Morgunblaðið - 23.06.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 5f
MYNPBÖNP
Máttur
lífsviljans
Er lúðraþytur dvín
(When Trumpets Fade)_
Stríðsniynil
★ ★★Vi2
Framleiðandi: John Kemeny. Leik-
stjóri: John Irvin. Handritshöfundur:
V.W. Vought. Kvikmyndataka: Thom-
as Burstyn. Tónlist: Geoffrey Bur-
gon. Aðalhlutverk: Ron Eldard, Mart-
in Donovan, Frank Whaley, Zak
Orth. (92 mín.) Bandarlkin. Bergvík,
1999. Bönnuð innan 16 ára.
Á MEÐAN stærstu og virtustu
nöfn kvikmyndaiðnaðarins fást við
íburðarmiklar stríðsmyndir með
þúsundum leikara,
þá kemur þessi
sjónvarpsmynd
mjög þægilega á
óvart. Hún segir
frá hermanni sem
kemst að því að
allri hans herdeild
hefur verið eytt og
reynir hann að
komast undan
frekari herþjónustu með að bera
fyrir sig geðveiki en þess í stað fær
hann stöðuhækkun og þarf að
stjóma flokki ólíkra einstaklinga við
lífshættulegt verkefni.
Það eru engar sannar hetjur í
þessari mynd heldur einungis menn
sem eiga þá ósk heitasta að komast
undan hremmingum stríðsins á lífi.
Allir leikararnir standa sig með
prýði og leikstjórn Johns Irvins
(„Dogs of War“, „Turtle Diary“)
dregur fram mannleikann á ómann-
úðlegasta stað á jarðríki. Tæknilega
er myndin frábærlega gerð þótt
stundum sjáist greinilega að hún er
gerð fyrir sjónvarp. Þetta er mynd
sem enginn sannur unnandi stríðs-
mynda ætti að láta framhjá sér fara.
Hættuleg
ást
Ögrarinn
(Provocateur) ___________
Speniiiiinynd
★V4
Framleiðendur: Claudio Castravelli,
Eris Salvatori. Leikstjóri: Jim
Donovan. Handritshöfundur: Roger
Kumble. Kvikmyndataka: Jean-
Pierre Tudel. Tónlist: Mark Naka-
mura og Richard Uglow. Aðalhlut-
verk: Jane March, Stephen Mendel,
Lilo Brancato. (100 mín.) England-
Frakkland. Bergvík, 1999. Bönnuð
innan 16 ára.
JANE March leikur Sook Hee,
njósnara frá Norður-Kóreu, sem er
stödd í Suður-Kóreu til þess að
komast að hern-
aðarleyndarmál-
um Bandaríkja-
manna. Hún er
ráðin sem fóstra
hjá ofursta einum
og verður brátt
ástfangin af syni
hans en fortíð
hennar vill ekki
fyrir nokkurn
mun sleppa tökum á henni.
March er þekktust fyrir hlutverk
sitt í mynd Annauds „The Lover“
sem olli nokkurri hneykslan þegar
hún kom út fyrir nokkrum árum.
Eftir það hefur h'tið borið á March,
ef undan eru skildir lélegir erótískir
spennutryllar. Af þessari mynd að
dæma er það bara blessun að
March hefur unnið jafnlítið og hún
hefur gert því hún er hræðileg leik-
kona og ekki er mótleikari hennar,
Lilo Brancato, skárri. Þetta er
ómerkileg mynd sem ætti bara að
taka í algjöru hallæri.
Ottó Geir Borg
FÓLK í FRÉTTUM
Keflavíkurvegurinn
flottur og engu líkur
Morgunblaðið/Kristinn
SAFFRON úr Republica virtist vera vel upplögð
fyrir tónleikana í gærkvöldi.
MEÐLIMIR sveitarinnar E-17 á Pi2za 67 í fyrrakvöld.
KVÖLDIÐ fyrir afmælistónleika
FM957 var haldinn blaðamanna-
fundur með þeim hljómsveitum sem
þar komu fram og voru erlendu
hljómsveitirnar Republica, E-17 og
Garbage þá nýkomnar til landsins.
Hljómsveitarmeðhmir sögðust hafa
hlakkað mikið til að koma hingað og
að þeir ætluðu að nota tækifærið á
meðan þeir væru hérna til að skoða
sig um og gera eitthvað skemmti-
legt, en þeir munu dvelja hér í tvo
eða þrjá daga.
Blaðamaður lenti á spjalli við með-
limi E-17, sem viðurkenndu fúslega
að þeir vissu sama og ekkert um Is-
land. Þeir hefðu bara bókað sig á
þessa tónleika og væru svo allt í einu
komnir hingað, en land og þjóð vektu
vissulega forvitni þeirra. Spjallið
snerist þá eiginlega við og það end-
aði með því að blaðamaður svaraði
fleiri spumingum frá hljómsveitar-
meðlimum en öfugt.
Þeir voru aðeins búnir að vera á
landinu í nokkra klukkutíma en þó
var ýmislegt sem vakti athygli þeirra
og fannst þeim ökuferðin frá flug-
vellinum til Reykjavíkur mikil upp-
lifun og landslagið ekki líkt neinu
sem þeir höfðu áður séð. Ennfremur
fannst þeim alveg fáránlegt að úti
væri fullkomin dagsbirta þótt klukk-
an væri að nálgast miðnætti.
Hvað samsetningu hljómsveita á
tónleikunum varðar sögðu meðlimir
E-17 að sér fyndist hún bara sniðug.
Þó að hljómsveitirnar spiluðu vissu-
lega mjög ólíka tónlist væri oft mjög
gaman að spila með ólíkum hljóm-
sveitum og þannig væri það til dæm-
is alltaf á stórum tónlistarhátíðum.
Þá væri kosturinn sá að áhorfenda-
hópurinn væri fjölbreyttari og þá
heyrði kannski einhver tónlistina
þeirra sem hefði annars aldrei heyrt
hana og þannig næðu þeir til enn
fleira fólks.
Þær bættu því svo hálfhlæjandi
við að gallinn væri hins vegar sá að
þá væri kannski fullt af fólki á tón-
félagar hennar hlupu
leikunum sem líkaði alls ekki tónlist-
in sem þeir spiluðu og að þá liði þeim
virkilega illa á sviðinu og langaði
helst til að skríða út af því.
Saffron, söngkona hljómsveitar-
innar Republica, sagðist mjög ánægð
með að vera komin hingað til lands
og ætlaði hún svo sannarlega að hafa
það skemmtilegt á meðan hún væri
hér. Þegar blaðamaður spurði hana
hvað hún ætlaði að gera á morgun
var hún fljót að svara: „Mig langar í
búðir! Hvar eru flottustu fótin hérna
í Reykjavík?“ og aftur lenti blaða-
maður í því að svara fleiri spurning-
um en hann fékk að spyrja.
En Saffron tók undir með meðlim-
um E-17 og sagði að þeim í Repu-
blica hefði fundist leiðin frá Kefla-
víkurflugvelli alveg ótrúlega flott og
að þeim fyndist ísland mjög forvitni-
legt og áhugavert land.
Blaðamaður fékk svo rétt aðeins
tækifæri til að spyrja þá Steve og
Duke, meðlimi Garbage, hvemig
þeim litist á ísland svona við fyrstu
sýn og þeir svöruðu: „Keflavíkurveg-
urinn er flottur!"
S5HTRLEY Manson var veik en
í skarðið á blaðamannafundinum.
Þvottavélar fyrir
vélahluti
Jákó sf.
súni 564 1819
Þarftu að
skipta um
olíusíu?
Komdu í skoðun
TOYOTA
Nýbýlavegi 4-8
Simi 563 4400
ApOtekið
GlaxoWelleome GlaxoWelleome GlaxoWellcome GlaxoWelleome GlaxoWellcome GlaxoWelleome
Áusúcam a gi ayffymmÉ^dhigjwi'
- í Apéfekfnu í Nýkanpi, MosféllsbK í dsg, 23. Júnl frá 13.00 tíl 18.0®
- á morgun, I Apétekfaui á SmlH|uvegl vlð Bénns frá 13.00 til 18.00
Sérfrœðingar veita upplýsingar um astma
og kenna rétta notkun allra helstu astmalyfja
^ Kjörið tœkifœri til frœðslu!
0«Ammmmœtölmgar á sÉa&nwm
GlaxoWelleome GlaxoWellcome GlaxoWellcome GlaxoWelleome GlaxoWellcome GlaxoWellcome