Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Jón Birgir
Skarphéðinsson
fæddist í Reykjavík 1.
nóvember 1938.
Hann andaðist á
heimili sínu að
morgni 14. júm' sl.
Foreldrar hans voru
Skarphéðinn Þórðar-
son, vörubifreiðar-
stjóri á Þrótti, f. 6.
mars 1913, d. 2. febr-
úar 1952, og Gerd
Jónsdóttir, f. 28. aprfl
' 1917, d. 20. júnf 1982.
Hinn 10. apríl 1968
kvæntist Jón Sonju
Helene Thorstensen
f. 9. maí 1938. Hún er dóttir hjón-
anna Triggve Daníel Thorstensen
prentara f. 11. október 1914, d.
25. nóvember 1986 og Önnu Svan-
laugsdóttur ráðskonu f. 8. júm'
1918, d. 11. febrúar 1996. Jón og
Sonja eignuðust tvær dætur. 1)
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauúans nótt.
Erlu, f. 11. september
1968, sambýlismaður
Ásbjörn Amarsson.
2) Birgittu, f. 30. jan-
úar 1972. Dóttir
Sonju af fyrra hjóna-
bandi er Elísabet
Anna Cochran, f. 25.
nóvember 1959, sam-
býlismaður Jón Örn
Valsson. Böm Elísa-
betar em: 1) Iris
Cochran, f. 10. maí
1986. 2) Daníel
Cochran, f. 13. febni-
ar 1989. Að loknu
skyldunámi vann Jón
algenga verka-
mannavinnu fram til ársins 1955
er hann hóf störf sem bflstjóri á
Vörubflastöðinni Þrótti. Þar starf-
aði hann þar til hann lést.
títför Jóns Birgis fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að stólja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
(V. Briem)
Áfallið kom í maí í fyrra er þú
greindist með illkynja æxli. Þetta
var mikið reiðarslag fyrir okkur
fjölskylduna þar sem þú hafðir
ávallt verið mjög heilsuhraustur.
Ekki reyndst unnt að fjarlægja
æxlið með skurðaðgerð svo við tók
löng og ströng meðferð á Landspít-
alanum. Þú áttir mjög erfítt með að
sætta þig við að geta ekki stundað
þína vinnu eins og þú hafðir gert
fram til þessa. En innst inni slokkn-
aði aldrei sú von að dag einn gætir
þú sest aftur upp í bflinn, sem þú
hafðir keyrt síðastliðin 44 ár, og
haldið af stað til vinnu. Oftar en
einu sinni komum við að þér þar
sem þú stóðst við eldhúsgluggann
heima og horfðir stoltur á bflinn
sem stóð nú óhreyfður úti á plani.
Og það var yndislegt að fylgjast
með þér þegar Ási var að hjálpa þér
að hlaða rafmagni á bflinn og ræsa
hann. Þú ljómaðir allur, en erfitt
var fyrir þig að geta aðeins ræst bfl-
inn en ekki ekið honum. Þú varst
ætíð mjög þögull og það gat verið
erfítt að skynja hverjar tilfinningar
þínar voru og hugsanir. En aldrei
efuðumst við um tilfinningar þínar
þegar um ást eða væntumþykju í
okkar garð var að ræða. Þú einfald-
lega sýndir það frekar í verki en
með orðum. Þó orðin væri fá gátum
við ávallt leitað til þín og reyndir þú
þá alltaf að hjálpa okkur ef þú
mögulega gast. Jólin voru sérstak-
JON BIRGIR
SKARPHÉÐINSSON
SUMARFERÐIR '99
FERÐAHANDBÓK
Sunnudaginn 4. júlí nk. mun
Morgunblaðið gefa út 52 síðna
ferðahandbók í þægilegu og
handhægu broti, smáformi.
f handbókinni er að finna áhugaverð-
ar upplýsingar fyrir íslenska ferðalanga
og til nánari glöggvunar verður birt
stórt (slandskort þar sem vísað er á
upplýsinga- og þjónustumiðstöðvar
á landsbyggðinni. Einnig verður fjallað
um ýmsar skemmtanir og menningar-
viðburði sem eiga sér stað um land
allt í sumar.
Meðal efnis:
• Ferðir • Gisting • Siglingar • Hestaferðir • Jöklaferðir • Bátaferðir • Gönguferðir • Tjaldsvæði
• Sundstaðir • Fuglaskoðun • Hvalaskoðun • Krossgátur • O.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 fimmtudaginn 24. júní
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 11 11.
fR«i>rí0iunMaí>tí> !
AUGLÝSINGADEILD s
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is 1
Dreifing í rúmlega 60.000 eintökum.
Áskrifendur Morgunblaðsins fá ferðahandbókina með Morgunblaðinu en auk þess verður henni dreift á
helstu lausasölustaði og upplýsingamiðstöðvar um land allt þar sem hún mun liggja frammi.
lega erfiður tími fyrir okkur öll. Þú
lást á Landspítalanum en fékkst að
fara heim yfir hátíðimar þótt þú
værir mjög veikur. Það var búið að
búa okkur undir að kallið gæti kom-
ið þá og þegar. En öllum til mikillar
furðu náðir þú að rífa þig upp og
fyrr en varði varstu kominn heim.
Þú varst mikið einn heima meðan
mamma og við hin vomm að vinna.
En þér fannst það allt í lagi því þú
áttir alltaf erfitt með að þiggja hjálp
frá öðram og vera uppá aðra kom-
inn. Enda varstu mjög stoltur mað-
ur. Þú hafðir aldrei þurft að treysta
á aðra og þú kvartaðir aldrei, svo
oftast var erfitt að átta sig á hvort
þú værir kvalinn eða þér liði illa.
Allt hafði gengið að óskum þar til
síðustu þrjár vikurnar í lífí þínu. En
þá hrakaði þér ört og allt var á nið-
urleið. Tvisvar varstu lagður inn á
Landspítalann á þessum tíma.
Núna varstu farinn að viðurkenna
fyrir öðrum en okkur að þetta væru
líklega endalokin. Þú fannst að lík-
aminn var að gefast upp og þráðir
frið. En aldrei vildir þú ræða neitt
þessu líkt yið okkur systurnar. Þú
varst orðinn svo veikur og svo aum-
ur að þér fannst erfitt að við þyrft-
um að horfa upp á þetta. Þú áttir
alltaf erfitt með að viðurkenna sjúk-
dóminn fyrir okkur og reyndir alltaf
að hlífa okkur eftir fremsta megni.
Það hlýtur að hafa verið erfitt að
geta ekki tjáð tilfinningar sínar á
svona stundu við sína nánustu. En
við skiljum að þú vildir okkur aðeins
vel.
Síðasta daginn þinn hjá okkur sá-
um við hversu ört þér hafði hrakað,
þótt þú hafðir alltaf verið rólfær
varstu orðinn mjög kraftlaus og
vannærður þar sem þú varst hættur
að nærast almennilega. En það var
alltaf svo mikill dagamunur á þér að
við áttum alveg von á að þú næðir
að rífa þig upp aftur eins og þú
hafðir gert áður. Þannig að þegar
kallið kom þarna um morguninn
vomm við alls ekki tilbúnar til þess
að kveðja. Þetta hafði gerst eitthvað
svo snöggt og erfitt var að sætta sig
við að nú væri þessu lokið eins og
slökkt hefði verið á kerti. Tilfinn-
ingar okkar vom mjög blendnar.
Það var auðvitað best fyrir þig að
þessu væri lokið en alltaf er erfítt
að horfa á eftir ástvinum sínum,
sama hversu undirbúinn maður er.
Við þökkum Guði fyrir að þú þurftir
ekki að kveljast lengur. Þú einfald-
lega leiðst hægt og rólega út af eins
og þú værir bara að fara að sofa.
Við emm líka mjög þakklátar fyrir
að þú hafir fengið að fara heima
eins og þú hafðir alltaf óskað þér.
Það var svo mikill friður yfir þér
þar sem þú lást í rúminu þínu, með
kerti og biblíuna á náttborinu. Það
var yndislegt að hafa þig heima hjá
okkur og geta kvatt þig í friði og ró.
Við héldum litla bænastund með
þér sem var alveg ómetanleg stund
fyrir okkur. Stund sem aldrei mun
líða okkur úr minni.
Elsku besti pabbi okkar. Við
söknum þín sárt og megi Guð varð-
veita þig um tíð og tíma.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þínar dætur
Erla og Birgitta.
ELÍSABET
LÚÐVÍKSDÓTTIR
+ Elísabet Lúð-
víksdóttir (fædd
Betty Lau) fæddist í
Rostock í Þýska-
landi 26. september
1917. Hún lést 25.
maí síðastliðinn og
fór útför hennar
fram í kyrrþey.
Elsku amma, nú er
komið að kveðjustund
og langar mig í
nokkrum orðum að
þakka þér fyrir þær
skemmtilegu samvem-
stundir sem ég átti með þér. Það
var alltaf mikið fjör í kringum þig
og alltaf fékk maður að heyra hjá
þér fyndnar sögur af sjálfri þér þeg-
ar þú varst yngri. Það fengu allir að
heyra þessar skemmtilegu sögur og
varst þú í miklu uppáhaldi hjá mín-
um vinum.
Eg á eina skemmtilega minningu
frá því að ég var á fyrsta ári í Flens-
borg. Minn vinahópur hafði tvístr-
ast eftir Öldutúnsskóla og völdu
flestir að fara í MR. Eitt haustið
þegar mamma og
pabbi fóru til Spánar
komst þú að passa okk-
ur Jón Pál eins og vant
var. Gunni og Maggi
komu í heimsókn og
montuðu sig yfir því að
vera að læra þýsk ljóð í
þýskutímum í MR. Þér
fannst það mjög
áhugavert og byrjaðir
að syngja hástöfum
ljóðið sem þeir vom að
læra eða Lorelei.
Þetta er bara ein af
mörgum hressilegum
minningum um þig og hefði verið
gaman að hafa þig lengur með okk-
ur en ekki er lífið alltaf sanngjamt.
Eg veit samt að vinir þínir þarna
uppi eiga eftir að njóta náveru þinn-
ar og hafa gaman af því að vera með
þér.
Hagaðu þér nú samt vel (eins og
mamma mundi segja) og við hitt-
umst aftur seinna. Ég hlakka til
þess.
Þín
Ásdís.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HALLDÓRSSON
skipstjóri,
er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði laug-
ardaginn 19. júní, verður jarðsunginn frá Isa-
fjarðarkirkju laugardaginn 26. júní kl. 14.00.
Hugljúf Ólafsdóttir, Jón Steingrímsson,
Margrét Ólafsdóttir, Brynjólfur Bjarnason,
Hrólfur Ólafsson, Kristín Júlíusdóttir,
Halldór Friðgeir Ólafsson, Vilborg Jónudóttir,
Einar Ólafsson, Guðrún Helga Jónasdóttir,
Ásgerður Ólafsdóttir,
Elín Ólafsdóttir,
Jóhanna Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.