Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 5fk Átta milljónir í styrki - mest til móðurskóla Úthlutun úr Þro- unarsjóði grunn- skóla Reykjavíkur FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum 21. júní sl. úthlutun úr Þróunarsjóði gnmn- skóla Reykjavíkur fyrir skólaárið 1999-2000. Úthlutunin nemur alls 8 milljónum króna og fer stærsti hlut- LEIÐRÉTT Vilja ekki fangelsi í FRÁSÖGN á miðopnu í gær um skýrslu nefndar um unga afbrotamenn varð meinleg villa. Þar segir að nefndin telji vænlegan kost að komið verði á fót sérstöku fangelsi eða fangelsisdeild fyrir börn. Hið rétta er að í nefndarálitinu segir að nefndin telji það vænlegri kost að fangar undir 18 ára aldri afpláni refsingu með vistun á meðferðarheimili en að komið verði á fót sérstöku fangelsi eða fangelsisdeild. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Texti féll niður Þau mistök urðu við bh-tingu prjónaþáttarins Spuna að texti með munsturmynd féll niður. Birtist hann hér ásamt myndinni. MUNSTURA 2 y 5 V § § | /v\ 3T i f T" Wíi -r X" _ v V- 5=3 1 'Jk'il 1 v v V — FT Tj 'il'ii JJ V V ... Nt Tj /V\ / L L 4- V y “ ~r T1 /v\ D 5 y 5=^ : /\V\\ iz —H V V V > /v\ / .■ 7 ~ “ — V /V\ 7 iE 1 2 L ” _ _ tí /IvK ZLJ LL jj - - □ = sléttar lykkjur 0 = brugðnar lykkjur = 2 lykkjur teknar óprjón- aðar yfír á hægri prjón- inn, 1 slétt, steypið báð- um óprjónuðu lykkjun- um yfir lykkjuna = 2 lykkjur felldar af. inn, eða 5,9 milljónir til 7 móður- skóla í fjórum greinum. Hlutverk móðurskóla er m.a. að móta stefnu og vera í fararbroddi á sínu sviði. Einn kennari í hverjum móðurskóla stýrir starfmu, gerir áætlanir fram í tímann, skipuleggur námskeið fyrir kennara í samstarfí við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og annast ráðgjöf til annarra skóla en mjög mikið er lagt upp úr þeim þætti, segir í fréttatilkynningu. Hver móðurskóli hlýtur styrk í þrjú ár til verkefnisins. Hagaskóli, Hólabrekkuskóli, Melaskóli og Selásskóli verða allir móðurskólar í náttúrufræðikennslu og hlaut hver skóli 800.000 kr. styrk. Þetta er í fyrsta sinn sem út- hlutað er til móðurskóla í náttúru- fræðikennslu. Auk þess var úthlutað framhalds- styrkjum til þriggja móðurskóla sem útnefndir voru á síðasta ári en það voru Foldaskóli, sem er móður- skóli í nýsköpun, Grandaskóli, móð- urskóli í tölvukennslu, og Selás- skóli, móðurskóli í skólasafna- kennslu. Þessir skólai’ hlutu allir 900.000 kr. styrk og er þetta í annað sinn sem þeir hljóta styrk. Menntamálaráðuneytið valdi Ár- bæjarskóla sl. haust til að vera kjarnaskóli í upplýsingatækni á landsvísu. Hann hlaut 1.000.000 kr. styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla Reykjavíkur til þess verkefnis til viðbótar við jafnhátt framlag frá ráðuneytinu. Ártúnsskóli hlaut 600.000 kr. styrk til að vinna að sjálfsmati og Álftamýrarskóli hlaut 200.000 kr. styrk til verkefnis sem nefnist: Kennarinn og bekkurinn hans. Markmið þess er að auka gagnvirk samskipti milli kennara, nemenda og foreldra. Loks fékk framhaldsskólinn Borgarholtsskóli styrk vegna málm- iðnaðamámskeiða sem haldin eru fyrir grunnskólanemendur í Grafar- vogi en verkefnið hefur að megin- markmiði að auka áhuga grunn- skólanemenda á iðngreinum. Aukið þjóðvega- og hálendiseftirlit I SAMVINNU við lögreglustjór- ana hefur ríkislögreglan ákveðið að auka sérstaklega þjóðvega- og há- lendiseftirlit í sumar. Umferðar- deild ríkislögreglustjóra mun nota sérútbúnar bifreiðir til að fylgjast m.a. með ökuhraða. Sá útbúnaður sem notaður verður er hraða- myndavél og má reikna með þeim bifreiðum um allt land, segir í fréttatilkynningu. Backgamm- on-félag stofnað STOFNAÐ hefur verið backgammon-félag og er megintilgangur þess að stuðla að vexti og viðgangi spilsins. Mótahald verður ein leið til að ná þessu markmiði og verður fyrsta mót félagsins haldið kl. 17 sunnudaginn 4. júlí á veitingastaðnum Grand Rokk, Smiðjustíg 6, Reykjavík. Sigurvegari á mótinu fær 10.000 kr. að launum. I júlí og fram í águst er mikil um- ferð ferðamanna um þjóðvegi lands- ins og á hálendinu. Samstarf verður milli lögreglustjóranna á Suður- landi um hálendiseftirlit, jafnframt verður lögð áhersla á að sinna eftir- liti á vinsælum ferðamannastöðum, fylgst með akstri utan vegai’, ölvun- arakstri o.fl. í för með lögreglu verður læknir. Þannig munu lög- regluliðin um allt land hafa víðtæka samvinnu um löggæslumálefni. Eftirlit á þjóðvegum landsins mun að venju einkum beinast að ökuhraða, ölvunarakstri og notkun öryggisbelta. Einnig ljósanotkun, vöntun skráningarnúmera og öku- réttindum. Það sem af er árinu hef- ur aukið eftirlit lögreglu um allt land skilað fleiri kærum á ökumenn miðað við sama tíma í fyrra. Á síðasta ári var mikill fjöldi al- varlega umferðarslysa á þjóðvegum landsins og verður allt gert til að fækka umferðarslysum, sá árangur næst ekki nema með samstilltu átaki alfra sem leið eiga um þjóð- vegi landsins, segir í fréttatilkynn- ingu. Umferðarráð mun starfa í nánu samstarfi við lögregluembættin og mun útvarp Umferðarráðs koma upplýsingum á fí’amfæri við öku- menn. FRÉTTIR Utvarp nýrrar aldar KÁRI Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, afhendir Þor- valdi Gunnarssyni 100 þúsund króna peningaverðlaun fyrir fyrsta sæt- ið í' keppninni. 27 ÁRA gamall safnvörður frá Eyrarbakka, Þorvaldur Gunnars- son, bar sigur úr býtum í þátta- gerðarsamkeppninni Útvarp nýrr- ar aldar, sem Bylgjan stóð fyrir í samstarfi við Islenska erfðagrein- ingu og Fjárfestingarbanka at- vinnub'fsins. Bestu þættirnir í sam- keppninni verða sendir út fimm næstu sunnudaga á Bylgjunni, seg- ir í fréttatilkynningu frá Bylgj- unni. „Ungt fólk með hugmyndir um hvemig íslenskt útvarp á að hljóma á nýrri öld var mjög áhuga- samt um keppnina en 74 handrit að klukkustundarlöngum útvarps- þáttum bámst dómnefnd. Hún valdi fimm þeirra til framleiðslu. Allir vom þeir fagmannlega og vel unnir með góða hugmynd í granninn, en þáttur Þorvaldar, Út- varpshöfuðin, þótti falla best að yf- irskrift keppninnar Útvarp nýrrar aldar. f verðlaun hlaut hann 100 þúsund krónur, ferð til London til að kynna sér útvarpsmennsku þar í landi og starf við þáttagerð á Bylgjunni. I öðra sæti varð Gunn- hildur Una Jónsdóttir en hennar þáttur, Mínar eigin leiðir, er ferða- þáttur með nýstárlegu sniði. Aðrir sem hlutu viðurkenningar í móttöku í húsakynnum Islenska útvarpsfélagsins í gær voru þau Guðfinna Rúnarsdóttir, Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Guðjón Bergur Jakobsson. Verðlaunaþætt- irnir tveir, auk hinna þriggja sem komust í úrslit, verða sendir út fimm næstu sunnudaga á Bylgj- unni á milli kl. 15 og 16,“ segir þar ennfremur. Aðildarríki OSPAR hraða aðgerðum gegn geislamengun AÐILDARRÍKI OSPAR-samnings- ins um vernd Norðaustur-Atlants- hafsins samþykktu að hraða aðgerð- um til að draga úr losun á geislavirk- um efnum á fundi sínum í Hull í Bretlandi, sem er nýlokið. Á fundin- um var einnig samþykkt ný 25 ára áætlun til að draga úr neikvæðum umhverfísáhrifum olíu- og jarðga- svinnslu í hafmu en aðildarríki OSPAR höfðu áður samþykkt sh'kar framkvæmdaáætlanir varðandi hættuleg efni, geislavirk efni, nær- ingarefnaauðgun og vernd lífríkis hafsins á fundi umhverfisráðherra OSPAR-ríkjanna í Sintra í Portúgal í fyrra. ,Á ráðherrafundinum í Sintra skuldbundu Bretar og Frakkar, sem eru einu þjóðirnar í OSPAR sem stunda endurvinnslu á kjarnorkuúr- gangi (í Sellafield og Cap de la Hague), sig til að hætta nánast alveg losun geislavirkra efna fyrir árið 2020. A fundinum í Hull lögðu írar fram tillögu, sem unnin var í nánu samráði við Islendinga og Dani, um að Ospar-ríkin legðu aukna áherslu á að ná markmiðum sínum varðandi aðgerðir gegn geislamengun og reyndu að hraða shkum aðgerðum þannig að markmiðin næðust vel fyr- ir árið 2020, einkum varðandi endur- vinnslu kjarnaefna. Þessi tillaga var samþykkt. Fimmtán ríki, ásamt Evrópusam- bandinu, eiga aðild að OSPAR-samn- ingnum. A næsta ári kemur út skýrsla á vegum skrifstofu samn- ingsins um ástand umhverfís Norð- austur-Atlantshafsins sem verður hin fyrsta sinnar tegundar þar sem vísindaleg heildarúttekt verður gerð á umhverfisþáttum úthafssvæðis," segir í fréttatilkynningu frá Um- hverfisráðuneytinu. Nýtt hafnaráð skipað SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur skipað nýja fulltrúa og varafulltrúa í hafnaráð. í ráðið voru skipuð þau Sigríður Finnsen og Einar K. Guð- finnsson en sem varamenn þeir Jó- hann Guðmundsson, Kristinn Jón- asson og Ásgeir Logi Ásgeirsson. Samgönguráðherra skipar hafnaráð sér til ráðuneytis um hafnamál. í hafnaráði skulu eiga sæti fimm fulltrúar og jafnmargir varamenn. Þar af skulu tveir til- nefndir af Hafnarsambandi sveit arfélagá til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnakosningum. Þrír fulltrúar skulu skipaðir án til- nefningar að loknum alþingiskosn- ingum og skal einn þeirra vera for- maður ráðsins. Eftir að nýr ráðherra tekur við embætti eiga sér aðeins stað breyt- ingar á ráðherratilnefndum fulltrú- um. Auk fyrrnefndra aðila eiga sæti í hafnaráði: Jón Birgir Jónsson, Hannes Valdimarsson og Ólafur M. Kristinsson. Varamenn eru þeir Gísli Gíslason og Brynjar Pálsson. llkynning um hlutafjárútboð og skráningu hlutafjár á Verðbréfaþingi íslands ■ > Sölusamband íslenskra liskframleiðenda hf. kt. 580293-2989 Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfirði Fjárhæð útboðsins er 165.413.044 kr. að nafnverði og er um að ræða nýtt hlutafé. Hluthafar hafa forgangsrétt til hlutafjárkaupa í hlutfalli við skráða hlutafjáreign sína í hlutaskrá SÍF hf. í lok dags 2. júlí 1999. Útboðsgengi til forgangsréttarhafa er 6,20. Forgangsréttartímabil: 7. júlí 1999 til og með 21. júlí 1999. Þeir hluthafar sem hyggjast nýta forgangsrétt sinn þurfa að skila útfylltum áskriftareyðublöðum til Búnaðarbankans Verðbréfa fyrir kl. 16.00 hinn 21. júlí 1999. Greiðsluseðlar verða sendir út þegar úrvinnslu áskrifta lýkur og verður greiðsla að berast fyrir 4. ágúst 1999. Umsjón með útboðinu hefur Búnaðarbankinn Verðbréf, kt. 490169-1219, Hafnarstræti 5, 3. hæð, 155 Reykjavík, sími 525 6060, fax 525 6099. Nálgast má útboðslýsingu hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum, hjá SÍF hf. og á netslóðinni www.bi.is eftir 7. júlí 1999. BíiNAMRMNKINN VERÐBRÉF - byfixir ú irauxti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.