Morgunblaðið - 29.06.1999, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Biðlað til dómarans
RÚMLEGA 150 hundar af öllum
stærðum og gerðum voru sýndir á
árlegri hundasýningu Hundarækt-
arfélags íslands og svæðafélags
HRFI í íþróttahöllinni á Akureyri
um helgina. Dómari sýningarinnar
kom frá Noregi og heitir Tore Foss-
um. Á myndinni er hann að skoða
Bitru-ísabellu, tíbetskan spaniel í
eigu Kristjönu J. Ólafsdóttur. Tíkin
fylgdist vel með dómaranum þukla
sig hátt og lágt og af augnaráði
hennar var eins og hún væri að
biðla til dómarans um góða einkunn.
Djass skipar veglegan sess á Listasumri
Tímasprengj an
ríður á vaðið með
Brubeck
DJASS skipar veglegan sess á
Listasumri á Akureyri nú sem
endranær. Boðið verður upp á tón-
leika í Deiglunni á hverju fimmtu-
dagskvöldi í júlí og ágúst, og eru
þeir fyrstu á dagskrá nú á fimmtu-
daginn, 1. júlí. Þá kemur fram sveit
sem kallast Tímasprengjan; Sigurð-
ur Flosason leikur þar á saxófón, pí-
anóleikari er Kjartan Valdimarsson,
Gunnar Hrafnsson spilar á bassa og
trommari er Pétur Grétarsson. Um
er að ræða Dave Brubeck-kvöld,
þar sem leikin verða lögin sem vörð-
uðu braut Brubeck-kvartettsins til
heimsfrægðar.
Á meðal tónlistarmanna sem
fram koma á fimmtudögum í Deigl-
unni í sumar eru bæði innlendir og
erlendir djassarar. í röðum þeirra
íyrmefndu eru margir sem gert
hafa garðinn frægan bæði heima og
erlendis. Þar má nefna Bjöm
Thoroddsen, Eðvarð Lárasson,
Gunnar Gunnarsson, Gunnar
Hrafnsson, Gunnar Þórðarson, Jón
Rafnsson, Jóel Pálsson, Kjartan
Valdimarsson, Pétur Grétarsson,
Sigurð Flosason og Þóri Baldurs-
son. Einnig söngkonumar Andreu
Gylfadóttur, Helenu Eyjólfsdóttur
og Margot Kiis. Djassleikarar á
Akureyri og í Suður-Þingeyjarsýslu
verða einnig með; t.d. Benedikt
Brynleifsson, Jaan Olavere, Jósep
Sigmundsson, Róbert Reynisson og
Stefán Ingólfsson.
Þá leikur hið víðþekkta tríó
Robins Nolans frá Amsterdam
fimmtudaginn 15. júlí og leiðbeina
meðlimir þess á námskeiði á Akur-
eyri dagana 15. til 17. júlí: Þetta
sama tríó lék á Akureyri í fyrra, við
fádæma hrifningu áheyrenda, að
sögn forráðamanna Listasumars.
Djazzklúbbur Akureyrar hefur
veg og vanda af vali efnis og tónlist-
armanna. Að sögn Jóns Hlöðvers
Áskelssonar, formanns klúbbsins,
er Nolan talinn í fremstu röð djass-
gítarleikara samtímans, og vitnar
þar í uppsláttarritið The Jazz Guit-
ar, fjórðu útgáfu, eftir Maurice J.
Summerfield. „Tríóið hefur fengið
mikið lof gagnrýnenda beggja
vegna Atlantshafsins," segir Jón
Hlöðver, og bætti því við að Bítill-
inn George Harrison hefði miklar
mætur á tónlist tríósins og hefði
nokkrum sinnum fengið það til að
leika á sínum vegum. „Það er kom-
inn tími til að heyra tónlist hljóma
eins og tónlist á að hljóma,“ er haft
eftir Harrison um Nolan og félaga,
að sögn Jóns Hlöðvers.
Aðgangur verður ókeypis að
Heitum fimmtudögum í Deiglunni,
eins og djasstónleikarnir era kallað-
ir, í sumar sem hingað til. Það er
fyrst og fremst mögulegt vegna
veglegra styrlqa sem fyrirtæki hafa
veitt starfseminni. Olgerð Egils
Skallagrímssonar veitir stærsta
styrkinn ásamt Café Karolínu, en
djasskvöldin eru kennd við danska
ölið Tuborg. Auk þess hefur Kaup-
félag Eyfirðinga gert samning við
Djazzklúbb Akureyrar um auglýs-
ingastyrk til heils árs.
Viku eftir Brabeck-kvöldið verð-
ur haldið Andreu-kvöld, þar sem
Andrea Gylfadóttir söngkona,
Eðvarð Lárasson gítarleikari,
bassaleikarinn Stefán Ingólfsson og
trommarinn Benedikt Brynleifsson
leika listir sínar.
Morgunblaðið/Kristján
Ný hársnyrtistofa í miðbænum
NÝ hársnyrtistofa hefur tekið til
starfa í miðbænum á Akureyri,
nánar tiltekið á Strandgötu 9 og
hefur hún fengið nafnið Zone.
Þar er boðið upp á almenna hár-
snyrtingu og förðun og er opið
frá kl. 9-18 virka daga og 10-14
á laugardögum.
Það eru mæðgurnar Valborg
Davíðsdóttir og íris Ragnars-
dóttir sem reka hársnyrtistofuna
en með þeim starfa Finnur Jör-
undsson og Helena Sveinbjörns-
dóttir.
Á myndinni eru f.v. Finnur,
Helena, Valborg og íris.
Brúðkaup í endurbættri Eiríksstaðakirkju á Jökuldal
Gifting í
nýlega
upp-
gerðri
kirkju
Vaðbrekku, Jökuldal. - Á laugar-
daginn var haldið brúðkaup
þeirra Þorsteins V. Snædal og
Guðrúnar Rögnu Einarsdóttur í
Eiríksstaðakirkju á Jökuldal. Ný-
búið er að gera endurbætur á
kirlqunni sem er nokkuð notuð
og aðallega til brúðkaupsathafna
fólks sem tengist sveitinni og
staðnum á einhvern hátt. Guðrún
segir ástæðu þess að þau Þor-
steinn giftu sig í Eiríksstaða-
kirkju vera þá að afi Þorsteins
og alnafni hafi verið fæddur og
uppalinn á Eiríksstöðum og búið
þar þangað til hann flutti út í
Skjöldólfsstaði. Einnig sé að
myndast hefð fyrir því að þau
systkinin gifti sig á Eiríksstöð-
um. Steinunn V. Snædal, systir
Þorsteins, og Lárus Dvalinsson
hafí einnig gift sig í Eiríkstaða-
kirkju.
Kirkjan á Eiríksstöðum á Jök-
uldal er komin til ára sinna. Hún
var byggð á árunum 1911 til
1914 og er elsta steinsteypta
kirkjuhúsið á Austurlandi. Kirkj-
an var flutt frá næsta bæ, Brú, út
í Eiríksstaði og það fóru 80 pok-
ar af sementi og 1 tunna af kalki
í bygginguna.
Úm 1990 var svo komið að
kirkjan var nær ónýt af steypu-
skemmdum og hætt að nota hana
um það leyti. Sumarið 1994 var
siðan ráðist í að gera við kirkj-
una þrátt fyrir hatrammar deilur
þar um sem enn sér ekki fyrir
endann á. Þessar endurbætur
voru unnar af Aðalsteini J. Mar-
íussyni múrarameistara sem
hreinsaði veggina og múraði upp
á nýtt með norsku viðgerðarefni
gríðarsterku sem þolir mjög vel
vatn og vinda, auk þess sem efnið
er með lit svo ekki þarf að mála
veggi kirkjunnar á eftir.
Margt merkra
gripa í kirkjunni
Bekkirnir og alt-
arið eru úr kirkj-
unni á Brú og pré-
dikunarstóll smíð-
aður þegar kirkjan
var byggð. Altar-
istaflan er eftir Jó-
hann Briem, máluð
árið 1954 og gefin
af kvenfélaginu í
sveitinni sem þá
var aflagt en nokk-
ur sjóður til sem
notaður var til
kaupanna. Vil-
hjálmur Snædal og
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
BRÚÐHJÓNIN Þorsteinn V. Snædal og Guðrún Ragna Einarsdóttir
ganga úr kirkju eftir athöfnina.
MARGT merkra muna er í kiijunni og hér má sjá altarið,
altaristöfluna og prédikunarstólinn.
Elín Pétursdóttir Maack, móður-
systir Elínar Jónsdóttur, konu
Jóhanns Briem, höfðu forgöngu
þar um. Jóhann Briem málaði
nokkrar altaristöflur og fór ekki
troðnar slóðir í biblíumyndastfln-
Altarisklæði er saumað af
Snorra Gunnarssyni þúsund-
þjalasmið frá Egilsstöðum í
Fljótsdal, altarisdúkur saumaður
af Ingibjörgu Jónsdóttur á Vað-
brekku rétt fyrir 1970.
Ljósakrónan, mikill gripur og
fagur fyrir kerti, er gefin af Að-
alsteini Jónssyni og Ingibjörgu
Jónsdóttur á Vaðbrekku.
EIRÍKSSTAÐAKIRKJA eins og hún lítur út eft-
ir endurbygginguna sem unnin var af
Aðalsteini J. Maríussyni.
Heimabakarí á Húsavík
Húsavík - Hjónin Helgi Sigurðsson,
bakarameistari, og Elsa G. Borg-
arsdóttir hafa keypt Brauðgerð KÞ
á Húsavík og reka bakaríið nú undir
nafninu Heimabakarí.
Þau hugsa sér að reka brauðgerð-
ina fyrst um sinn í sama formi og
áður en Helgi hefur rekið brauð-
gerðina fyrir KÞ með góðum ár-
angri í 16 ár.
Tilheyrandi húsnæði hefur ekki
allt verið notað fyrii- brauðgerðina,
en áformað er að taka meira af því í
notkun og bæta þar með aðstöðuna,
en brauðgerðin er vel búin áhöldum.
Þetta er eina brauðgerðin á
svæðinu frá Akureyri til Þórshafn-
ar. í Heimabakaríi á Húsavík vinna
15 manns.
Morgunblaðið/Silli
HJÓNIN Elsa G. Borgarsdóttir og Helgi Sigurðsson bakarameistari.