Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ > ÓSVALD SALBERG TÓRSHAMAR *r + Ósvald Salberg Tórshamar, Heimagötu 28, Vestmannaeyjum, fæddist á Landspít- alanum 19. ágúst 1998. Hann lést í Sjúkrahúsi í London 23. júní 1999. Ósvald var sonur Ósvalds Alexanders Tórs- hamars og Ágústu Salbjargar Ágústs- dóttur og var hann áttunda barn þeirra hjóna. Systkini Ósvalds eru: 1) Jó- hann Ágúst, f. 29.8. 1977. 2) Hildur Rán, f. 23.4. 1985. 3) Álexander Páll, f. 1.10. 1989. 4) Ólafur Eysteinn, f. 11.05. 1992. 5) Sig- mundur Kristinn, f. 13.10. 1993. 6) Ró- bert Freyr, f. 19.2. 1995, d. 19.2. 1995. 7) Albert Snær, fæddur 5.11.1996. Ósvald Salberg verður jarðsung- inn frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum í dag klukkan 14. Nú ertu farinn, elsku vinur, og hefur flutt til herrans á himnum, þar hefur Róbert Freyr, bróðir þinn, tekið á móti þér, og afi og amma líka og fleiri góðir ættingjar sem á undan hafa farið. Tíu mánuðir er ekki löng ævi, en erfiður tími íyrir lítinn dreng. Nú eruð þið tveir bræðumir farnir frá okkur til Guðs og við vitum að þar líður ykkur vel, þar eruð þið í góð- um höndum. Stóru augun og fal- lega brosið sjást ekki lengur en í hjörtum okkar og minningunni lifir það alltaf. Þú gleymist aldrei, Ós- vald minn, í minningunni verðið þið bræður alltaf hjá okkur. Litlar hendur stijúka ekki leng- ur um kinnar mínar eða fikta í hári mínu, en það var Ósvald alltaf van- ur að gera þegar ég hélt á honum. Þrátt fyrir mikil og erfið veikindi var Ósvald Salberg oftast glaður strákur, hann brosti og spriklaði og þótti voða gaman þegar pabbi hans setti hann í bamavagninn og gekk með hann um ganga Land- spítalans. Þar hitti hann svo marga. Honum þótti voða gaman að hitta vin sinn, hann Sindra Snæ, á göngunum. Stundum keyrði Sindri hann í vagninum. Sindra þótti voða vænt um Ósvald litla og ég veit að hann á eftir að sakna hans mikið. Ósvald eignaðist mikið af vinum á Landspítalanum; Söm Lind sem er enn á spítalanum, Torfa Láms sem er farinn heim og ekki má gleyma Lilju Björt, þau voru svo mikið saman á stofu. Ósvald litli, þú áttir mörg systk- ' ini en fékkst lítið að umgangast þau vegna veikinda þinna og ekki færðu að vaxa upp með þeim og leika þér við þau. Núna era þau í mikilli sorg og sakna þín mikið, þú fékkst aldrei að koma heim til Eyja og sást aldrei ömmu þína en afi þinn kom til Reykjavíkur og heim- sótti þig. Hildur systir þín grætur og grætur en Óli bróðir þinn neitar að trúa því að þú sért dáinn. Þegar röddin segir: „Komdu! Guð er að kalla,“ þá verður maður að svara kallinu og það hefur þú gert, elsku vinur. Ósvald var rólegt bam og kveinkaði sér aldrei, hann átti erfitt með grát og grét því sjaldan, hann brosti til allra sem komu að rúminu hans. Hann var alltaf Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. .'rcniB't iii)., t ::- ánægður og var svo mikill pabba- strákur. Honum þótti voða vænt um pabba sinn. Þeir voru miklir vinir og núna er mikið tómarúm í lífi pabba hans, hann á mikið erfitt og saknar hans óskaplega mikið, eins og við geram öll. En við vitum að Guð hjálpar okkur í gegnum þá erfiðu sorg sem er í hugum okkar allra. Það var gaman að fylgjast með þér vaxa og dafna og sjá framfarir hjá þér. Þú sýndir svo mörgu áhuga, varst duglegur að teygja þig í hluti og fylgdist alveg með hvað hjúkkumar vora að gera þeg- ar þær komu með lyfin þín eða vora að tengja mjólkina í sánduna þína. Þér þótti voða gaman þegar fólk sýndi þér áhuga á ganginum í vagninum og þegar Sindri kom að leika við þig. Þér þótti líka voða gaman hjá Hildi systur þinni, þar leið þér vel, og hvað þér þótti gam- an þegar Óli og Alexander vora að leika sér að spilum á gólfinu; þá fylgdist þú vel með hvað þeir voru að gera. Þú heillaðir alla sem þig sáu. Það var sama hvort það voru ættingjar eða ókunnugir, allir glöddust með þér. Þú varst algjör hetja, stóðst eins og klettur úr hafi, alveg sama hvað gekk á og hve veikur þú varst, stundum mikið veikur og tvísýnt um líf þitt. Alltaf stóðstu upp úr eins og klettur. Núna sitjum við héma öll saman í sorg, mamma, pabbi og systkinin, en þú ert farinn og kemur aldrei aftur og það verðum við að sætta okkur við. Guð passar þig fyrir okkur núna, það vitum við öll. Guð ætlar okkur öllum eitthvert hlut- verk hér á jörð og þegar það er bú- ið kallar hann og við hverfum á braut en fáum önnur hlutverk hjá honum. Nú ert þú farin að sinna öðra hlutverki og gleðja aðra með blíða brosinu, fallegu augunum og ljósa úfna hárinu. Ég veit að þér líður vel núna, laus við allar spraut- ur, slöngur, dælur og vélar. Elsku Ósvald minn, ég gleymi þér aldrei, þú mátt ekki gleymast, það sé ég um. Það er erfítt að sjá á eftir þér. Ég baðaði þig í síðasta sinn rétt fyrir aðgerðina og þú varst svo ánægður, þú sendir okk- ur pabba þínum svo fallegt bros og svo baðaðir þú út öllum öngum en í augum þínum var svo skrýtinn glampi. Það var eins og þú vissir hvað biði þín og þú vildir eiga síð- ustu stundimar glaður með okkur. Við minnumst þeirra stunda alltaf, þeim gleymum við ekki. Það er sagt að tíminn lækni sár, en sum sár læknar tíminn aldrei, hann get- ur deyft, en aldrei læknað. Að horfa á eftir bami sínu í dauðann er mjög sárt, það er sár sem tíminn deyfir en læknar ekki. Það voru margar litlar hetjur á Landspítalanum sem börðust eins og þú. Karólína er komin aftur, Alexander er gangandi kraftaverk, Linda Hrönn og Harpa Lind hafa náð bata og era farnar heim og fleiri komu og fóra, sumir í langan tíma en aðrir í stuttan en öllum þessum bömum þakkar þú fyrir að hafa fengið að vera með. Öllu starfsfólki á barnadeild 13E á MINNINGAR Landspítalanum þökkum við fyrir ómetanlega hjálp. Læknarnir Gulli og Hróðmar og hjúkrunarkonurn- ar Guðrún og Hrönn fá sérstakar þakkir. Elsku Ósvald minn, ég kveð þig núna, litli fallegi drengur, þú lifir í minningunni. Mamma elskar litla drenginn sinn. Bless ástin mín. Mamma. Elsku litla hetjan mín. Já, þú varst hetja sem margir aðrir mættu taka sér til fyrirmyndar. Þrátt fyrir öll þín veikindi og erfiði brostir þú alltaf í gegnum sársauk- ann. Þú reyndir að gera gott úr öllu saman, elsku litli drengurinn minn. Pabbi saknar þín óskaplega mikið og þú munt alltaf eiga vissan stað í hjarta mínu. Þetta var yndis- legur tími, þessir tíu mánuðir sem ég átti með þér. Það gaf mér mjög mikið þegar ég var að koma til þín. Að sjá brosið þitt þegar ég birtist, þú ljómaðir allur, og þú varst allur á iði. Því þú vissir að nú átti að fara á rúntinn í vagninum um gangana á spítalanum og hitta annað fólk. Þér þótti svo gaman að sitja í bláa stólnum þar sem þú sást svo vel í kringum þig á ganginum. Það var alveg unaður hvað öllum þótti vænt um þig, enda ekki annað hægt. Það stoppuðu allir til að tala við þig, ljósið mitt, og þú brostir til allra. Mér þykir þetta mikið óréttlæti, að þú skulir vera hrifsaður í burtu, þú áttir svo mikla möguleika á því að verða eins og önnur börn, en svona er þetta blessaða líf. Ég held að almættið hafi gert mistök í því að taka þig frá mér. Ég á eftir að spyrja almættið hvað hann meinti eiginlega með þessu, þegar minn tími er kominn. Þú sem fórst í gegnum allar þessar aðgerðir og svæfingar en settist svo alltaf aftur upp í bláa stólinn og brostir fram- an í heiminn, þú reyndir að gera gott úr þessu öllu saman. Manstu á jólunum þegar þú týndist í öllu pakkaflóðinu sem þú fékkst, eða á páskunum þegar trúð- urinn gaf þér páskaeggið, sem þú máttir ekki borða, þá varstu nú al- deilis hissa. Eða þegar við gengum fram hjá glerbúrinu á fremri deild, alltaf kom hún Ema og knúsaði þig, henni þótti svo vænt um þig. Það þótti mér voða vænt um. Takk, Ema. Þú eignaðist svo marga vini þessa tíu mánuði sem þú varst hjá okkur, til dæmis Sindra, Torfa, Láras, Lilju Björt, Söru Lind, Hörpu Lind, Lindu Hrönn, Kar- ólínu, Lára og fleiri og fleiri. Síðan fórum við til London og allt virtist svo bjart. Þér vora gefnir svo mikl- ir möguleikar á því að aðgerðin tækist, en hún fór á annan veg en búist var við. Ég gleymi því aldrei þegar mamma þín baðaði þig í síð- asta sinn, þú brostir svo fallega og lékst á als oddi. Ég mun aldrei gleyma augnaráðinu þínu þennan örlagaríka morgun, þú horfðir á okkur mömmu þína til skiptis og það var svo skrýtinn glampi í aug- unum, eins og þú vissir hvað í vændum væri. Jæja, Ijósið mitt. Pabbi kveður þig með söknuð 1 hjarta. Ég gæti skrifað miklu meira um þig en ég ætla að hafa það útaf fyrir mig, því þetta er svo sárt. Mig langar að þakka öllum sem önnuðust Osvald litla á Landspítal- anum. Sérstakar þakkir fá lækn- arnir Gulli og Hróðmar, Guðrún P., Hrönn Hreiðarsdóttir, Anna Axels- dóttir og Auðlín. Emu langar mig að þakka sérstaklega fyrir öll knúsin sem hún gaf Ósvaldi litla, og hvað hann var sérstakur í þín- um augum. Mig langar líka að þakka öllu því fólki sem þótti svo vænt um litla drenginn minn. Kristínu langar mig að þakka fyrir að klippa Ósvald fyrir utanlands- ferðina, eða eins og þú sagðir: „Hann verður að vera fínn í útlönd- um.“ Takk fyrir, öll þið sem báðuð svo mikið fyrir honum. Jæja ljósið mitt, pabbi kveður að sinni, en við mætumst alveg öragg- lega aftur, þá set ég þig sko ekki í bláan stól, þá verður það hásæti því þú ert hetja sem átt skilið að sitja á hæsta stalli og sjá yfir allt og alla. Guð verndi þig, elsku litli dreng- urinn minn. Pabbi. Ég man þegar ég sá þig fyrst, þú varst lítill á vökudeild og varst mjög veikur, þú lást í rúminu vakandi og horfðir á mig. Ég spurði pabba hvort ég mætti halda á þér og hann sagði já. Ég var svo glöð að fá að halda á þér en þennan dag átti ég að fara til Éyja. Svo fékk ég ekki að sjá þig lengi, lengi en loks þegar ég fékk að sjá þig varstu orðinn stærri og leist miklu betur út. Ég faðmaði þig og fékk að halda á þér. Ég var svo glöð að fá að halda á þér og ég var svo glöð að sjá þig að ég tárað- ist. En loks komstu upp á bama- deild og allir fengu að sjá þig. Þar fékk ég alltaf að halda á þér og ég gat keyrt þig í vagninum um gang- ana og leikið við þig og þá brostirðu svo fallega til mín. Við fengum að fá þig í íbúðina í Reykjavík og þar hugsaði ég vel um þig. Ég klæddi þig í og úr, skipti á þér og svæfði þig, ég hugsaði um þig eins og bamið mitt og mér þótti svo vænt um þig. Ég þráði að fá þig í ferminguna mína, en þú máttir það ekki því þú varðst allt í einu svo veikur, en eftir fermingu fékk ég að koma til þín og ég var alltaf hjá þér. Ég man þegar ég var að kveðja þig þegar þú varst að fara til London í hjartaaðgerðina, ég kyssti þig eins og ég gat og svo fór ég og ég get aldrei séð þig meir. Þegar þú fórst frá okkur varstu nýbyrjaður að hlæja eins og venjulegt fólk. Ó, hversu mikið ég sakna þeirra stunda sem ég var með þér. Eg kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. I öllum sálmum sínum tónn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Egvaktioftogbað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað. í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Eg sé þig koma, Rristur, með krossins þunga tré. Afennidaggirdrjúpa, og dýrð úr augum skín. A klettinn vil ég kijúpa og kyssa sporin þín. Eg fell að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi ogvemdarhverjarós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (D. Stefánss.) Þín elskulega systir, Hildur Rán. Elsku Ósvald Salberg. Við fengum lítið að kynnast þér, en það sem við heyrðum og það sem við sáum á myndum var yndis- legt, þú varst mikið veikur en samt oftast brosandi og kátur. Við kom- um einu sinni í heimsókn til þín á spítalann og sú heimsókn situr föst í minni okkar, þar sem þú lást í fangi okkar og skoðaðir okkur. Því miður urðu heimsóknirnar ekki fleiri en þessi var sérstök. Elsku litli Ósvald, nú ertu farinn á annan og betri stað þar sem þú þarft ekki að þjást og beijast, þar sem Róbert Freyr, bróðir þinn, tek- ur á móti þér og við vitum að vel verður hugsað um ykkur bræðuma. Elsku litli Ósvald, við biðjum fyrir þér, að þú hafir fundið frið og gleði. Við hlökkum til að hitta þig aftur hjá Guði. Friður sé með þér. Elsku mamma (Sabba), pabbi (Boddi), Hildur, Alexander, Óli, Simmi og Albert Snær, guð gefí ykkur styrk og hjálpi ykkur í sorg- inni og söknuðinum. Friður veri með ykkur. Jóhann Ágúst og Elva Björk. Elsku litli frændi minn. Mig tekur það mjög sárt að þú sért farinn frá okkur eftir svona stuttan tíma, aðeins 10 mánaða gamall. Þitt litla góða hjarta var svo veikt að þú varðst að fara á betri stað, því þér var ætlað betra hlutverk hinum megin. Þú sem fékkst ekki að koma heim til Eyja, vegna veikinda þinna. Ég fékk ekki að sjá þig vegna þess hversu veikur þú varst. En nú veit ég að þú ert á góðum stað með bróður þínum, honum Róbert Frey. Mér finnst mjög leiðinlegt að hafa ekki kynnst þér á þessum tíu mánuðum sem þú hreinlega barðist fyrir lífi þínu. Amma, afi, Sabba, Ósvald og böm. Guð veiti ykkur styrk í gegn- um þennan erfiða tíma. Blessuð sé minning þín, elsku litla dúlla. Nú dagur þver og nálgast nótt, til náða sem að kveður drótt, Ó, faðir ljóss og alls, sem er, gef öllum frið og hvíld í þér. Ó, guð sem skjaldarskuggi þinn oss skyldi myrkrið nú um sinn, gef þessi nótt oss verði vær, eins vorum bræðrum nær og fjær. Með fóðurhendi byrg oss brár og blítt við næsta morgunsár með endur hresstan þrótt og þrek sem þín og ljóssins börn oss vek. (Steingr. Thorst.) Þín frænka, Nanna Sigurjónsdóttir. Litli vinur okkar, Ósvald, þá er komið að kveðjustund. Rifjast þá upp minningar um okkar kynni sem hófust í janúar þegar Sara Lind lagðist inn á spítálann og dvaldi langdvölum með þér í her- bergi. Okkur varð fljótt ljóst að þrátt fyrir þín erfiðu veikindi varstu sannkallaður sólargeisli. Þú heillaðir alla með þínu fallega brosi og virtist þurfa svo lítið til að gleðj- ast. I dauðans faðm nú fallið er og fólt og kalt þar sefur það bam, ó, Guð, sem gafstu mér og glatt um stund mig hefur. Ó, faðir, lít í hkn til mín, og lát þú blessuð orðin þín mér létta sviðann sára, er sárra fær mér tára. (Sb. 1886 - H. Hálfd.) Með þessum fáu orðum kveðjum við þig, Ósvald. Minningin um þig verður alltaf á vissum stað í hjarta okkar. Biðjum við Guð að blessa fjölskyldu þína og gefa henni styrk. Sara Lind, Sigurmunda (Sirrý) og Eggert. Mig langar til að minnast lítillar hetju í nokkrum orðum. Hetju sem barðist en varð að lokum að játa sig sigraða. Það var hringt í mig í hádeginu hinn 23.júní og mér færðar þær fréttir að Ósvald Salberg hefði lát- ist um morguninn. Það er ekki hægt að lýsa þvi með orðum hvem- ig mér leið, en tómleiki, söknuður og sorg komast næst því að lýsa til- finningum mínum. Eftir að ég lagði frá mér símtólið voru mín fyrstu viðbrögð að taka sjö mánaða dóttur mína í fangið og hvísla að henni með kökki í hálsinum og tár í aug- unum að vinur hennar væri dáinn. í febrúar síðastliðnum veiktist dóttir mín og þurfti að leggjast inn á ungbarnadeild Landspítal- ans. Þar bjuggum við í sex vikur og kynntumst Ósvaldi litla. Þrátt fyrir veikindin var hann alltaf hress og kátur, smellti í góm og sveiflaði pálmanum sínum. Þegar hann var með litla plast-pálmatréð sitt töluðum við um að nú væri hann með pálmann í höndunum. Það var svo gaman að honum, að það var ekki annað hægt en að þykja vænt um þennan yndislega dreng sem mátti reyna margt á stuttri ævi. Hann var þó lánsamur að eiga svona góða fjölskyldu. Faðir hans var hjá honum á hverj- um degi, frá því snemma á morgn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.