Morgunblaðið - 22.05.1999, Side 57

Morgunblaðið - 22.05.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 57 KRISTJAN JULIUS GUÐMUNDSSON + Kris(ján Júlíus fæddist 28. sept- ember 1911. Hann lést á St. Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi 12. maí sl. Foreldrar Krist- jáns voru Guðmund- ur Krislján Jensson, f. 20. desember 1858, d. 21. apríl 1932, bóndi á Brekku í Þingeyr- arhreppi, og Jóm'na Jónsdóttir, f. 14. desember 1864, d. 25. febrúar 1938. Krislján var yngstur af tíu systkinum og eru þau öll látin. Eftirlifandi eiginkona Krist- jáns er Auður Júlíusdóttir fædd 24. nóvember 1919. Börn þeirra eru: 1) Gísli Guðmundur fæddur Kristján Júlíus Guðmundsson var fyrst og fremst þekktur sem sldpasmiður. Hann vann við þá iðngrein sína meðan ki'aftar entust og síðustu starfsárin einkum við smíði minni báta. Hans besti tími sem skipasmiðs var áður en plast- bátamir tóku við af tréskipunum, sem Kristján þekkti best og kunni tökin á. Og hann var skipasmiður af hjartans list og handtök hans við smíðamar vom traust og ör- ugg. Hann stundaði einnig brúar- smíði og byggingarvinnu meðfram skipasmíðunum. Þegar ég kynntist Kristjáni var hann kominn af léttasta skeiði. Hann vann engu að síður hörðum höndum við bátasmíði í húsinu sem hann hafði byggt við Slippinn í Stykkishólmi yfír starfsemi sína. Meðal vina og kunningja var hann mjög tengdur Slippnum og jafnan kallaður Stjáni slipp. Undir því nafni var hann þekktur við Breiðafjörðinn sem traustur skipasmiður. Útvegsmenn kunnu vel að meta viðskiptin við hann og hann átti marga góða vini í hópi þeirra sem beindu viðskiptum sín- um til hans. Fyrstu kynni mín af Kristjáni vom þá er hann var með vinnu- flokk í byggingarvinnu við Félags- heimið að Lýsuhóh á vegum frænda míns, oddvitans í Staðar- sveit. Fór mjög orð af þeirri vösku sveit sem þar var að verki undir stjóm Kristjáns. Þegar ég kynntist 21. apríl 1942, d. desember 1993, maki Þóra Magnea Halldórsdóttir. 2) Erlar Jón fæddur 26. júní 1947, ókvæntur. 3) Jónína Kristín fædd 6. des- ember 1948, maki Bernt Hreiðar Sig- urðsson, 4) Kristján Júlíus, fæddur 9. september 1955, maki Svandís Ein- arsdóttir. Krislján lauk námi í skipasmíðum á Akureyri 1943 og vann þar í tvö ár eftir nám, flutti síðan til Stykkishólms 1945 þar sem hann starfaði og bjó síðan. títför Kristjáns fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15. honum síðar nánar í Sfykkishólmi kom mér fátt á óvart í fari hans. Hann var ekki allra og lítt gefinn fyrir hátíðleika hvað þá formleg- heit þegar hann gekk á minn fund eða annarra embættismanna. Við Kristján urðum góðir vinir í gegn- um þau samskipti sem við áttum og voru þau samt ekki öll mjög einföld því hann vildi hafa frelsi og olnbog- rými við Slippinn þar sem starfs- vettvangur hans hafði verið. Sam- skipti okkar vörðuðu þrætur um lóðamörk, einnig Slippinn sem bærinn átti og Rristján hafði ákveðna skoðun á hvemig ætti að nýta, um eignarlóðir og frágang gatna og garða. A öllu var fundin lausn í sátt og Kristján taldi þörf á því að innsigla samninga með öðru en kaffí. Og honum fannst embætt- ismaðurinn fullmikið fyrir kafS- drykkjuna eina og hæddist að öllu saman á sinn hátt. Eins og fyrr sagði var Kristján ekki allra og hann gat verið fastur fyrir ef hon- um þótti á rétt sinn gengið og trú- lega hefur hann í sínum umsvifum verið á stundum lítið auðsveipur þeim sem næst honum stóðu. En hann var vinur vina sinna og naut ég þess. Eg vil votta eftirlifandi eigin- konu Kristjáns, Auði Júlíusdóttur, og fjölskyldu þeirra samúð og heiðra minningu Kristjáns og minnast hans að leiðarlokum með þakklæti. Sturla Böðvarsson. GUÐMUNDUR SIGURBJÖRNSSON Guðmundur Sigurbjömsson fæddist á Akureyri 22. maí 1949. Hann lést á heimili sínu 7. júlí 1998 og fór út- för hans fram frá Akureyrarkirkju 16. júlí 1998. Elsku pabbi minn. Mig langar að skrifa nokkur orð til þín hér niður á blað, vegna þess að í dag er af- mælisdagur þinn og þú hefðir orðið fímmtugur, ég gat ekki gert það þegar þú lést 7. júlí sl. Þú varst nú búinn að ákveða að halda stóra og skemmtilega fímm- tugsafmælisveislu í dag, 22. maí. Skyndilega veiktist þú þann 28. janúar 1998 af þessum alvarlega sjúkdómi, krabbameini, og lifðir ekki nema í fimm mánuði eftir það. En dagurinn í dag lifír samt í hjörtum okkar fjölskyldunnar, við munum minnast þín með miklum söknuði en góðum minningum. Ég trúði ekki að þú gætir farið svona fljótt frá okkur, þú vars svo yndis- legur, hjartahlýr mað- ur og klár. Þú gast nánast veitt manni hvaða hjálp sem var, hvort sem það var lær- dómurinn eða eitthvað annað. Ég hugsa oft með sjálfri mér hvort þú sért virkilega farinn frá okkur. Þetta er svo skrítið, þegar maður kemur heim þá er enginn pabbi til að tala við, eða heyra rödd þína þegar þú komst heim úr vinnunni og kallað- ir hæ! Þú tókst svo oft utan um mig og sagðir mér hvað þér þætti vænt um mig, einu dótturina. Þetta eru ljúf- ar minningar, ég gæti haidið hér endalaust áfram að skrifa um góðu kostina þína en það var ekki þinn stíll að halda slíku á lofti. Ég trúi því að við eigum eftir að hittast seinna, pabbi minn. Guð varðveitir þig og geymir. Ástarþakkir fyrir allt. Þín dóttir Klara Guðmundsdóttir. í dag, 22. maí, verður vinur minn, Kristján J. Guðmundsson, eða Stjáni Slipp, eins og hann oft- ast var kallaður, jarðsunginn frá Sfykkishólmskirkju. Ég átti því láni að fagna að kynnast Kristjáni í ársbyrjun 1976, er ég tók við framkvæmnda- stjóm Bátatryggingar Breiða- fjarðar. Átti ég upp frá því mikið og mjög gott samstarf við Krist- ján. Segja má að Kristján hafi leitt mig inn í starfið með allri sinni þekkingu á skipum, búnaði þeirra og byggingu. Við Kristján unnum því mikið saman við að skoða og meta báta hér á árum áður og voru því samfara margar ferðir famar. Við þessi störf naut ég þekkingar og kunnáttu Kristjáns sem seint verður til fulls þakkað. Það er svo ótal margt sem kem- ur upp í huga minn þegar ég sest niður og ætla að koma nokkmm minnispunktum á blað um þennan vin minn, að það verður vandi úr að velja. En svo er líka hitt, að sumt eigum við bara tveir. Við Kristján áttum ótal aðrar stundir saman en bara við störf. Á meðan þrek og heilsa entist var farið í eins og einn veiðitúr á ári. Má þar nefna í Miðfjörðinn, Laxá í Dölum, til Samúels í Djúpadal og svo að sjálfsögðu í Skoravíkurá á Fellsströnd. Allar þessar ferðir veittu okkur báðum mikla ánægju. Það var útiveran, puðið og svo ekki síst að glíma við fiskinn. Kristján var mikið fyrir að veiða hvort held- ur var á stöng eða með byssu, enda mikill veiðimaður og hafði hann alveg sérstakt lag á að renna fyrir fisk þar sem mér var ómögu- legt að fá fisk. Kristján var mikill grínisti og hafði margar góðar sögur að sega enda var ávalit glens og gaman á góðum dögum með honum. Nú skilja leiðir að sinni og er mér þá efst í huga hjartans þökk fyrir það að hafa fengið að ganga veginn um stund með þér og þökk fyrir sérlega góð kynni. Ég vil votta öllum aðstandend- um samúð mína. Guð blessi minn- ingu um góðan mann. Gissur. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- hngur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsam- legast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tah eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu. Um hvern látinn einstakhng birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakhng takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skfrnamöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. GUÐLEIF JÓNSDÓTTIR + Guðleif Jóns- dóttir fæddist að Lundum í Staf- holtstungum 5. febrúar 1908. Hún lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi 15. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Ingi- gerður Kristjáns- dóttir, f. 27. ágúst 1877, d. 12. janúar 1969, og Jón Gunn- arsson, f. 3. ágúst 1877, d. 30.júlí 1960. Systkini Guð- leifar eru Krislján, f. 30.11. 1901, d. 11.2. 1978, Sæmundur, f. 7.9.1904, Páll, f. 20.6. 1909, d. 27.5. 1985, Gunnar, f. 2.4. 1913, og Gunnhildur, f. 2.2.1918. f september 1932 giftist Guð- leif Ólafi Þórðarsyni járnsmið, f. 2. nóvember 1898, d. 31. ágúst 1963. Þau hófu búskap sinn í Reykjavík, en fluttu í Borgarnes 1935 þar sem þau Hugurinn rennur til baka þó tím- inn renni fram. Leifa frænka er dá- in. Hin eina sanna Leifa frænka. Þessi fasti punktur í tilvemnni. Frá því hún fluttist hingað til Borgar- ness, ásamt eiginmanni sínum Olafi Þórðarsjmi, járnsmið, og dótturinni Ásu. Þau vora þá búin að búa í Reykjavík í fáein ár. Óh hafði keypt hér jámsmiðju sem hann vann svo við allt til dauðadags. Þessi ágætu hjón bjuggu allan sinn búskap héma í Borgarnesi í húsi sínu að Egilsgötu 6 en það hús byggðu þau eftir að þau settust hér að. I kringum þetta ágæta fóík var alla tíð mildll gestagangur. Þá kom ferðafólk með áætlunarbílum sem síðan tengdust skipsferðum. Hversu oft var eldhúsið hennar Leifu ekki þétt setið af fólki sem var að koma eða fara í sveitina eða til Reykjavíkur. Allt þótti þetta sjálf- sagður hlutur. Hún lagði mikla vinnu í sínar rómuðu kökur og kaffí eða matarveitingamar. Það var al- veg einstakt. Eg var ein af þeim lánsömu ein- stakhngum sem kynntist vel þessu góða fólki. Það þótti svo sjálfsagt þegar ég fór að vinna í Kaupfélag- inu að ég kæmi í kaffi til Leifu og Óla og í vondum veðram þá skyldi ég koma í mat líka. Allt þótti þetta svo sjálfsagt. Þó gat ég aldrei þakk- að þér alla þá hjálp sem þú veittir mér og mínu heimili þegar hér fæddust tvíburar og þú komst eins og engill með þínar hjálparhendur og liðsinntir þessum krílum og stærri drengjunum líka. Ávallt sýndir þú mér og mínu fólki áhuga og fylgdist með öllum fjölskyldu- meðlimunum og var það dæmi um trygglyndi þitt og góðvild. Að leiðarlokum þökkum við þér öll í fjölskyldunni samfylgdina og tryggðina í okkar garð og ástvinum sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Ása Sveins og fjölskylda. Látin er í Borgamesi heiðurskon- an Guðleif Jónsdóttir. Guðleif var gift föðurbróður mínum, Ólafi Þórð- arsyni jámsmið í Borgamesi, sem margh' muna eftir en hann lést árið 1963. Heimili þeirra Ólafs og Guð- leifar var rómað myndarheimili. Gestkvæmt var oft þegar Laxfoss kom í Borgames og margir heim- sóttu þau hjón þar, enda ekki í kot vísað þar sem Guðleif stóð fyrir veitingum af miklum myndarbrag. Sem bam dvaldi ég oft á heimili þeirra hjóna yfir sumartímann, þá var einkadóttir þein-a fædd og var hún mikill sólargeisli á heimihnu. Ég vil nú þakka Guðleifu fyrir mig, og þar sem ég eldist eins og annað fólk veit ég að ég á oft eftir að hugsa með ánægju um þann góða og skemmtilega tíma sem ég átti með þessari fjölskyldu á heimili þeirra. reistu sér hús að Egilsgötu 6 þar sem Ólafur rak járn- smiðju allt til ævi- loka. Þar bjó Guð- leif þangað til fyrir rúmum tveimur ár- um að hún flutti á Dvalarheimili aldr- aðra í Borgarnesi. Guðleif og Ólafur eignuðust eina dótt- ur, Ásu, f. 5.10. 1933, gift Kristjáni Ólafssyni, f. 9.5. 1928. Dóttir þeirra er Ólöf, f. 3.7. 1964. Hennar sonur er Kristján Andri, f. 18.6. 1996. Dóttir Asu og Guðmundar Þórðarsonar er Sigrún, f. 21.8.1951, gift Sigur- jóni Ólafssyni, f. 29.5. 1948. Dætur þeirra eru Svandís Ása, f. 16.3. 1971, og Sandra Björg, f. 18.3. 1985. títför Guðleifar fer fram frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ásu og hennar fjölskyldu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Þóra Guðjónsdóttir. Elsku amma mín. Það er komið að kveðjustund, þú ert búin að fá hvfldina sem þú þráðir svo mikið. Það var á mánudaginn síðasta sem mamma hringdi í mig og sagði að þú værir orðin veik. Leiðin milli Blönduóss og Borgamess hefur aldrei verið eins löng og þá, en þeg- ar ég var komin til þín áttum við góða samverastund og gátum rætt ýmislegt. Aðallega þurftir þú að koma kveðjum og skilaboðum til vina og ættingja og þar sem ég sat hjá þér um nóttina komu margar góðar minningar upp í hugann. Á þriðjudag var mjög af þér dregið og lítið hægt að tala við þig, það virtist á tímabih sem þú værir komin aftur í rúmið þitt á Egilsgötunni og að við væram þar tvær saman eins og við voram eftir að afi dó. Að alast upp hjá þér og afa var mjög gott, en hjá ykkur bjuggum við mamma þar til í júní 1963 og ég var svo komin aftur til þín í september eftir að afi dó. Það var alltaf mjög kært á milli okkar, elsku amma mín, og margar samverustundir koma upp í hugann, til dæmis ferðimar upp á Kolásinn á berjamó, þá fóram við með nesti og tíndum ber allan daginn. Það var alltaf mikill gestagangur hjá ykkur afa, ég held að það hafi verið í færri skipti sem við sátum bara fjögur við eldhúsborðið en það var þitt stolt að taka vel og rausnarlega á móti gest- um og alltaf varst þú tilbúin að hjálpa ef leitað var til þín. Eftir að ég fór að búa á Blönduósi þurftir þú að fylgjast vel með öllu hjá okkur Sigurjóni og stelpunum okkar. Við töluðum saman oft í viku og gátum rætt um alla hluti. Lengi vel komst þú heimsókn til okkar en síðustu árin treystir þú þér ekki til þess. Þann 2. maí var Sandra fermd. Við töluðum oft saman því þú vildir fylgjast vel með öllu og baðst mig um að passa að hafa nóg af öllu. Það var þinn helsti eiginleiki að miðla og gefa. Elsku amma mín, ég þakka þér kærlega fyrir allar samverastund- imar, þín verður sárt saknað og við biðjum góðan guð að geyma þig og varðveita. Þín, Sigrún. Elsku langamma. Okkar innileg- ustu þakkir skaltu fá fyrir allt sem þú hefur kennt okkur og fyrir allan þann stuðning sem þú hefur veitt okkur systram í hfinu. Við höfum verið lánsamar að hafa þig svona lengi hjá okkur og minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar. Vertu sæl, elsku amma. Svandís og Sandra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.