Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 55
FÓLK í FRÉTTUM
Stutt
Engar frétta-
konur, takk!
NORSKA fótboltaliðið Rosenborg
Trondheim hefur ákveðið að banna
fréttakonur í búningsklefum leik-
manna því þeir vilja ekki að konur
sjái sig nakta eftir leiki. Norska
Dagbladet segir að á fóstudag hafi
blaðakonunni Main By Rise verið
meinaður aðgangur að búningsklef-
um piltanna þar sem öllum frétta-
mönnum hefur til þessa verið frjáls
aðgangur. „Málið er að við viljum
ekki kvenkyns fréttamenn í búnings-
klefunum," sagði Jahn Ivar Jakob-
sen fyrirliði. „Ég er giftur og eina
konan sem fær að sjá mig nakinn er
eiginkona mín, Anita. Dagbladet
verður að senda karlmann." Næst-
um allir fréttamenn sem fjalla um
liðið eru karlmenn. Mari By Rise
hafði þetta að segja um málið: „Þeg-
ar ég er í búningsklefa liðsins að
vinna hef ég hvorki tíma né löngun
til að athuga hvernig strákarnir líta
út naktir.“
Risavaxinn
ránfiskur
TÁNINGUR í Texas kom heim
með óvenjulegan afla um daginn
er hann veiddi 27 sentímetra
langan piranha-fisk. Quinton
Crocker dró að landi hinn tann-
hvassa ránfisk í Stillhouse-stöðu-
vatninu nálægt bænum Killeen
en piranha-fiskar finnast aðal-
Iega í Suður-Ameríku. „Ég hef
búið hór allt mitt líf og aldrei séð
neitt þessu líkt,“ sagði hinn 15
ára veiðimaður. Bæjaryfirvöld
teþ’a að fisknum hafi verið sleppt
í vatnið eftir að hann varð of stór
til að vera í venjulegu fiskabúri.
Þeir telja að vel geti verið að
fleiri fiskar sem þessi finnist í
vatninu en að þeir muni ekki lifa
af næsta vetur. „Hvort að fisk-
arnir séu hættulegir sundfólki?
Nei, það held ég ekki,“ sagði
Norman Williams, dýrafræðingur
frá háskólanum í Texas. „Sögur
um að piranha-fiskar ráðist á
menn eru mjög svo ýktar.“
Áttavilltur
hermaður
BRESKUR hermaður á vegum
NATO villtist á jeppanum sínum er
hann var á leið inn í Kosovo. Hann
endaði í Aþenu eftir að hafa keyrt alla
nóttina. Hermaðurinn missti af hópn-
um sínum á fimmtudag við grísku
hafnarborgina Þessalóniku. Svo virð-
ist sem hann hafi farið á aðalhrað-
braut Grikklands í stað þess að aka í
norður með landamærum Makedón-
íu. Hann ók töluverða vegalengd áður
en hann kom í dögun til Aþenu. Kona
segir að hermaðurinn hafi spurt hana
til vegar og verið að leita að Skopje,
höfuðborg Makedóníu, sem var þá í
um 700 km fjarlægð. Lögreglan kom
honum á rétta leið að nýju.
Kvendjöfull
á tónleikum
PRESTURINN Jerry Falwell
heldur áfram að gera öllum í
skemmtanaiðnaðinum lffið leitt.
Nú varar hann foreldra við að
leyfa börnum sínum að fara á
tónleika því þeir beri nafn kven-
^jöfuls. Kanadíska söngkonan
Sarah McLachlan fékk hugmynd-
ina af „Lilith Fair“-tónleikunum.
Asamt henni munu söngkonurn-
ar Sheryl Crow, Suzanne Vega,
The Dixie Chicks og fleiri ferðast
um Norður-Ameríku og halda
tónleika. „Margir munu eflaust
fara á tónleikana án þess að vita
hver djöfulleg áhrif þeirra
verða,“ sagði J.M. Smith, banda-
maður Jerrys. Samkvæmt forn-
um þjóðsögum gyðinga var Lilith
fyrsta kona jarðar. Hún vildi
standa jafnfætis Adam þar sem
hún var búin til af jörðu líkt og
hann. Henni var síðar hent út úr
paradís er hún vildi ekki hlýðn-
ast manni sínum.
HELGA Halldórsdóttir, Þorsteinn Stefánsson,
Guðrún Fjeldsted og Dídí Jónsdóttir.
Kvennareið frá Borgarnesi
HVORKI fleiri né færri en 59
konur frá Borgarnesi og ná-
grenni auk nokkurra kvenna
frá Hvanneyri tóku þátt í
kvennareið þann 12. júni síðast-
liðinn.
Lagt var af stað frá Borgar-
nesi og riðið inn að Faxaborg
þar sem kvennanna beið grill-
veisla og var sungið og dansað
við harmonikkuleik Iengi fram-
eftir.
Kvennareið þessi hefur verið
árlegur viðburður síðastliðin
12 ár og að sögn Guðrúnar
Fjeldsted gekk hún sérlega
vel í þetta sinn, veðrið var milt
og var þátttakan og stemmn-
ingin góð.
IDA Sigurðardóttir og Kristín
Jónsdóttir sem báðar starfa á
bæjarskrifstofu Borgarbyggðar.
BRJÁLAÐ KRINGLUKAST
23.-26. júnf
Buxur hvítar, gráar, svartar
JhwrfrSSfr nú aðeins 3.990
„Quart“ buxur
Mnú aðeins 2.990
Leður „look“jakkar
Jhwb8r99fí nú aðeins 4.990
Hörskyrtur
nú aðeins 3.990
Hörkjólar
nú aðeins 4.990
Hlýrabolir margir litir
Jhw^hfflí nú aðeins 790
o.fl. o.fl. frábær tilboð
'Or^s-.
COSMO
KRINGLUNNI - LAUGAVEGI