Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 68
I MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 3. JULI1999 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Þorkell ÞEGAR líða tók á daginn var bíll við bfl á þjóðvegunum við Reykjavík. Mikil umferð á þjóðvegunum MIKIL umferð var á þjóðvegum landsins í gærdag og fram á kvöld og að sögn lögreglu gekk hún greiðlega fyrir sig. Lögreglan hafði mikinn við- búnað enda var búist við þungri um- ferð vegna þess hve veðurspáin fyrir helgina var góð. Frá höfuðborgarsvæðinu var þung — umferð bæði á Vesturlands- og Suð- urlandsvegi. Samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar á Selfossi var um- ferðarhraðinn ekki mikill enda það ekki mögulegt því á Suðurlandsvegi var nánast bíll við bfl. Fjöldi manns lagði leið sína í Þórs- mörk í gær og fór umferðin mjög að þyngjast seinnipart dags, samkvæmt uppiýsingum frá lögreglunni á Hvols- velli. Hún var með sérstakt eftirlit við Þórsmerkurveg, þar sem hún tók á móti ökumönnum og skoðaði ástand þeirra. Var það almennt gott, en eitthvað var um að bílar væru óskoðaðir. Fíkniefnalögreglan var komin á staðinn og verður hún með sérstakt eftirlit um helgina. A Akureyri var talsverð umferð frá —“Hiænum í gærdag en þegar líða fór á kvöidið streymdu bílar inn í bæinn. Samkvæmt uppiýsingum lögreglu- varðstjóra í Borgamesi var umferð þar í nágrenninu í gær með því Hvalfjarðargöng- Lokað vegna mengunar HVALFJARÐARGÖNGIN lokuðust vegna mengunar um klukkan sjö í gærkvöld, en þá náði umferðin í gegnum þau hámarki, samkvæmt iupplýsingum úr gjaldskýli ganganna. Starfsmaður skýlisins sagði að gífur- leg umferð hefði verið í gegnum göngin frá því seinnipart dags og fram á kvöld og þegar þau lokuðust var nánast bíll við bíl. Samkvæmt upplýsingum úr gjald- skýlinu lokast göngin sjálfkrafa þeg- ar mengunin fer yfir ákveðin mörk og tekur þá um 6 mínútur að loftræsta þau. Þetta er í fjórða skiptið sem göngin lokast vegna mengunar síðan þau voru tekin í notkun sl. sumar. mesta sem menn rak minni til. Allt gekk þó slysalaust fyrir sig og lög- reglan á Blönduósi hafði sömu sögu að segja. Brunamálastofnun leggur mat á brunavarnir í skólum Brunavörnum er verulega áfátt AÐ MATI Brunamálastofnunar er brunavömum í skólum hér á landi verulega áfátt. I skýrslu sem stofn- unin er að vinna um brunavamir í gmnnskólum á landsbyggðinni kem- ur fram að ástandið er gott í aðeins 7,8% skólanna, sæmilegt í 41,2%, slæmt í 49% og óviðunandi í 2%. Þetta er svipuð niðurstaða og varð í skýrslu Brunamálastofnunar um branavamir í skólum á höfuð- borgarsvæðinu og á Akureyri sem kom út í fyrra, en samkvæmt henni era branavamir ófullnægjandi í 68% skóla og viðunandi í 32% skóla. Að mati stofnunarinnar uppfyllir aðeins einn skóii í Reykjavík reglu- gerð um branavamir með viðunandi hætti. í skýrslu stofnunarinnar um branavarnir í framhaldsskólum, sem verið er að vinna að, era branavam- ir í góðu lagi í 13,2% tilvika, sæmi- legar í 34%, slæmar í 39,6% og óvið- unandi í 13,2%. Að mati Branamálastofnunar þarf víða að bæta við branahólfum í skól- um, flóttaleiðum er víða ábótavant og sums staðar era þær læstar. Al- mennt er þó hægt að auka öryggi í mörgum skólum með tiltölulega ein- földum hætti. Unnið að úrbótum Talsmenn Eldvamaeftirlitsins gagnrýna skýrslur Branamálastofn- unar um branavamir í skólum, ekki síst fyrir að setja alla skóla undir einn hatt, hvort sem þeir era byggð- ir fyrir gildistöku núverandi reglu- gerðar um brunavamir eða ekki. Víðistaðaskóli í Hafnarfírði er einn þeirra skóla sem koma illa út úr úttekt Branamálastofnunar. Skólastjóri skólans segist ítrekað hafa kvartað við bæjaryfirvöld und- an óviðunandi branavörnum, en nú sé unnið að úrbótum á skólanum og hann muni uppfylla reglugerð í haust. Verulegar athugasemdir era einnig gerðar við branavarnir í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Að sögn skólastjóra er nú unnið að skipulagi rýmingar skólans í sam- vinnu við slökkvilið. ■ Brunamálastofnun/34-35 Kríuunginn sólginn í físk SUMARIÐ skartaði sínu fegursta í Hrísey í gær og notuðu íbúamir veðurblíðuna óspart til útiveru sem og vitanlega fjöldi ferða- manna sem sækir eyjuna heim á sumri hverju. Ein af yngri kyn- slóð eyjarskeggja, Rebekka Rún, sýndi ljósmyndara stolt litinn kríuunga sem hún og félagar hennar eiga. Hún sagði að hann væri sólginn í físk og ekki er að efa að hann á eftir að dafna vel í umsjá Hríseyinganna. Morgunblaðið/Ásdís Bflvelta á Hellisheiði BÍLVELTA varð austarlega á Hell- isheiðinni um klukkan 18.30 í gær- kvöld. Bifreiðin sem er að Toyota gerð, fór margar veltur út fyrir veg- inn. Fjórir ungir menn voru í bílnum en sluppu þeir allir án teljandi -^fceiðsla, að sögn vaktlæknis á Slysadeiid Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að hans sögn hlutu mennimir að- eins smá skrámur og fengu þeir að fara heim að lokinni skoðun. Má það teljast mikii mildi. Bifreiðin skemmdist mikið og var flutt burt af slysstað með kranabíl. Umferðin um Suðurlandsveg var mjög mikil á þessum tíma og tafðist hún töluvert vegna slyssins. Lax-á með hæsta boð í MiðQarðará TILBOÐ í veiðiréttinn í Mið- fjarðará næstu þrjú árin voru opnuð í Reykjavík í gærdag og reyndist Lax-á ehf. vera með langhæsta tilboðið, 31.850.000 krónur á ári, verðtryggt. Stangaveiðifélag Reykjavík- ur var með næsthæsta tilboðið, 27.100.000 krónur. Fjögur önnur tilboð bárast, á bOinu 24.000.000 til 26.900.000 krón- ur. Miðfjarðará er með bestu laxveiðiám landsins. Hátt í 1.900 laxar veiddust í henni í fyrrasumar á tíu dagsstangir. Ain samanstendur af þremur þverám, auk aðalárinnar. Fyrst renna saman Austurá og Núpsá en áin heldur Austurár- nafninu. Síðan fellur Vesturá í Austurá og heitir vatnsfallið Miðfjarðará eftir það. ■ „Eru þeir/8 Þorskkvotinn er kominn í 118 kr. VERÐ á kvóta hefur hækkað mikið síðustu daga og náði verð á þorsk- kvóta sögulegu hámarki í gær þegar kílóið fór í 118 kr. Hilmar A. KrisL jánsson, framkvæmdastjóri KM- kvóta, sagði að lág kvótastaða og hátt afurðaverð skýrði þessa hækkun að stærstum hluta, auk þess sem hann taldi að tilkoma Kvótaþings hefði stuðlað að verðhækkun. Verðið væri orðið það hátt að útilokað væri að það borgaði sig að gera út. Fyrir fimm dögum kostaði kíló af þorskkvóta 108 kr., en hefur nú hækkað í 118 kr. Ýsukvóti hefur hækkað um 10 kr. á rúmlega viku og kostar nú 58 kr., en verðið hefur aldrei farið hærra. Óveiddur skarkoli hefur hækkað mjög mikið á síðustu dögum og er kominn upp í 67 kr. Steinbítskvóti hefur á örfáum dögum hækkað um 9 kr. kg og kostar nú 35 kr. HOmar sagði að kvóti í öilum fisk- tegundum hefði hækkað mikið að undanfomu nema í rækju og loðnu. Rækjukvóti hefði á tveimur áram lækkað úr 65 kr. kg niður í 1,50 kr. Loðnukílóið væri nú selt á um einn eyri. Borgar sig ekki að gera út Hilmar sagði að það væri orðið til- tölulega lítill munur á kvótaverði og fiskverði á fiskmörkuðum. Það væri því ekki nema eðlilegt að margir spyrðu hvemig væri hægt að gera út á þessu verði. Hann sagðist telja úti- lokað að það borgaði sig að standa í þessu ef menn þyrftu að kaupa kvóta. Jón Karlsson, hjá Kvótabankanum, sagði að sárah'tið framboð væri á kvóta og það ætti stærstan þátt í að þrýsta verðinu upp. „Ég held að menn hætti þessu núna og bindi skip við bryggju. Ég held að verðið sé komið yfir markið. Það er ekki glóra í þessu og hefur sjálfsagt ekki verið það lengi.“ Jón sagðist hafa trú á að það drægi úr eftirspurn eftir kvóta þegar verðið væri komið þetta hátt og í kjölfarið myndi komast jafnvægi á verðið. Margir væra að laga kvótastöðuna hjá sér og myndu hætta veiðum á næstu dögum og vikum til loka kvóta- ársins 31. ágúst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.