Morgunblaðið - 22.05.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 25
ERLENT
Rauðu herdeildirnar fram á sjónarsviðið á ný á ftalíu
Hörð viðbrögð við
morði D’Antonas
Röm. Reuters.
FJÖLMIÐLAR á Ítalíu brugðust í
gær hart við morðinu á Massimo
D’Antona, háttsettum ráðgjafa
Antonios Bassolinos vinnumálaráð-
heiTa, í Róm í fyrradag sem full-
víst þykir að var af pólitískum rót-
um nmnið. Lýstu ítölsku dagblöðin
þeim ótta að morðið markaði aftur-
hvarf til þeirrar skálmaldar sem
ríkti á Italíu á öndverðum áttunda
áratugnum og í byrjun þess ní-
unda, þegar hrikti í stoðum ítalsks
samfélags vegna umsvifa hryðju-
verkamanna.
Forsíður dagblaðanna í gær
voru undirlagðar af morðinu á
D’Antona en hryðjuverkasamtökin
Rauðu herdeildirnar lýstu ábyrgð
á ódæðinu á hendur sér í fyrradag.
„Morðingjar Rauðu herdeildanna
snúa aftur“ sagði í risastórri fyrir-
sögn á forsíðu ítalska dagblaðsins
La Repubblica í gær og sum dag-
blaðanna tileinkuðu morðinu allt að
tíu síður.
Óvíst um tengsl við umsvif
áttunda áratugarins
Morðið þykir minna mjög á þau
ódæðisverk sem framin voru á átt-
unda áratugnum, sem kallaður hef-
ur verið „ár blýsins" vegna byssu-
kúlnanna sem settu mark sitt á
vettvang ódæðisverkanna með því
að grafa sig inn í gangstéttir.
En ef marka má yfirlýsingu
Rauðu herdeildanna, sem þau
sendu frá sér eftir að hafa lýst
verkinu á hendur sér, tengdist
morðið á D’Antona ekki einungis
ítölskum innanríkismálum. Itölsk
dagblöð greindu nefnilega frá því í
gær að í yfirlýsingu Rauðu her-
deildanna hafi verið að finna
skírskotun til átakanna á Balkan-
skaga.
Sagði þar að árásir NATO væru
í samræmi við stefnu sem NATO
og Evrópuríkin hefðu mótað fyrr á
þessum áratug en samkvæmt
henni ætti því leynt og Ijóst að
brjóta upp júgóslavneska ríkja-
sambandið. Tilgangur loftárásanna
væri að „færa fátækt yfir Serbíu og
AP
ÞETTA veggjakrot í miðborg
Rómar í gær lýsir ótta ítala um
að ný öld pólitískra hryðju-
verka sé að hefjast í landinu.
Moro, er nú laus úr fangelsi en
sagði í gær að atburðurinn í fyrra-
dag hefði verið sér mikið áfall. „Eg
er reið og trúi þessu varla... hin
vopnaða barátta má ekki eiga aft-
urkvæmt", sagði hún í samtali við
La Repubblica.
En hverjir svo sem morðingjar
D’Antonas eru þá rifjuðu atburðir
fimmtudagsins upp tíma sem ítalir
gjanian vilja gleyma. Jafnframt er
ljóst að ítölsk stjórnvöld ætla ekki
að leyfa skálmöld að ganga í garð á
Italíu án þess að hreyfa mótmæl-
um. „Rauðu herdeildirnar þurfa að
vita að við réðum niðurlögum
þeirra einu sinni og við munum
vinna sigur á þeim á nýjan leik ef
þær reyna aðför að ítölsku lýðræði
og stofnunum þess,“ sagði Walter
Veltroni, yfirmaður Vinstri
demókrata, stærsta stjórnmála-
aflsins í ítölsku samsteypustjóm-
inni.
þvinga upp á Serba yfirráð heims-
valdasinna".
Rauðu herdeildirnar urðu fræg-
ar að endemi seinnipart áttunda
áratugarins þegar þær stóðu fyrir
fjölda pólitískra hryðjuverka á
Italíu, þeirra þekktast ránið og
morðið á Aldo Mpro, fyrrverandi
forsætisráðherra Italíu. Lögreglu
tókst reyndar á sínum tíma að
handsama flesta liðsmenn her-
deildanna, sem mótað höfðu rót-
tækar skoðanir sínar þegar á mót-
mælaaðgerðum námsmanna stóð
seint á sjöunda áratugnum, og talið
var að tekist hefði að ráða niður-
lögum Rauðu herdeildanna.
Flestir enn í fangelsi
Staðreyndin er sú að flestir liðs-
manna sveitanna sitja enn í fang-
elsi og ítalska lögreglan sagði í gær
að þeir sem lýstu ábyrgð á ódæð-
inu í fyrradag á hendur sér í nafni
Rauðu herdeildanna ættu að öllum
líkindum h'til eða engin tengsl við
hópinn sem lét að sér kveða fyrir
og eftir 1980. Adriana Faranda, ein
þeirra sem stóð að ráninu á Aldo
I3ICMIEGA
E-vítamín
I VÍTAM fN
■s
-a
Sindurvari sem verndar
frumuhimnur líkamans.
Fæst í næsta apóteki.
O
Omega Farma
Ég sendi öllum þeim, sem glöddu mig og
fögnuðu með mér áttrœðisafmœli mínu í
Elliðaárdal þann 14. maí 1999, mínar bestu
þakkir.
Matthildur S. Maríasdóttir.
förd á Suðurlandi
skammt frá Reykjavík til sölu.
Kindakvóti getur fylgt. Er laus nú þegar.
Lysthafendur leggi inn nafn, heimilisfang og síma-
númer á afgreiöslu Mbl., merkt: „Jörð — 8076“.
(£
Mataróregla
Ertu með mat á heilanum?
Sl
Haldið verður 5 vikna námskeið fyrir bulimiur og fólk með ofátsvandamál.
Einnig er stuðningshópur fyrir bulimiur. Einkaviðtöl. Stuðst er við
12 spora kerfið. Nýtt námskeið að hefjast. Upplýsingar eru gefnar í síma
552 3132. Fáein laus pláss.
Inga Bjarnason.
Falls Suhartos minnst með mótmælum
Lögregla tvístr-
ar námsmönnum
Jakarta. Reuters.
INDÓNESÍSKIR hermenn skutu
viðvörunarskotum upp í loftið og
beittu táragasi til að dreifa náms-
mönnum, sem reyndu að ráðast inn
í þinghúsið í Jakarta á mótmæla-
göngu í gær í tilefni þess að ár er
liðið frá því Suharto forseti sagði af
sér.
Þetta eru mestu átökin sem orð-
ið hafa í indónesísku höfuðborg-
inni í þrjá mánuði og margir óttast
að mannskæðar óeirðir blossi upp
í landinu fyrir þingkosningarnar
sem ráðgerðar eru 7. næsta mán-
aðar.
Um 3.000 námsmenn voru við
þinghúsið og söfnuðust þar aftur
saman eftir að hermennirnir skutu
viðvörunarskotunum. Að minnsta
kosti þrír lögreglumenn og nokkrir
námsmenn særðust í átökunum.
Námsmennimir hættu mótmælun-
um síðar um daginn.
Suharto sagði af sér fyrir ári
vegna mótmælaaðgerða náms-
manna og stuðningsmanna þeirra
víða um landið í kjölfar mestu efna-
hagskreppu Indónesíu í marga ára-
tugi. Hartnær 1.200 manns biðu
bana í óeirðum í höfuðborginni
einni.
Tugþúsundir námsmanna lögðu
þinghúsið undir sig fyrir rúmu ári
til að krefjast afsagnar Suhartos og
mótmælunum linnti ekki fyrr en
hann varð við kröfunni.
Reyndu að ráðast
inn í hús forsetans
Um hundrað námsmenn reyndu
einnig í gær að ráðast inn á heimili
eftirmanns Suhartos, B.J. Habibie,
en tugir lögreglumanna stöðvuðu
þá. Habibie var ekki í húsinu.
Efnt var til mótmæla víðar í
Indónesíu og lögreglumenn beittu
bareflum á um 300 námsmenn sem
reyndu að ráðast inn í útvarpsstöð í
borginni Bandung. Þeir sögðu að
námsmennirnir hefðu reynt að út-
varpa kröfum sínum um að Suharto
yrði sóttur til saka fyrir spillingu.
Um 2.000 námsmenn gengu
einnig að ýmsum opinberum bygg-
ingum í Surabaya, næststærstu
borg landsins.
ARSFUNDUR
verður haldinn þriðjudaginn 25. maí 1999 kl. 17:15, A sal Hótcl Sögu
LÍFEYRISSJÓÐUR LÆKNA
Kirkjusandui; 155 Reykjavík
Sími: 56Q 8970. Myndsendir: 560 8910
Dagskrá:
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Onnur mál.
Tillögur til breytinga á samþykktum liggja frammi á skrifstofu
sjóðsins og geta sjóðfélagar nálgast þær þar eða fengið þær sendar í
pósti. Einnig er hægt að nálgast samþykktirnar á vefnum á slóðinni
www.vib.is undir lífeyrismál.
Sjóðfélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn!
Að fundi loknum verður boðið upp á léttan kvöldverð.
REKSTRARAÐILI:
VÍB • Kirkjusandi, 155 Reykjavík • sími: 560-8900 • myndsendir: 560-8910
netfang: vib@vib.is • veffang: www.vib.is