Morgunblaðið - 29.06.1999, Side 1

Morgunblaðið - 29.06.1999, Side 1
143. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Mótmæli í Kasmír KASMÍRBÚAR sem andvígir eru íhlutun Indverja í Kasmír-héraði brenndu brúðu af Atal Behari Vajpayee, forsætisráðherra Ind- lands, í Rawalpindi í gær. Að- gerðir mótmælendanna fóru fram fyrir utan skrifstofur Sam- einuðu þjóðanna í héraðinu og kröfðust þeir fijálsra kosninga þar sem framtíð héraðsins yrði ákveðin. Átök indverska og pakistanska hersins í Kasmír hafa haldið áfram og í gær sök- uðu Pakistanar indverska herinn um að senda orrustuvélar inn fyrir lofthelgi sína í héraðinu. SÞ hefja flutninga flóttafólks til Kosovo Pristina, Djakovica, Kosovo Po^je, Vucitrn. Reuters. AP. SAMEINUÐU þjóðirnar hófu í gær fyrstu skipulögðu heimkomu flóttafólks af albönskum ættum til Kosovo-héraðs. Fylgdu gæsluliðar Sameinuðu þjóð- anna um 300 flóttamönnum til þorpa og bæja sem oftar en ekki höfðu verið brennd tii grunna af vopnuðum sveitum Serba á leið þeirra út úr héraðinu. Þá afhentu liðsmenn Frelsishers Kosovo (UCK) friðargæsluliðum Atlants- hafsbandalagsins (NATO) vopn sín í gær en tímamörk sem sett voru í friðar- samkomulagi stríðandi aðila í Kosovo kváðu á um að afvopnun UCK yrði að hafa farið fram fyrir hinn 29. júní. Er afvopnun UCK hefm- farið fram geta liðsmenn UCK aðeins borið vopn sín á tilteknum svæðum innan héraðsins. U.þ.b. helmingur þeirra 860.000 manna er flúðu Kosovo tii ná- grannaríkjanna hefur þegar snúið til baka tii héraðsins þvert á aðvar- anir stofnana Sameinuðu þjóðanna. Hafa margir þeirra ennfremur hunsað tilmæli NATO um að ekki sé öruggt að fara um mörg svæði hér- aðsins vegna jarðsprengna og sprengjugildra. „Við teljum að um 400.000 manns hafi snúið til síns heima á eigin vegum,“ sagði Ron Redmond, talsmaður Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem hefur yfirstjórn með heimkomu flóttamanna til Kosovo. Sagði Red- mond að þeir flóttamenn sem enn séu í búðum í Albaníu og Makedón- íu ættu ekki að huga að heimferð fyrr en tryggt væri að þeir hefðu vistir til að sjá sér og sínum fyrir nauðsynjum. Heimkoman gerir NATO erfiðara um vik Skipulögð endurkoma flóttafólks- ins hófst mun fyrr en alþjóðlegar hjálparstofnanir hefðu kosið, sér- staklega með hliðsjón af upplausn- arástandi því sem víða virðist ríkja í Kosovo. Undanfamir dagar hafa einkennst af því að Kosovo-Albanar hafa rænt og kveikt í eigum Serba sem nú hafa flúið héraðið. Þá hefur AP BILL Clinton og Robert Rubin. Skuldirnar greiddar fyrir 2015 Washington. AP. í YFIRLÝSINGU Bills Clintons Bandaríkjaforseta og Roberts Ru- bins, fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, í gær kom fram að tekjuaf- gangur fjárlaga á næstu fimmtán ár- um verði þúsund milljörðum banda- ríkjadala hærri en áður hefur verið talið. Lýsti Bandaríkjastjórn yfir vilja sínum til að nota tekjuafgang- inn til að greiða niður allar skuldir ríkisins fyrir árið 2015. Ríkisfjármálin í Bandaríkjunum hafa tekið mikinn kipp á undanforn- um misserum vegna uppsveiflu í bandarísku efnahagslífi en hagvöxtur þar hefur aukist jafnt og þétt undan- farin níu ár. Fyrirhugar Bandaríkja- stjóm að nota hluta tekjuafgangsins til úrbóta í félagslega kerfínu og að efla aðstoð við eldri borgara. Urskurðað um göngu Oramumanna Meinað að fara um hverfí kaþolskra Belfast. Reuters. SÉRSTÖK nefnd, sem starfar á vegum breskra yfirvalda, úrskurð- aði í gær að sambandssinnar í Óran- íureglunni á Norður-írlandi fengju ekki að ganga fylktu liði í gegnum hverfi kaþólikka í bænum Porta- down á sunnudag, en þá fer fram árleg „Dmmcree-ganga“ Óraníu- reglunnar. Alistair Graham, for- maður nefndarinnar, tilkynnti þetta á fréttamannafundi í Belfast eftir að viðræður milli fulltrúa Óraníuregl- unnar og kaþólskra íbúa Garvaghy- götunnar fóm út um þúfur. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahem, forsæt- isráðherra Irlands, reyndu í gær að leggja sín lóð á vogarskálarnar með því að hitta deilendur að máli, en allt kom fyrir ekki og óttast menn nú að til átaka komi við Drumcree eins og þrjú undanfarin sumur. Forsætisráðherramir eyddu meg- inhluta dagsins í stjómarbyggingum við Stormont-kastala í Belfast þar sem neyðarviðræður um „afvopnun- ardeiluna" svoköUuðu fóm fram. Fréttaskýrendur segja að þetta geti orðið örlagarík vika í sögu N- Irlands en mistakist Blair og Bertie Ahem, forsætisráðherra Irlands, að fá sambandssinna og Sinn Féin, stjómmálaarm Irska lýðveldishers- ins (IRA), tU að leysa deUur sínar um myndun heimastjómar og af- vopnun IRA er talin hætta á að frið- arsamkomulagið frá því í fyrra renni út í sandinn. Jafnframt gætu átök við Drumcree um næstu helgi haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir friðammleitanir í héraðinu. í viðtah sem breska sjónvarpið BBC átti við BiU Clinton Banda- rílqaforseta í gær bað forsetinn sambandssinna á N-írlandi • að treysta skuldbindingum Sinn Féin hvað afvopnun varðar. Hvatti hann sambandssinna tU að taka áhættu og leggja þannig gmnn að nýrri fram- tíð N-írlands. Sagðist Clinton munu gera allt sem í hans valdi stæði til að hjálpa tU við úrlausn mála. ■ Gæti haft áhrif/27 streymi fólks tU héraðsins gert frið- argæslusveitum NATO erfiðara um vik enda telur flóttafólkið sig eiga harma að hefna eftir þjóðemis- hreinsanir Serba í héraðinu. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna telja að allt að því 100.000 Serbar, eða 30.000 fleiri en áður var talið, hafi flúið Kosovo undanfama daga og vikur og að meðal þeirra ríki mikU örvænting og vonleysi. „Aðal- atriðið er ekki að þá skorti vistir [...], heldur hitt, að þeim finnst eng- inn gefa sér gaum. Þeim finnst að þeir séu fómarlömb stríðsins er upp er staðið," sagði Paula Biocca, tals- maður Matvælastofnunar Samein- uðu þjóðanna, í gær. Slobodan MUosevic Júgóslavíu- forseti sætir nú harðri gagnrýni trúarleiðtoga í Serbíu fyrir að hafa stuðlað, með stefnu sinni, að eyði- leggingunni sem NATO olli í stríð- inu. Pavle patríarki, æðsti maður serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, sagði við athöfn í bænum Kosovo Polje í gær að forseti Júgóslavíu bæri mesta ábyrgð á því hvemig komið væri í Kosovo. Bað hann Sa- meinuðu þjóðimar jafnframt um að tryggja öryggi þeirra Serba er flýja nú héraðið unnvörpum. Artemije biskup viðurkenndi við sama tæki- færi að Kosovo-Albanar hefðu verið ofsóttir af Serbum. Sagði hann að hinir seku hefðu þegar flúið héraðið og að þeir sem saklausir væru ættu ekki að gjalda fyrir syndir hinna. Clinton-hjónin í öldungadeildina? Washington. AFP. GAMLIR vinir Bills Clintons Bandaríkjaforseta hafa undan- farið, að sögn tímaritsins New Yorker Magazine, lagt að forset- anum að bjóða sig fram til setu í öldungadeild Bandaríkjaþings árið 2002 fyrir Arkansas-ríki. I fréttinni segir að forsetinn hafi enn ekki tekið ákvörðun um mál- ið en að hann sé áhugasamur. Sem kunnugt er em taldar líkur á að Hillary forsetafrú bjóði sig fram til öldungadeildarþing- mennsku fyrir New York-ríki og leiða menn nú líkum að því að Clinton-hjónin muni láta til sín taka á nýjum vettvangi er fram líða stundir. Er talið að „sögulegur áhugi“ gæti orðið einn af drifkröftum framboðsins en enginn fyrrver- andi forseta Bandaríkjanna hef- ur átt sæti í öldungadeild þings- ins utan Andrew Jackson, sem átti þar skamma setu áður en hann lést árið 1875. Þá er Jackson eini forseti landsins sem hefur verið vikið úr embætti vegna afglapa í starfi og minnast menn því Lewinsky-málsins á síðasta ári sem kaldhæðni öriag- anna. Hvíta húsið vísar hug- myndunum á bug Hefur verið bent á að ef Clint- on býður sig fram til öldunga- deildarinnar sem fulltrúi Arkansas-ríkis muni hann að öll- um líkindum etja kappi við repúblikanana Tim eða Asa Hutchinson, sem voru ákafir gagnrýnendur forsetans í mála- ferlunum gegn honum vegna Lewinsky-málsins. I yfirlýsingu Hvíta hússins í gær kemur fram að forsetinn hafni þessum sögusögnum alger- lega. Sagði Joe Lockhart, tals- maður forsetans, að Clinton teldi hugmyndina um öldungadeildar- þingmennskuna fáránlega og að hann vissi ekki hvaðan hún væri sprottin. Forsetinn hafi alls ekki í hyggju að bjóða sig fram til setu í öldungadeildinni. Fyrsti ráð- herrann til Berlínar FRANZ MUntefering, sam- göngumálaráðherra Þýskalands, stillti sér upp fyrir framan myndavél- arnar í gær þar sem hann hélt á kassa með skjölum er fara eiga á nýju ráð- herraskrifstofuna í Berlín. Muntefering er fyrsti ráð- herrann í ríkisstjórn Ger- hards Schröders sem flyt- ur skrifstofur sínar til Berlfnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.