Morgunblaðið - 29.06.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 29.06.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 35’ Skemmtileg- ur hópur „I FYRSTU var námið ny'ög erfitt og margir nemendur voru við það að gefast upp, segir Erna Sif Amardóttir, 17 ára IB-nemandi, sem lokið hefur fyrsta ári á IB-braut og árs undir- búningsnámi. „Það var algjörlega ný reynsla að hafa allt námsefni á ensku og mun erfiðara en ég hafði búist við. Þó hefur það vanist og er nú orðið viðráðanlegt." Að hennar sögn var breytingin við að hefja IB-námið að loknu undirbúningsnáminu tölu- vert meiri en viðbrigðin við að fara úr grunn- skóla í framhaldsskóla. „Undirbúningsnámið er algjörlega nauðsynlegt fyrir þá sem eru að koma beint úr grunnskóla. Þar em gerðar allt of litlar kröfur og sumir nemendur þurfa að sitja aðgerðarlausir stóran hluta skóladags- ins.“ Morgunblaðið/Kristinn „HRAÐARI yfirferð yfir námsefnið er kostur fyrir þá sem vilja leggja það á sig,“ segir Ema Sif. • UPPLÝSINGATÆKNIFRÆ ÐI er ný námsbraut sem spann- ar þrjú og hálft ár í Tækniskóla Islands. Þar er megináhersla lögð á tölvu- og rafeindatækni, forritun, stjórnunar- og rekstr- arfræði. Námið er hugsað fyrir iðnaðarmenn af rafiðnaðar- og tölvusviði, að viðbættu námi úr frumgreinadeild, eða fyrir stúd- enta af tæknibrautum, eðlis- eða náttúrufræðisviði. Kostur er ef nemendur hafa starfs- reynslu á sviði tölvu og rekst- urs, að viðbættu námi úr frum- greinadeild. Upplýsingatæknifræði er m.a. fólgin í verkefnavinnu þar sem nemendur læra að vinna saman í Upplýs- ingatækni- fræði í TÍ 3-5 manna hópum. Þessi vinna er tengd faglegri kennslu þar sem nemendur öðlast þekkingu og færni í að þróa, framleiða og nota upplýsingakerfi í fyrirtækj- um. Þeir öðlast sérfræðiþekk- ingu á hönnun og rekstri þess búnaðar sem á að vera fyrir hendi í framleiðslu- og þjónustu- fyrirtækjum, ásamt því að fá þjálfun í gæðastjórnun og ákvarðanatöku. Námið er sam- kennt með rafmagnstækni fræði fyrstu þrjú misserin. Ákveðnar áherslur eru næstu misserin á eftir, t.d. á tölvutækni, gæða- stjórnun og lokaverkefni er á sjöundamisseri. Að loknu námi fá nemendur nafnbótina upplýsingatækni- fræðingur B.Se. eftir 105 eininga nám. Yfirleitt eru fimm áfangar á misseri og vegur hver áfangi þrjár einingar. Magnús Matt híasson, deildar- stjóri í rafmagnsdeild, hefur um- sjón með þessari nýju braut í TÍ en frestur til að sækja um hana rennur út á næstu dögum. „Ástæðan fyrir því að ég valdi þetta nám var sú, að það er betri undirbúningur fyrir háskóla en hið hefðbundna stúdentspróf, fyrst og fremst vegna þess að námsefni og kennsla er öll á ensku en einnig vegna þess að í IB þarf maður að tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð í námi líkt og tíðkast í háskóla. I há- skóla eru jafnframt flestar náms- bækur á ensku og er ég því injög fegin að fá tækifæri til þess að að- lagast kennsluháttum háskóla nú, í stað þess að verða fyrir áfalli á fyrstu öim í háskóla eins og flest- ir.“ Hún segir það sömuleiðis ávinn- ing við námið að því sé hægt að ljúka á þremur árum. „Hraðari yf- irferð yfir námsefnið, eins og um er að ræða í IB-náminu, er kostur fyrir þá sem vilja Ieggja það á sig,“ segir hún, ákveðin á svip. „Eitt hið skemmtilegasta við námið er að hópurinn er svo skrautlegur," heldur Erna áfram og brosir. „Nemendur koma víðs vegar að með mjög ólíkan bak- grunn. Systkini frá Kanada voru í heimsókn í eina önn og strákur frá Mongólíu hefur stundað nám með okkur í vetur.“ Hún kveður það einnig jákvætt að ákveðinn bekkjakerfisbragur sé á náminu. „Þetta er eins konar bekkjakerfi innan áfangakerfisins. Það er af- skaplega gott að geta haldið hóp- inn án þess þó að vera með sama fólkinu í öllum kennslustundum. í sumum tímum erum við með öðr- um nemendum í M.H. og kynn- umst því einnig skólasystkinum okkar utan IB-hópsins. Svo er að sjálfsögðu blandaður samsöfnuður í frímínútunum." Erna er einn þriggja IB-fulltrúa, sem svo kallast. Þeir eru tengiliðir milli nemenda og kennara og sjá t.a.m. um að koma athugasemdum á framfæri. Hún segir að í upphafi vetrar hafi sumir kennarar verið óvissir um hvemig hátta ætti kennslu í samræmi við þær kröfur sem gerðar em í IB-náminu. „Kennsluhættimir em aðrir en kennarar eiga e.t.v. að venjast , því mikil áhersla er lögð á sjálfstæða vinnu ncmenda. Fulltrúarnir fengu nokkrar kvartanir frá nem- endum vegna þessa og komum við þeim til skila. Nú er orðin mjög góð sátt, því búið er að greiða úr flestum þeim vandamálum sem upp komu,“ segir hún. Fulltrúamir sjá einnig um að út- vega öðmm nemendum upplýsing- ar um þá háskóla sem óskað er eftir. „Einn fulltrúanna er búinn að hafa samband við fjölmarga há- skóla víðs vegar um heim til þess að fá senda til okkar upplýsinga- bæklinga. Margir IB-nemendanna ætla sér að fara utan í háskóla og því er hagkvæmt að geta nálgast upplýsingar um ýmsa skóla hér lyá okkur,“ útskýrir hún. Aðspurð segir Ema félagslífið vera gott. „Við tökum þátt í fé- lagslífinu í M.H. eins og aðrir nem- endur en auk þess höfum við okk- ar eigin uppákomur. Við fómm í sumarbústað yfir eina nótt í vor og tókst sú ferð með eindæmum vel. Við héldum einnig lærdóms- maraþon, stunduðum heimanám í heilan sólarhring samfleytt í skól- anum í vor. Þetta var gert í fjár- öfiunarskyni því okkur langar svo að fara saman i utanlandsferð þegar náminu lýkur að ári.“ og utanhússklæðningar í miklu úrvali. Allar gerðir festinga ál og stál með gæðastaðal ISO 9001. Royale Ármúla 16 • 108 Reykjavík • Sími 533 1600 • Fax 533 1610 ASETA *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.