Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Tillaga valin til frekari útfærslu á skipulagi miðbæjar Kópavogs
Byggt yfir
gjána fyrir
200 milljónir
Kópavogur
TILLAGA arkitektanna
Auðar Sveinsdóttur og
Benjamíns Magnússonar um
skipulag miðbæjar Kópavogs
hefur verið valin til áfram-
haldandi útfærslu. Vinnuhóp-
ur um samanburðartiilögur
kynnti tillöguna á fimmtu-
dag. Leitað var til þriggja að-
ila til að setja fram tillögu, en
auk tillögu Auðar og Benja-
míns komu tillögur frá ann-
ars vegar Aiark og Landmót-
um og hins vegar Homstein-
um ehf.
Samkvæmt tillögu Benja-
míns og Auðar verður byggt
yfir gjána, eða Hafnarfjarð-
arveginn, sem skiptir Kópa-
vogi í austur- og vesturhluta.
Við Hamraborg verða allir
stoðveggir felldir út og um-
ferðarkerfi breytt. Gert er
ráð fyrir bílastæðahúsi norð-
an Listasafns og bílastæðum
austan Tónlistarhúss. Að-
komu frá Vallartröð að Fann-
borg verður breytt, en þar er
gert ráð fyrir ráðhústorgi.
Sömuleiðis verður aðkomu að
bæjarskrifstofunum og fyrir-
komulagi bílastæða breytt.
Göngubrú mun liggja frá
Fannborg yfir á vesturbakk-
ann og tengja austur- og
vesturbæ. Einnig er gert ráð
fyrir úrbótum á megin
gönguleiðum yfir núverandi
brýr þar sem gönguleið verð-
ur aðskiiin frá götu með
grindverki.
Formaður skipulagsnefnd-
ar og jafnframt vinnuhóps-
ins, Armann Kr. Olafsson,
segir að lausleg kostnaðará-
ætlun hljóði upp á 300 millj-
ónir króna. Þar sé yfirbygg-
ing gjárinnar langdýrust, en
gert er ráð fyrir að hún kosti
tæplega 200 milljónir króna.
Vinna við Hamraborgina
kostar væntanlega 60-70
milljónir og annað 30 milljón-
ir. Hann tekur þó fram að
þetta sé afar gróflega áætlað
og endanleg kostnaðaráætlun
liggi ekki fyrir fyrr en endan-
legar teikningar hafi verið
gerðar.
Yfirbygging gjárinnar
á næsta kjörtímabili
Bæjarstjóm á eftir að
samþykkja tillöguna, en hún
verður sennilega lögð fyrir í
haust. Armann segir að búið
sé að kynna tillöguna í bæj-
arráði Kópavogs og þar hafi
hún fengið jákvæðar undir-
tektir. Þá hafi allir þrír flokk-
amir í bæjarstjóm endur-
skipulagningu miðbæjarins á
stefnuskrá sinni. „Því á ég
ekki von á öðm en að tillagan
verði samþykkt í bæjar-
stjóm,“ segir hann.
Morgunblaðið/Jim Smart
TILLAGA Auðar Sveinsdóttur og Benjamíns Magnús-
sonar varð fyrir valinu. Á minni myndinni kynnir
Benjamín tillöguna.
Að sögn Armanns verður
framkvæmdinni skipt í 3^1
liði og væntanlega verði tveir
þeirra kláraðir á þessu kjör-
tímabili. Þeim hefur þó ekki
verið raðað í forgangsröð.
„Hins vegar má gera ráð fyr-
ir að byggingin yfir gjána
komi ekki til framkvæmda
fyrr en á næsta kjörtímabili,
en hún er langstærsti og dýr-
asti liðurinn," segir hann.
Aðspurður hvað réði vali á
tillögu segir Armann að þeim
hafi verið gefnar einkunnir í
20 þáttum. „Hvað varðar
kostnað var tiltölulega lítill
munur á tillögunum að flestu
leyti nema skipulagi gjárinn-
ar. Þar var kostnaðurinn á
bilinu 100-350 milljónir, eftir
tillögum, og þar var litið til
fjárhagshliðarinnar við valið.“
Auk Armanns voru í vinnu-
hópnum Sigrún Guðmunds-
dóttir í skipulagsnefnd, Hulda
Finnbogadóttir, formaður
miðbæjarsamtaka Kópavogs,
Steingrímur Hauksson, deild-
arstjóri hönnunardeildar, og
Aðalheiður E. Kristjánsdóttir
landslagsarkitekt.
mamss.
ŒPPNI
Börn velta fyrir sér hreyfíngu og ferðalögum í þriggja vikna listasmiðju í sumar
Á ferð
og flugi
í Barna-
bergi
Breiðholt
BÖRN á aldrinum sjö til
þrettán ára eru hvött til
tjáningar og sköpunar í
Iistasmiðju í Barnabergi.
Myndlist, tónlist og leiklist
er tvinnað saman á þriggja
vikna námskeiði sem nú
stendur yfir. Þegar blaða-
mann Morgunblaðsins bar
þar að garði gerðu börnin
tilraunir með skutlur og
önnur farartæki, enda
meginviðfangsefni smiðj-
unnar að fjalla um hreyf-
ingu og ferðalög.
Gerðuberg hefur staðið
fyrir listasmiðju fyrir börn
í rúman áratug. Eitt
þriggja vikna námskeið er
haldið á sumri en önnur
námskeið standa í eina
viku. Þá ræður ein list-
grein rílqum hveiju sinni.
Viðfangsefnin eru mis-
munandi en hverri smiðju
lýkur með sýningu á því
sem börnin hafa skapað.
Sigurþór A. Heimisson
leikari er einn þriggja sér-
hæfðra leiðbeinenda á
námskeiðinu sem nú er
haldið. Auk hans miðla
Margrét Örnólfsdóttir tón-
listarmaður og Arna G.
Valsdóttir myndlistarmað-
ur af þekkingu sinni. Sig-
urþór segir að reynt sé að
Morgunblaðið/Jim Smart
BÖRNIN og leiðbeinendur þeirra fleygðu skutlum í átt
að ljósmyndara.
fá börnin til að velta hreyf-
ingu og ferðalögum fyrir
sér á ýmsa lund, til dæmis
sé talað um ferðalög í
draumum og listformin
þrjú séu notuð til að tjá
hugmyndir barnanna.
Sigurþór lýsir ánægju
sinni með aldursbreiddina
á námskeiðinu. „Börnum
er yfirleitt skipt í hópa eft-
ir aldri og bekkjum,“ sagði
Sigurþór en hann kveður
frjálst frumkvæði yngri
barnanna og reynslu hinna
eldri mynda góða blöndu í
listasmiðjunni.
í gær héldu börnin í
ferðalag í gegnum Hval-
fjaröargöngin til Akra-
ness. Þar átti að skoða
byggðasafn og senda
flöskuskeyti frá Langa-
sandi. Ferðinni var ætlað
að vekja börnin til frekari
umhugsunar um fjölbreytt
form ferðalaga á sjó og
landi.
GLAÐBEITTIR listunnendur í góða veðrinu.
Nýr
ieikskóli
í haust
Mosfellsbær
FRAMKVÆMDIR
standa yfir við byggingu
nýs leikskóla við Lækj-
arhlíð í Mosfellsbæ.
Leikskólinn, sem þjóna
á íbúum í Höfðahverfi,
verður tekinn í notkun í
haust.
Að sögn byggingar-
fulltrúa bæjarins er fyr-
irhugað að grunnskóli
verði starfræktur í hluta
leikskólans og færanleg-
um skólastofum næsta
vetur. Nýlega var dæmt
í samkeppni um hönnun
grunnskóla á svæðinu og
verður ráðist í byggingu
hans á næsta ári.
KEA-versl-
un opnuð í
lok ágúst
Kópavogur
UNDIRBÚNINGUR er
hafinn að opnun KEA
matvöruverslunar í hús-
næði gömlu Borgarbúð-
arinnar í Kópavogi.
Sigmundur Ófeigs-
son, framkvæmdastjóri
verslunarsviðs KEA,
segir fyrirhugað að
opna verslunina seinni
hluta mánaðarins.
„Þetta verður þæginda-
búð,“ sagði Sigmundur.
„Áhersla lögð á til þess
að gera hnitmiðað vöru-
val og langan opnunar-
tíma“.