Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.07.1999, Blaðsíða 56
-*>6 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Kasparov tekur forystuna í Frankfurt SKAK Frankfurt FRANKFURT SKÁKMÓTIÐ 29. júní - 2. júlí ^ KASPAROV og Karpov mættust í þriðja sinn við skákborðið á fimmtudaginn í sjöundu umferð Frankfurt skákmótsins. Eins og fyrri viðureignir þeirra í mótinu endaði skákin með jafntefli. Tölu- vert hefur verið fjallað um þetta skákmót í þýskum fjölmiðlum og ljóst er að innbyrðis viðureignir Ka- sparovs og Karpovs vekja mikla at- hygli. Þannig sagði eitt þýskt dag- blað frá því, að þegar þeir hófu skák sína í fyrstu umferð hafi allir Ijós- myndarar og blaðamenn þyrpst í Nánari upplýsingar um þessa skemmtilegu keppni má finna á heimasíðu Taflfélagsins Hellis: www.simnet.is/hellir. Hannes nálgast 2600 skákstig FIDE hefur nú gefið út nýjan stigalista, sem tekur gildi nú í júh'. Eins og á undanfömum listum er Jóhann Hjartarson stigahæstur ís- lenskra skákmanna. Það eru tvær afar ánægjulegar breytingar á listanum fyrir okkur Islendinga. Hannes Hlífar Stefáns- son stefnir nú hraðbyri í hóp sterk- ustu skákmanna heims og vantar einungis 16 stig til þess að ná 2600 stiga markinu. Hann er nú með 2584 stig og hefur hækkað um 37 stig frá síðasta lista, sem telst um- talsverð hækkun í þessum styrk- Frankfurt skákmótið, 29.6.-2.7.1999 Siemens risarnir Nr. Nafn Stiq 1 2 3 4 Vinn. Röð 1 Gary Kasparov 2812 'h ’/2 1 'h 'h 'h 1 'h'h 5 'h 1.-2. 2 Vladimir Kramnik 2751 'h 'h 0 1 'h 1 'h 'h 0 4’/2 1.-2. 3 Anatolv Karpov 2710 ’/2 ’/2 ’/2 O'hO 'h 1 'h 4 3.-4. 4 Viswanathan Anand 2781 O'h'h '/Í'h1 'h 0 'h ! 4 3.-4. Meistaraflokkur Nr. Nafn Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 Vinn. Röð 1 Fritz 6 Forrit M 1 'h 'h 1 1 1 0 1 'h 'hi 8 1. 2 Veselin Topalov 2700 0 'h 0 01 1 1 1 1 'h 1 7 2. 3 Peter Leko 2694 'h 0 1 O'h 'h 1 1 'h 1 'h 6,5 3. 4 Peter Svidler 2713 0 1 0 1 h oíu 'h 1 1 'h 514 4. 5 Judit Polqar 2677 0 0 'hO 1 1 1 0 0 1 'h 5 5. 6 Alexander Morozevich 2723 1 0 0'h h 0 1 00 'h 1 414 'f <d r 7 Christopher Lutz 2610 0h 00 0 00 1 1 1 íl 1 414 6.-7. 8 Michael Adams 2716 'h 0 'h 0 'h 'h 0 'h 'hO 0 3 8. kringum skákborðið. Við hitt skák- borðið sátu „aðeins“ Kramnik og Anand, annar og þriðji sterkasti skákmaður heims, en enginn sýndi þeim áhuga og þeir urðu að láta sér nægja hvor annars athygli. Allir áhorfendur skynjuðu þá miklu spennu sem lá í loftinu. Þýsku blöðin fjalla einnig nokkuð um einstaka keppendur. Peter Leko er sagður mælskur og tala mikið, en Karpov svarar sérhverri spumingu blaðamanna af þolinmæði og veitir eiginhandaráritanir á báða bóga. Kasparov fær fremur lága einkunn. jillann lætur sem hann sjái ekki þeg- ar hann er beðinn um eiginhandará- ritun og sýnir blaðamannafundum lítilsvirðingu. I sjöundu umferð mótsins bar það helst til tíðinda að Anand sigraði Kramnik með ótrúlega lítilli fyrir- höfn. Þegar Anand hafði notað inn- an við tvær mínútur af umhugsun- artímanum var hann kominn með gjömnnið tafl. Samtals notaði An- and fjórar mínútur á skákina. í áttundu umferð sigraði Ka- sparov Kramnik og komst þannig einn í efsta sæti. í níundu umferð sigraði Kramnik Karpov, eftir að sá síðamefndi hafði enn eina ferðina lent í heiftarlegu ' fímahraki. Tefld er fjórföld umferð á mótinu, ein einföld umferð á dag. Tefldar em atskákir. Þegar einn keppnis- dagur er eftir hefur Kasparov eins vinnings forystu og því virðist stefna í enn eitt gullið hjá honum á þessu ári. I meistaraflokki er Fritz skákfor- ritið efst með átta vinninga. Forritið nær þessum árangri þrátt fyrir að stöðumat þess þyki standa stór- meisturunum langt að baki og það geri sig einstaka sinnum sekt um -^kyssur sem miðlungsskákmenn -íiiundu aldrei gera. Styrkleiki þess byggist á mjög öflugri fléttutækni, sem gerir meira en að bæta upp aðra veikleika þess. Kasparov gegn heiminum Kasparovs hefur nú leikið sjötta leik sínum gegn heiminum: ^ l.e4 c5 2.RÍ3 d6 3.Bb5+ Bd7 4. Bxd7+ Dxd7 5. c4 Rc6 6. Rc3 leikaflokki á stigalista FIDE. Helgi Ass Grétarsson hefur hækkað enn meira í stigum og bætir sig um hvorki meira né minna en 62 stig. Þar með er hann kominn með 2521 skákstig og er nú orðinn fimmti stigahæsti skákmaður landsins. Það skal tekið fram að FIDE leiðrétti margsinnis stigalistann í janúar, sem þessar stigahækkanir byggjast á, og erfitt var að átta sig á hver hin endanlega útgáfa var. Vonandi hefur tekist betur til að þessu sinni hjá FIDE. 1. Jóhann Hjartarson 2630 2. Hannes H. Stefánsson 2584 (19) 3. Margeir Pétursson 2535 4. Jón L. Ámason 2529 5. Helgi Áss Grétarsson 2521 (47) 6. Helgi Ólafsson 2494 (18) 7. Karl Þorsteins 2493 8. Pröstur Þórhalisson 2489 (12) 9. Jón Viktor Gunnarsson 2411 (13) 10. Björgvin Jónsson 2392 Talan aftan við stigin sýnir hversu margar skákir voru reiknað- ar til stiga hjá viðkomandi skák- manni að þessu sinni. Atkvöld hjá Helli á mánudag Taflfélagið Hellir heldur atkvöld mánudaginn 5. júlí og hefst mótið kl. 20. Mótið er haldið í Hellisheim- ilinu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mín- útur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með tuttugu mín- útna umhugsun. Sigurvegarinn fær verðlaun, mat fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá hefur einnig verið tekinn upp sá siður að draga út af handahófi annan kepp- anda sem einnig fær máltíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé- lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). Allir eru vel- komnir. Síðasta atkvöld Hellis var haldið í júní. Þá sigraði Stefán Kristjáns- son. Andri Ass Grétarsson varð annar og Magnús Örn Úlfarsson þriðji. Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson í DAG VELVAKANÐI Svarað í síma 569 1100 frá 10-13 frá mánudegi til föstudags Sjúklingar í fyrirrúmi ÉG hafði samband við Velvakanda fyrir stuttu vegna þess að ég lenti í slysi og var látin fara ósjálfbjarga heim af slysa- deild. Ég lenti í hinum mestu erfiðleikum út af þessu, en nú hef ég hugs- að mér að stofna hags- munasamtök sjúklinga og nú þegar hefur margt fólk haft samband við mig og margir hafa áhuga á að vera með í slíkum samtök- um. Ég vissi að ástandið væri slæmt í þessum mál- um, en ekki eins hræðilegt og ég hef heyrt síðustu daga. Neyðarástand nkir í þessum efnum. Ég vil hvetja fólk sem þekkir til þessara mála til að hafa samband við mig, því nú er að hefjast undirbún- ingsvinna til að stofna þessi samtök. Einnig hafa margir haft samband við mig vegna biðlista sjúkra- húsanna og hvet ég jafn- framt það fólk til að hafa samband við mig. Það sagði mér læknir að stjómvöld hlustuðu ekki á starfsfólk Sjúkrahúss Reykjavíkur, því ekki vil ég skella skuldinni á starfsfólkið sem vinnur undir þessu álagi. Sparn- aðaraðgerðum ríkisstjórn- arinnar er um að kenna. Ég er í síma 5875801 eða 6985998. Sigrún Ármanns Reynisdóttir. Rautt Export box óskast Á EINHVER rautt Ex- port rótarbox frá Johnson og Kaaber? Boxið óskast í skiptum eða til kaups. Upplýsingar í síma 5538237 næstu daga, Ásta. Einnig blómið fljúgandi diskur, óskast í skiptum á sama stað. Tapað/fundið Gleraugu töpuðust GLERAUGU í brúnni um- gjörð töpuðust fyrir skömmu. Þeirra er sárlega saknað. Upplýsingar í síma 8974150. Fundarlaun. Úlpa og myndavél ÉG var í heimsókn hjá frænku minni á Blönduósi í byrjun júm' og týndi úlp- unni minni, sem er ljósblá vatteruð sumarúlpa, merkt mér, og alveg nýrri mynda- vél, sem er Ijósgrá og silfruð í svörtu hulstri. Ef einhver hefur fundið þetta þá vinsamlegast hringið í síma 5550502 éða 6986190. Kassandra Lff, 7 ára. Gæludýr „Kátur kisi“ er týndur TAPAST hefur Abbessin- íu-köttur, blágrár, og ber nafnið „Kátur kisi“. Hann týndist frá Drangagötu í Hafnarfirði. Þessi köttur er úr ræktun Ólafs Njáls- sonar, Nátthaga, og eru einungis 10 kettir af þessu kyni hér á landi. I öðru eyra kattarins er merki: R9H043. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 8978811 - 5655448 eða 8625729. Fundarlaunum er heitið. Kattavinir athugið! VIÐ erum yndislegustu innikattahjón í heiminum, tveggja ára og eins og hálfs árs gamlir og okkur brávantar framtíðarheim- ili vegna óviðráðanlegra ástæðna. Upplýsingar í síma 5655257. SKÁK (Jm.vjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á ofur- sterku atskákmóti, Siemens mótinu í Dortmund í Þýska- landi í síðustu viku. Stiga- hæsti skákmaður heims, Gary Kasparov (2.812) hafði hvítt og átti leik gegn Vlad/mir Kramnik (2.751). Svartur lék síðast 34. - Dd8-c7?? sem var grófur af- leikur. 35. Hxd5! - exd5 36. Rd4+ og svartur gafst upp, því 36. - Kd8 er svarað með 37. Re6+! Þegar tefldar höfðu verið níu umferðir af tólf á þessu móti fjögurra sterkustu skákmanna heims var stað- an þessi: 1. Kasparov 5!4 v., 2. Kramnik 4!4 v., 3.-4. Kar- pov og Anand 4 v. HVITUR leikur og vinnur. Víkverji skrifar... VÍKVERJI er enn á báðum átt- um í gagnagrunnsmálinu. Nán- ar tiltekið hefur hann enn ekki gert upp við sig hvort hann segir sig úr grunninum. Verst þykir Víkverja að þurfa að ákveða hvort hann segir böm sín úr grunninum eða ekki. Hann telur sig hafa fylgst grannt með þessu máli en játar að hann áttar sig enn ekki á hverjir hagsmunir bama hans em í þessu samhengi. Og hver em rétt- indi þeirra í ljósi þess að foreldrar þeirra eiga að taka þessa ákvörðun fyrir þau? Er hugsanlegt að það eigi eftir að koma með einhverjum hætti niður á bömum Víkverja ákveði hann að halda þeim í gagnagmnninum, nú eða þá að segja þau úr honum? Get- ur verið að böm hans komi í fram- tíðinni til með að kunna honum litl- ar þakkir fyrir þá ákvörðun? Getur þessi ákvörðun Víkverja jafnvel leitt til misklíðar síðar? Víkverja sýnast þetta gildar spumingar, ekki síst þar sem ýmis- legt virðist vera á huldu um hvernig þær upplýsingar verða notaðar sem færðar verða inn í gagnagrunninn. Þá munu þær upplýsingar sem inn í gmnninn em komnar vera óaftur- kræfar hafi Víkverji skilið málið rétt. Víkverja er því vemlegur vandi á höndum. Sannast sagna hefur hann verið að bíða eftir því að réttir aðil- ar svömðu grein eftir Sigríði Þor- geirsdóttur, lektor í heimspeki, sem birtist í Morgunblaðinu ekki alls fyrir löngu. Þar færði Sigríður rök fyrir að réttindi bama væm ekki trveerð með beeiandi sambvkki for- eldra um að upplýsingar um af- kvæmi þeirra yrðu færðar í gagna- grunninn. í þessari grein beindi Sigríður Þorgeirsdóttir þeirri spumingu til Þórhildar Líndal, umboðsmanns bama, hvort hún hefði gert athuga- semdir við réttindaleysi bama í gagnagrunninum. Jafnframt spurði hún hvað umboðsmaður barna hygðist gera til að tryggja að for- eldrar gætu tekið „upplýsta ákvörðun" fyrir hönd barna sinna. Víkverji telur að þessar spurningar eigi fullan rétt á sér og væntir þess að umboðsmaðurinn svari þessum athugasemdum Sigríðar Þorgeirs- dóttur. Fyrr telur Víkverji sig ekki hafa fast land undir fótum í þessu máli. xxx NÚ hefur verið ráðinn til starfa „menningarfulltrúi lands- byggðarinnar á þróunarsviði Byggðastofnunar". Loks getur Vík- verji sofið rólegur. Nú hlýtur ís- lenskri menningu að vera borgið. Víkverji veltir fyrir sér hvemig titill þessi hljóði á sænskri tungu en þangað hlýtur hann að vera sóttur. Aður en Víkverji þroskaðist hélt hann í bamaskap sínum að menn- ingin þrifist ágætlega úti á landi. Víkverji verður m.a.s. að játa og það ekki kinnroðalaust að hafa sótt leik- og listsýningar í dreifbýlinu og haft af þeim nokkra skemmtun. Nú hafa fræðingarnir og stjómmálamenn- imir sem Víkverji kýs alltaf og treystir algjörlega frætt hann um að menningarleysið á landsbyggð- inni sé svo aledört að koma burfi dreifbýlinu sérstaklega til hjálpar. Sú hjálp berst að sjálfsögðu frá Reykjavík, menningarborginni miklu. Víkverji er þakklátur fyrir að vera laus við þann hlægilega mis- skilning að eitthvað sem heitir ís- lensk menning fái þrifist í sam- komusölum og félagsheimilum úti á landi án þess að ríkisvaldið komi þar nærri. Honum sýnist líka sem málsvarar landsbyggðarinnar séu honum sammála um nauðsyn þess að hámenningin verði flutt út með skipulegum hætti frá suðvestur- hominu í hinar dreifðu byggðir landsins. Víkverji fagnar því ráðn- ingu „menningarfulltrúa lands- byggðarinnar á þróunarsviði Byggðastofnunar" og hlakkar til að geta farið um landið án þess að draga sífellt að sér kæfandi fnyk menningarleysisins. Jafnframt þessu veltir Víkverji því fyrir sér hvort ekki megi koma nágrönnum okkar í Færeyjum og á Grænlandi til hjálpar á þessu sviði. Eins og allir vita halda þessar þjóð- ir uppi einhverju sem þær telja til menningar í hallærislegri upphafn- ingu eigin sveitamennsku. Er ekki við hæfi að ráða nokkra „menning- arfulltrúa landvinningadeildar á út- þenslusviði Byggðastofnunar" til að koma þessu fólki til aðstoðar? Vík- verji minnir á að við Islendingar höfum skyldum að gegna sem for- ustuþjóð og menningarlegt stór- veldi í þessum heimshluta. Að auki ber okkur skylda til að kynna ein- stæða menningu okkar öðmm þjóð- um. Og það er eins gott fyrir þær að kunna að meta það fórnfúsa starf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.