Morgunblaðið - 03.07.1999, Page 1

Morgunblaðið - 03.07.1999, Page 1
147. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Blair og Ahern með tillögur um heimastjórn og afvopnun á N-Irlandi Fagnað sem söguleg- um áfanga að friði Belfast. AFP, Reuters. EFTIR fimm daga maraþonviðræð- ur í Belfast lögðu forsætisráðherrar Bretlands og Irlands í gær fram áætlun um hvernig hægt væri að hrinda í framkvæmd þeim ákvæð- um friðarsamkomulagsins frá því í fyrra sem kveða á um myndun heimastjómar í héraðinu og afvopn- un Irska lýðveldishersins (IRA) og annarra öfgahópa. Leiðtogar stríð- andi fylkinga höfðu ekki veitt tillög- unum formlega blessun sína og ljóst var að sambandssinnar vom alls ekki fyllilega sáttir við þær. Þeir munu hins vegar, eins og lýðveldis- sinnar, ræða þær sín á milli á næstu dögum og taka afstöðu til þess hvort þeir samþykkja þær. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í ávarpi sem hann flutti úti fyrir Stormont-kastala að tillögumar væra besta tækifæri til friðar sem á fjörur íbúa N-írlands hefði rekið um margra ára skeið. „Um leið og búið er að samþykkja þessar tillögur og þeim hefur verið hrint í framkvæmd gefa þær, eftir áratugalöng átök og deilur og ósætti, tækifæri til friðar og lýðræð- is og jafnréttis handa öllum,“ sagði Reuters TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræðir við fréttamenn í gær. Að baki honum standa frammámenn Sinn Féin, Gerry Adams og Martin McGuinness. Blair. I sama streng tók Bertie Ahem, forsætisráðherra írlands, og í Bandaríkjunum fagnaði Bill Clint- on Bandaríkjaforseti þessu skrefi í friðaramleitunum á N-írlandi. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, fagnaði einnig tillögunum. „Það anda margir léttar á þessari eyju í kvöld og reyndar víðar um heim. Eg tel að allir ættu að gleðjast yfir þessari niðurstöðu ... ég tel að okk- ur hafi tekist ætlunarverk okkar,“ sagði Adams. Trimble mun reynast erfitt að sannfæra félaga sína David Trimble, leiðtogi stærsta flokks sambandssinna, UUP, var hins vegar ekki eins ánægður með tillögumar. Sagði hann að þær fælu ekki í sér skýra skuldbindingu um að IRA myndi láta vopn sín af hendi. „Fullvissan um það er ekki fyrir hendi,“ sagði Trimble og bætti við að tryggingar þar að lútandi væra „veikar". Hann hét því á hinn bóginn að halda áfram að berjast fyrir friði á N-Irlandi og tók sér- staklega fram að hann vildi gjaman hefja samstarf við Sinn Féin um stjómun N-írlands - en fyrst yrðu lýðveldissinnar að ganga lýðræðinu fyllilega á hönd. Sjálfur mun Trimble á endanum hafa lagt blessun sína jdir tillögur Blairs og Ahems en tókst þó ekki að sannfæra aðra í samninganefnd UUP og þykir það vísbending um að Trimble muni ekki reynast létt verk að telja átta hundrað manna miðstjórn UUP á að taka tillögum- ar upp á sína arma. Tillögurnar fela í sér að á næstu tveimur vikum eiga stjómmála- flokkamir, sem rétt eiga á sæti í heimastjóm, áð tilnefna ráðherra sína. Hinn sextánda júlí munu bresk stjómvöld framselja völd sín á N-írlandi í hendur heimastjóminni og „fáeinum dögum“ síðar á afvopn- un öfgahópanna að hefjast. Henni á að vera að fullu lokið fyrir maílok á næsta ári. Mun Blair að kröfu sam- bandssinna setja lög sem tryggja að bregðist einhver aðili skyldum sín- um hvað þetta varðar muni völd aft- ur tekin af heimastjóminni og þess- ar tillögur í raun úr gildi falla. ■ Trimble var/23 Nýstárleg refsing í Dublin MAÐUR sem létti á sér utan í hraðbanka á O’Connell-stræti í Dublin hefur verið dæmdur til að standa við bankann í kvöld og bera skilti sem á stendur: Eg biðst afsökunar. The Irish Timcs greindi frá þessu í gær. Þetta er í annað sinn sem Willam Early, dómari í Dublin, kveður upp nýstárlegan úr- skurð í ákærumáli vegna lög- brots á helstu götu borgarinn- ar. I janúar dæmdi hann mann, sem hafði sparkað í flösku á O’Connell-stræti, til að hreinsa rasl af götunni sem maðurinn bjó sjálfur við. Maðurinn bar því við, að hann hefði einungis verið að færa flöskuna. Kevin McCrossan, 19 ára, kvaðst sekur af þeirri ákæra að hafa kastað af sér vatni við hraðbankann aðfaranótt sunnudagsins 31. maí sl., á meðan vinur hans tók út pen- inga. Nokkur biðröð fólks hafði myndast við bankann, og var ung stúlka fyrir aftan McCrossan í röðinni. Lögregla handtók hann á staðnum. Þetta var fyrsta afbrot McCrossans og tók Early dómari tillit til þess í úrskurði sínum. Júgóslavíustjórn sendir liðsauka til Svartfjallalands Kouchner stýrir starfí SÞ í Kosovo Sameinuðu þjóðunum, Sar^jevo. AFP. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skipaði í gær Bemard Kouchner, heilbrigðisráð- herra Frakklands og einn stofnenda alþjóðlegu hjálparsamtakanna Læknar án landamæra, í stöðu yfir- ~ '’MééF manns Samein- uðu þjóðanna í Kosovo og mun hann stjórna ijj: hjálpar- og upp- byggingarstarfi SÞ í héraðinu. Þá skipaði Annan ; '■ ■ú James Covey, bandarískan er- Kouchner indreka, sem næstráðanda SÞ í Kosovo en Covey hefur farið með málefni Balkanskaga í Hvíta húsinu og innan SÞ. Legið hafði í loftinu að staða yfir- manns SÞ í Kosovo félli í hendur Evrópubúa þar eð Evrópusamband- ið (ESB) mun standa straum af kostnaði við hið margbrotna upp- byggingarstarf sem nú fer í hönd í héraðinu. Samkvæmt friðarsam- komulagi stríðandi aðila í Júgóslavíu er SÞ gefið fullt vald til að stjóma borgaralegum aðgerðum í Kosovo og nær verksvið SÞ því til endurskipu- lagningar á stjómarstofnunum og uppbyggingar laga- og dómskerfis. SÞ hefur varað við því að í Ijósi aukinnar spennu meðal Serba og fólks af albönskum ættum í Kosovo séu hinu alþjóðlega friðargæsluliði í héraðinu takmörk sett. NATO mun ekki líða áhrif Milosevics í Svartfjallalandi Javier Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), sagði í gær að bandalagið myndi ekki líða það að stjórn Slobodans Milosevics léti til sín taka í Svart- fjallalandi, sem ásamt Serbíu mynd- ar sambandslýðveldið Júgóslavíu. Lét Solana þessi orð falla í kjölfar fregna um að júgóslavnesk yfirvöld hefðu sent hersveitum sínum í Svartfjallalandi liðsauka. Yfirmaður herafla NATO, Wesley Clark, greindi frá því í gær að Milosevic hefði falið dyggum stuðn- ingsmönnum Serba lykilstöður. Telja ráðamenn NATO að Milosevic kunni að vera að undirbúa valdabar- áttu við svartfellsk stjórnvöld, sem era hlynnt Vesturlöndum. Hvorki Clark né William Cohen, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, vildu segja hver viðbrögð NATO eða Bandaríkjanna yrðu ef Milosevic léti til skarar skríða í Svartíjallalandi. Clark sagði að undanfarnar vikur hefði komið Ijós að verið væri að reyna að koma mönnum af serbneskum upprana og andstæð- ingum Milos Djukanovics, forseta Svartfjallalands, í lykilstöður í land- inu. Væri litið á þetta sem undirbún- ingsaðgerðir. CNRT á A-Tímor vill deila völdum Dili, Jakarta. AFP. AÐSKILNAÐARSINNAÐIR Falantilskæruliðar stóðu vörð á meðan foringi þeirra ræddi við indónesíska embættismenn skammt fyrir utan Dili, höfuð- stað Austur-Tímor, í gær. Þetta var fyrsti fiindur uppreisnarfor- ingja með indónesískum yfirvöld- um til þess að ræða friðarumleit- anir fyrir atkvæðagreiðslu um sjálfstæði héraðsins, sem Samein- uðu þjóðirnar munu standa fyrir í næsta mánuði. Leiðtogar sjálfstæðissinna sögðu á fréttamannafundi í gær, að ef þeir fengju meirihluta at- kvæða myndu þeir vilja deila völdum með andstæðingum sín- um, þeim sem hlynntir eru áframhaldandi yfírráðum Indónesa í héraðinu. Jose Ramos Horta, varaformaður Andspyrnu- hreyfingarráðs A-Tímor (CNRT) og friðarverðlaunahafí Nóbels, tilkynnti þetta á fundinum, sem var haldinn í Jakarta, þar sem formaður CNRT, Xanana Gus- mao, er í stofufangelsi. Fyrstu heimsókn Ramos Horta til A-Tímor í 24 ár er lokið og er honum meinað að fara aftur til héraðsins. Um 400 skæruliðar Falantil, sem er hernaðararmur CNRT, skrifuðu í gær undir friðarsam- komulag við indónesiska her- menn sem hafa haldið bænum Suai, skammt frá Dili, fyrir milli- göngu prestsins í bænum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.