kosovo í fyrrinótt og tíu
særst. Istok er um sjötíu kílómetra
frá Pristina, héraðshöfuðborg
Kosovo, og sagði fangelsisstjórinn
Aleksander Rakocevic bæði fanga og
starfsmenn fangelsisins hafa fallið í
loftárásinni. Serbnesk stjómvöld sök-
uðu NATO hins vegar um að hafa
ætlað sér að frelsa alla fangana, sem
margir hverjir vora liðsmenn skæra-
liðssveita Kosovo-Albana (UCK).
„Eitt þúsund fangar - það er fullkom-
inn her,“ sagði talsmaður Júgóslavíu-
stjómar.
Fullyrt var í gær að þýsk stjóm-
völd hefðu farið fram á það við yfir-
stjórn NATO að bandalagið endur-
skoðaði skotmörk sín í loftárásunum
á Júgóslavíu en í fyrrakvöld brotnuðu
rúður í bústað svissneska sendiherr-
ans í Belgrad og kvöldið þar áður
höfðu orðið skemmdir á sendiráði
Svíþjóðar, Noregs og Spánar í ioft-
árásunum.
Rúðumar brotnuðu vegna högg-
bylgju er myndaðist er sprengjum
var varpað á olíubirgðastöðvar í ná-
grenni bústaðar svissneska sendi-
herrans í Belgrad. Engin meiðsl urðu
á fólki. Samkvæmi stóð yfir á vegum
svissneska sendiherrans þegar at-
burðurinn átti sér stað og vora gestir
að byija á eftirréttinum þegar
sprengjum tók að rigna niður í ná-
grenninu.
Meðal gesta í veislunni var Mats
Staffansson, sendiherra Svíþjóðar, en
kvöldið áður hafði sænska sendiráðið
orðið fyrir skemmdum í árásum
NATO, eins og áður sagði. „Ég,
sendiherra Slóvakíu og Páfagarðs
skriðum þegar undir borðið til að
komast hjá meiðslum af völdum fljúg-
andi glerbrota," sagði Staffanson í
samtali við Aftonbladet í gær.
Var haft eftir Joschka Fischer, ut-
anríkisráðherra Þýskalands, í gær að
rétt væri að ræða um skotmörk
bandalagsins, en skemmdimar á
sendiráðum vestrænna ríkja þykja
mjög hafa skaðað almenningsálitið í
þessum löndum, og jafnvel dregið úr
stuðningi við aðgerðir NATO.
50 þúsund hermenn við landa-
mæri Kosovo?
Þau Albright og Robin Cook, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sem var í
heimsókn í Bandaríkjunum, komu
fram saman í fjölda viðtala í banda-
rískum sjónvarps- og útvarpsstöðvum
í gær og lögðu sig fram um að sýna
fram á að þau stæðu algerlega sam-
einuð, og að afstaða þeirra til hernað-
araðgerðanna í Júgóslavíu væri sú
sama, jafnvel þótt svo hafi virst und-
anfama daga sem Bretar og Banda-
ríkjamenn væra ekki á eitt sáttir um
nauðsyn landhemaðar í Kosovo.
Bandaríkjastjóm mun síðustu dag-
ana hafa þrýst á Breta að halda sig
við handritið, og ljá ekki opinberlega
máls á landhernaði, þar sem augljós-
lega sé ekki meirihluti fyrir slíku inn-
an NATO, og á þeim forsendum að
aðeins það að ræða um slíkt skaði við-
ræður um pólitíska lausn á deilunni.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times staðhæfði engu að síður í
gær að Wesley Clark, yfirmaður her-
afla NATO, hefði að undanfómu beitt
sér fyrir því að hafist yrði handa við
að safna saman 45-50 þúsund manna
her við Albaníuiandamæri Kosovo í
því skyni að auka þrýsting á Milos-
evic að samþykkja skiimála NATO.
Hafði blaðið eftir háttsettum emb-
ættismönnum að markmið Clarks
væri ekki endilega að undirbúa land-
hernað í Kosovo heldur hitt að sýna
Milosevic fram á hvað biði - og fá
hann þannig til að koma til móts við
kröfur vesturveldanna. Er enda sagt
nánast útilokað nú að NATO hefji
landhernað, ekki síst í ljósi ummæla
Gerhards Schröders, kanslara
Þýskalands, fyrr í vikunni þar að lút-
andi.
Á hinn bóginn yrði hvort heldur er
alltaf að senda hermenn inn í Kosovo
að átökunum loknum, og því yrði hér
í reynd um eins konar undirbúning
fyrir staif friðargæslusveita í hérað-
inu að afloknum átökunum að ræða.
Aukinheldur hefði NATO þá það spil
uppi í erminni að geta gripið til land-
hemaðar með stuttum fyrirvara,
yrðu menn sammála um að loftárás-
irnar skiluðu ekki tilætluðum ár-
angri.
Kennara-
verkfalli
afstýrt
FÆREYSKIR stúdentar
munu ná að útskrifast þetta
vorið, eftir að í gærmorgun
náðist samkomulag milli fær-
eyskra framhaldsskólakennara
og landstjórnarinnar um nýjan
kjarasamning kennara. Þeir
höfðu boðað verkfall frá mið-
nætti á fimmtudagskvöld, og
allt leit út fyrir að því yrði ekki
afstýrt eftir að kennarar höfn-
uðu málamiðlunartilboði á
þriðjudag. Þar með hefðu engin
próf farið fram í færeyskum
framhaldsskólum og ekki verið
hægt að útskrifa stúdenta. Eft-
ir samningafund sem stóð alla
aðfaranótt föstudágs var sætzt
á að kennarar fengju 6,5%
launahækkun á næstu tveimur
árum.
Raðnauðgari
dæmdur
EINN stórtækasti raðnauðgari
sem um getur í sögu Bretlands
var dæmdur á fimmtudag á
grandvelli tólf ákæruatriða, og
í gær setti lögregla upp sér-
staka símalínu fyrir fórnarlömb
nauðgarans. Lögreglan telur að
með því sé hugsanlegt að „um
100 fórnarlömb finnist til við-
bótar.“ Afbrotamaðurinn, Ric-
hard Baker, er 34 ára gamall
plötusnúður sem getið hefur
sér orð fyrir að vera bæði
myndarlegur og kvensamur.
Er Baker granaður um að hafa
framið kynferðisglæpi víðar en
í Bretlandi.
Viðskiptastríð
magnast
VIÐSKIPTASTRÍÐ Banda-
ríkjanna og Evrópusambands-
ins (ESB) magnaðist í gær er
yfirvöld í Bandaríkjunum sögð-
ust myndu setja refsitolla á
vörur frá ESB-löndunum sem
næmu tæplega fjórtán og hálf-
um milljarði króna, ef innflutn-
ingsbann á hormónakjöt frá
Bandaríkjunum til Evrópu yrði
ekki afnumið. Charlene Bars-
hefsky, viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna, sagði Banda-
ríkin hins vegar tilbúin til
samningaviðræðna.
Boris Jeltsín Rússlandsforseti fer 1 fri eftir að hafa skipað nokkra nýja ráðherra
Berezovskí reynir að
komast tíl áhrifa á ný
Moskvu. Reuters, The Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti hóf
tveggja vikna orlof í Svartahafsbæn-
um Sochi í gær eftir að hafa endur-
skipað fjóra ráðherra í stjórnina og
skipað nýjan innanríkisráðherra og
fyrsta aðstoðarforsætisráðherra.
Fregnir hermdu að Borís Berezov-
skí, viðskiptajöfurinn sem hefur oft
verið líkt við rússneska munkinn
Raspútín vegna mikilla áhrifa sinna
á ráðamenn Rússlands, væri nú að
reyna að endurheimta völd sín, sem
virtust hafa orðið að engu fyrir
nokkrum vikum.
Skýrt var frá því í gær að Jeltsín
hefði skipað Vladímír Rúshaílo í
embætti innanríkisráðherra. Rús-
haíio er 45 ára og honum var falið að
stjórna herferð lögreglunnar gegn
glæpum í Moskvu 1993.
Níkolaj Aksjonenko, sem fór með
jámbrautamál í fráfarandi stjóm,
var skipaður fyrsti aðstoðarforsætis-
ráðherra. Aksjonenko er lítt þekktur
og hefur aldrei verið áhrifamikill í
rússneskum stjórnmálum. Skjótur
og óvæntur frami hans olli vanga-
veltum í rússneskum fjölmiðlum um
að Berezovskí hefði beitt sér fyrir
því að hann yrði fyrsti aðstoðarfor-
sætisráðherra.
ívanov heldur
utanríkisráðuneytinu
Fjórir ráðherrar fráfarandi
stjórnar vora einnig endurskipaðir í
embætti sín, þeir Igor ívanov utan-
ríkisráðherra, ígor Sergejev varnar-
málaráðherra, Pavel Krashenínníkov
dómsmálaráðherra og Sergej Shoigu
orkumálaráðherra.
Sergej Stepashín forsætisráð-
herra sagði ekkert um stjómar-
myndunina en hermt var að Jevgení
Savtsjenko, einn af forystumönnum
Bændaflokksins, hefði hafnað tilboði
um að taka við landbúnaðarráðu-
neytinu. Míkahíl
Lapshín, leiðtogi
flokkins, sagði að
hann vildi að
Gennadí Kúlík,
sem er einnig í
Bændaflokknum,
yrði áfram í emb-
ættinu en gaf til
kynna að Jeltsín
hefði útilokað
þann möguleika.
Stepashín þarf
að ljúka stjórnarmynduninni fyrir
lok næstu viku og líklegt er að hann
fari til Sochi tii að leggja tillögur sfn-
ar fyrir forsetann.
Talsmenn Jeltsíns vildu ekki
skýra frá því hvað forsetinn hygðist
gera í fríinu. Fréttastofan RIA sagði
líklegt að Jeltsín myndi sitja nokkra
fundi í Sochi, meðal annars með Kim
Dae-jung, forseta Suður-Kóreu.
Rússneska sjónvarpið NTV sagði
hins vegar að Jeltsín kynni að fara til
Moskvu til að ræða við Kim, sem
verður í Rússlandi 27.-30. maí.
Berezovskí snýr aftur
Fregnir herma að Berezovskí hafi
verið í Moskvu síðan á mánudag og
beitt sér á bak við tjöldin fyrir því að
bandamenn sínir fengju mikilvæg-
ustu ráðherraembættin á sviði efna-
hags- og fjármála.
Margir afskrifuðu Berezovskí fyr-
ir tæpum mánuði þegar hann var
sviptur stöðu framkvæmdastjóra
Samveldis sjálfstæðra ríkja og átti
yfir höfði sér ákæru vegna vafa-
samra viðskiptahátta, en viðskipta-
veldi hans á nú undir högg að sækja.
Andstæðingar Berezovskís óttast
nú að hann sé aftur að komast til
áhrifa í Kreml með því að tryggja
stuðningsmönnum sínum mikilvæg
ráðherraembætti. Hann hefur nú
losnað við tvo af hættulegustu and-
stæðingum sínum, þá Jevgení
Prímakov, sem Jeltsín rak úr forsæt-
isráðherraembættinu fyiár rúmri
viku, og Alexander Khinshtein,
rannsóknarblaðamann er afhjúpaði
tengsl viðskiptajöfursins við ráða-
menn í Kreml. Umferðarlögreglan
stöðvaði Khinstein um síðustu helgi
og hann hefur verið ákærður fyrir að
sýna fölsuð persónuskilríki.
Margir telja að Berezovskí hafi átt
stóran þátt í þeirri ákvörðun Jeltsíns
að reka Prímakov þótt hann hafi ver-
ið í Frakklandi á þeim tíma. „Mikil-
vægasta lexían síðustu daga er sú að
menn ættu ekki að þræta við Borís
Berezovskí,11 sagði stjórnmálaskýr-
andinn Iosif Dizkin eftir brottvikn-
ingu Prímakovs.
Borís
Berezovski'