Morgunblaðið - 29.06.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999 51 U
BRIDS
UmNjðn Uuðmundur
Páll Arnaríinn
DANIEL Perrino heitir
spilari frá Mónakó. Hann
er ekki kjarklaus maður,
því tvisvar í sama leik spil-
aði hann út frá drottningu
annarri í trompi með góð-
um árangri. Þetta var í
leik Mónakó og Grikklands
á EM. Hér er annað dæm-
ið:
Norður * 1072 V D98543 * D3 * 108
Vestur Austur
AD4 * G83
VÁG6 V K102
♦ G106 ♦ 9542
*KG763 * Á52
Suður AÁK965 V 7 ♦ ÁK87 *D94
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 spaði
Pass 1 grand Pass 2 tíglar
Pass 2spaðar Allirpass
Hvorki laufið né hjartað
eru heillandi litir til að spila
út frá og tígulgosinn er í
hliðarlit sagnhafa. Því
ákvað Perrino að trompa út
og valdi til þess fjarkann.
Sagnhafi drap gosa austurs
og spilaði laufdrottningu.
Austur tók slaginn og
trompaði út. Suður þóttist
viss um að austur ætti
drottninguna og lét því h't-
inn spaða. Perrino fékk á
trompdrottninguna, en
varð nú að koma makker
inn til að trompa enn út. Og
það gerði hann með því að
spila undan ÁG í hjarta.
Austur las stöðuna rétt og
fór upp með kónginn til að
spila enn einu trompinu.
Sagnhafi komst þar með
ekki hjá því að gefa tvo
slagi á lauf í viðbót og einn
á tígul og fór einn niður á
spilinu.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og sfmanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfaúgið ritslj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
í DAG
Hlutavelta
Morgunblaðið/Sverrir
ÞESSIR duglegu drengir voi-u með flöskusöfnun til
styrktar börnunum í Albaníu og söfnuðu 5000 krónum.
Þeir heita Holgeir, Tómas, Hrafnkell og Bogi.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞESSAR duglegu stelpur sem heita Auður Ýr Sigurðar-
dóttir og Hildur Ýr Þráinsdóttir söfnuðu um daginn 1.358
krónum til styrktar Rauða krossi íslands.
Morgunblaðið/Sverrir
ANNA Lind Vignisdóttir, Kristín Hrund Reynisdóttir og
Fanney Lilja Vignisdóttir voru með tombólu um daginn og
söfnuðu 1.670 krónuin til styrktar Rauða krossi Islands.
Morgunblaðið/Rax
ÞESSAR duglegu stelpur söfnuðu 1.380 krónum til styrkt-
ar Rauða krossinum um daginn. Þær heita Þórunn Þórð-
ardóttir og Ásta Einarsdóttir.
VORKVEÐJ A
Ég veit þú ert komin, vorsól.
Vertu ekki að fela þig.
Gægstu nú inn um gluggann.
í guðs bænum kysstu mig.
Því það er annað að óska
-------- að eiga sér líf og vor
Ljóöio en hitt að geta gengið
Vorkveöja. glaður og heill sín spor.
Jóhann
Gunnar
Sigurösson
(1882/1906)
Þeir eru svo fáir aðrir,
sem una sér hjá mér.
Já, vertu nú hlý og viðkvæm.
Þú veizt ekki, hvernig fer.
LJOÐABROT
STJ ÖR]\USPA
eftir Franecs Ilrake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vinur vina þinna
og vilt deila gleði þinni
með sem flestum. Þú ert
gefínn fyrir tilbreytingu
og ferðalög.
Hrútur —
(21. mars -19. aprfl)
Það er margt sem freistar
í fjármálaheiminum og
margt að varast. Mundu
bara að græddur er
geymdur eyrir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að hafa alla þræði í
hendi þér áður en þú ræðst í
þær framkvæmdir sem þig
dreymir um. Góður undir-
búningur tryggir farsæla
framkvæmd.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) W
Þér lætur vel að leiða aðra í
starfi. Gættu þess bara að of-
metnast ekki þegar vel geng-
ur því dramb er falli næst.
Krabbi w
(21. júní - 22. júlí)
Þú gerir bara illt verra með
því að stinga hausnum í
sandinn og láta sem þú sjáir
ekki það sem gera þarf á
heimilinu. Illu er best af lok-
ið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) Sí
Mundu að svo uppsker mað-
urinn sem hann sáir til. Um
leið og þú ræktar þinn eiginn
garð skaltu líka gefa þér
tíma til að sinna fjölskyldu
og vinum.
Mðyja
(23. ágúst - 22. september) WtL
Skjótt skipast veður í lofti í
fjármálunum svo þú skalt
fara þér varlega og velta fyr-
ir þér öllum möguleikum því
þá er þér engin hætta búin.
Vog m
(23. sept. - 22. október) A'A
Þú þarft að berjast fyrir
sjálfstæði þínu bæði heima
fýrir og í vinnunni. Varastu
samt að ganga of langt svo
ekki komi til eftirmála.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Nú reynir á þolinmæði þína
því ósanngjamar afsakanir
verða hafðar uppi í þinn
garð. Allt mun þó fara vel að
lokum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ítSr
Það er óskynsamlegt að hafa
öll sín egg í sömu körfunni.
Dreifðu því áhættunni
þannig að þú þurfir ekki að
sitja uppi með sárt ennið.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4HP
Þú hefur unnið vel að undan-
fömu og getur því um frjálst
höfuð strokið. Leggðu drög
að því að komast í gott ferða-
lag.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Þú hefur látið mörg smá-
verkefni hrúgast upp á borði
þínu. Nú er komið að því að
sinna þessum málum og leiða
þau til lykta.
Fiskar imt
(19. febrúar - 20. mars) >%■»
Matur er mannsins megin en
of mikið má af öllu gera svo
gættu hófs í hvívetna. Leit-
aðu hjálpar ef með þarf.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöi. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
givnni vísindalegra staðreynda.
HQ7EtCXK
GARÐSLÖNGUR
SLÖNGUTENGI
GARÐÚÐARAR
ÚOAKÚTAR
ÞÓR HF
Reykjavík - Akurayr!
Reykjavík: Ármúla 11 - Síml 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Simi 461-1070
SLATTUORF
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyrl
Reykjavfk: Ármúla 11 - Sfmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070
Colorspray
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Hverfísgötu 37
Athugið/
Rýmingarsölunni lýkur l.júlínk.
Frá og með 29. júní dl 2. júlí
verður verslunin opin
trá kl. 13.00-18.00 virka daga
sími 552 0190 I ogkl. 11.00-16.00 laugardaga.
Topptilboð
Póstsendum samdægurs
oppskórinn
■ VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
Tegund: 950181
Lith*: Gráir/svartir/beige
og svartir/bláir/brúnir
Stænðir: 41-46
r