Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Boðaðar sparnaðaraðgerðir rLkisstjórnar Gerhards Schröders kanzlara Tilraun til að rjúfa „um- bótateppuna“ í Þýzkalandi Reuters KANZLARINN Gerhard Schröder og fjármálaráðherrann Hans Eichel voru ákveðnir á svip er þeir kynntu spamaðaráform stjórnarinnar, sem þeir sögðu „umfangsmestu umbótaáætlunina í sögu Sambandslýðveldisins". í síðustu viku kynnti þýzka ríkisstjórnin umfangsmikla áætlun um umbætur á skatt- kerilnu, sem á að stöðva skuldasöfnun þýzka ríkisins. Auðunn Arnórsson rekur hvað í áformunum felst og lýsir pólitískum bak- grunni þeirra. MEÐ umfangsmikilli umbótaáætl- un, sem felur í sér skatta- og út- gjaldabreytingar sem spara eiga þýzka ríkiskassanum 30 milljarða marka, um 1.200 milljarða króna, strax á næsta ári, reynir nú Ger- hard Schröder Þýzkalandskanzlari að reka af sér það slyðruorð í inn- anlandsmálum, sem fjölmiðlar og stjórnarandstaða voru farin að bera á hann með síauknum þunga. A ríkisstjórnarfundi um miðja síðustu viku tókst Schröder að fá samþykki samsteypustjórnar sinn- ar fyrir hinum metnaðarfullu áformum, sem hagsmunaaðilar í þýzku viðskipta- og þjóðlífí hafa tekið misjafnlega, enda óhjá- kvæmilegt annað en að slíkar sparnaðarráðstafanir komi illa við suma þegna landsins. Stóru orðin ekki spöruð Hálfs árs formennskutímabil Þýzkalands í ráðherraráði Evrópu- sambandsins (ESB), sem lauk í júní, formennska í G7-hópi stærstu iðnríkja heims, og Kosovo-deilan hafði haldið athygli kanzlarans frá brýnum úrlausnarmálum í innan- landsmálum Þýzkalands - eða því héldu að minnsta kosti leiðarahöf- undar þýzkra fjölmiðla og ekki sízt talsmenn stjórnarandstöðunnar fram. Kanzlarinn sparaði heldur ekki stóru orðin, þegar hann kynnti áformin á blaðamannafundi í Bonn, með fjármála-, félags- og heilbrigð- ismálaráðherra stjórnarinnar sér við hlið. Um væri að ræða „stærstu umbótaáætlunina í sögu Sam- bandslýðveldisins," „áætlun ger- endanna gegn úrtölumönnunum". Aformin, sem fjármálaráðherr- ann Hans Eichel og félags- og at- vinnumálamálaráðherrann Walter Riester eru sagðir aðalhöfundarnir að og kynnt voru undir yfírskrift- inni „endumýjun Þýzkalands", höfðu vikum saman fyrir opinbera kynningu þeirra verið erfitt deilu- mál milli stjórnarflokkanna, jafn- aðarmanna og Græningja. Þau fela í aðalatriðum í sér eftirfarandi þætti: Lækkun fyrirtækjaskatta, endurbætur á stöðu fjölskyldunnar í skattkerfinu, langtímaáætlun um uppstokkun eftirlaunakerfisins og hækkun neyzluskatta, einkum á eldsneyti, sem liður í þeirri stefnu að leggja meiri áherzlu á „um- hverfisskatta“. Schröder lagði á það áherzlu við kynningu áformanna, að ríkis- stjómin hefði með þeim brugðizt við afleiðingum hnattvæðingarinn- ar og hinnar efnahagslegu og fé- lagslegu sameiningar Þýzkalands. Fyrri ríkisstjóm, sem Helmut Kohl fór fyrir, sendi hann auk þess tóninn með því að segja að nú væri liðinn sá tími, sem valdhafarnir sætu af sér vandamálin án þess að leysa þau. Nú væm umbætur komnar í gang, sem fólk myndi al- mennt ekki gera sér grein fyrir hve þýðingarmiklar væru fyrr en að áratugum liðnum. Umbótaáformin myndu hjálpa yngri kynslóðinni en tryggði hinum eldri jafnframt nægilegt félagslegt öryggi. Schröder og félagsmálaráðherr- ann Riester telja sér til tekna, að með áformunum hækki hin ríkis- tryggðu eftirlaun á árunum 2000 og 2001 aðeins um það sem svarar verðbólgunni og að til ársins 2030 muni eftirlaunin lækka úr 70% heildartekna nú í 67%; samkvæmt áformum Norberts Blúms, sem fór með félagsmál í Kohl-stjórninni, átti þetta hlutfall að lækka í 64%. Tekjuskattur á fyrirtæki á að lækka í 25% frá árinu 2001. Með því færist að sögn þeirra Schröders og Riesters Þýzkaland í hóp neðsta þriðjungs Evrópulanda, og reynd- ar heimsins alls, hvað varðar fyrir- tækjaskattheimtu. Tímabært átak Ekki þykir vafi leika á því, að eftir hina brösóttu byrjun stjórnar Schröders fyrstu mánuðina eftir að hún tók við völdum sl. haust, þegar svo virtist sem ein höndin væri uppi á móti hverri annarri í hverju málinu á fætur öðru, veiti kanzlar- anum ekki ekki af að sanna að hann sé fær um að koma erfiðum innanlandsmálum í gegn, án þess að ágreiningur og hagsmunaá- rekstrar í röðum stjórnarliðins hindri framgang þeirra. Þar til Oskar Lafontaine, fyrr- verandi fjármálaráðherra og for- maður jafnaðarmannaflokksins SPD, hvarf úr ríkisstjórninni fyrr á árinu var togstreitan milli hins áhrifamikla flokksformanns og kanzlarans Schröders það sem virtist valda mestu um að erfitt var að festa hendur á hver raunveruleg stefna stjómarinnar væri, og hver væri í raun ábyrgur fyrir henni. Eftir brotthvarf Lafontaines leikur ekki lengur neinn vafi á því hver ber ábyrgð á stjórnarstefn- unni. En ágreiningur milli manna innan stjómarinnar, einkum milli Græningja og jafnaðarmanna en þó einnig milli þingflokks SPD og kanzlaraembættisins, hafði verið áberandi á undanförnum vikum. Þessi ágreiningur kallaði á gagn- rýni, og Schröder varð að bregðast við henni með sannfærandi hætti. Liður í áætlun hans um að sýna svo ekki yrði um villzt hver stjómi var að koma hinum áberandi yfirmanni kanzlaraembættisins, Bodo Hombach, í annan stól. Hombach, sem var einn helzti ráðgjafi Schröders og hans pólitíska „hægri hönd“, hafði verið harðlega gagn- rýndur fýrir að sinna ekki sem skyldi því hlutverki sínu að miðla málum milli stjórnarflokkanna. Með því að koma honum í nýtt embætti Balkanskagaerindreka ESB og fá í hans stað minna áber- andi mann sem líklegra þykir að sé fær um að sjá til þess að friður ríki - að minnsta kosti út á við - milli stjómarflokkanna og milli þings og kanzlaraembættisins, er liður í þessari „valdsmannsáætlun" kanz- larans. Der Spiegel segir það meðal mikOvægustu pólitísku hæfileika Schröders, að geta „bundið marg- víslegustu staðreyndir og aðstæður saman í einn heildarpakka," sem sé óljós hvað pólitískt innihald varðar, en höfði með árangursríkum hætti til tilfinninga fólks. Þannig hafi hann nýtt sér þær aðstæður sem upp voru komnar eftir tap jafnað- armanna í Evrópuþingskosningun- um um miðjan júní, þá athygli sem sameiginleg stefnuyfirlýsing Schröders og Tony Blairs, forsæt- isráðherra Bretlands og leiðtoga brezka Verkamannaflokksins, vakti, slæma útkomu þýzku stjórn- arinnar í skoðanakönnunum og þá tímamótastemmningu sem ríkti í Bonn síðustu daga þinghalds þar fyrir flutninginn til Berlínar, tO að „rjúfa umbótateppuna" sem árum saman hefur verið sagt að væri krónískt vandamál þýzkra stjórn- mála. Stjómarandstaðan, sem lengi hafði getað gert sér mat úr því að svo virtist sem stjórnin ætti erfítt með að vera sammála um nokkurt mikilvægt málefni, brást við sparn- aðarpakka stjómarinnar íyrst og fremst með því að halda því fram að í honum fælust svikin loforð og verið væri að reyna að blekkja kjós- endur. Wolfgang Scháuble, formað- ur KristOegra demókrata (CDU), sagði áformin grafa kerfisbundið undan raunvemlegum umbótaviija í landinu. Friedrich Merz, talsmað- ur þingflokks CDU í fjármálum, sagði áform stjómarinnar í raun ekki spara 30 mdljarða marka, eins og hún héldi fram - spamaðurinn yrði nær sjö mOljörðum. Stranda áformin í Sambandsráðinu? Og stjómir margra sambands- landanna 16, sem að sjálfsögðu hafa sitt að segja um slíkar kerfis- breytingar, era gagnrýnar. Þó virðist meirihlutastuðningur í Sam- bandsráðinu, efri deild þýzka þingsins sem skipuð er fulltrúum sambandslandsstjórnanna, tryggð- ur, þótt naumur sé. í bOi að minnsta kosti. Sumarfrí þingsins er nú hafið og það mun vafalaust taka fram á haust að koma öllum þáttum umbótaáformanna í lög. Og í september fara fram lands- stjómakosningar bæði í Branden- burg og Saarlandi, þar sem SPD er við stjórnvölinn. Meirihlutinn í Sambandsráðinu er í hættu, takist stjómarnandstöð- unni að gera sér mat úr mögulegri óánægju meðal kjósenda í þessum héraðum - svipað og henni tókst að gera í Hessen fyrr á þessu ári, þar sem CDU sigraði eftir harkalega áróðursherferð gegn áformum stjórnarinnar um breytingar á lög- um um ríkisborgararétt. Það var reyndar tap SPD og Græningja í þeim kosningum, sem skilaði Hans Eichel til Bonn, en hann var for- sætisráðherra Hessen. Hvort tveggja Brandenburg, sem áður var hluti Austur-Þýzkalands, og Saarland era mjög háð fjárstreymi frá alríkisstjórninni og því valda hin umfangsmiklu sparnaðaráform mönnum í herbúðum SPD í þess- um héruðum áhyggjum, nú þegar kosningabaráttan er framundan. Leita or- saka kláf- ferjuslyss RANNSÓKN hófst í gær á hugsanlegum orsökum kláf- ferjuslyssins í St. Etienne í frönsku Ölpunum á fimmtu- dag þar sem tuttugu manns fórast þegar kláfferja féU áttatíu metra tO jarðar, í því sem nefnt hefur verið versta kláfferjuslys allra tíma í Frakklandi. Sagði einn rann- sóknarmanna að fyrsta skref- ið yrði að taka niður þá hluta kláfferjunnar, sem vora uppi, til að kanna hvort þeir væra farnir að láta á sjá. Flestir þeirra áttatíu hermanna, sem komu á slysstað á fimmtudag, vora enn á svæðinu í gær og var markmið þeirra m.a. að verja rannsóknarmenn á slys- staðnum fyrir ágangi forvit- inna ferðamanna. Átta fórust í flugslysi í Burma ÓTTAST var að aOir átta far- þegar Fokker-flugvélar ríkis- flugfélagsins í Burma hefðu farist þegar hún brotlenti í vestur-Burma í gær. Mun flugvélin hafa brotlent um 560 kflómetra norðvestur af Ran- goon, um fimm mínútum áður en flugmaður vélarinnar hugðist lenda á Sittwe-flug- veOi. Þjóðverjum fer fækkandi ÞÝSKA hagstofan sagði í gær að íbúum Þýskalands hefði fækkað í fyrra, áttunda árið í röð, þar sem fjöldi andláta héldi áfram að vera hærri en fjöldi fæðinga í landinu. Enn fremur fluttu fleiri frá Þýska- landi en til þess, og vora íbúar Þýskalands 82,037 mOljónir í fyrra en voru 82,057 árið þar áður. Hálf milljón menntskæl- inga á byssu NÆSTUM hálf milljón bandarískra menntaskóla- nema segist eiga skotvopn og þeir sem eiga við áfengis- vanda að stríða eru helmingi líklegri til að eiga byssur, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem gerð var við Harvard-háskóla. Estrada með frumlega lausn á barnavanda JOSEPH Estrada, forseti Fil- ippseyja, bað íbúa landsins í gær um að hafa hemil á hvöt- um sínum. „í hreinskilni sagt getur verið að við höfum ekki tíma til að byggja næg hús þar sem við erum svo upptek- in við að búa til börn,“ sagði forsetinn, eftir að hafa skoðað byggingar, sem reistar vora til að hýsa heimdislausa, í einu úthverfa Manila. „Hér era aOtof mörg börn, kannski þurfum við að hafa örlítinn hemil á hvötum okkar,“ bætti Estrada við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.